Morgunblaðið - 18.08.1996, Blaðsíða 12
12 SUNNUDAGUR 18. ÁGÚST 1996
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Erbakan vill nýtt
bræðralag múslimaþjóða
Aftur í
austurátt?
Tyrkland er byggt múslimum en á aðild að
Atlantshafsbandalagínu, NATO, og þar ríkir
lýðræði þótt brokkgengt sé. Nýlega tók þar
við völdum í fyrsta sinn í 73 ár ríkisstjóm
undir foiystu heittrúarmúslima og hyggst
hún efla mjög samskiptin við önnur ríki
múslima, ekki síst íran og írak, segir í grein
Kristjáns Jónssonar. Bandaríkjamenn telja
þessi tvö ríki mikilvægustu hreiður alþjóð-
legra hermdarverkamanna og em uggandi
vegna þessarar þróunar
FYLGI Velferðarflokks
Neemettins Erbakans,
hins nýja forsætisráð-
herra Tyrklands, hefur
aukist úr 8% í 20% á aðeins fjórum
árum. Segja stjórnmálaskýrendur
að spilling meðal ráðandi afla,
efnahagserfíðleikar og valdabar-
átta milli forystumanna annarra
helstu flokka í landinu, sem nær
allir eru veraldlegir og andvígir
ofsatrú, hafí verið vatn á myllu
Erbakans.
Flokkur hans höfðar fyrst og
fremst til fátæks alþýðufólks, er
vel skipulagður, nýtir sér tölvu-
tækni og ýmsar vestrænar bar-
áttuaðferðir. Flokksleiðtoginn
virðist geta ýtt mikilvægum
stefnumálum til hliðar þegar það
hentar; fótgönguliðarnir sýna hon-
um samt algera hollustu.
Fyrst í stað virtist Erbakan
gera sér far um að lægja öldurnar
og sannfæra jafnt vestræna ráða-
menn sem innlenda andstæðinga
um að ekkert væri að óttast.
Ýmsar yfírlýsingar hans síðustu
daga og vikur um nýtt bræðralag
með öðrum þjóðum islams og við-
leitni til að efla siðareglur trúar-
innar í landinu hafa hins vegar
valdið ótta við að Tyrkir séu að
hverfa frá áratuga langri sam-
vinnu sinni við vestrænar þjóðir
sem lagður var grunnur að
skömmu eftir að hið forna heims-
veldi soldánsins hrundi í fyrri
heimstyijöld.
Erbakan hefur hvatt til þess að
haldinn verði „islamskur leiðtoga-
fundur“ með fulltrúum írans, ír-
aks og SýrlandS; ríkja sem Banda-
ríkjamenn og Israelar segja að
beri ábyrgð á flestum hryðjuverk-
um sem beint er gegn vestrænum
skotmörkum.
Erbakan var fyrr á árum óspar
á gagnorðar yfírlýsingar er hann
var í stjómarandstöðu. Hann for-
dæmdi aðild landsins að NATO
og hernaðarsamvinnu við ísrael,
var andvígur tollabandalaginu við
Evrópusambandið, mælti með
efnahagsbandalagi ríkja múslima.
Þrautseigja og kænska hins sjö-
tuga Erbakans eru orðiögð og
hann er fljótur að nýta sér þau
tækifæri sem bjóðast. Hann dró
þegar í land er hann sá að flokkur-
inn gat komist til valda með því
að milda afstöðu sína, verða stofu-
hreinn í pólitískum skilningi.
Er stjórnarsamstarf hægri-
flokka þeirra Mesuts Yilmaz og
Tansu Ciller var í andarslitrunum
leituðu þau bæði hófanna hjá Er-
bakan, þrátt fyrir yfirlýsingar
beggja um þá hættu sem framtíð
Tyrkja stafaði af uppgangi öfga-
manna. Ciller, sem er fyrrverandi
forsætisráðherra, hafði betur, hún
varð utanríkisráðherra í nýrri rík-
isstjórn undir forystu Erbakans í
júlí. Velferðarflokkurinn stóð við
sitt og hætti að beita sér fyrir
rannsókn á meintri spillingu Ciller
er hún gegndi embætti forsætis-
ráðherra.
Ciller hafði áður heitið því að
leggja allt í sölurnar til að hindra
framgang heittrúarmanna en af-
sakaði sig með því að hún hefði
ekki átt annarra kosta völ. Stjórn-
málaskýrendur voru auk þess
margir á því að rétta leiðin til að
stöðva Erbakan væri einmitt að
fela honum stjórnarforystu. Hann
myndi ekki geta uppfyllt kosn-
ingaloforð sín til handa fátækl-
ingum án þess að kollsigla efna-
hagnum. Flokksleiðtogarnir
myndu einnig fljótt verða jafn
spilltir og aðrir tyrkneskir póli-
tíkusar og því glata trausti al-
þýðufólks.
Minningar um heimsveldi
Tyrkjaveldi, sem tók við arfi
hins mikla ríkis araba á miðöldum,
NECMETTIN Erbakan, for-
sætisráðherra Tyrklands. Að
baki honum er málverk af
stofnanda nútímaríkis í Tyrk-
landi, Kemal Atatiirk, er
nefndur var Gráúlfurinn.
var öldum saman eitt af öflugustu
ríkjum heims, náði þá auk Tyrk-
lands yfir meginhluta Miðaustur-
landa allt að landamærum Persíu,
núverandi írans og réði löndum í
Norður-Afríku og á Balkanskaga.
Tyrkir voru bijóstvörn NATO í
suðausturhluta Evrópu í kalda
stríðinu og hérafli þeirra, um
500.000 manns, er hinn næst-
stærsti í bandalaginu, aðeins
Bandaríkjamenn hafa fleiri menn
undir vopnum. Herflugvöllurinn í
Incirlik, í suðausturhluta landsins,
gegndi lykilhlutverki í Persaflóa-
stríðinu gegn Saddam Hussein.
Bandarískar herflugvélar, sem
' halda uppi eftirliti yfir norðurhluta
íraks og veita Kúrdum þar vernd
fyrir ofsóknum Saddams, hafa enn
bækistöð í Incirlik.
Erbakan hvatti áður til þess að
þeim yrði vísað burt, kallaði þá
„hernámslið", en í júlí greiddi
flokkur hans atkvæði með því að
framlengja dvöl Bandaríkjamann-
anna um hálft ár. Ljóst er að
mestu réð þar þrýstingur af hálfu
Ciller og flokksmanna hennar en
heimildarmenn benda auk þess á
að ráðamenn í tyrkneska hernum
hefðu getað ákveðið að taka völd-
in ef Erbakan hefði haldið stefnu
sinni til streitu. Hershöfðingjarnir
hafa bak við tjöldin sagt að þeir
muni aldrei sætta sig við að Tyrk-
land, sem er veraldlegt ríki að
undirlagi stofnanda lýðveldisins,
Kemals Ataturks, hverfi af þeirri
braut og geri kennisetningar isl-
ams að grundvelli stjórnarfarsins.
Við hrun Sovétríkjanna hófu
Tyrkir að auka samstarf sitt við
múslimaþjóðir í fyrrverandi sovét-
ríkjum í Mið-Asíu sem margar
tala tungumál náskyld tyrknesku.
Erbakan hyggst ekki láta þar við
sitja, hann vill einnig bæta sam-
búðina við arabaríkin og íran.
Fyrr í vikunni fór hann í sína
fyrstu opinberu heimsókn og gegn
ráðum embættismanna í utanríkis-
ráðuneytinu varð íran fyrir valinu.
Þar undirritaði hann samning um
kaup á gasi fyrir um 23 milljarða
Bandaríkjadollara, um 1.500 millj-
arða íslenskra króna, á næstu 22
árum. Ætlunin er að flytja gasið
með ieiðslum um fjallahéruð
austurhluta Tyrklands. Sérfræð-
ingar benda á að ekki sé víst að
stjórnvöldum í Ankara takist að
fá fjármagn til þeirra miklu fram-
Blóðugar pólitískar hreinsanir í írak
Staða Saddams
þykir veikari en
nokkru sinni
The Daily Telegraph.
FREGNIR af blóðugum
hreinsunum, pyntingum og
aftökum pólitískra and-
stæðinga Saddams Husseins í Irak
þykja benda til að hann eigi undir
högg að sækja í dulinni valdabar-
áttu í landinu.
Saddam hefur áður gripið til
þess ráðs að taka andstæðinga sína
af lífi. Allt frá því að hann tók við
völdum árið 1979 hefur engum lið-
ist að starfa gegn honum.
Hreinsanirnar nú þykja hins vegar
umfangsmeiri en oft áður.
Nýlega bárust fregnir af tveim-
ur misheppnuðum tilraunum til að
ráða Saddam af dögum og í kjöl-
farið hafa allir þeir, sem minnsti
grunur leikur á að kunni að hafa
efasemdir um leiðtogann, verið
handteknir.
Heimildir í írak herma að 122
háttsettir yfirmenn í íraska hem-
um hafi verið teknir af lífi síðastlið-
inn mánuð.
Fjölmargir til viðbótar hafa ver-
ið í haldi við hrikalegar aðstæður
í fangelsum víðs vegar um írak
og margir látist af völdum pynt-
inga eða slæms aðbúnaðar.
Tuttugu saman í klefa
Eitt versta dæmið er af hundrað
yfírmönnum í hernum er voru lok-
aðir inni í Salamiyeh-fangelsinu í
borginni Mosul í norðvesturhluta
landsins. Mennirnir voru lokaðir
inni í sérstakri álmu og látnir dúsa
RÆÐA sem Hussein flutti í síðustu viku þykir til marks um að hann meti stöðu sína veikari en oft áður.
allt að tuttugu saman í Iitlum fjög-
urra manna klefum. Hitastig var
allt að fjörutíu gráður og létust
tæplega fjörutíu fanganna innan
nokkurra daga. Vakti þessi með-
ferð mikla reiði meðal lækna á
spítala fangelsisins og neituðu þeir
að undirrita dánarvottorð. Urðu
embættismenn að múta öðrum
læknum til að útvega nauðsynleg
skjöl, þannig að hægt yrði að af-
henda ættingjum líkin.
Það felst ákveðin kaldhæðni í
því að kveikjan að þessum hreins-
unum er sú að útlit er fyrir að
slakað verði á efnahagslegum
refsiaðgerðum Sameinuðu þjóð-
anna. Verða allt að tólf hundruð
embættismenn á vegum SÞ sendir
til írak til að tryggja að tekjur
af olíusölu renni til mannúðar-
mála.
„Saddam óttast að eftirlitsmenn
SÞ muni komast að því að mikil
andstaða sé við stjórn hans í írak
og nýta sér þær upplýsingar til að
knýja breytingar í gegn,“ sagði
Ayad Alawi, framkvæmdastjóri
íraskra útlagasamtaka í London.
„Hann hefur gripið til þessara að-