Morgunblaðið - 19.07.1983, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 1983
41
félk í
fréttum
Gömlu
stjörnurnar
þola ekki
hvor aðra
Bette Davis — mætir á réttum
tíma.
Lana Turner — alltaf of sein.
+ Framleiöendur bandaríska sjónvarpsmynda-
flokksins „Hótels“, sem nú er veriö aö taka upp,
eiga í fremur óvanalegum erfiöleikum. í aöalhlut-
verkunum veröa nefnilega tvær gamlar Holly-
wood-drottningar, þær Lana Turner og Bette
Davis.
Framleiöendurnir hafa ákveöiö aö þær megi
aldrei vera á sama tíma í kvikmyndaverinu og alls
ekki koma fram saman og er ástæöan fyrir því sú,
aö Bette Davis, sem nú er 75 ára, og Lana Turner,
63 ára, eru erföafjendur, sem aldrei hafa getaö
þolaö hvor aöra.
Þetta er þó ekki eina vandamáliö. Lana Turner
var lengst af hjá MGM-kvikmyndaféiaginu þar sem
fólki leiöst aö koma mörgum klukkustundum og
seint í vinnuna og taka sér góöan tíma fyrir upptök-
urnar, en þetta fyrirkomulag gengur ekki hjá sjón-
varpinu nú á dögum. Bette Davis var hins vegar hjá
Warner Bros. þar sem leikararnir komust ekki upp
meö neina prímadonnustæla og Bette Davis mætir
alltaf á réttum tíma og kann rulluna sfna.
Þaö er þó nokkur huggun harmi gegn hjá Lönu
Turner á þessum erfiöu sjónvarpstímum, aö hár-
greiöslumeistarinn hefur falliö flatur fyrir henni,
horfir á hana löngum stundum og getur ekki leynt
hrifningu sinni.
Mike Oldfield:
Uppskrift að metsölulagi
+ Mike Oldfield, breski söngvarinn sem hefur veriö háttskrifaöur á vin-
sældalistunum fyrir lagiö sitt „Moonlight Shadow“, sagöi nú nýiega frá
því hvernig hann færi aö því að semja metsölulög.
„Ég bara settist niður og hugsaöi máliö, kannaöi ofan í kjölinn hvaö eitt
lag þarf aö hafa til aö bera, til aö komast á toppinn. Þaö þarf nefnilega aö
matreiöa þaö vel fyrir áheyrendur. Stundum eru þaö jafnvel bara eitt eöa
tvö orö, endurtekin nokkrum sinnum, sem gera útslagiö.
Lagiö veröur líka aö höföa til tilfinninganna og laglínan veröur aö
hljóma þannig, aö fólki finnist sem þaö hafi heyrt hana áður,“ sagöi Mike
Oldfield. ,
COSPER
— Ég mundi allt í einu, aö ég var meö miðana.
Martina
Navratilova:
Hinar
eru ekki
nógu góðar
+ Við sögöum nýlega frá
honum John McEnroe,
heimsmeistara í tennisleik,
en nú er rööin komin að
henni Martinu Navratilovu,
sem hefur svo mikla yfirburði
í kvennatennisnum, að sumir
segja, að hún muni ganga frá
honum dauðum.
„Þetta hljóta hinar kon-
urnar að hafa sagt, sem eru
ekki nógu góðar sjálfar,"
segir Navratilova. „Ég ætla
mér aö vinna alla þá sigra,
sem ég get, hvað sem það
kann að kosta tennisleikinn,
og þiö getiö verið alveg viss
um, að einhvern tíma koma
einhverjar fram, sem steypa
mér af stóli.“
Tennisferill Navratilovu er
einstæður í sinni röð. í fyrra
sigraöi hún á 16 mótum af
19, sem hún tók þátt í, vann
90 leiki en tapaöi þremur og
í ár hefur hún unniö níu mót,
en tapað einu. Frá því í janú-
ar í fyrra hafa aðeins fjórar
konur unniö þaö sér til
frægöar að bera sigurorð af
Navratilovu í leik
burðamaöur í kvennatenn-
isnum.
FRISTUNDIR
áfullu
kaupi
ÁMAN ÁRMÚLA 2 1
Garðtætarar
AFKASTAMIKLIR,
HANDHÆGIR,
LÉTTIR
(AÐEINS 27 KG)
Nú þarf ekki aö
stinga upp garö-
inn. Notið Honda
garötætara.
Verö aðeins honda á íslandi
15.900.-
VATNAGARÐAR 24,
REYKJAVÍK, SÍMI 28772.
fSTender
||||l vsttles
Hagsýn húsmóðir
gefur kisu sinni PURINA
kattafóður daglega.
Næring við hæfi -
RANNSÓKNIR TRYGGJA GÆÐI
PURINA umboðið