Morgunblaðið - 11.03.1986, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 11.03.1986, Blaðsíða 52
Óljóst hvað olli óhappinu á Reykjavíkurflugvelli: Svörtu kassamir send- ’ir utan til rannsóknar nFólk sýndi æðruleysi á hættustundu,“ segir Olafur Olafsson landlæknir, sem var einn af 41 farþega Flugslysanefnd og flugmála- stjórn hafa ekki gefið upp neina skýringu á þvi hvað olli óhappinu á Reykjavíkurflugvelli í gær- morgun, þegar Fokker-flugvél Flugleiða, Arfara TF FLO, hlekktist á í flugtaki. Ekki hefur iieldur fengist nein skýring á þvi hvers vegna ekki tókst að stöðva vélina áður en hún fór út af brautinni. Karl Eiriksson for- maður flugslysanefndar sagði í samtali við Morgunblaðið í gær- kvöldi, að rannsóknin væri allt of skammt á veg komin til að hægt væri að fullyrða nokkuð um orsakir óhappsins. Svörtu kassamir tveir, sem taka upp samræður flugstjóra og flug- "* tums annars vegar og mæla ástand véla og tækja hins vegar, verða sendir til Svíþjóðar og Bretlands í dag til rannsóknar. Að sögn Karls er tæknilega ókleift að rannsaka kassana hér á landi. Það eina sem gefíð hefur verið upp á þessu stigi er að flugstjórinn hafi heyrt hávaða og ákveðið af þeim sökum að hætta við flugtak. Ekki hefur fengist staðfest að um hreyfílsbilun hafí verið að ræða. íbúi í Einarsnesi, Kristján Birgisson húsasmiður, sem varð sjónarvottur að óhappinu, segist hafa heyrt „rosalegan hvin“ þegar flugvélin var komin tii móts við farþegaaf- greiðsluna, eða tæpan þriðjung af flugbrautinni. „Ég gerði mér strax grein fyrir því að hljóðið kom frá flugvélinni, því vatn gusaðist frá henni hátt í loft upp,“ sagði Krist- ján. Hann sagðist hafa fylgst stjarf- ur með vélinni renna stjómlaust brautina á enda, út fyrir flugvallar- svæðið og staðnæmast loks á Suð- urgötunni. Mikil mildi var að engin umferð var um þennan hluta Suðurgötunn- ar þegar óhappið varð. Óskar Óla- son yfirlögregluþjónn umferðar- Friðgeir Bjami var ákærður fyrir að hafa í september 1984 sent 73 grömm af amfetamíni hingað til lands frá Hollandi og fyrir að hafa um mánaðamótin mars/apríl 1985 jti* keypt 1.600 skammta af ofskynjun- deildar lögreglunnar sagði að litlu hefði munað að þama yrði stórslys. „Ég vona bara að þetta atvik verði til þess að nú þegar verði gripið til ráðstafana varðandi umferðarör- yggi við Reykjavíkurflugvöll," sagði Óskar. Það var ekki síður mildi að far- þegar sluppu allir ómeiddir. Ólafur Ólafsson landlæknir var einn af 41 farþegum Árfara. „Ég neita því arlyfínu LSD í Amsterdam og sent hingað til lands. Lögreglan lagði hald á 1.129 skammta af LSD og 48,9 grömm af amfetamíni á heim- ili hans í júlí 1985, en talið er að hluti efnanna hafí týnst. í dómnum ekki að það fór um mig þegar ég áttaði mig á hvað var að gerast, en í svona tilfellum er það oft frekar eftir á_ að menn verða hræddir," sagði Ólafur. Hann sagði að það hefði verið aðdáunarvert hversu rólegir ailir farþegamir voru. „Það heyrðist hvorki hósti né stuna á meðan á þessu stóð og menn sýndu mikið æðruleysi á þessari hættu- stundu,“ sagði Ólafur Ólafsson. er gengið út frá að ákærði hafi flutt fíkniefnin til landsins í dreifingar- skyni. í dómsorði segir að ákærði skuli sæta fangelsi í fímm ár, til frádrátt- ar komi 12 dagar er ákærði sætti gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknar málsins. Akærði greiði 50 þúsund krónur í sekt tii ríkissjóðs og komi fangelsi í 50 daga í stað sektar verði hún eigi greidd innan 4 vikna frá birtingu dómsins. Upptæk til eyðingar skulu 1.129 skammtar af LSD og 48,9 grömm af amfetamíni, Sæmundur Guðvinsson blaðafull- trúi Flugleiða sagðist ekki búast við því að áætlun í innanlandsfiugi Flugleiða færi úr skorðum næstu daga þótt Árfari væri úr Ieik. Félag- ið hefði þegar gert ráðstafanir til að leigja Twin-Otter-vél í eigu Flugfélags Norðurlands og enn- fremur væri farið að huga að leigu eða kaupum á nýjum Fokker. Flugmenn á Arfara í þessari ferð voru Ami Sigurbergsson flugstjóri og Ásmundúr Eyjólfsson aðstoðar- flugmaður. en ofangreind efni eru nú í vörslu dómsins. Þá var ákærða gert að greiða ailan sakarkostnað, þar af 20 þúsund krónur í saksóknaralaun til ríkissjóðs og 20 þúsund krónur í málsvamarlaun til skipaðs veij- anda, Amar Clausen hrl. Guðjón Marteinsson, fúlltrúi í Sakadómi í ávana- og fíkniefnamál- um, kvað upp dóminn og fer hann sjálfkrafa til Hæstaréttar. Ákærði hefur einnig fyrir sitt leyti áfrýjað til Hæstaréttar. 46,7 milljóna tap á Eim- skip í fyrra Samdráttur í millilanda- flutningum, aukning í strandflutningum TAP Eimskipafélags íslands nam 46,7 milljónum króna á árinu 1985, en árið á undan varð tap af rekstri félagsins 57,3 milljónir króna. Rekstrartekjur félagsins á árinu 1985 voru 2.714 milljónir króna, sem er um 30% aukning frá árinu áður. Flutningar ársins 1985 vom samtals 704.000 tonn, sem er tæplega 3% minna en árið á undan. Innflutningur með skipum fé- lagsins minnkaði frá fyrra ári um tæpt 1% en útflutningur um 11%. Veruleg aukning varð aftur á móti í strandflutningum féiagsins og jukust þeir um tæplega 60% frá því árið á undan. Félagið var að jafnaði með í rekstri 17—18 skip á síðastliðnu ári og starfsmenn voru að meðaltaii 748. Á aðalfundi félagsins 18. mars nk. mun stjóm félagsins gera það að tillögu sinni að greiddur verði 10% arður til hluthafa og hlutafé félagsins verði tvöfaldað með út- gáfu jöfnunarhlutabréfa. Danskt skip vélarvana SEINT í gærkvöldi barst Slysavamafélagi Islands til- kynning um að danska flutn- ingaskipið Eric Boeye væri vélarvana skammt suður af Dalatanga. Fimm manna áhöfn er um borð í skipinu og vom mennimir ekki taldir vera í hættu er síðast fréttist um miðnætti í gærkvöldi. Togarinn Bjartur frá Nes- kaupstað var þá kominn að danska skipinu. Að sögn Hannesar Hafstein, framkvæmdastjóra SVFÍ, voru um 7 til 8 vindstig á Dalatanga í gærkvöldi og gekk á með hríð- arbyljum. Ekki var þó talið að hætta væri á ferðum. Eric Boeye, sem er 295 brúttólestir að stærð, var á leið til Seyðis- fjarðar er bilun varð í vél skips- ins, um eina og hálfa mílu fyrir sunnan mynni Seyðisíjarðar. Skipið lagðist fyrir ankeri og eftir að tilkynning hafði borist um að skipið ætti í erfiðleikum var togarinn Bjartur, sem var að leggja úr höfn á Norðfírði, beðinn um að fara því til aðstoð- ar ef á þyrfti að halda. Jafn- framt var slysavarnasveitin ísólfur á Seyðisfírði kölluð út í öryggisskyni. Morgunblaðið/Jú!íu8 Votar lægðirganga yfir Bjarg úr aurskriðu, sem féll á Suðurlandsveginn skammt undan bænum Steinum undir Eyjafjöll- um í gærmorgun. Hjá veðurstofunni fengust þær upplýsingar að önnur lægð, full af raka, svipuð þeirri er olli skriðufaUinu, sé væntanieg inn yfir suðurströnd- ina seinni hluta dagsins í dag. Má því búast við mddUi úrkomu í nótt þegar „blautustu" Iægðir, sem hingað koma, taka hér land hvor á eftir annarri. Sjá nánar bls. 48—49. Þyngsti dómur í fíkniefnamáli til þessa: Fimm ára fangelsi fyrir inn- flutning á LSD og amfetamíni KVEÐINN hefur verið upp í Sakadómi í ávana- og fíkniefnamál- um dómur í máli ákæruvaldsins gegn Friðgeir Bjarna Skarp- héðinssyni, sem er fæddur 1960, fyrir innflutning á 1.600 skömmtum af LSD og 73 grömmum af amfetamíni. Friðgeir var dæmdur i fimm ára fangelsi, 50 þúsund króna sekt og gert að greiða allan sakarkostnað. Er þetta þyngsti dómur sem kveðinn hefur verið upp í fíkniefnamáli hér á landi til þessa.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.