Morgunblaðið - 19.07.1983, Síða 48
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLf 1983
Fremstir á
Silverstone
LOKAÚRSLIT í British Grand Prix
Silverstone:
Alain Prost, Renault Elt Turbo,
1.24.39.78 klst.
Nelson Piquet, Brabham Turbo,
1.24.58.94 klst.
Patrick Tambay, Ferrari Turbo,
1.1.25.06.02 klst.
Nigel Mansell, JPS Lotus Elf
Turbo, 1.25.18.73 klst.
René Arnoux, Ferrari Turbo,
1.25.38.65 klst.
Niki Lauda, McLaren Ford, einum
hring á eftir.
Staöan í heimsmeistarakeppninni
1983 eftir þessa keppni:
Alain Prost Stig 39
Nelson Piquet 33
Patrick Tambay 31
Keke Rosberg 25
René Arnoux 19
John Watson 16
• Sigurvegarinn, Alain Prost, brunar hér éfram é Renault Elf bíl sínum. Prost ók mjög vel é Silverstone
af stað é undan, og kom nítjén sek. é undan næsta manni í mark.
„Á alla möguleika á
heimsmeistaratitlinum*
— sagði Alain Prost í einkasamtali við Morgunblaðið
eftir að hafa sigrað í Silverstone-kappakstrinum
Frí Gunnlaugi Rögnvaldssyni, fréttamanni Morgunblaðsins é Silvsrstone, Englandi:
Alain Próst ók Renault Elf
Turbo sínum til sigurs í Breska
Silverstone kappakstrinum, sem
fram fór á laugardaginn. Prost
tók framúr tveimur keppnisbíl-
um, sem störtuöu fyrir framan
Tour de France:
T veir jaf nir í mar k
— en Winnen sjónarmun á undan
Frakkinn Laurent Fignon hef-
ur nú forystu í Tour de France,
hinni frægu hjólreiðakeppni, en
kapparnir eru nú staddir í
L’Alpe d’Huez.
Landi hans Pascal Simon, sem
leitt hefur keppnina síðan 11. júlí,
og því klæðst „gulu treyjunni",
varö að hætta keppni í gær
vegna meiðsla í öxl. Hann hefur
átt viö þessi meiösli aö stríöa
síðan hann datt á þriöjudaginn
var — en hann neitaði aö gefast
upp fyrr en í gær.
í gær var hjólaö frá La Tour de
Pin til L’Alpe d’Huez — og á
þeirri leið fóru kapparnir gegnum
sex fjallaskörö, sem reyndist of
mikið fyrir Simon.
Hollendingurinn Peter Winnen
sigraöi á 17. leið í gær, en hann
bókstaflega stakk keppinauta
sína af ásamt Frakkanum Jean-
Rene Bernaudeau. Keppnin milli
þeirra var geysihörö, en Hollend-
ingurinn vann naumlega.
hann og kom í mar 19 sekúndum
á undan næsta bíl, sem var Brab-
ham Turbo Nelson Piquet Patrick
• Keppnin á Silverstone fór fram
í 33 stiga hita. Hitabylgja hefur
verið á Englandi undanfarið. Hér
er verið að fylla bensín á bíl Belg-
ans Thierre Boutfen og hann
skýlir sér fyrir sólinni með mynd-
arlegri sólhlíf. Ökumannsgreyj-
unum hefur sennilega ekki líkað
allt of vel viö sólina — því hitinn í
bílunum var allt upp í sextíu
gráöur á Celcius meöan á keppn-
inni stóð. Boutfen var ekki á með-
al fremstu manna ( keppninni.
Þegar ökumenn koma út af
brautinni i tilviki eins og þessu
staldra þeir yfirleitt ekki lengi viö,
eins og fram kemur í greininni
varðandi Alain Prost. Það tók að-
stoðarmenn hans aöeins tólf sek-
úndur að skipta um öll dekk bíls-
ins og fylla bensíntankinn. Vel af
sér vikið.
Morgunblaðið/ Gunnlaugur Rögnvaldtson
Winnen sigraöi á þessari leiö í
keppninni fyrir tveimur árum, en
hún er 223 kílómetrar. hann fór
vegalengdina á sjö klst., 21,32
min. Meðalhraöi hans var 30,303
km á klst. Bernaudeau fékk
sama tíma, en var dæmdur sjón-
armun á eftir. í þriðja sætinu
varö Edgar Corredor, einn fimm
áhugamanna frá Kólumbíu, sem
enn eru eftir. Hann kom í mark
50 sek. á eftir þeim tveimur
fyrstu.
Tambay á Ferrari Turbo, sem
flesti veðjuðu að myndi sigra,
hreppti þriöja sæti.
Silverstone kappaksturinn fór
fram í um 33 stiga hita, og fylgdust
rúmlega 80.000 manns með aöför-
um ökumannanna tuttugu og sex,
sem kappaksturinn hófu. Ferrari
bílar Rene Arnoux og Patrixk Tam-
aby leiddu keppnina framan af, en
Alain Prost fylgdi fast í kjölfar
þeirra og ógnaöi grimmilega meö
djörfum akstri. Þaö skilaöi sér í 14.
hring er Prost smeygöi sér framhjá
Arnox meö því aö fara innfyrir
hann í beygju. Hann lét þó ekki
staöar numiö heldur lék saman
leik gegn Tamday og fór frammúr
honum í 20. hring í nákvæmlega
sömu beygju. Stuttu síöar komst
Nelson Piquet framhjá Tambay.
Nigell Mansell hélt sig fyrir aftan
Tambay á Lotus Renault Turbo.
Hann var stjarna dagsins á bíl,
sem hann prófaöi í fyrsta skipti 40
mínútum fyir keppni! Elio d’Angelis
datt úr keppni er eldur kom upp í
bíl hans strax í byrjun og sömu
sögu má segja um Manfred Wink-
elhock. Aö loknum helmingi kapp-
akstursins tóku margir þá áhættu
aö skipta um dekk og fylla bensín-
tankana og skilaöi sá leikur sér vel
fyrir flesta. Það tók aöeins 12 sek-
úndur fyrir viögeröarliö Alain Prost
aö skipa um öll dekk bílsins og
fylla bensíntankinn! En staöan
breyttist ekkert á toppnum næstu
hringi og aö loknum 67 hringjum
Silverstone kappakstursins fagn-
aöi Frakkinn Alain Prost öruggum
sigri á Renault Elf Turbo bíl sínum
og tók þar meö forystu í heims-
meistarakeppninni, sem sjaldan
hefur veriö jafnari. í samtali viö
blm. Morgunblaösins sagöi Prost
aö brautin heföi veriö mjög erfið
og mikiö heföi reynt á vélina. „Fyrir
keppnina taldi ég okkur hjá Ren-
ault eiga jafna möguleika og
Brabham og Ferrari, en þaö sakar
ekki aö viö unnum,” sagöi Prost
brosandi. „Ég ætla aö reyna aö
halda forskoti mínu í heimsmeist-
arakeppninni og tel mig eiga alla
möguleika á heimsmeistaratitilin-
um í ár.“ Sigur Prost í Silverstone
kappakstrinum er hans þriöji á ár-
inu og sýnir þaö vel aö hann á fulla
möguleika á titlinum, en Piquet og
Tambay koma stuttu á eftir honum
t stigakeppninni. Staöan er hér aö
neðan.
Morgunblaéið/ Gunnlaugur
• Alain Prost kampakátur eftir
sigurinn.
Sovéski
dýfingamaður-
inn látinn
SOVÉSKI dýfingamaðurinn
Sergei Shalibashwili, sem
slasaöíst alvarlega í dýfing-
um af 10 m palli á heims-
leikum stúdenta í Kanada á
dögunum, lést um helgina.
Hann komst aldrei til með-
vitundar eftir slysið og var
hann búinn að vera í sjúkra-
húsi í Edmonton í vikutíma
þegar hann lést. Hann var 21
árs gamall.
VLADIMIR Salnikov, sund-
maöurinn frægi frá Sovét-
ríkjunum, setti nýtt heims-
met á föstudaginn í 800 m
skriðsundi þegar hann synti
vegalengdina á 7:52.33.
Eldra metiö átti hann sjálfur
og bætti hann það um hálfa
sekúndu. Þetta met setti
hann á móti í Los Angeles
og var synt í nýrri glæsilegri
sundlaug sem notuö verður
á Ólympíuleíkunum þar
næsta ár.
Fylkir og FH
í bikarnum
í kvölti
EINN leikur verður í 8 liða úrslit-
um bikarkeppni KSÍ og verður
hann leikinn á Árbæjarvelli. Þar
eigast við Fylkir og FH og hefst
leikurinn kl. 20. Þessi liö eru bæði
í 2. deild og verður fróðlegt að sjá
hvort þeirra kemst í fjögurra liöa
úrslit.
Á Vopnafiröi leika Einherjí og
Víöir í 2. deild en þeim leik var
frestaö í annarri umferö í maí.
Leikurinn hefst einnig kl. 20.
GR.