Morgunblaðið - 18.08.1996, Side 2
MORGUNBLAÐIÐ
2 SUNNUDAGUR 18. ÁGÚST 1996
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Stúlka sem tekin var með kókain á Kastrup í febrúar enn í varðhaldi
Ungt fólk oft auðveld
bráð í Kaupmannahöfn
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
TVITUG íslensk stúlka, sem var
handtekin í febrúar á Kastrup-flug-
velli með 2'h kíló af kókaíni situr
enn í gæsluvarðhaldi, þar sem rann-
sókn á máli hennar er ekki lokið.
Að sögn Eriks Bjorns yfirmanns
hjá eiturlyfjalögreglunni í Kaup-
mannahöfn er málið umfangsmikið
og rannsókn seinleg sökum þess
hve margir koma þar við sögu. í
samtali við Morgunblaðið sagði
Bjorn að ungt fólk sem kæmi til
borgarinnar án húsnæðis og at-
vinnu gæti verið auðveld bráð fyrir
þá, sem leita að fólki til að smygla
eiturlyfjum.
Islenska stúlkan var að koma frá
Montevídeó í Úrúgvæ, þegar árvök-
ull tollþjónn stöðvaði hana. Kókaín-
ið var í handtösku, sem hún hafði
með sér. Líklegast þykir að hún
hafi verið fengin til að takast þessa
ferð á hendur og sækja efnið, verið
„burðardýr" fyrir söluaðila. Rann-
sóknin er seinleg, því takmarkið er
að ná í þá sem standa að sölu og
dreifingu, en ekki aðeins þá sem
fara í sendiferðirnar.
Stór hluti eiturlyfjamarkaðarins
í Kaupmannahöfn er í höndum Afr-
íkubúa og erfítt hefur reynst að
hafa hendur í hári þeirra. Söluverð-
mæti efnisins á götunni fer eftir
því hversu sterkt það er og hversu
mikið er hægt að þynna það, en
algengt verð er um ellefu þúsund
íslenskar krónur fyrir hvert gramm.
Fleiri íslendingar
yfirheyrðir
Að sögn Eriks Bjorns hafa fleiri
íslenskar stúlkur verið yfírheyrðar
vegna málsins. Bjorn vildi ekki tjá
sig um mál stúlkunnar, en segir að
mörg smyglmál af þessu tagi fylgi
svipuðu mynstri.
Stúlkur, en stöku sinnum ungir
menn, sem hvorki hafa atvinnu né
húsaskjól, séu oft auðveld bráð fyr-
ir menn, sem bjóði ókeypis flug-
ferð, dvöl á lúxushóteli, vasapen-
inga og þóknun fyrir að sækja tösku
eða pakka til Suður-Ameríku. Mikil-
vægt sé að hafa í huga að „frels-
andi englar“ séu ekki til og þeir sem
beri upp slík gylliboð vilji fá eitt-
hvað fyrir sinn snúð.
Bjorn sagði að það væru tvær
hliðar á því að takast á hendur
svona smygl. Annars vegar væri
verið að ganga erinda skrattans og
flytja inn efni, sem leiddi hörmung-
ar yfír fólk er væri þeim ánetjað.
Hins vegar væri áhættan gífurleg
fyrir þá sem tækju slíkar sendiferð-
ar að sér og ekki væri of djúpt í
árinni tekið að að segja að það
gæti lagt lífið í rúst fyrir þá sem
verða teknir.
Til þess að komast hjá að verða
auðveld bráð fyrir áðurnefnd gylli-
boð sagði Bjern að tryggast væri
fyrir ungt fólk, sem hyggðist koma
til Kaupmannahafnar að vera búið
að tryggja sér húsnæði og atvinnu
áður en það kæmi hingað til dvalar.
Fastar dómavenjur
í Danmörku
Fastar venjur eru í Danmörku
um hvernig dæmt er í smyglmálum
og er þá dómurinn í samræmi við
smyglmagnið. Fyrir smygl á því
magni, sem stúlkan hafði með sér,
hefur viðkomandi venjulega verið
dæmdur í 5-6 ára fangelsi, sem er
þung refsing í dönsku réttarkerfi,
enda smygl af þessu tagi litið alvar-
legum augum. Hinn dæmdi þarf
venjulega ekki að afplána allan
dóminn, heldur hefur tækifæri til
að stytta tímann með góðri hegðun
og á einnig kost á að vera látinn
laus til reynslu.
Það breytir því ekki að smygl af
þessu tagi er mjög alvarlegt brot
og það gerist aðeins nokkrum sinn-
um á ári að svo mikið magn er tek-
ið á flugvellinum.
RÉYKJAVÍKURBORG efnir til
„hvíldardags bílsins" næstkomandi
fímmtudag. Ingibjörg R. Guðlaugs-
dóttir, yfírskipulagsfræðingur
Borgarskipulagsins, segir að til-
gangurinn með deginum sé að vekja
fólk til umhugsunar um áhrif bíla-
umferðar á umhverfíð, heilsu fólks
og kostnaðinn við bílaeign.
„Við vonum að fólk staldri við
°g spyrji sjálft sig að því hvort ef
til vill sé ástæða til að nota strætis-
vagna meira á lengri leiðum og
hjóla eða ganga á styttri leiðum,“
sagði Ingibjörg og lagði áherslu á
að, dagurinn yrði á léttu nótunum.
Honum tengdust ýmiss konar uppá-
komur en hvorki boð né bönn.
Hún sagði að samhliða átakinu
Björk í
Loftkast-
alanum
BJÖRK Guðmundsdóttir og
Sindri sonur hennar brugðu
sér á sýningu Skara skrípó í
Loftkastalanum á föstudags-
kvöldið.
Björk kvaðst vera hér á
landi í tveggja daga fríi, en
hún hefði ekki átt almennilegt
frí í eitt og hálft ár. Ekki var
annað að sjá en að hún
skemmti sér hið besta og sömu
sögu er að segja um unga fólk-
ið, sem er með Björk og Ósk-
ari Jónassyni á myndinni.
Eldsmíði
haldið við á
einum stað
AÐ UNDANFÖRNU hefur
staðið yfir námskeið í eld-
smíði hjá vélaverkstæði Jósa-
fats Hinrikssonar, en iðn-
greinin hefur átt undir högg
að sækja í nútímanum.
Um miðja öldina voru eld-
smiðir á hveiju einasta véla-
verkstæði, en nú er svo kom-
ið að aðeins eitt verkstæði í
Reykjavík ræður yfir afli, þar
sem eldurinn er kyntur og
blásinn. Danskur leiðbeinandi
hefur kennt íslendingunum á
námskeiðinu og hefur hann
komið seinustu sumur til
þeirra verka.
Annað námskeið hefst í
byijun vikunnar, en þar
smíða menn meðal annars
hnífa úr bílgormum og belt-
issylgjur.
Morgunblaðið/Ásdís
yrði efnt til átaks til að fá fólk til
að aka saman. „Ef fólk getur ekki
fengið far með nágrönnunum eða
vinnufélögunum gefum við þvi kost
á að hringja í Borgarskipulagið og
gefa upp nafn og símanúmar. Við
ætlum svo að reyna að leiða fólk
saman,“ sagði hún. Veggspjöld með
slagorðinu „Ökum saman“ verða
hengd upp í tengslum við átakið.
Reykjavikurborg er aðili að evr-
ópsku samtökunum Carfree-Cities
Network. Samtökin styrkja tilraun-
ina um 1,2 milljónir. Eitt skilyrð-
anna fyrir styrknum er að skilað
verði skýrslu um árangur dagsins.
Rúmlega tveir Reykvíkingar eru á
hvern bíl í borginni eða heldur
meira en í öðrum Evrópulöndum.
Flóttafólki aldrei
verið beturtekið
► Nokkrir nýju íslendinganna frá
Júgóslavíu eru komnir í fasta vinnu
á ísafirði og allir eru þeir farnir
að glíma við íslenskunám fullir
eldmóðs þó þeir hafi ótrúlega og
óhugnanlega reynslu að baki. /10
Aftur í austurátt
►Erbakan vill nýtt bræðralag
múslimaþjóða. /12
Sem tónlist eins og
ég vil heyra hana
► HaukurTómasson tónskáld í
víðtali, en hann hefur fengið mikið
lof fyrir leikverkið „Fjórða söng
Guðrúnar" sem frumflutt var í
Kaupmannahöfn á dögunum. /18
Ostamaðurinn
á horninu
►í Viðskiptum og atvinnulífl á
sunnudegi er rætt við Þórarinn
Þórhallsson í Ostahúsinu í Hafnar-
firði. /20
B
► 1-32
Ljós úr bæjalæknum
►í Svínadal í Skaftárhreppi var
bæjarlækurinn virkjaður fyrir
rúmlega 70 árum og ábúendur
verið sjálfum sér nógir í raforku-
vinnslu síðan. Rætt er við bræð-
urna Eirík og Jón Bjömssyni í
Svínadal um raforkubúskap fyrr á
öldinni og fleira. /1 og 16-17
Ómetanleg reynsla
► Þrír Egyptar voru hér við
nám í Jarðhitaskólanum, og tveir
stýra nú vatnsleit og borunum í
heimalandi sínu. /2
Tónlistarmaður
íhálfaöld
►Jónas Þórir Dagbjartsson, tón-
listarmaður, sem er sjötugur í dag,
á að baki langt og farsælt starf í
tónlistinni. /4
c
FERÐALOG
► 1-4
Miinchen
►Á Marienplatz er iðandi mannlíf
frá morgni til kvölds. /2
Golfog búðarráp
í sömu ferð
►Úrval-Útsýn býður kylfingum
upp á spennandi möguleika, golf-
' og verzlunarferð til Halifax í
Kanada. /4
BÍLAR_____________
► 1-4
Torfærumeistari
í jeppaakstri
► Hollendingaryfir sig hrifnir af
íslenskri jeppamenningu. /3
Reynsluakstur
►Góðar endurbætur á NISSAN
TERRANOII með nýrri dísilvél. /4
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/8/bak Idag 36
Leiðari 24 Fólk I fréttum 38
Helgispjall 24 Bíó/dans 40
Reykjavíkurbréf 24 íþróttir 44
Skoðun 26 Útvarp/sjónvarp 45
Minningar 27 Dagbók/veður 47
Myndasögur 34 Gámr 8b
Bréf til blaðsins 34 Mannlífsstr. 8b
Brids 36 Dægurtónl. 12
Stjömuspá 36 Kvikmyndir 14b
Skák 36
INNLENDAR FRÉTTIR:
2-4-8-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR:
1&6
Viðhorf til fullyrðinga um sparnað og neyslu
Mig langar til að spara
en finnst það erfitt
Kaup á verðbréfum og hlutabréfum er
of áhættusöm fjárfesting fyrir mig
Ég leita yfirleitt að lægsta vöruverði
þegar ég fer að versla
Ég læt stundum eftir mér
að kaupa hluti sem eru óþarfir
Ég velti fyrir mér hverri krónu
þegar ég kaupi inn til heimilisins
Ég er farin(n) aö hugsa meira um
í hvað ég eyði peningunum
... Mér hættir til að eyða peningum
hugsunarlaust
Ég er alltaf með augun opin fyrir
útsölum og sértilboðum
Ég eyði meira þegar ég
er með kreditkort
NEYSLUKÖNNUN FÉLAGSVÍSINDASTOFNUNAR1996. Úrtak 1.200 manns, 882 svöruðu.
ÞÝÐI neyzlukönnunarinnar, þ.e. sá hópur þjóðarinnar sem úrtakið var tekið úr.eru allir Islendinaar
á aldrinum 14-80 ára. Þetta eru 185.173 einstaklingar, samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Isl.
Hvert prósentustig I könnuninni samsvarar því um 1.850 manns. Taka veröur tillit til skekkjumarka,
sem eru á niöurstöðum I könnun sem þessari, þegar prósentustig eru umreiknuð I mannfjölda.
„Hvíldardagnr bílsins“ á fimmtudag
Almenningur vakinn
til umhugsunar