Morgunblaðið - 19.07.1983, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLl 1983
3
Mikið um að vera hjá viðhaldsdeild Flugleiða:
„Þriggja mánaða
vinna unnin
yfir eina helgi“
Hluti hópsins, sem vann við vélina.
Boeing 727-100 þota Flugleiða í skoðun f Reykjavfk.
MIKIÐ var um að vera hjá við-
haldsdeild Flugleiða á dögunum,
þegar Boeing 727-100 þota félags-
, ins, sem er í leigu í Nígeríu kom
hingað á laugardagmorgni til hreyf-
ilskiptingar, auk þess sem fram fór
rækileg viðhaldsskoðun vélarinnar
og hún hreinsuð hátt og lágt utan
sem innan, en vélin þurfti að fljúga
tii baka á sunnudagskvöldið, að
sögn Sæmundar Guðvinssonar,
fréttafulltrúa Flugleiða.
Vinnuframlag flugvirkja og
annarra starfsmanna Flugleiða
nam þessa helgi um 520 mann-
stundum, eða sem svarar til
þriggja mánaða vinnu eins
starfsmanns. Þegar mest var um
að vera unnu 40 starfsmenn fé-
lagsins samtímis við flugvélina
undir verkstjórn Hennings
Finnbogasonar, fulltrúa í við-
haldsdeild félagsins.
Flugleiðir hófu flug fyrir Kabo
Air í Nígeríu í apríl 1981 og gerir
núverandi áætlun ráð fyrir 15
ferðum á viku milli Kano og Lag-
os og vikulega eru fluttir liðlega
2.200 farþegar á þessari flugleið.
Um 20—25 starfsmenn Flugleiða
hafa að jafnaði starf við þetta
verkefni, þar af fjórar flugáhafn-
ir. Öllu viðhaldi vélarinnar er
sinnt af starfsmönnum Flugleiða,
erlendis og hér á landi.
Humarveiðum
lýkur 27. júlí
næstkomandi
Salan gengur vel
Sjávarútvegsráðuneytið hefur nú
ákveðið að síðasti veiðidagur á yfír-
standandi humarvertíð verði miðviku-
daginn 27. júlí næstkomandi. Ástæða
þessarar ákvörðunar ráðuneytinsins er
sú, að humarafíinn var orðinn um
2.400 lestir 14. júlí síðastliðinn, en
heildaraflakvótinn á þessari vertíð var
ákveðinn 2.700 lestir.
Að sögn Eyjólfs ísfelds Eyjólfs-
sonar, framkvæmdastjóra Söíumið-
stöðvar hraðfrystihúsanna, hefur
gengið mjög vel að selja humarinn.
Hefur hann að mestu farið jafnóð-
um úr landi og hann hefur verið
unninn og á þokkalegu verði. Hum-
arinn er nú aðallega seldur til
Bandaríkjanna og Sviss.
Þjóðkirkjan:
Sumarbúðir
fyrir börn af
Suð-vesturlandi
ÞJÓÐKIRKJAN storfrækti um árabil
sumarbúðir fyrir börn af suð-vestur-
landi að Kleppjárnsreykjum í Borgar-
fírði, en sú storfsemi lagðist niður um
1970. Nú ætlar Þjóðkirkjan aftur að
hefja rekstur sumarbúða þar, og munu
um 30 börn dveljast þar í viku um
mánaðamótin júlí—ágúst.
Mbl. hafði samband við Unni Hall-
dórsdóttur, safnaðarsystur, og sagði
hún að Þjóðkirkjan hefði um langt
skeið starfrækt sumarbúðir fyrir
börn, bæði fyrir norðan og austan,
en sumarbúðir fyrir börn af suð-
vesturlandi hefðu lagst niður uppúr
1970. Nú væri hins vegar ætlunin að
hefja aftur rekstur sumarbúðanna
að Kleppjárnsreykjum í Borgarfirði,
og væntanlega færu um 30 börn á
aldrinum 9—12 ára þangað um mán-
aðamótin næstu. Unnur sagði að þau
hefðu nú farið heldur seint af stað í
ár, og því væri aðeins þessi eini hóp-
ur sem dveldist að Kleppjárnsreykj-
um í sumar, en ennþá væri ekki búið
að fylla þann hóp. í sumarbúðunum
verður reynt að skapa þægilegt og
gott andrúmsloft fyrir börnin, nátt-
úruskoðun stunduð, farið í leiki og
kvöldvökur haldnar. Sundlaug er á
staðnum, en Unnur sagði að allur
aðbúnaður hefði batnað á síðustu ár-
um, m.a. væru komnar nýjar byggin-
ar o.fl. Upplýsingar um þennan
endurnýjaða sumardvalarstað fyrir
börn, veitir skrifstofa æskulýðs-
fulltrúa.
SVANPUR-SVAMPUR-OG AFTUR SVAMPUR
egar orðið svampurer nefnt kem-
ur nafnið Pétur Snæland hf. strax í
hugann. í 30 ár höfum við framleitt
svamp fyrir íslendinga til alls konar
nota. Svamp í dýnur, svamp í stofu-
sófa, svamp í sjónvarpssófa, svamp
í svefnsófa, svamp í barnastóla, kurl-
aðan svamp í púða, svamp í allt. Þú
nefnir það - við framleiðum svamp í
það.
n við gerum meira en að fram-
leiða svamp. Við gefum fólki ráð og
hugmyndir um notagildi svampsins.
Við saumum líka utan um svamp.
Skerum eftir máli. Límum saman sé
þess óskað.
4Vií?s,
Síðumúla 34, sími 84161 ■ Vesturgötu 71, sími 24060