Morgunblaðið - 11.03.1986, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 11.03.1986, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR ll.MARZ 1986 29 Breytingar á tollalögum: Tollar á fólksbif- reiðum lækka enn Stj ór narfrumvarp varð að lögum sama dag og það var lagt fram Þorsteinn Pálsson, fjármálaráðherra, mælti í gær fyrir stjórnar- frumvarpi, sem ætlað er að tryggja að fólksbifreiðir með 2000 rúm- sentimetra slagrými eða minna lækki í verði um 30%. Frumvarp þetta tengist ráðstöfunum í ríkisfjármálum til þess að greiða fyrir gerð kjarasamninga, sem ætlað var að lækka vísitölu framfærslu- kostnaðar um 1,5%. Það er nánast leiðrétting á lögum, sem sett vóru fyrir skemmstu um sama efni, en síðari athuganir leiddu í ljós, að þau skiluðu ekki fyllilega þeim verð- og vísitöluáhrifum, sem kjara- sáttmálinn gerði ráð fyrir. í kjölfar breytinga á tollalögum lækka bílar í verði - og kannski fjölgar þeim líka eitthvað á götunum. Þetta nýja stjómarfrumvarp sigldi hraðbyri gegn um sex umræð- ur á Alþingi í gær, þijár umræður í hvorri þingdeild, og varð að lögum sama dag og það var formlega lagt fram. Framsaga fjár- málaráðherra Þorsteinn Pálsson, fjármála- ráðherra, hóf framsögu sína með því að gera grein fyrir lögum nr. 3/1986 um ráðstafanir í ríkisfjár- málum til þess að greiða fyrir gerð kjarasaminga. Liður í þeim aðgerð- „Alþingi ályktar að fela ríkis- stjórninni að gera Safnahúsið við Hverfisgötu í Reykjavík að dóm- húsi fyrir Hæstarétt íslands er starfsemi Landsbókasafns og Þjóðskjalasafns flytzt úr húsinu. Alþingi felur ríkisstjóminni jafn- framt að hefja sem fyrst undir- búning að nauðsyniegum breyt- ingum á húsinu svo að það fái þjónað sem bezt hlutverki sínu sem dómhús Hæstaréttar ís- lands.“ Þannig hljóðar tillaga til þingsályktunar sem Jón Sveins- um hafí verið að að lækka verulega tolla á smærri bifreiðum, sem ætlað var að tryggja 30% verðlækkun fólksbifreiða með 2000 rúmsenti- metra slagiými eða minna. Jafn- framt hafi verið að því stefnt að lækka vísitölu framfærslukostnaðar um 1,5%. Vóru tollar almennt lækk- aðir um 30% og bifreiðagjald fellt niður af minnstu bifreiðum. Ljóst er hinsvegar nú að breyt- ingar þær á tollum og bifreiðagjaldi, sem gerðar vóru með fyrrgreindum lögum, skila ekki fyllilega þeim verð- og vísitöluáhrifum, sem að var stefnt. Til þess að svo megi son (F.-Vl) flytur. I greinargerð kemur fram að ekki hafi enn verið tekin ákvörðun um framtíðamotkun þessa virðu- lega húss, Safnahússins við Hverf- isgötu. Hæstiréttur íslands hafi lengi búið við ófullnægjandi húsa- kost og aðbúnað. Vinnuaðstaða dómara og starfsfólks sé langt frá því að teljast boðleg æðsta dómstóli réttarríkis. Flutningsmaður segir Safnahúsið henta Hæstarétti vel. Vitnað er til samþykkta bæði Dóm- arafélags íslands og Lögmannafé- lags íslands um þetta efni. verða og ríkisstjómin standi að sínu leyti fyllilega við kjarasáttmálann er lagt til með þessu nýja fmmvarpi 10% tollalækkun bifreiða og breyt- ing á álagningu bifreiðagjaldsins, þann veg, að það verði lagt á í sjö flokkum á bilinu 0-32%. Með þess- um ráðstöfunum á að vera tryggt, sagði ráðherrann, að vísitala fram- færslukostnaðar lækki um 1,5% og verð á minnstu bifreiðum um 30%. Sérstakt gjald af bifreiðum verð- ur ekkert upp að 700 kg eigin þyngd og 1000 rúmsentimetra sprengju- rými. Milli 701-800 kg þyngd og 1001-1300 sprengirými verður 5% gjald. Milli 801-900 kg þyngd og 1301-1600 rúmsentimetra sprengi- rými 9%, 901-1100 kg þyngd og 1601-2000 rúmsentimetra sprengi- rými 13%, 1.101- 1300 kg þjmgd og 2001-2300 rúmsentimetra sprengirými 20%, 1.301-1500 kg þyngd og 2301- 3000 rúmsenti- metra sprengirými 28% og yfír 1500 kg þyngd og 3000 rúmsenti- metra sprengirými 32% Umræður í efri deild Stefán Benediktsson (Bj.-Rvk) kvaðst ekkert hafa við frumvarpið sjálft að athuga, svo upphaflegum tilgangi verði náð. Hinsvegar væri ekki úr vegi að ræða stöðu þingmanna gagnvart upplýsingum frá ráðunejdum, íjóð- hagsstofnun og öðrum ráðgefandi aðilum. í þessu máli hafi upplýsing- ar ekki rejmzt traustar eins og sjá- ist á þessu leiðréttingarfrumvarpi. Þingmaðurinn taldi rétt að þingið dragi til sín upplýsingar af þessu tagi frá fleirum en einum aðila. Sigríður Dúna Kristmunds- dóttir (Kl.-Rvk) sagði efnislega að gerðir lqarasamningar skömmtuðu láglaunafólki, sem að stórum hluta væru konur, skammarlaun. Hún væri ekki sátt við þessa samninga og hefði því setið hjá við atkvæða- greiðslu um fyrra frumvarp, tengt samningunum. Sú afstaða væri óbrejitt varðandi þetta frumvarp. Ragnar Arnalds (Abl.-Nv) taldi klúðursmál á ferð, sem kosta myndi ríkissjóð 100 m.kr. í útgjöldum. Frumvarpið kæmi ekki því lág- launafólki til góða, sem hvort eð er hefði ekki ráð á bílakaupum. Verðlækkun eldri bifreiða, sem fylgdi í kjölfarið, kæmi fólki í koll, sem þá þyrfti að selja til að greiða t.d. húsnæðisskuldir. Eiður Guðnason (A.-Vl) sagði m.a. efnislega, að verðniðurfærsla á öðrum vörum en bifreiðum hefði komið láglaunafólki betur. Hinsveg- ar væri á það að líta að þessar tollalækkanir gerðu fólki auðveld- ara eftir en áður að eignast bifreið, og bifreiðin væri nánast almenn- ingseign á íslandi. Frumvarpið væri leiðrétting til að standa við kjara- sáttmála ríkis, verkalýðsfélaga og vinnuveitenda. Þess vegna væri sjálfsagt að samþykkja það. Þing- menn í stjómarandstöðu ættu ekki að vera það málefnablindir að þeir geti ekki stutt mál, sem horfðu til hins betra, vegna þess eins, að það væri flutt af ríkisstjóminni. 90% innf lutningsins smærri bifreiðir Þorsteinn Pálsson sagði mistök við fyrri afgreiðslu byggða á þvi að fyrirliggjandi upplýsingar hafí gefið til kynna annars konar sam- setningu í innflutningi bifreiða en síðar hafí komið á daginn. Um 90% FRUMVARP ríkisstjórnarinnar um sveitastjórnir var samþykkt til þriðju umræðu í neðri deild Alþingis í gær. Nafnakall var viðhaft um 1. gr. frumvarpsins og var það samþykkt með 22 atkvæðum gegn 2. 11 þingmenn greiddu ekki atkvæði og nokkrir af innfluttum bifreiðum væri vel undir 2000 rúmsentimetra að slag- rými. Frumvarp þetta mjmdi því fyrst og fremst koma þeim til góða er minni bifreiðir kejrptu. Stórar bifreiðir væru innan við 10% inn- flutningsins og hefðu ekki afger- andi áhrif um kostnað ríkissjóðs af þessum ráðstöfunum. Frumvarpið gekk síðan til neðri deildar, þar sem stjómarandstæð- ingar gerðu efnislega sams konar athugasemdir og í efri deild. Að auki spurðist Kjartan Jóhannsson (A.-Rvk.) fyrir um það hvemig rétt- indum öryrkja yrði háttað í framtíð- inni hvað bifreiðakaup varðar, en þeir njóta nú sérstakra ívilnana. Fjármálaráðherra sagði, að ekki hefði gefíst tóm til að kanna það mál áður en frv. var lagt fram, en það yrði athugað við fyrsta tæki- færi. Að umræðunum loknum var frv. samþykkt og sent ríkisstjóminni, sem lög frá Alþingi. voru fjarverandi. Það voru þeir Friðjón Þórðarson (S.-Vl.) og Garðar Sigurðsson (Abl.-Sl.), sem greiddu atkvæði á móti greininni. Fram kom í umræðunum, að þegar ganga átti til atkvæða um frv. sl. miðvikudag voru ekki nægi- lega margir þingdeildarmenn við- staddir. Varð þá að samkomulagi milli stjómarliða og stjómarþing- manna að heimila, að atkvæða- greiðsla og 3. umræða færu fram í gær. Gengið var til atkvæða, sem fyrr segir, en 3. umræðu frestað. Karvel Pálmason (A.-Vf.) gagn- rýndi þessa málsmeðferð og kvaðst hafa verið reiðubúinn að cifgreiða frumvarpið, eins og samkomulagið gerði ráð fyrir, en gæti hins vegar ekki stutt afgreiðslu þess á miðviku- dag. Óskaði hann eftir því við forseta neðri deildar, að 3. umræða yrði ekki nk. miðvikudag. Forseti kvaðst eiga eftir að taka afstöðu til þess hvenær umræðan yrði lejrfð. Við atkvæðagreiðsluna óskaði Friðrik Sophusson (S.-Rvk.) eftir því að brejrtingartillaga meirihluta félagsmálanefndar við 6. gr. fmm- varpsins, þar sem verkefni sýslu- nefnda eru falin sveitarfélögum, yrði ekki tekin fyrir fyrr en við 3. um- ræðu og varð forseti við því. At- kvæðagreiðslu um flestar breyting- artillögur Iljörleifs Guttormssonar (Abl.-Al.) og Steingríms J. Sig- fússonar (Abl.-Ne.), svo og breyt- ingartillögu Gunnars G. Schram (S.-Rn) var einnig frestað til 3. umræðu. Heimild til fasteigna- og skipasölu: Háð löggildingu dómsmálaráðuneytis Löggilding að undangengnu próf i Fram hefur verið lagt stjómarfrumvarp um fasteigna- og skipa- sölu. Meðal nýmæla í frumvarpinu er, að gert er að almennu skiljrði fyrir löggildingu til þessa starfs, að viðkomendur, aðrir en hæstaréttar- og héraðslögmenn, þurfi að standast sérstakt próf samkvæmt ákvæðum, er dómsmálaráðuneytið setur með reglugerð. Engum er heimilt að annast kaup, sölu eða skipti á fasteignum eða skráningarskyldum skipum fyrir aðra, nema hann hafi fengið til þess löggildingu dómsmálaráðuneytisins eða leyfi samkvæmt lögum nr. 47/1938. Skilyrði löggildingar er m.a. að hafa íslenzkan ríkisborgararétt, hafa heimilisfang hér á landi, vera íjárráða og hafa forræði fyrir búi sínu, hafa staðist próf, svo sem að framan segir, leggja fram tryggingu fyrir greiðslu kostnaðar og tjóns, sem viðskiptamenn við- komandi kunna að verða fyrir af hans völdum og dómsmálaráðu- nejdið ákveður. Meðal nýmæla í frumvarpinu eru: * Lejrfi til sölu fasteigna og skrán- ingarskyldra skipa skal veitt af dómsmálaráðunejdi (en ekki lög- reglustjóra eins og nú er), saman- ber og framangreint. * Löggildingargjald er háð ákvæðum laga um aukatekjur rík- issjóðs. * Fasteignasalar og hafí réttindi og beri skyldur sem opinberir sýsl- unarmenn, þ.á m. varðandi brot í starfí, starfsvernd, æruvemd og þagnarskyldu. * Fasteignasalar skulu haga störf- um „í samræmi við góðar við- skiptavenjur og þeir skuli gæta þess að aðila séu ekki settir ólög- mætir, óeðlilegir eða ósanngjamir kostir í samningum". * Þeir skulu tryggja sér ótvírætt umboð hjá réttum aðila, er felur honum umsýslu varðandi fasteign eða skip. * Mun skýrari ákvæði em um skyldur fasteigna- og skipasala til upplýsingaöflunar og samning- ar greinargerðar, „svo sem gleggstur grundvöllur fáist til að viðkomendur geti gert sér grein fyrir verði eignar". Gert er ráð fyrir að ráðuneyti geti mælt fyrir um notkun staðlaðra eyðublaða. * Lagt er til að fasteignasali annist sjálfur samningu skjala í ríkara mæli en nú er. „Að baki býr m.a. það viðhorf, að fasteigna- sali beri persónulega ábyrgð á störfum við fasteignasölu og verði henni ekki skipað með þeim hætti, að félag með takmarkaðri ábyrgð reki fasteignasölu." * Dómsmálaráðuneyti getur sett nánarí ákvæði í reglugerð um stöðu, störf og starfshætti fast- eignasala. * Lagt er til að fasteignasalar fái einkarétt á að nefna sig fast- eignasala eða skipasala að því viðlögðu, að það varði við refsingu fyrir aðra að nefna sig þessum nöfnum. Safnahúsið við Hverfisgötu: Dómhús fyrir Hæstarétt? Neðri deild Alþingis: Sveitarslj órnarfrum- varpið til 3. umræðu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.