Morgunblaðið - 03.03.1991, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. MARZ 1991
FORMAHNSKJOR I SJALFSTJEÐISFLOKKNUM
Dr. Þór Whitehead sagnfræðingur:
í SJÁLFST /EÐISFLOKKNUM
HEFUR ALDREIVERIÐ NEIH
LOGNMOLLA
Dr. Þór Whitehead.
„MARGIR eru haldnir þeirri ranghugmynd
að hér fyrr á árum hafi Sjálfstæðisflokkur-
inn verið mikið kærleiksheimili þar sem
aldrei hafi komið upp deilur um forystu-
menn, fyrr en Gunnar Thoroddsen mynd-
aði sína ríkisstjórn. Sannleikurinn er hins
vegar sá að það hafa verið átök í Sjálfstæð-
isflokknum alveg frá upphafi og meðal
annars dróst stofnun flokksins á langinn
vegna þess að menn gátu ekki komið sér
saman um hver ætti að verða formaður.
Atök um formannssætið nú eru því engin
nýlunda hvað það snertir,“ sagði Dr. Þór
Whitehead, prófessor í sagnfræði og for-
seti heimspekideildar Háskóla íslands.
1 Jór benti á að við myndun Þjóðstjómar
JL 1939 hefðu hafist átök í Sjálfstæðis-
flokknum, en hann fór þá í ríkisstjóm með
eins atkvæðis mun í þingflokknum: „Þetta var
öðrum þræði vantraust á Ólaf Thors og eins.
konar uppreisn gegn honum, þótt einnig hafi
verið deilt um málefni. Þessar deilur komu
fram með ýmsum hætti næstu árin og þeim
lauk ekki fyrr en flokkurinn klofnaði við stofn-
un Lýðveldisflokksins árið 1953. Á sama tíma
er að koma upp ágreiningur milli Gunnars
Thoroddsens annars vegar og Ólafs Thors og
Bjama Benediktssonar hins vegar, eftir for-
setakosningarnar 1952. Frá þeim tíma og þar
til Gunnar varð sendiherra 1965 vom væring-
ar og spenna í flokknum. Nýtt tímabil átaka
hófst svo þegar Gunnar kom heim og sóttist
á ný eftir völdum í flokknum eftir 1970, sem
náði hámarki þegar Gunnar myndaði ríkis-
stjómina 1980. Samtímis kom upp hópur
manna í kringum Albert Guðmundsson, sem
myndaði eins konar samfylkingu með Gunnars-
mönnum gegn Geir. Það endaði svo aftur með
klofningi Sjálfstæðisflokksins 1987 þegar
Borgaraflokkurinn var stofnaður.
ÍJt af fyrir sig er óeðlilegt að ætlast til að
flokkur, sem um 40% þjóðarinnar kýs í kosn-
ingum, geti verið alveg einhuga um forystu-
menn og málefni. Menn mynda flokka um
ákveðin meginsjónarmið, en í lýðræðisþjóðfé-
lagi er eðlilegt að menn takist á um forystu-
menn og einstök mál. Lýðræðið hefur leikregl-
ur til að útkljá slíkan ágreining á friðsamlegan
hátt. Þessi samstaða, sem sumir leggja svo
mikla áherslu á, getur verið einkenni stöðnun-
ar eða bælingar og í því tilfelli er samstaðan
ekkert annað en svikalogn, sem getur endað
með mjög heiftarlegum átökum milli manna.
Það hefur >erið sagt að Islendingar kunni
ekki að deila og að mörgu leyti á það við um
fyrri átakasögu Sjálfstæðisflokksins. Sjálfur
get ég vottað um það, eftir áratuga starf í
flokknum, að þar hefur alltaf ríkt mikil hræðsta
við kosningar milli manna. Þetta hefur einnig
komið fram nú, þegar því er líkt við hnífstung-
ur og skemmdarverk að varaformaður flokks-
ins gefí kost á sér í formannskjöri.
Sú keppni sem nú fer fram tengist á engan
hátt fyrri átökum í Sjálfstæðisflokknum. Hér
er um að ræða tvo menn sem koma úr sama
hópnum og hafa nánast sömu skoðanir á helstu
þjóðmálum. Það er því fráleitt að bera þetta
saman við það þegar varaformaður flokksins
myndaði ríkisstjóm í trássi við meirihluta þing-
flokksins, sem var afleiðing af áratuga illdeii-
um og tortryggni. Að mínu mati er formanns-
slagurinn nú tímanna tákn. Að því leyti er ég
sammála því sjónarmiði sem fram hefur komið
hjá Etlert B. Sehram að þessi keppni væri til
marks um að nútíminn væri loksins að sigra
í Sjálfstæðisflokknum. Og ef við lítum á þetta
formannskjör í samhengi við prófkjör, þar sem
þingmenn verða að keppa um sæti sín á Al-
þingi, er ekki óeðlilegt að forystumenn flokk-
anna keppi innbyrðis um embætti innan flokks-
ins. Það er að minnsta kosti óeðlilegt að gera
ráð fyrir að formenn sitji ævilangt eða svo
lengi sem þeir sjálfír kjósa.
Með breyttum tímum er kosningabarátta
flokkanna mun styttri og snarpari en áður.
Hún stendur í rauninni ekki yfir nema í viku
fyrir kosningar og endar á þjóðmálafundi for-
manna flokkanna í sjónvarpi kvöldið fyrir kjör-
dag. Þess vegna er ég ekki sammála þeirri
líkingpi formanns Sjálfstæðisflokksins, að hann
standi í miðju straumvatni. Ég lít svo á að
raunveruleg kosningabarátta sé ekki hafin og
Sjálfstæðisflokkurinn sé ekki kominn út í
straumvatnið heldur standi hann nú á bakkan-
um og þurfi að taka ákvörðun um hver eigi
að leiða flokkinn yfir ána. Það er landsfundar-
ins að taka ákvörðun um það og eins hitt,
hver eigi að hafa forystu um stjómarmyndun-
arviðræður af hálfu flokksins og hugsanlega
sitja í forsæti ríkisstjómar að loknum þeim
viðræðum."
Sv.G.
Dr. Svanur Kristjánsson
stjórnmálafræðingur:
lÍNSDÍMÍT
SÖGU SJÁLFSTÆÐIS-
FLOKKSINS
Dr. Svanur Kristjánsson.
„ AÐ MÍNU mati er nauðsynlegt að setja
þessi átök í Sjálfstæðisflokknum í sam-
hengi við þær breytingar sem orðið hafa
í íslenskum stjórnmálum á undanförnum
tveimur áratugum," sagði dr. Svanur
Kristjánsson, prófessor í stjórnmála-
fræði og forseti félagsvísindadeildar
Háskóla íslands. „Upp úr 1970 urðu mik-
il umbrot í íslenskum stjórnmálum sem
lýstu sér meðal annars í því að tök flokk-
anna á kjósendum minnkuðu og verulega
dró úr hollustu kjósenda við stjórnmála-
flokka. Á sama tíma hefur samheldni
innan flokkanna minnkað,“ sagði Svanur
ennfremur.
Þótt talsvert hafi verið rætt um innbyrð-
isátök í Sjálfstæðisflokknum allt frá
því er Bjami Benediktsson féll frá árið 1970
er rétt að undirstrika að slík átök eru ekki
bundin við Sjálfstæðisflokkinn einan. Það
hafa komið upp harðar deilur í öðrum flokk-
um líka. í Alþýðuflokknum var þrisvar sinn-
um skipt um formann með stuttu millibili,
og í öll skiptin í andstöðu við þann formann
sem var fyrir og í kjölfar kosningaósigra.
Ólafur Ragnar var á sínum tíma kjörinn
formaður í Alþýðubandalaginu í andstöðu
við þorra manna í þingfiokknum. Það var
líka eftir kosningaósigur Alþýðubandalag-
ins. Og þótt ekki hafi verið átök um for-
mann Framsóknarflokksins á undanfömum
ámm hafa verið átök í þeim flokki, sem
meðal annars hafa komið fram í sérframboð-
um og nýlegt dæmi eru þær deilur sem
urðu út af framboðsmálum í Reykjavík.
Formannsátökin í Sjálfstæðisflokknum nú
em því ekki einsdæmi, en þau eru sérstæð
að því leyti að þau verða ekki í kjölfar kosn-
ingaósigurs heldur þvert á móti þegar
flokknum er spáð velgengni í skoðanakönn-
unum.
Átökin á milli Gunnars og Geirs á sínum-
tíma áttu sér sögulegar rætur allt aftur til
ársins 1952, og það sem gerði þær dramat-
ískari en ella var stjórnarmyndun Gunnars
1980 en þá var Sjálfstæðisflokkurinn í þeirri
sérkennilegu stöðu að vera bæði innan og
utan ríkisstjórnar. Eins má segja að deilur
Alberts og Geirs hafi átt sér lengri aðdrag-
anda og aðrar forsendur en þau átök sem
nú eru komin upp. Þess ber einnig að gæta
að eftir 1970 hafa prófkjör valdið meiru
spennu innan flokkanna en áður og síðan
þau vom innleidd hafa flokkarnir ekki starf-
að eftir sömu hefðum og reglum og áður.
Hins vegar er ljóst, að átökin nú milli
Davíðs og Þorsteins eru einsdæmi í sögu
Sjálfstæðisflokksins og alls ekki sambærileg
við það sem á undan er gengið. Þorsteinn
og Davíð em báðir innanbúðarmenn í valda-
kjarna flokksins, koma úr sama hópi, eru á
svipuðum aldri og hafa verið nánir sam-
starfsmenn. Það er því dálítið einkennilegt
að stuðningsmenn þeirra tala dálítið í kross.
Stuðningsmenn Þorsteins höfða til flokks-
hollustu og þeirrar hefðar að standa vörð
um formann flokksins, og em rök þeirra
ekki ósvipuð þeim sem Geirsmenn notuðu á
sínum tíma í deilunum við Gunnarsarminn.
Davíðsmenn vísa hins vegar til fylgis Davíðs
meðal kjósenda og að sá stjómmálaflokkur
sem ekki tefli fram hæfasta foringjanum á
hveijum tíma verði undir í samkeppninni
við aðra flokka. Þar er með öðmm orðum
verið að vísa til þess að breyttir tímar kalli
á önnur vinnubrögð en þau sem tíðkast
hafa til þessa.“
Aðspurður kvaðst Svanur ekki vilja spá
um hvort þessi átök gætu hugsanlega skað-
að Sjálfstæðisflokkinn f komandi kosning-
um. í þeim efnum gæti bmgðið til beggja
vona: „En það skiptir vissulega miklu máli
fyrir flokkinn að þessi átök verði til lykta
leidd með skaplegum hætti, þótt erfitt sé
að sjá á þessu stigi hvernig það verði best
tryggt. Og þótt margir haldi því fram að
hér sé aðeins verið að velja á milli manna
en ekki málefna er hugsanlegt, að deilur
um hugmyndafræði og stefnu Sjálfstæðis-
flokksins geti blandast inn í þetta að ein-
hveiju leyti, til dæmis í afstöðu til þjóðar-
sáttarinnar. Að mínu mati er það -engin til-
viljun, að sá sem mest hefur haft sig í
frammi gegn framboði Davíðs er Einar
Oddur Kristjánsson, formaður Vinnuveit-
endasambands íslands."
Sv.G.
INTERNATIONAL
MASA fyrirtækið býður mikið úrval íbúða, raðhúsa
og einbýlishúsa, eða milli 35-40 mismunandi gerðir
og stærðir, allt frá litlum „studíó“-íbúðum upp í glæsi-
leg einbýlishús og á verði sem erfitt er að slá út. 10
ára ábyrgð er á öllum byggingum fyrirtækisins. Verð
á húsum og íbúðum MASA er mjög mismunandi, eða
allt frá ísl. kr. 1.500.000,- og upp í rúmar 8.000.000,-
fyrir glæsilegt einbýlishús á stórri lóð og allt þar á
milli. Allar lóðir eru eignarlóðir og eru innifaldar í
uppgefnu verði. Famar eru skoðunarferðir til Spánar,
dvalið á eigin hóteli MASA og verið í 4-5 daga. Fullt
fæði er innifalið. í ferðinni eru skoðuð þau 5 svæði,
sem fyrirtækið nú er að byggja á og eru húsin og
íbúðimar sýndar tilbúnar með öllum húsgögnum og
fullbúnu eldhúsi. 2-3 daga tekur að skoða þetta allt
og einnig em í söludeild fyrirtækisins góðar ljósmynd-
ir til að skoða nánar, t.d. á kvöldin í rólegheitum eftir
að heim á MASA hótelið er komið. Það skal tekið
fyrirtækió hefur einnig hafið byggingaframkvæmdir á
f WIMmFÍ hinum undurfagra stað, CALA MURADA á suðausturhiuta
Mallorca, og eru fyrstu sýningarhúsin tilbúin nú þegar. Þar er sérstaklega
glæsileg aðstaða fyrir golf- og siglingaáhugafólk.
Nánar verður auglýst síðar skoðunarferð til Mallorca.
spænska stórfyrírtækið á Suður-Spáni, nánar tiltekið við
bæinn Torrevieja, hefur haldið innreið sína á íslandi með
íslenskum umboðsaðilum, ásamt íslensku starfsfólki í
þjónustumiðstöð fyrirtækisins
á Spáni, sem erjafnan opin.
fram, að MASA byggir í öllum hverfum þjónustu-
kjama, svo sem heilsugæslu, kjörbúðir, verslanir af
ýmsu tagi, veitingastaði, o.fl., o.fl. 1-2 bankar em
einnig í hverfunum svo ekki þarf að fara langt í þá
þjónustu. Sundlaugar, tennisvellir, minigolf og keilu-
vellir eru einnig til staðar. Margt annað mætti upp
telja, svo sem að allar götur eru malbikaðar, allar
gangstéttar frágengnar, götulýsing og „græn svæði“
eru 40% af hverju hverfi. Allt þetta er framkvæmt
af MASA fyrirtækinu. Allar nánari upplýsingar
ásamt 24ra síðna litamyndalista frá MASA fyrirtæk-
inu eru hjá umboðsaðilum. Sendum um allt land.
Gjörið svo vel og Ieitið upplýsinga. Útvegum einnig
leiguhúsnæði af öllum stærðum og bílaleigubíla.
Mánaðarlegar skoðunarferðir.
ábyrgir aðilar
í áraraðir
UMBOÐIÐ Á ÍSLANDI,
Pósthólf 365, 202 Kópavogi, sími 44365.
Vinsamlegast sendið mér myndalistann:
Nafm....................................
Heimilisfang:...........................
Póstnúmer:..............................
Sími:...................................
iuó>OFit>n«sH ui-i
r>sas3 xs4»oos»a-te tmta
aosH
ujtöííóm éit Bn>Iiv S
.uleðistp