Morgunblaðið - 11.03.1986, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 11.03.1986, Blaðsíða 15
MGRGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR ll.MARZ 1986 15 Það þarf að leitast við að stýra byggðaeyðingu á Islandi eftir Vigfús B. Jónsson Á sl. ári voru samþykkt ný lög um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum. Þeir, sem ókunnug- ir eru landbúnaðarmálum, kunna að halda að með löggjöf þessari hafí vandamálin í sambandi við landbúnaðinn verið leyst í eitt skipti fyrir öll. Svo mikið er víst, að eftir gildistöku laga þessara dró mjög úr umræðunni um landbúnaðinn og sömuleiðis lægði hávaða þeirra radda, sem hæst höfðu haft um landbúnaðarmálin og rætt þau með litlum skilningi og takmörkuðum velvilja. Sjálfír eru bændur löngum næsta hljóðir, hversu sigurstrang- legt sem það er í okkar kröfugerðar- þjóðfélagi. Um neftida löggjöf má margt gott segja, þótt ekki sé hún allskostar frekar en mörg önnur mannanna verk, því ef grannt er að gáð þá fer því víðs fjarri, að hún leysi megin vandamál landbúnaðar- ins, sem sé markaðsmálin. Öllu heldur gerir hún ráð fyrir því, að framtíð hinna hefðbundnu land- búnaðargreina sé nær einvörðungu háð innanlandsmarkaðinum. Það hlýtur því að vera mikilvægt að sá markaður drabbist ekki niður og því spyija menn nú: Hvers vegna hefur ekki verið gert meira fyrir innanlandsmarkaðinn nú að undan- fömu, en raun ber vitni? Nú nýlega hefur hnífnum verið beitt í anda þessara laga og skorið á mjólkurframleiðsluna við hið svokallaða sölumark. Í því sam- bandi fínnst eðlilega mörgum, að réttlætið hafí mjög hrokkið fyrir borð eins og oft áður varðandi bú- mörk þegar þeir, er virt hafa bú- mörkin, eru nú látnir gjalda þeirra, sem fram úr þeim hafa farið, í framleiðslumagni. Að sjálfsögðu var aðgerða þorf og ekki hægt um vik, þó hlýtur það að vera nær ófyr- irgefanlegt að framkvæma áður- nefnda aðgerð á langdrægt hálfti- uðu framleiðsluári í stað þess að framkvæma hana í upphafi þess. Það hefði sparað mjólkurframleið- endum mikla fjármuni. Sú aðgerð, sem hér um ræðir, hlýtur að verða afdrifarík, enda blasir það við að þeir, sem að mjólkurframleiðslunni standa eru of margir til að geta Iifað á henni mannsæmandi lífí. Hið sama má segja um þá, sem sauð- fjárrækt stunda, ef ekki tekst að fínna viðunandi markað fyrir dilka- kjötið erlendis, en líkur til þess eru því miður í neðri mörkum. Það er því ljóst að þeim hlýtur að fækka, sem hinar hefðbundnu búgreinar stunda ogþað í náinni framtíð. Margir gera sér vonir um það, að nýbúgreinar geti komið í staðinn fyrir samdráttinn í hinum hefð- bundnu. Slíkt er þó því miður senni- lega óskhyggja fremur en raun- verulegur möguleiki og skal ég í því sambandi t.d. benda á að físki- ræktin, sem margir hafa bundið miklar vonir við, bændum til handa virðist nú gréinilega vera að renna f hendur annarra en þeirra. Reyndar er uppbyggingin í þeirri grein hröð um of og laus í reipum svo miðað sé við þá þekkingu og fagfólk, sem fyrir hendi er í því sambandi. En það er önnur saga. Vonandi getur loðdýraræktin náð útbreiðslu til sveita, en um hana er það þó að segja, að hún er hagkvæmust sem næst fóðurstöðv- unum við sjávarsíðuna og e.t.v. er vafasamt að dreifa loðdýrabúunum á sama hátt og mjólkurbúunum á sínum tíma. Það tekur mun lengri tíma að breyta rótgrónum atvinnu- háttum, en margur hyggur og þótt bændastéttin geti að ýmsu leyti nýtt Vigfús B. Jónsson betur möguleika sína, þá bendir margt til þess að megin vandamál hennar nú muni bara flytjast til í þjóðfélaginu og þá auðvitað inn á hinn almenna vinnumarkað í landinu. Þeim tilflutningi.mundi að sjálfsögðu fylgja ei lítil byggðaeyð- ing, en það er bara ekki sama hvar og hvemig hún verður. Eyðing byggða er ekki nýtt fyrirbæri á íslandi, er jafnan næsta stjómlaust, og því tfmi til kominn, að menn láti ekki lengur kylfu ráða kasti, heldur geri sér Ijóst að skipulagslaus flótti frá byggðum er ekki það sama og skipulagt undanhald. Ef það kæmi fyrir nú eða í náinni framtíð að eftirspum eftir vinnuafli ykist að mun t.d. við sjávarsíðuna, þá er mikil hætta á því að stórar skriður gætu fallið óreglulega úr hinni ís- lensku bændabyggð með ófyrirséð- um afleiðingum. Eg hygg að ekki sé ágreiningur um það, að nýta landsins gæði á skynsamlegan hátt, „Mér sýnist því nauðsyn bera til þess að búa til hvata í þá veru að af- skekktar, kostarýrar og illa uppbyggðar jarðir fari í eyði öðrum fremur. Sá hvati gæti verið á þá lund að fólk- inu, sem slíkar jarðir byggir, gæfist kostur á að selja þær ríki eða sveitarfélögum á ein- hveiju viðunandi verði svo það geti fremur komið sér fyrir á öðrum vettvangi. Menn verða að gera sér það ljóst að margt fólk getur ekki hætt búskap án þess að fá umtalsvert verð fyrir jarðir sínar.“ hvar sem þau er að fínna. Þá nýt- ingu getum við framkvæmt með öðmm hætti, en forfeður okkar og formæður, svo er tækni og þekk- ingu fyrir að þakka. En til þess að slík nýting geti farið fram, þá er nauðsynlegt að halda hinum hefð- bundna byggðahring umhverfís landið eins lítið skertum og við verður komið. Það er ljóst að ekki er sama, hvort í eyði fellur kostarýr jörð með litlum mannvirkjum, eða vel upp- byggð góðjörð, sem búið er að leggja mikið fjármagn í. Mér sýnist því nauðsyn bera til þess að búa til hvata í þá veru að afskekktar, kostaiýrar og illa uppbyggðar jarðir fari í eyði öðrum fremur. Sá hvati gæti verið á þá lund að fólkinu, sem slíkar jarðir byggir, gæfist kostur á að selja þær ríki eða sveitarfélög- um á einhveiju viðunandi verði svo það geti fremur komið sér fyrir á öðrum vettvangi. Menn verða að gera sér það ljóst að margt fólk getur ekki hætt búskap án þess að fá umtalsvert verð fyrir jarðir sínar. Það er augljóst að fyrst farið var út í hina miklu stjómun á land- búnaðarmálum, þá verður í sumu tilfelli að stjóma þeim út í gegn, en ekki bara í annan endann. Eg held t.d. að ef við þurfum að bíta í þann beiska bita að minnka sauð- fjárstofninn til móts við innanlands- markaðinn, þá beri að taka gróður- far landsins inn í myndina og stefna á það, að sauðfjárbúskapurinn fari sem mest fram þar sem gróðurfarið er best, en sem minnst þar sem landið er meira og minna örfoka. Á þann hátt gætum við töluvert jafnað metin varðand hinna stóm skuld, sem við eigum að gjalda gróðurlendi landsins, eftir meira en 11 alda búsetu og óvægilega um- gengni í harðri lífsbaráttu liðinna alda. Með þvílíkri tilfærslu á sauð- fjárbúskapnum í landinu gætum við aukið hagkvæmni hans og í ýmsu falli styrkt hinn hefðbundna byggðahring umhverfís landið og vil ég í því sambandi nefna bænda- byggðir Norður-Þingeyjarsýslu, sem sumar eru í hættu staddar, en þar er hvað best undir fjárbú í öllu landinu. Sumum kann að þykja nokkurrar svartsýni gæta í því, sem hér að framan greinir, varðandi styrkleika hins íslenska stijálbýlis. Ég minni því á að aldrei hefur það þótt sigur- stranglegt að vilja ekki horfast í augu við staðreyndir. Ég minni líka á hitt að vandamál bændastéttar- innar í dag em ekki bara hennar vandamál, heldur allrar þjóðarinnar og ber þvíað taka á þeim sem slík- um. Höfundur er bóndl á Laxamýri og varaþingmaður fyrir Norður- landskjördæmi eystra. SIEMENS 3! * iHægt er að velja sogkraft Istiglaust frá 250 W upp 11000W. Fjórföld síun. I Fylgihlutir geymdir í vél. Stillanleg lengd rörs. Sjálfinndregin snúra. jGömlu góðu SIEMENS- |gæðin. Super911 ryksugan Lítið inn til okkar: Smith og Norland Nóatúni 4, s. 28300. Við hjá Veisluréttum tökum að okkur að sjá um veislur, bæði stórar og smáar, svo sem fermingarveislur, afmælisveislur og fl. og fl. F A G M E N N Wterkurog k J hagkvæmur auglýsingamiðill! Nánari uppl. í símum 19969 — 10340 VEISLURETTIR Geymið auglýsinguna Aðalfundir deilda KRON verda sem hér segir: 4. og 5. deild Aðalfundur mánudaginn 17. mars kl. 20.30 í hátíðarsal Fjölbrautaskólans í Breiðholti. Félagssvæði 4. deildar: Smáíbúðahverfi, Gerðin, Fossvogur, Blesugróf, Neðra-Breiðholt og Selja- hverfi. Auk þess Norðurland og Austurland. Félagssvæði 5. deildar: Efra-Breiðholt, Árbær, Ártúnsholt og Grafarvogur, Mosfellssveit og Kjal- arnes. 1-deild Aðalfundur þriðjudag 18. mars kl. 20.30 í Hamragörðum, Hávallagötu 24. Félagssvæði 1. deildar: Seltjarnarnes, Vesturbær og miðbær, vestan Snorrabrautar. Auk þess Hafnarfjörður. 2. og 3. deild Aðalfundur miðvikudag 19. mars kl. 20.30 í Afurðasölu SÍS, Kirkjusandi. Félagssvæði 2. deildar: Hlíðarnar, Háaleitishverfi, Múlahverfi, Túnin og Norðurmýri. Auk þess Suður- land og Vestmannaeyjar. Félagssvæði 3. deildar: Laugarneshverfi, Klepps- holt, Heima- og Vogahverfi, Vesturland og Vest- firðir. 6. deild Aðalfundurfimmtudaginn 20. mars kl. 20.30 í fundarstofu Stórmarkaðarins, Skemmuvegi 4a. Félagssvæði 6. deildar: Kópavogur, Garðabær og Suðurnes. Dagskrá skv. félagsiögum. Sjá einnig augiýs- ingar í verslunum KRON. KAUPFELAG REYKJAVIKUR OG NAGRENNIS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.