Morgunblaðið - 11.03.1986, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 11.03.1986, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11.MARZ .19.86 3 ísafjörður: Gamalt timburhús eyðilagðist í eldi Nágranni varð óviljandi valdur að eldinum ísafirði, 10. mars. UM EITTLEYTIÐ aðfaranótt síðastliðins sunnudags kom upp eldur í gömlu forsköluðu timburhúsi á Mjógötu 7a á ísafirði. Guðmundur Fylkisson lögreglumaður, sem heiðraður hafði verið nokkrum stund- um áður fyrir frækilega framgöngu í brunanum sem hér varð helg- ina á undan, varð eldsins var ásamt Pálmari S. Gunnarssyni lögreglu- manni, þar sem þeir voru á eftirlitsferð um miðbæinn. Um sama leyti og lögreglumennimir létu vita um eldinn var hringt úr nærliggj- andi húsum, en þar sem engin næturvarsla er á slökkvistöð ísafjarð- ar, hljóp Guðmundur Fylkisson frá brunastaðnum yfir á slökkvistöð, sem er í um það bil 100 m fjarlægð. Þar var Bragi Beinteinsson yfirlögregluþjónn búinn að opna allar hurðir svo Guðmundur gat ekið fyrsta brunabQnum beint á vettvang um það leyti sem fyrstu brunaliðsmennina bar að. Mikill eldur var í húsinu og tók það slökkviliðið um hálfa klukkustund að ráða niðurlögum hans. Eigendur hússins Mjógötu 7a eru því að eldur kviknaði. Hann reyndi ung hjón sem eru að flytja til Færeyja. Voru þau komin til Reykjavíkur en móðir húsbóndans hafði verið fyrr um daginn að tæma húsið og ganga frá svo að mjög lítið brann af innanstokksmunum en húsið sjálft er mjög illa farið af vatni, eldi og reyk. Við fyrstu rannsókn virtistísém um íkveikju væri að ræða. Nú liggur fyrir að 27 ára maður sem býr í nágrenninu fór f heimildarleysi inn í húsið og varð óviljandi valdur að að slökkva eldinn, en þegar það tókst ekki fór hann í næsta hús og gerði viðvart. Mikil óvissa og óþægindi fylgja því að engin vakt skuli vera að nóttu til á slökkvistöðinni. í þessu tilfelli, eins og í síðasta bruna, verða lögreglumenn lykilmenn í björgun- ar- og slökkvistörfum, en mikilvægt er einmitt að þeir geti sinnt þeirri öryggisgæslu sem þeim er ætlað þegar álíka atburðir verða. - Úlfar V' f . MorKunblaðið/Ölfar Lögreglumenn við rannsókn á brunastað og I forgrunni er brunið innbú úr húsinu. Bragi Beinteinsson yfirlögregluþjónn er fremstur, Óskar Sigurðsson rannsóknarlögreglumaður er lengst til vinstri á myndinni og Ólafur Arnar Ólafsson lögregluvarðstjóri fyrir miðju. Kaupfélag Svalbarðseyrar: Ferfram á greiðslu- stöðvun í mánuðinum Akurejrrij 10. marz. KAUPFELAG Svalbarðseyrar mun fara fram á greiðslustöðvun síðar í þessum mánuði. Forráðamenn fyrirtækisins vinna nú að því að kanna stöðuna. „Við erum í uppgjöri og afstemmningu," sagði Karl Gunnlaugsson, kaup- félagsstjóri, í samtali við Morgun- blaðið í dag. Að sögn Karls getur greiðslustöðvun gilt í fimm mánuði mest. „Í þijá mánuði til að byija með og síðan er hægt að fá hana framlengda um tvo mánuði — við munum örugglega reyna að fá stöðvun í allan þennan tíma,“ sagði Karl. Hann sagði enn ekki ljóst hve miklar skuldir fyrirtækisins væru en það ætti að verða ljóst eftir u.þ.b. hálfan mánuð. Kaupfélagið skuldar enn öllum starfsmönnum sínum laun fyrir janúarmánuð. 1. febrúar tók Kaup- félag Eyfirðinga við starfseminni á Svalbarðseyri en fáeinir starfsmenn eru enn í starfí hjá Kaupfélagi Svalbarðseyrar. Þeir hafa ekki fengið greidd laun frá áramótum. Brotist inn hjá Vöku Brotist var inn í félagsheimili Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta, aðfaranótt laugardags- ins síðastliðins. Ekki er ljóst hver tilgangurinn með innbrotinu var, en farið var í trúnaðarskjöl, sem þama voru, og engu stolið nema nýlegri ritvél, sem fannst í porti á bak við húsið. A staðnum voru geymd ýmis gögn varðandi stúdentaráðskosningar, sem fram fara í Háskóla íslands í dag, þriðjudag. Innbrotið var kært til Rannsóknarlögreglu ríkisins sem vinnu nú að rannsókn málsins. Loðnuyeiðum er að ljúka LOÐNUVEIÐUM á yfirstand- andi vertíð er nú að ljúka. Alls eru um 8.000 lestir óveiddar úr áður ákveðnum kvóta. Veiðamar nú miðast nær ein- göngu við hrognafrystingu, þar sem loðnan er orðin mjög horuð og. verðlítil til bræðslu. Nokkrir bátar eiga eftir smávegis af kvóta sínum, en Grindvíkingur GK, sem vinnur og frystir hrognin um borð, á eftir tæpar 3.000 lestir. Þá hafa nokkrir bátar fengið leyfí til að veiða nú upp í úthlutun fyrir næstu vertíð og byggist það á því, að nýta möguleg verðmæti betur með fryst- ingu hrogna. Dráttarbátur- inn að Goða- fossi í dag KANADISKI dráttarbáturinn Irving Cedar verður kominn að Goðafossi suðaustur af Hvarfi um hádegi í dag. Honum hefur seinkað talsvert vegna veðurs. Hofsjökull var við Goðafoss í gærkvöldi á leið sinni fiá Bandaríkj- unum til íslands og var þá þokka- legt veður á þessum slóðum, um 5 vindstig af suðsuðvestri og ástandið um borð í góðu lagi. Goðafoss hefur nú verið á reki suðaustur af Hvarfi síðan um miðja síðustu viku er öxull í vél bilaði. Áætlað er að það taki dráttarbátinn um 10 daga að draga Goðafoss til hafnar í Everett við Boston. Farmur skipsins er frystur fiskur, en honum er ekki talið hætt við skemmdum, þar sem frystivélar skipsins, eins og flest allur útbúnaður þess, eru í ágætu lagi. Svínalæri 247 kr. kg. Svínabógar 245 kr. kg. Svínahryggir 470 kr. kg. Svínakótilettur 490 kr. kg. Svínahakki m/beini 325 kr. kg. Svínasnitchel 525 kr. kg. Svínaguliasch 475 kr kg. Svínalundir 666 kr. kg. Svinaspekk 1 1 O kr. kg. Svínaskankar 96 kr. kg. Svínalifur 1 25 kr. kg. Svínahakkafillet 420 kr. kg. Svinahamb.hr. 508 kr. kg. KJÖTMIÐSTÖÐIN Laugalæk 2. s. 686511 Grípið tækifærið V2 svínaskrokkar 6.7 30 kg á 225 kr. kg tilbúnir í frystinn. Hvergi lægra verð Okkarljúff. hangikj.læri, aðeins 425 kr. kg. Frampartar 265 kr. kg. Útb. hangilæri 435 kr. kg. Útb. hangiframpartar . 375 kr. kg. London lamb, læri útb., aðeins435 kr. kg.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.