Morgunblaðið - 03.03.1991, Blaðsíða 41
MORGUNBLÁÐIÐ
ÚTVARP/SJÓIUVARP
lAVHI QiGAjavjuaHOM
SUNNUÐAGUft -8. MARZ-1991-
41
2.00 Fréttir. Nætursól Herdísar Hallvarðsdóttur
heldur áfram.
4.03 i dagsins önn. (Endurtekinn þáttur frá föstu-
degi á Rás 1.)
4.30 Veðurfregnir.
4.40 Næturtónar.
5.00 Fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum.
5.05 Landið og miðin. Sigurður Pétur Harðarson
spjallar við fólk til sjávar og sveita. (Endurtekið
úrval frá kvöldinu áður.)
6.00 Fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum.
6.01 Morguntónar.
AÐALSTÖÐIN
FM 90,9 / 103,2
10.00 Úr bókahillunni. Endurtekinn þáttur Guðriðar
Haraldsdóttur.
12.00 Hádegí á helgidegi. Randver Jensson.
13.00 Lífið er leikur. Sunnudagsþáttur Eddu Björg-
vinsdóttur leikkonu.
16.00 Ómur af Suðumesjum. Grétar Miller leikur
óskalög fyrir hlustendur.
19.00 Sunnudagstónar. Óperur, ariur og brot úr
sinfóníum gömlu meistaranna.
20.00 Sálartetrið og Á nótum vináttunnar (endur-
teknir þættir).
21.00 Lífsspegill. i þessum þætti fjallar Ingólfur
Guðbrandsson um atvik og endurminningar, til-
finningar og trú.
22.00 Úr bókahillunni. Umsjón Guðriður Haralds-
dóttir. Páttur um bækur og bókmenntir, rithöf-
unda og útgefendur, strauma og stefnur. Lesið
verður úr nýjum bókum og fjallað um þær á ein-
faldan og auðskiljanlegan hátt.
24.00 Næturdagskrá Aðalstöðvarinnar. Umsjón
Randver Jensson.
BYLGJAN
FM 98,9
9.00 í bítið. Upplýsingar um veður, færð og leikin
óskalög.
12-OOHádegisfréttir frá fréttastofu Bylgjunnar og
Stöðvar 2. Umsjón Elin Hirst.
12.10 Vikuskammtur. Ingi Hrafn Jónsson, Sigur-
steinn Másson og Karl Garðarsson reifa mál lið-
innar viku og fá til sín gesti í spjall.
13.00 Kristófer Helgason. Fylgst með þvi sem er
að gerast i iþróttaheiminum og hlustendur tekn-
ir tali.
17.00 Lífsaugað. Þórhallur Guðmundsson fær fólk
i létt spjall um allt milli himins og jarðar.
19.00 Eyjólfur Kristjánsson. Óskalög.
22.00 Heimir Karlsson og hin hliðin.
2.00 Heimir Jónasson á næturvaktinni.
EFFEMM
FM 95,7
10.00 Auðun Ólafsson. Tónlist.
13.00 Halldór Backmann fylgist vandlega með
skíðastöðum á höfuðborgarsvæðinu. Upplýsing-
ar um sýningar, kvikmyndahús o. fl. '
16.00 Páll Sævar Guðjónsson á sunnudagss-
íðdegi.
19.00 Ragnar Vilhjálmsson spjallarvið hlustendur.
22.00 í helgarlok. Anna Björk Birgisdóttir, Ágúst
Héðinsson og ívar Guðmundsson. Bréf frá hlust-
endum lesin og leikin óskalög.
1.00 Darri Ólason á næturvakt.
STJARNAN
FM 102/104
10.00 Jóhannes B. Skúlason. Sunnudagsmorgun.
14.00 Á hvíta tjaldinu. Þáttur um allt það sem er
að gerast i heimi kvikmyndanna. Umsjón Ómar
Friðleifsson.
18.00 Óskalög og kveðjur. Amar Albertsson.
22.00 Ólöf Marin Úlfarsdóttir. Stjömutónlist.
2.00 Næturpopp.
ÚTRÁS
FM 104,8
12.00 FÁ. Róleg tónlist.
14.00 MS.
16.00 Kvennaskólinn.
18.00 MR.
20.00 Þrumur og eldingar. Umsjón Sigurður Sveins-
son og Lovísa Sigurjónsdóttir.
22.00 MR.
01.00 Dagskrárlok.
Sjónvarpið:
Hljómgeislmn
tHrar enn
■■■ Allt frá árinu 1983 hefur hópur tónlistarfólks og
on 50 tónlistarunnenda unnið ötulega.að því að hrinda í fram-'
kvæmd áratuga gömlum draumi um byggingu sérstaks
húss er hýst geti tónlistarflutning af hinu fjölbreytilegasta tagi og
veitt honum verðugan ramma og hljómburð. Árið 1986 var efnt til
samkeppni um hönnun hússins meðal norrænna arkitekta og varð
Guðmundur Jónsson hlutskarpastur með snjallri hugmynd og út-
færslu. Reykjavíkurborg sýndi þá stuðning sinn við málið með veit-
ingu lóðar í Laugardal og loforði um utanhússfrágang.
Allt frá byrjun hefur áhugafólk um Tónlistarhúsið staðið fýrir fjár-
söfnun til styrktar málefninu og í haust leið gerðust 5000 heimili
styrktaraðilar í formi mánaðarlegra greiðslna. Þetta þótti áhugamönn-
um góð tíðindi og hefur nú verið gert samkomulag við VISA-ísland
og er korthöfum þessa daganna boðjð að gerast styrktaraðilar hinna
fyrirhuguðu framkvæmda. Vonast er til að góð svörun geti aukið
þrýsting á ríkisvaldið og að fýrsta skóflustungan verði tekin hið
fyrsta.
Til að minna á málefnið verður sýndur þáttur í Sjónvarpinu í
kvöld, Hljómgeislinn titrar enn, þar sem ýmsir kunnir listamenn
koma og túlka list sína hinum góða málstað til framdráttar. Þennan
hóp fylla Mezzoforte, Blásarasveit Reykjavíkur, leikarar undan Bláa
hattinum, Blúsmenn Andreu og Stroksextett úr Tónmenntaskóla
Reykjavíkur. Upptakan fár fram á Kjarvalsstöðum undir vökulu
auga Valgeirs Guðjónssonar en stjóm upptöku var í höndum Björns
Emilssonar.
Sjönvarpið;
Fyrsti þulurinn
■■■■ Sjónvarpið endursýnir í dag viðtalsþátt úr syrpunni Fólkið
nlO í landinu þar sem rætt er við merkiskonuna Sigrúnu Ög-
—“ mundsdóttur, sem réðist til starfa hjá Ríkisútvarpinu er
það tók til starfa árið 1930. Reyndar er vart við hæfi að telja Sigr-
únu til Fólksins í landinu því hún hefur búið erlendis um áratuga
skeið, en kom hingað til lands í boði Ríkisútvarpsins er það minntist
60 ára afmælis síns, 21. desember,
Sigrún Stefánsdóttir fréttamaður hitti Sigrúnu að máli, meðan á
dvöl hennar hérlendis stóð og var þátturinn sýndur 5. janúnar sl.
Hér er spjallað um fyrstu daga útvarpsins, en Sigrún talaði sig inn
í þjörtu þjóðarinnar á stuttum tíma, auk þess sem þessi fyrsta þula
Útvarpsins segir af llfi sínu og starfi.
Stöð 2:
inn við
beinið
■■■■ f þættinum Inn við
91 15 beinið, sem er á dag-
"A skrá Stöðvar 2 í
kvöld, mun Edda Andrésdóttir
fá til sín séra Auði Eyr Vil-
hjálmsdóttur. Auður, sem nú
er prestur í Kirkjuhvolspre-
stakalli, var fyrst íslenskra
kvenna til að læra til prests.
Ema Kettler stjórna útsendin-
unni.
Hvolpamir
■■■■ Leikrit mánaðarins á Rás 1, Hvolparnir, er á dagskrá í dag.
tfi 30 Leikritið er byggt á samnefndri skáldsögu eftir perúska
-19 “ rithöfundinn Mario Vargas Llosa en José Luis Gomez bjó
söguna til leikflutnings í útvarpi ásamt höfundi. Þýðandi er Berglind
Gunnarsdóttir. Upptöku önnuðust Friðrik Stefánsson og Hallgrímur
Gröndal. Leikstjóri er Þorsteinn Gunnarsson.
Leikritið gerist í Líma, höfuðborg Perú. Cuéllar, sem er sonur
efnaðra foreldra nýtur þar lífsins ásamt vinum sínum og skólafélög-
um. Dag nokkurn gerist þó atburður sem veldur stfaumhvörfum I
lífí hans.
Leikendur em Ingvar E. Sigurðsson, Baltasar Kormákur, Hilmar
Jónsson, Eriing Jóhannesson, Halldór Bjömsson, Edda Arnljótsdótt-
ir, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Kolbrún Erna Pétursdóttir, Elva
Ósk Ólafsdóttir, Margrét Pétursdóttir, Valgerður Dan, Lísa Pálsdótt-
ir, Kristján Franklín Magnús, Sigurður Karlsson, Baldvin Halldórs-
son og Pétur Einarsson.
A L L I R M E Ð
Nú er gott tækifæri til að skella sér í leikfimi og komast í gott form fyrir sumarið.
Þú getur mætt að vild í fjölmörg mismunandi námskeið á öllum tímum dags. Þér
mun líða betur, þú munt líta betur út og verða ánægðari
með lífið og tilveruna.
ÓTRÚLEGT TILB0Ð
Skelltu þér með og taktu tilboði okkar um ótakmarkaða mætingu í leikfimi í 3 mánuði
og 10 tíma í einum bestu ljósabekkjum landsins fyrir aðeins 8.990 kr.
Það gerist ekki betra.
• Líkamsrækt • Átak í megrun • Old boys • Dagtímar
• Fitubrennsla • Start • Jazzballett • Barnagæsla frá
• Vaxtarmótun • Fyrir barnshafandi • Morguntímar kl. 9.00-16.00
Hún Ásdís Samúelsdóttir byrjaði á námskeiðinu NÝR
LÍFSSTÍLL í október í haust. Fyrstu þijá mánuðina
missti hún 20 kfló og nú eru kflóin orðin 26. Slíkur
árangur getur náðst með því að breyta um
mataræði, stunda lrkamsrækt og fylgja þeim
ráðleggingum sem gefin eru á námskeiðinu
hjá HRESS.Við bjóðum þér að taka upp
"Nýjan lífsstfl" og þú munt ekki sjá eftir því.
"Ég get óhikað mælt með námskeiðinu NÝR LÍFSSTÍLL. Ég hef
aldrei náð jafn stórkostlegum árangri í baráttunni við aukakflóin"
GRÍPTU TÆKIFÆRIÐ 0G HAFÐU SAMBAND VIÐ 0KKUR í SÍIVIA 65 22 12
HRFSS
I.lKWlSRKRT OC IjOS
BÆJARHRAUM A/UIO KEHAVIKURVEGINN/SIMI6S2212
(