Morgunblaðið - 19.07.1983, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 1983
39
um og erilssömum lögmannsstörf-
um hans. Páll hélt fram skoðunum
skjólstæðinga sinna af mikilli ein-
urð og festu. Eftir að verk var haf-
ið voru það hagsmunir skjólstæð-
inganna, sem sátu í fyrirrúmi, og
hvorki mun Páll hafa sparað tíma
né fyrirhöfn til að gera hlut um-
bjóðenda sinna sem bestan. Enda
var Páll eftirsóttur lögmaður og
störf hans farsæl.
Eins og áður segir var Páli mjög
annt um allan framgang lög-
mannastéttarinnar og vildi veg
hennar sem mestan. Var hann
ódeigur við að koma með ábend-
ingar og ráð um hvaðeina, sem til
heilla gæti horft í því sambandi.
Fyrir öll hans góðu störf í þágu
Lögmannafélags íslands er nú
þakkað að leiðarlokum. Nafn Páls
S. Pálssonar mun lengi lifa innan
íslenskrar lögmannastéttar.
Ekki nægði það Páli að taka ein-
ungis þátt í samstarfi íslenskra
lögmanna. Hann var virkur þátt-
takandi í alþjóðlegum félagsskap
lögfræðinga, sem ber heitið
„World Peace Through Law Cent-
er“ og var formaður íslandsdeild-
ar samtakanna.
Persónuleg viðkynning undirrit-
aðs af Páli var hvorki löng né náin
en með þeim hætti að mér likaði
strax vel við Pál og bar fyrir hon-
um virðingu. Mér er það minnis-
stætt hversu vel Páll tók mér, er
ég var að hefja lögmannsstörf og
þurfti að eiga við hann samskipti.
Slíkt var mér mikils virði. Veit ég
að margir yngri lögmenn hafa
sömu sögu að segja. í minum aug-
um var Páll ákaflega heilsteyptur
maður, hreinn og beinn og fór ekki
í manngreinarálit.
Minnisstæður persónuleiki og
merkur samferðarmaður er nú
kvaddur. Eftirlifandi eiginkonu,
börnum og öðrum ástvinum færi
ég hugheilar samúðarkveðjur.
Hafþór Ingi Jónsson,
framkvæmdastjóri Lög-
mannafélags íslands.
Kveðja frá Lions-
klúbbi Reykjavíkur
Við fráfall Páls S. Pálssonar
hæstaréttarlögmanns hefur enn
einu sinni verið höggvið stórt
skarð í raðir félaga í Lionsklúbbi
Reykjavíkur. Með skömmu milli-
bili höfum við kvatt mæta félaga,
þá Kristin Bergþórsson og Gunnar
B. Sigurðsson. Verður því með
sanni sagt: Nú er skarð fyrir
skildi.
Páll gekk í Lionshreyfinguna
árið 1953 og var því einn af elztu
félögum hennar og alla tíð hin
styrka stoð. Það er mikið happ
fyrir félagsskap, sem hefur líknar-
og mannúðarmál efst á stefnuskrá
sinni, að Páll skyldi gerast liðs-
maður í Lionshreyfingunni, enda
gegndi hann þar mörgum trúnað-
arstörfum og var oft til kvaddur
þegar mikið lá við.
Auk fræðigreinar sinnar var
Páll víðlesinn og margfróður. Við
félagarnir fengum oft að njóta
þess, þegar Páll sagði frá hugðar-
efnum sínum, en hann var frábær
sögumaður.
Minninguna um góðan dreng
munum við varðveita í hjarta
okkar með þakklæti fyrir liðnar
samverustundir.
Við ferðalok vottum við eigin-
konu, frú Guðrúnu G. Stephensen,
og öðrum ástvinum innilega sam-
úð.
Sigurdur B. Oddsson
SVAR MITT
eftir Billy Graham
í einrúmi með Guði
Eg á svo erfitt með að einbeita huganum, þegar eg biðst
fyrir, les í Biblíunni eða hugleiði orð hennar. Getið þér gefið
mér einhver ráð?
Biblían segir, að í heiminum séu að verki andleg
öfl, sem vilji koma í veg fyrir, að við eigum samfélag
og samband við Guð. Biblían segir líka, að við eigum
að „berjast fyrir þeirri trú, sem heilögum hefir í eitt
skipti fyrir öll verið í hendur seld“.
Eg vil benda yður á þrjú atriði og byggi á eigin
reynslu:
I fyrsta lagi skulið þér ætla ákveðinn tíma til lest-
urs Biblíunnar og bænar. Gerið „samning" við Guð
og haldið hann nákvæmlega eins og aðra samninga.
Morgunstundirnar eru drýgstar til náms og íhugun-
ar.
í öðru lagi: Gerið yður ljóst, að Satan reynir að
spilla þessum helgistundum öllu öðru fremur. Verið
viðbúnir truflun, t.d. að dyrabjöllu eða síma sé hringt.
Bíðið með að anza. Guð á himnum á að ganga fyrir
öllum öðrum.
í þriðja lagi: Fylgið áætlun á helgistundum yðar.
Byrjið á guðspjalli Jóhannesar og lesið einn kapítula
á dag. Verjið tíma til hugleiðingar, svo að þér látið
heilagan anda „leiða yður í allan sannleika". Þegar
þér farið síðan að biðja, skulið þér ekki tala einn.
„Verið hljóðir og viðurkennið, að eg er Guð,“ segir
sálmaskáldið (ensk þýð.). Látið Guð gefa yður fyrir-
mæli fyrir daginn.
OLLUM OÐRUM FEAMAR
Gerðu bestu bílakaupin
Líttu á staðreyndirnar
Við bárum saman verð svolítið sportlegra bfla með vélarstærðinni
1300 cc. - 1600 cc. og með fímm gíra gírkassa þar sem það fékkst.
(Samanburður gerður 11.7. '83)
Alfasud 1500cc, 5 gíra, 4radyra,
Ford Escort 1600cc, 5 gíra, 3ja dyra,
Honda Civic S 1335cc, 5 gíra, 3ja dyra,
Mazda323 1500cc, 5 gíra, 3jadyra,
Mitsubishi CordiaSR lóOOcc, 4ragíra, 3jadyra,
ToyotaTercel 1300cc, 5 gíra, 3jadyra,
Volvo 343 1400cc, 4ra gíra, 3ja dyra,
ÍL
310.000.00
kr. 420-430.000.00
kr, 293.000.00
kr. 272.000.00
kr. 307.000.00
kr, 275.000.00
kr. 346.000.00
OG LOKS Á LANGBESTA VERÐINU
NISSAN CHERRY 1500cc,
5 gíra, 3ja dyra á aðeins
kr. 257.000.00
Samt er CHERRYríkulega búinn. Hann er t.d. með snúningshraða-
mæli, lituðu gleri, útvarpi, skottlok, bensínlok og báða afturglugga
má opna úr ökumannssæti, veltistýri, rafmagnsklukku, hitaðri
afturrúðu með rúðuþurrku og rúðusprautu, 6-12 sekúndna stillan-
legum biðtíma á þurrkum, framhjóladrifi, 84ra hestafla vél og margt
margt fleira.
Munið bílasýningar okkarum helgar kl. 2-5.
Tökum allar gerðir eldri bifreiða
upp í nýjar
VERIÐ ÓHRÆDD VIÐ AÐ GERA
SAMANBURÐ - ÞAÐ ERUM VIÐ
NISSAN LANG-LANG MEST
FYRIR PENINGANA
INGVAR HELGASON Sim, ««0
SÝNINGARSALURINN/RAUÐAGERÐI