Morgunblaðið - 21.10.1987, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 1987
Getum við haft sjálf-
stæðan gjaldmiðil?
eftir Kristin
Pétursson
Ennþá einu sinni erum við í vand-
ræðum með verðbólguna. Nýjar
ráðstafanir er sífellt verið að gera.
Hvað fer mikill vinnutími stjóm-
mála- og embættismanna í undir-
búning þessara sífelldu „ráðstaf-
ana“ í efnahagsmálum? Þetta
virðist vera eilífðarvandamál. Eru
ráðgjafamir nothæfír? Hafa þessir
svokölluðu efnahagsráðgjafar og
aðrir sérfræðingar í æðstu stöðum
hjá ríkinu nægilega þekkingu á at-
vinnulífí þjóðarinnar? Það tel ég
vafasamt. Það er ekki nóg að hafa
falleg prófskírteini í einhverri fræði-
mennsku og takmarkaða þekkingu
á atvinnulífí þjóðarinnar. í efna-
hagsráðgjöf ætti ekki að ráða fólk
nema það hafí bæði falleg prófskír-
teini og viðurkennda starfsreynslu
í atvinnulífinu. Þessar linur em eki
settar á blað til þess að vera með
kjafthátt út i fræðinga. Þeir verða
bara að þola hreinskilna gagnrýni.
Af hverju?
Af hverju er ég að gagnrýna og
viðra nýja möguleika? Svarið er að
landsbyggðin fer sífellt halloka í
samkeppni við höfuðborgarsvæðið.
Sjávarútvegur skapar 80% af gjald-
eyri þjóðarinnar og fer sú starfsemi
aðallega fram á landsbyggðinni.
Sjávarþorpin og kaupstaðir á lands-
byggðinni em ekki bara vinnubúðir
til þess að framleiða ódýran gjald-
eyri til þess að innflytjendur geti
hagnast og ríkið smurt á tolla, vöm-
gjald og söluskatt á vömna sem
keypt er fyrir gjaldeyrinn. Raun-
vemlega em sjávarútvegsfyrirtæki
ekkert annað en þjóðnýttur rekstur
eins og málum er nú háttað. Afkom-
an verður að batna, með því að
réttlátari leikreglur verði settar en
nú tíðkast.
Til þess að byggðarlög á lands-
byggðinni geti staðist samkeppni
við höfuðborgarsvæðið þarf afkom-
an í sjávarútvegi að batna þannig
að fyrirtækin verði rekin með lág-
mark 20% ágóða næstu árin. 5%
til ráðstöfunar í tæknivæðingu og
framleiðniaukandi aðgerðir, 5% í
eigin varasjóð, 5% í hreinan hagnað
og 5% til þess að bæta kjör starfs-
fólks. Það síðastnefnda myndi bæta
kjör starfsfólks um 20—30%. Náist
þetta markmið ekki þá mun enn
síga á ógæfuhliðina. Sfðustu tölur,
sem ég hef séð um eiginfjárstöðu
sjávarútvegsfyrirtækja, vom 7%
hrein eign en 93% skuldir. Þessi
staða er til skammar. Ef eitthvað
er rangt í þessu eiginfjármati þá
em eignir of hátt metnar, því sífellt
er verið að reyna að ýta matinu á
eignunum upp til þess að hafa nú
eitthvað til þess að veðsetja! Þetta
er nú sanleikurinn um stöðu
grundvallaratvinnuvegs þjóðar-
innar þótt enginn vilji ræða það.
Hver er vandinn?
Vandinn felst í því að nefnd sjáv-
arútvegsfyrirtæki fá við yfirfærslu
gjaldeyris íslenska ónýta mynt. í
reynd ætti alls ekki að sam-
þykkja kaup á þessari mynt,
nema með sömu afföllum og
verðbólgan er á hveijum tima.
Þessi viðskipti (ef hægt er að nota
það orð) fara fram með þvinguðum
hætti. Þess vegna tala ég um að
þetta sé í reynd þjóðnýtt. Það er
aldrei um fijálsræði eða samning
að ræða. Þetta samrýmist tæplega
stjómarskrá lýðveldisins en þar
stendur skýmm stöfum „að ekki
megi gera eigur upptækar nema
greiða fullt verð fyrir". Það er
Kristinn Pétursson
fyllilega tímabært að ræða þetta
atriði nánar.
Það geta allir samið um gjald
fyrir þjónustu sína nema þeir sem
selja gjaldeyri.
Víkjum síðan nánar að slíkum
samningum. Verkalýðsforystan
krefst ríflegra kauphækkana.
Hvers vegna? Er kannski skýring-
in fólgin í því að verkafólk hafi
í reynd enga tiltrú á að verðlag
muni haldast stöðugt?
Er sama upp á teningnum með
þjónustuaðilann? Hækkar hann
ríflega þjónustu sína til þess að
„Eg hef margsinnis
viðrað hugmyndir um
frjálsan gjaldeyris-
markað hér á landi.
Sumir, sem á móti því
hafa verið, hafa verið á
móti „af því bara“ en
aðrir hafa rökstutt
skoðun sína með því að
segja: „Þetta er allt of
lítið hagkerfi fyrir
frjálsan gjaldeyris-
markað.“ Þarna lágu
nó Danir í því!“
tryggja sig fyrir hækkunum á að-
föngum og launum? Það er náttúru-
lögmál að draga björg í bú. Tófan
grefur sér egg og unga á vorin til
þess að eiga til vetrarins. Auðvitað
grefur hún ríflega niður ef veturinn
skyldi verða harður.
Sem sagt: Tiltrú hins almenna
borgara á stöðugleika er ekki fyrir
hendi. Sama hvar borið er niður.
Niðurstaða á þessari „krufningu"
er sú, að hinn almenni borgari
hafi rétt fyrir sér. íslenska hag-
kerfíð er of lítið fyrir sjálfstætt
myntkerfi.
Rjóma/jarðar-
berjaskyr
minnir á sunnudag í
sveitinni.
Jógúrt með
brómberjum ng
hindberjum
Berjabragðið er betra
þegar maður
sleppur við
bakverkinn af
tínslunni.
Sunnudagsjógúrt
með banönum og
kókos
Pað liggur við að
maður drífí sig í
sólfötin.
,(—«—c..„i
m og kókös