Morgunblaðið - 11.03.1986, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 11.03.1986, Blaðsíða 22
22 MDRGUNBLADIÐ,ÞRIDJUDA0UR11.MARZ1986 Blöð í Tyrklandi: Nefna Kúrda sem banamenn Palme Ankara, Tyrklandi, 10. mars. AP. TYRKNESK blöð skýrðu frá því á laugardag, að grunur léki á, að eftirlýstur Kúrdi ætti aðild að morðinu á Olof Palme. Þrjú blöð í Istanbul, Hurriyet, Milliyet og Tercuman, birtu á laug- ardag myndina, sem sænska lög- reglan hefur dreift, og einnig mynd af Kúrdanum Cemal Bayik, sem þau sögðu, að sænska lögreglan leitaði að. Kom fram í þeim, að sænska lögreglan hefði leitað upplýsinga hjá tyrkneskum yfirvöldum um Bayik og tvo menn aðra, Haydar Kaytan og Ismet Dogru, en þeir eru allir í Kúrdíska verkamannaflokkn- um, marxískum flokki, sem einnig er kallaður Apocus. Sögðu blöðin, AP/Símamynd Þegar klukkan sló 12 á hádegi hljóðnaði ys og þys hversdagsins og um alla Svíþjóð minntust menn Olofs Palme, forsætisráðherra, með einnar mínútu þögn. Þessi mynd var tekin í sænska þinginu. Blómin fyrir miðri mynd eru í sæti Palme. _______________ Svíar heiðra minningu Palme með mínútuhögn Stokkhólmi, 10. marz. Frá Claus von Howstein fréttaritara Morgunblaðsins. SVÍAR heiðruðu minningu Olofs Palme með einnar mínútu þögn á hádegi í dag. Allt athafnalíf stöðvaðist og einnig leitin að morðingja Palme. Af tæknilegum ástæðum treystu forráðamenn stálverksmiðju sér ekki til að stöðva hjól framleiðsl- unnar og ákváðu í staðinn að veita eitthundrað þúsundum sænskra króna, um 600.000 íslenzkra, í minningarsjóð Palme, en það er sú upphæð, sem tapast hefði við fram- leiðslustöðvun. Þúsundir Stokkhólmsbúa höfðu tekið sér stöðu er mínútuþögnin hófst á hádegi. Öll umferð í næsta nágrenni stöðvaðist. Þá var mikill mannfjöldi samankominn fyrir utan heimili Palme í gamla borgarhlutan- um. A hádegi var hringt öllum kirkju- klukkum Svíþjóðar. Sinfóníuhljóm- sveit lék við minningarathöfn í þinghúsinu og leiðtogar stjóm- málaflokkanna minntust Palme með ræðuhöldum. Að sögn lögregl- unnar voru sjö af hveijum 10 bif- reiðum á götum úti stöðvaðar, en gefín hafði verið undanþága frá stöðvunarbanni á hraðbrautum. Lögreglan hefur nú fengið um 10.000 vísbendingar í leitinni að morðingja Palme og auglýsti hún í dag eftir fleiri vitnum. Fólk, sem var við frumsýningu myndar um Mozartbræðuma ásamt Palme- hjónunum, hefur verið beðið að gefa sig fram og einnig menn, sem voru í næsta nágrenni á þeim tíma, sem morðið var framið. Lögreglan hefur einskis orðið vísari í leitinni að morðingjanum. Þingkosningar í Kólumbíu: Frjálslyndi flokkurinn með forystu Bogota, Kolumbíu, 10. mars. AP. ALMENNAR þingkosningar voru í gær, sunnudag, í Kolumb- íu og samkvæmt síðustu tölum frá talningunni hefur Fijálslyndi flokkurinn, stærsti flokkurinn á þingi, fengið flest atkvæði. Vinstrisinnaðir skæruliðar gerðu ýmislegt til að hræða fólk frá að kjósa. Þegar aðeins höfðu verið talin 3% atkvæðanna hafði Frjálslyndi flokkurinn fengið um 46,6% atkv., íhaldsflokkurinn 36,6%, Frelsis- hreyfíngin 7,8% og Föðurlandssam- bandið 2,1% en það er flokkur kommúnista og þeirra skæruliða, sem virt hafa samninga við stjóm- völd. 13 milljónir manna voru á kjörskrá en ekki var búist við, að meira en helmingur neytti kosn- ingaréttarins. Litið er á kosningamar sem próf- stein á fylgi almennings við þá stefnu Belisario Betancurs, forseta, að náða skæruliða og gefa þeim upp sakir gegn því að þeir leggi niður vopn. Samkvæmt stjómar- að fjórði Kúrdinn, Baki Karer, fé- lagi í flokknum, sem hafði gagnrýnt flokksforystuna og verið dæmdur til dauða fyrir vikið, hefði sagt sænsku lögreglunni, að þremenn- ingamir bæm ábyrgð á dauða Palme. Apocus-flokkurinn átti sök á mestu hryðjuverkunum áður en herinn tók völdin í Tyrklandi árið 1980 og þeir félagar í honum, sem víkja út af flokkslínunni, eru yfír- leitt sviptir lífí. Tveir þeirra voru drepnir í Svíþjóð og höfðu þá sænsk stjómvöld hörð orð um þessi hryðju- verkasamtök. Tyrknesku blöðin sögðu, að höfuðstöðvar þessa flokks væru í Sýrlandi og Írak en útibú í Svíþjóð, Grikklandi, Vestur-Þýska- landi og Frakklandi. Lögregluyfírvöld í Svíþjóð og embættismenn Alþjóðalögreglunn- ar vilja ekkert um þessar stað- hæfíngar segja. skránni má Betancur ekki bjóða sig fram aftur fyrir flokk sinn, íhalds- flokkinn, en gengi hans mun ráðast af friðaráætlunum forsetans. Þeir, sem gagnrýna forsetann, segja, að vopnahléið hafí aðeins gefíð skæru- liðum tækifæri til að fá fleiri í lið með sér, þjálfa þá og koma upp nýjum búðum. Irakar taka mikilvæg- fjöU Nikósíu, 10. marz. AP. ÍRAKAR sögðust hafa lagt til meiriháttar gagnsóknar i ná- grenni borgarinnar Sulaymaniy- ah á norðausturvígstöðvunum á sunnudag. Árangurinn hafi ekki látið á sér standa, því þijár hern- aðarlega mikilvægar hæðir hafi verið endurheimtar úr klóm ír- ana. Útvaipið í Bagdað sagði að enginn Irani væri lengur í augsýn frá hæðunum, sem þeir hertóku í áhlaupi 25. febrúar sl. Stríðsyfirlýs- ingar írana gefa annað til kynna. Irakar héldu því einnig fram að þeim hafí tekizt að hrekja mest allt íranska herliðið frá Faw-skaganum. íranir segjast enn halda a.m.k. 850 ferkílómetra svæði á Faw. Af hálfu beggja stríðsaðilda var greint frá hörðum bardögum á Faw-skagan- um, bæði á landi og í lofti. Íranir sögðust hafa skotið niður tvær ír- askar herþotur. Stjórnklefi Challeng- er-feijunnar fundinn Kanaveralhöfða, 10. mars. AP. JARÐNESKAR leifar nokkurra geimfaranna um borð í geim- feijunni Challenger og hlutar af áhafnar- og stjórnklefa feijunnar hafa verið sótt á hafsbotn, að því er heimildarmenn innan Kennedy-geimvísindastöðvarinnar segja, en talsmenn Geimvís- indastofnunar Bandaríkjanna (NASA) kveðast ekki ætla að greina frá aðgerðum á hafsbotni fyrr en þeim er lokið, af tillitssemi við ættingja geimfaranna. Það gæti tekið nokkra daga, að því er embættismenn sögðu, þegar tilkynnt var á sunnudag að jarðneskar leifar geimfaranna hefðu fundist í braki geimfeijunn- ar, 30 metra undir yfírborði Atl- antshafsins, um 24 km norðaustur af Kanaveralhöfða. Þær leifar, sem fundist hafa af geimförunum, og hlutar af stjómklefanum voru fluttar til Kanaveralhafnar á laugardags- kvöld og Iíkin flutt á spítala á flugherstöð um 40 km suður af Kanaveralhöfða, að því er hermt hefur verið. Ónafngreindur heimildarmaður segir að björgunarskip sjóhersins, USS Preserver, hafí komið til hafnar aðfaranótt sunnudags og þar hafí Bob Overmyer, sem er fyrrum geimfari og aðili að rann- sókninni á orsökum slyssins á geimfeijunni, og aðrir embættis- menn NASA tekið á móti skipinu. Starfsmenn sjúkdómafræði- stofnunar sjóhersins hófu að rannsaka leifar geimfaranna í dag. Fimm menn og tvær konur lét- ust þegar Challenger sprakk, 73 sekúndum eftir flugtak 28. jan- úar. Talmenn NASA sögðu að beðið hefði verið með að tilkynna að lík áhafnarinnar væru fundin vegna fjölskyldna þeirra, en meðlimir nokkurra fjölskyidna sögðu að tilkynningin hefði komið þeim í opna skjöldu. Tony Smith, yngri bróðir flug- mannsins Mike Smith, sagði að fjölskyldu sinni hefði verið greint frá því á föstudag að stjómk'.efínn væri fundinn en ekki hefði verið minnst á að leifar geimfaranna hefðu fundist. Bruce Jarvis, faðir geimfarans Gregory Jarvis, sagði í viðtali við sjónvarpsstöðina „WCPX-TV" að það hefði verið léttir að frétta að leifar sonar síns hefðu fundist, en lýsti óánægju sinni yfír því að hann hefði frétt það í sjónvarpi. Mark Weinberg, talsmaður nefndarinnar, sem Reagan, Bandaríkjaforseti, skipaði til að rannsaka slysið, sagðist ekki geta dæmt um það á þessari stundu að hvaða gagni þetta kæmi fyrir rannsóknina, en bætti við að öll gögn kæmu að notum. Leitarskip sjóhersins fann brak úr flugstjómarklefanum og leifar áhafnarinnar með hljóðbylgjum og kafarar staðfestu að það væri rétt, að því er sagði í tilkynningu NASA. Hugh Harris, talsmaður NASA, kvaðst engar upplýsingar geta gefið um ástand flugstjómarklef- ans eða geimfarana, né heldur hvort fundist hefðu leifar allra geimfaranna. Flug- og hljóðriti vom í klefan- um og ættu að geta gefíð ábend- ingar um orsök slyssins, en ekki er vitað hvort upptökumar hafa skemmst. Það veltur á veðri, vindum og sjógangi hversu vel gengur að ná braki og leifum áhafnarinnar af hafsbotni. Síðustu viku var öldu- gangur slíkur að tafði fyrir leit.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.