Morgunblaðið - 21.10.1987, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 1987
9
ÚTSALA
Karlmannaföt kr. 4.975,- 6.500,- og 2.995,-
Stakirjakkarkr. 3.975,-
Terylenebuxur kr. 1.195,- og 1.395,-
Gallabuxur kr. 745,- og 795,-
Flauelsbuxur kr. 795,-
Skyrtur, peysur, nærföto.fl. ódýrt.
Andrés, Skólavörðustíg 22, sími 18250.
VETRARFAGNADUR
Hinn árlegi vetrarfagnaður hestamannafélagsins
Fáks verður haldinn í félagsheimilinu á Víðivöllum
laugardaginn 24. október og hefst kl. 19.30.
Léttar veitingar fyrir mat.
Matur og skemmtiatriði
Hljómsveitin Kjarnar leikur fyrir dansi.
Miðar verða seldir í versluninni Ástund, Austur-
veri, Hestamanninum, Ármúla 38 og versluninni
Skalla, Hraunbæ.
Félagarmætumöll!
Nefndin
HAPPDRÆTTI
Dregið hefur verið í happdrætti hestamanna-
félagsins Fáks. Vinningur kom á miða nr. 81.
Hestamannafélagið Fákur.
Náiðsam-
hengi
„Þann stutta tíma sem
ég hefi verið f mennta-
málaráðuneytimi hefur
mér orðið æ fjósara, hve
náið samhengi er milli
skólahalds úti á lands-
hyggðinni og viðhalds
byggðar þar,“ sagði
Birgir ísleifur Gunnars-
son, menntamálaráð-
herra, f ávarpi við vfgslu
Menntaskólans á ísafirði.
„Ég nefni þetta hér,“
sagði ráðherrann, „þvf
að ég hygjg að Mennta-
skólinn á ísafirði hafi á
undanföraum árum
gegnt þýðingarmiklu
hlutverki við að stemma
stigu við fólksflutningum
frá Vestfjörðum. Að
sönnu hefur fólki fækkað
f þessum landshluta, en
ætli fækkunin hefði ekki
orðið mun meiri og mun
afdrifaríkari ef ekki
hefði notið við skóla-
stofnunar eins og
menntaskólans."
Kennaraskort*
urálands-
byggðinni
Orðrétt sagði Birgir
ísleifur Gunnarsson:
„Að skólahaldi og þá
ekki sfzt á landsbyggð-
inni steðja ýmis vanda-
mál. Nú á haustdögum
þegar skólar eru að hefja
störf er skortur á vel
menntuðum kennurum
eitt helzta áhyggjuefni
fræðsluyfirvalda. Ég
þarf ekki að rekja fyrir
ykkur stöðu þessara
mála, svo n\jög sem þau
hafa verið til umfjöllunar
f fjölmiðlum. Tmsir skól-
ar á Vestfjörðum eiga við
þetta vandamál að striða.
I byggðum um land allt
er skortur á kennurum,
en þar er lfka skortur á
fólld til að sinna ýmiss
konar þjónustustörfum.
studentablaóið
-1 ttx í>.> "Hi/
Byggðastefna, menntun
araðstaða, lánasjóður
Fyrr í þessum mánuði var húsnæði Mennta-
skólans á ísafirði formlega tekið í notkun.
Birgir ísleifur Gunnarsson, menntamálaráð-
herra, flutti ávarp. Hann lagði áherzlu á þá
staðreynd, að góð aðstaða til menntunar á
landsbyggðinni væri mikilvæg forsenda
raunhæfrar byggðastefnu. Staksteinar
staldra í dag við þau orð menntamálaráð-
herra sem og viðtal við hann í Stúdentablað-
inu.
Ein ástæðan fyrir því að
fólk fæst ekki til þjón-
ustu- og framleiðslu-
starfa á þessum stöðum
er vafaiaust kennara-
skorturinn. Eðlilega spyr
fólk: Hvemig er skólinn
á staðnum? Eru nægilega
margir kennarar?
Hvemig menntun fá
börnin okkar? Lausn á
kennaraskortinum virð-
ist mikilvæg forsenda
þess að leysa önnur
vandamála landsbyggð-
arinnar."
Lánasjóður
námsmanna
Menntamálaráðherra
segir f viðtali við Stúd-
entablaðið að vandamál
LÍN eigi einkum rætur f
þeirri staðreynd að
sjóðnum hafi verið gert
að taka lán, jafnvel er-
lendis, til að mæta
lánsþörf námamanna.
Endurgreiða þurfi þessi
lán með háum vöxtum
og gengis- og verðbótum.
Sjóðurinn vehi hinsvegar
lán með kjörum sem
standi engan veginn und-
ir útgjöldum hans.
Veruleg fjölgun náms-
manna, sem eiga láns-
rétt, langt umfram það
sem var séð fyrir, hefur
og aukið nyög á umsvif
og fjármagnsþörf sjóðs-
ins.
í frumvarpi til fjárlaga
næsta árs er reynt að
stiga skref til leiðrétting-
ar. Samkvæmt frum-
varpinu á að veita hvorld
meira né minna en einum
milljarði og fjögur
hundruð sjötfu og átta
milljónum króna til LÍN.
Til samanburðar má geta
þess að framlag til flagg-
skips fslenzka mennta-
kerfisins, Háskóla
íslands, er snöggtum
lægra eða 970 mil\j. kr.
Orðrétt sagði ráð-
herræ
„Grundvallarstefna
Sjálfstæðisflokksins
varðandi skóla- og
menntamál er sú, að allir
einatakiingnr f þjóðfélag-
inu hafi jafnan rétt tíl
náms, óháð búsetu, upp-
runa, stétt eða stöðu og
óháð aldri, svo framar-
lega sem menn hafa til
þess nægilegan þroska
að takast á við nám . . .
Námslánakerfið á að
endurspegla þessa stefnu
með því að gefa fólki
kost á að stunda nám,
óháð efnahag . . .“
Menntamálaráðherra
taldi mikilvægt að endur-
skoða lögin um lánasjóð-
inn, eins og ráð væri
fyrir gert f stjórnarsátt-
málanum, og lagði
áherzlu á, að sú endur-
skoðun „skuli gerð f
samráði við námsmenn".
Ný sendin
Vinsælu tréklossarnir meö beygjanlegu
sólunum komnir aftur.
Dömu-
og herra-
stæröir
Aldrei glæsi-
legra úrval
GEísiP
OTDK
HUÓMAR
BETUR
Fyrir þá sem vilja ávaxta peninga
á öruggan og áhyggjulausan hátt...
Veröbréfamarkaösldnaöaibankans:
11 -11,5%ávöxtun umfram veröbólgu.
' Sjóðsbréf 1 eru fyrir þá sem eru að safna og
ætla að nota peningana ásamt vöxtum og
verðbótum einhvern tíma síðar. Munur á
kaupgengi og sölugengi er aðeins 1%.
Sjóðsbréf 2 eru fyrir þá sem þurfa að lifa af
vöxtunum en þeir eru greiddir út í mars, júní,
september og desember á ári hverju.
Ávöxtun Sjóðsbréfa 1 og 2 er nú 11-11,5%
umfram verðbólgu sem jafngildir um 35-36%
ársvöxtum.
Sjóður 1 og 2 fjárfesta aðeins í bankabréfum
og skuldabréfum traustra fyrirtækja. Kaupend-
ur Sjóðsbréfa taka því lágmarksáhættu.
Síminn að Ármúla 7 er 68-15-30. Heiðdís,
Ingibjörg, Sigurður B. eða Vilborg eru jafnan
reiðubúin að veita aliar nánari upplj’singar.
VIB
VERÐBRÉFANIARKAÐUR
IÐNAÐARBANKANS HF.