Morgunblaðið - 18.08.1996, Blaðsíða 6
6 SUNNUDAGUR 18. ÁGÚST 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Dole snýr
dæmínu við
BAKSVIÐ
Hafí einhver afskrífað Bob Dole sem
forsetaframbjóðanda verður sá hinn sami
að meta stöðuna upp á nýtt. Steingrímur
Sigurgeirsson segir Dole hafa styrkt
stöðu sína verulega á skömmum tíma,
en eftir sem áður eiga mjög erfiða
baráttu fyrir höndum.
NÆSTU vikur munu
leiða í ljós hvernig Bob
Dole, forsetaefni
Repúblikanaflokksins,
vegnar í baráttunni við Bill Clint-
on forseta. Tíu vikur eru til kosn-
inga og enn hefur Clinton tölu-
vert forskot í skoðanakönnunum.
Á rúmri viku hefur repúblikönum
hins vegar tekist að bæta stöðu
sína og ímynd flokksins langt
umfram það sem nokkur átti von
á. Þó .svo að vissulega sé á bratt-
ann að sækja er ekki lengur talið
útilokað að Dole eigi raunhæfan
möguleika á sigri.
Flokksþing repúblikana þykir
hafa tekist vonum framar þótt
tíminn einn muni leiða í ljós hvort
að það dugi til þegar upp er stað-
ið. I síðustu viku einkenndist and-
rúmsloftið í flokknum af svartsýni
og jafnvel uppgjafartón. Bob Dole
hafði ekki tekist að snúa umræð-
unni sér í hag eftir að hann vann
sigur í forkosningum repúblikana.
Margar yfírlýsingar hans þóttu
alls ekki til þess fallnar að auka
vinsældir hans og sjálfur þótti
hann þurr, gamall og önugur. Þá
bætti það ekki stöðuna að meiri-
hluti repúblikana á þinginu lenti
í miklum útistöðum við Clinton
vegna fjárlaga er leiddu til að
starfsemi hins opinbera lamaðist
um stundarskeið.
Orvæntingin horfin
Margir, ekki sist í herbúðum
repúblikana, voru farnir að efast
um að Dole myndi takast að glæða
kosningabaráttuna lífi og velgja
Clinton undir uggum, en forsetinn
hefur á síðustu mánuð-
um tekið frumkvæði í
hveiju málinu á fætur
öðru. Forskot forsetans
í skoðanakönnunum
mældist allt að tuttugu
prósentustig.
í byrjun síðustu viku kynnti
hins vegar Dole róttæka áætlun
um skattalækkanir, sem verður
kjarni þeirrar efnahagsstefnu, er
hann hyggst boða í kosningabar-
áttunni, og um síðustu helgi var
greint frá því að Jack Kemp, fyrr-
um ráðherra, yrði varaforsetaefni
hans í kosningunum. Kemp nýtur
mikilla vinsælda í Bandaríkjunum
en valið á honum kom þó verulega
á óvart, þar sem hann og Dole
hafa átt í hörðum deilum á undan-
förnum árum og oft ekki sparað
hvor öðrum kveðjurnar.
Það virðist hins vegar sem
Dole hafi hitt naglann á höfuðið
með valinu á Kemp og skoðana-
kannanir benda til að ört dragi á
milli hans og Clinton.
Þetta er þó ekki síst að þakka
ímyndarsmiðum flokksþingins í
San Diego sem sniðu þingið full-
komlega að þörfum sjónvarps. Að
mati margra er þetta eitthvert
best skipulagða flokks-
þing, sem haldið hefur
verið. Allt gekk upp og
ekkert varð til að spilla
ímyndinni líkt og þegar
harðlínumaðurinn Pat
Buchanan þrumaði yfir
flokksbræðrum sínum á flokks-
þinginu í Houston fyrir fjórum
árum og rauf samstöðuna.
Fullkomin sviðsetning
Sviðsetningin var á köflum full-
komin eins og þegar Nancy Reag-
an lýsti á tilfínningaþrunginn hátt
baráttu eiginmanns síns við Alz-
heimer-sjúkdóminn eða er Elisa-
beth Dole gekk um salinn og lýsti
mannkostum bónda síns.
Repúblikönum tókst sömuleiðis
að mýkja pólitíska ímynd sína og
áherslur. Þrátt fyrir að íhaldssöm
öfl ráði miklu í flokknum og hafi
mikil áhrif í til dæmis forkosning-
um tókst að halda þeim í skefjum
í San Diego. Vissulega voru,
ályktanir þær, sem samþykktar
voru flestar hveijar í anda íhalds-
samari hægrimanna en ræðu-
mennirnir er birtust bandarísku
þjóðinni á sjónvarpsskjánum boð-
uðu fijálslyndari og umburðar-
lyndari stefnu. Ágrein-
ingsmál á borð við fóst-
ureyðingar og réttindi
minnihlutahópa komu
vart upp á yfirborðið.
Colin Powell, fyrrum
formaður herráðsins,
og þingmaðurinn Susan Molinari
frá New York komu fram sem
öflugir fulltrúar blökkumanna og
kvenna, en repúblikanar hafa átt
mjög undir högg að sækja meðal
þeirra. Ræður þeirra Kemps og
Doles á fimmtudag þóttu jafn-
framt vel heppnaðar og útfærðar
en ekki frábærar. Hápunktur
þingsins verður því líklega í hug-
um flestra hin magnþrungna ræða
Powells.
Úrslit kosninganna munu lík-
lega ekki síst ráðast af því hvaða
mat kjósendur leggja á þetta sjón-
arspil. Hefur orðið raunveruleg
breyting á Repúblikanaflokknum
eða var fijálslyndið einungis yf-
irskin til að hylja hina raunveru-
legu harðlínustefnu flokksins? Er
skattastefna Doles raunhæf og
traustvekjandi eða einungis ódýr
kosningabrella sem ætlað er að
höfða til þeirrar andúðar sem
margir Bandaríkjamenn hafa. á
sköttum? Fyrstu viðhorfskannanir
eftir flokksþingið benda til að
kjósendur líti repúblikana mun
jákvæðari augum en fyrir þingið.
Ekki eru þó á allir á eitt sáttir
um þá andlitslyftingu er flokkur-
inn hefur fengið. Leiðarahöfundur
New York Times bendir á að
vissulega séu nú meiri líkur á að
frambjóðendur repúblikana nái
kjöri en áður. Þeir séu hins vegar
ekki lengur samkvæmir sjálfum
sér. Bæði Dole og Kemp hafi á
einni viku kúvent í mörgum mál-
um og varpað sannfæringu sinni
í þeim fyrir róða. Þeir geti því
lent í erfiðleikum hyggist þeir
gagnrýna Clinton í kosningabar-
áttunni fyrir hentistefnu og póli-
tíska tækifærismennsku.
Mikill meðbyr
Dole hefur mikinn meðbyr eftir
flokksþingið og tókst í raun að
gera það sem fáir áttu von á.
Valið á Kemp og sá kraftur og
baráttugleði sem einkenndi
flokksþingið hefur glætt framboð
hans nýju lífi. Herfræðingar
demókrata höfðu margir hveijir
nánast lýst því yfir að baráttunni
væri þegar lokið. Sagnfræðingar
framtíðarinnar myndu líta svo á
að tímabilið frá því að
Dole tryggði sér nægi-
legan fjölda kjörmanna
í forkosningum í mars-
mánuði og fram ti!
flokksþingsins hefði
verið sá tími er Clinton
tryggði sér annað kjörtímabil,
fyrstur forseta demókrata frá því
að Franklin Roosevelt var endur-
kjörinn árið 1936. Engum dettur
lengur í hug að gefa út slíkar
yfirlýsingar.
Það á aftur á móti eftir að
koma í ljós hvort honum tekst að
halda dampi. Þegar er ljóst að
demókratar munu halda uppi
hörðum árásum á efnahagsstefn-
una og reyna að sannfæra kjós-
endur um að hún muni valda koll-
steypu í ríkisfjármálum verði hún
framkvæmd.
„Betri mögu-
leikar en sam-
kvæmnin
horfin“
„ímyndin
mýkt með
frjálslyndum
ræðum"
ERLEIMT
Repúblikanar og Bob Dole í sókn eftir velheppnað flokksþing
Yfir 20 tegundir
afsófaborðumó lager
- Ýmsar viðartegundir
Suðurlandsbraut 54, sími 568 2866
FULLTRÚAR á flokksþingi repúblikana hylla Bob Dole og Jack Kemp að Iokinni ræðu Doles á fimmtudagskvöld.
Reuter
Loft-
ferðabann
á Súdan
ÖRYGGISRÁÐ Sameinuðu
þjóðanna samþykkti á föstu-
dagskvöld að setja loftferða-
bann á Súdan þar sem þarlend
stjórnvöld hafa neitað að fram-
selja þijá menn sem sakaðir eru
um að hafa reynt að ráða Hosni
Mubarak, forseta Egyptalands,
af dögum í fyrra. Ferðabannið
tekur þó ekki gildi fyrr en eftir
þijá mánuði að minnsta kosti.
12 ríki studdu bannið og ekkert
ríki greiddi atkvæði gegn því,
en Kína og Rússland sátu hjá.
Grænfrið-
ungar
handteknir
LÖGREGLAN í Seattle í
Bandaríkjunum handtók á
föstudag ellefu Grænfriðunga
sem tóku þátt í mótmælum
gegn veiðum bandarískra verk-
smiðjuskipa í Norður-Kyrra-
hafi. Grænfriðungarnir hlekkj-
uðu sig við fjóra togara til að
koma í veg fyrir að þeir gætu
siglt á miðin en kafarar voru
fengnir til að losa keðjurnar.
28 manns tóku þátt í mótmæl-
unum, sem eru liður í nýrri
herferð Grænfriðunga fyrir
banni við veiðum togara sem
vinna aflann um borð.
Deutch búinn
að fá nóg
JOHN Deutch, yfirmaður CIA,
bandarísku leyniþjónustunnar,
hefur skýrt vinum sínum frá
því, að hann sé búinn að fá sig
fullsaddan á starfinu og hyggist
hætta um
næstu ára-
mót. Kom
þetta fram í
The Wash-
ington Post.
Blaðið hef-
ur eftir
ónafngreind-
um heimilda-
mönnum
utan og innan ríkisstjómarinn-
ar, að Deutch hafi rætt um að
hætta í desember. „Hann hefur
aldrei verið ánægður með þann
anda, sem ríkir innan CIÁ, og
saknar Pentagons (bandaríska
hermálaráðuneytisins) þar sem
honum líkaði vel,“ er haft eftir
kunningja hans.
Talsmaður CIA neitar, að
Deutch sé á förum, en blaðið
segir, að vinir hans og sam-
starfsmenn hafi þó aðra sögu
að segja og fullyrði, að hann
vilji hætta.
John Deutch