Morgunblaðið - 25.05.1982, Qupperneq 38
46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. MAÍ1982
„Það var kosið
um tilfinningamál“
— segir Sigurjón Pétursson
„l'art er greinileg hægri sveifla í
þessum kosningum. Ég hef áhyggjur
af að hún muni styrkja stöðu Vinnu-
veitendasambandsins í kauplækkun-
aráformum þess og veikja stöðu
verkalýðshreyfingarinnar í komandi
stéttaátökum," sagdi Sigurjón Pét-
ursson, fráfarandi forseti borgar-
stjórnar, er Mbl. hafði tal af honum
í gær.
Varðandi úrslit í Reykjavík vildi
Sigurjón í fyrsta lagi benda á að
síðustu kosningar, sumarið 1978,
hefðu verið þær hagstæðustu sem
Alþýðubandalagið hefði fengið frá
upphafi. í annan stað sagði hann
engan vafa leika á að tilvist
Kvennaframboðsins hefði haft
veruleg áhrif á fylgi Alþýðu-
ba'ndalagsins til hins verra.
„Við Alþýðubandalagsmenn
verðum nú að ihuga gaumgæfilega
fylgistapið, en við gerum þá kröfu
til sjálfra okkar að vera í stöðugri
sókn. Við þurfum að taka okkar
áróðursmál fyrir, stöðu okkar og
starfsháttu. Hins vegar vek ég at-
hygli á að árið 1978 fengum við
allt lausafylgið. Það fylgi fór nú
annað, aðallega til Kvennafram-
boðsins sem einnig tók verulegan
hluta af okkar fastafylgi."
— Hvernig skýrir þú sigur
Sjálfstæðisflokksins?
„Almenna hægri sveiflu er erf-
itt að skýra. Flokkurinn hefur gíf-
urlegan áróðursmátt þar sem
Morgunblaðið er annars vegar. í
Reykjavík var flokkurinn með
ákaflega billeg kosningamál. Það
var ekki kosið um raunverulegan
samanburð á þessari stjórn og
stjórn sjálfstæðimanna, heldur
tilfinningamál eins og jarðfræði
íslands."
Sigurjón kvað stöðu ríkisstjórn-
arinnar hafa komið berlega fram í
fylgistapi Alþýðuflokksins, en
varðandi fylgisaukningu Sjálf-
stæðisflokksins sagði hann: „Þessi
úrslit munu veikja ríkisstjórnina
en styrkja Vinnuveitendasam-
Sigurjón Pétursson
bandið og leiftursóknararm
Sjálfstæðisflokksins gegn verka-
lýðshreyfingunni og hófsamari
öflum í Sjálfstæðisflokknum."
— Má vera að kaupmáttur
launþega með tilliti til kjörorð-
anna „samningana í gildi" hafi
haft einhver áhrif á kosningaúr-
slit?
„Hafi það haft einhver áhrif, þá
er það fyrir ósvífinn blekkinga-
áróður. Við settum samningana í
gildi með fullu samráði við alla
aðila. Annað er hrein kosningalygi
og billeg tegund af kosninga-
áróðri."
„Urslit kosninganna
endurspegla óánægju
með flokkakerfið“
— segir Guðrún Jónsdóttir, fyrsti borgarfulltrúi
Kvennaframboðsins
„Við erum mjög ánægðar með
þessi úrslit, einkum með tilliti til
þess að við erum nýkomnar fram á
sjónarsviðið," sagði Guðrún Jóns-
dóttir, fyrsti borgarfulltrúi Kvenna-
framboðsins i viðtali við Mbl í gær.
Hún bætti við: „Það vekur athygli að
við fengum þriðja mesta fylgi hér í
höfuðborginni."
— Áttuð þið ekki von á fleiri
borgarfulltrúum?
„Við höfðum nú ekkert ákveðið
fylgi til að miða við og undirstrik-
ar það sérstöðu okkar. En það er
rétt, við vorum bjartsýnar og ég
tel að við megum vel við þessi úr-
slit una.“
— Getur verið að fylgi ykkar sé
Guðrún Jónsdóttir
Hægri bylgja fleytti Sjálf-
stædisflokknum til valda
— segir Sigurður E. Guðmundsson
„Ég tel alveg ótvírætt að kosn-
ingaúrslitin hjá Alþýðuflokknum í
flest öllum byggðalögum sýni að sú
lægð sem flokkurinn komst í eftir
kosningarnar 1979 er enn fyrir
hendi,“ sagði Sigurður E. Guð-
mundsson, efsti maður á lista Al-
þýðuflokksins, þegar Mbl. ræddi við
hann í gær.
„Kosningaúrslit Sjálfstæðis-
flokksins víðast hvar í landinu,
þ. á m. í Reykjavík, má rekja til
þeirrar hægri bylgju sem komið
hefur fram í nágrannalöndum
okkar undanfarin ár og skoðana-
kannanir hafa sýnt að var líka
komin upp hér á landi. Þessi hægri
bylgja hefur fleytt meirihluta
Sjálfstæðisflokksins aftur til valda
í borgarstjórn Reykjavíkur. Þetta
gerist þrátt fyrir afstöðu Sjálfstæð-
isflokksins og málflutning hans í
borgarstjórninni síðan 1978, en ekki
vegna hans.“
— Sagt er að ásakanir þínar í
garð sjálfstæðismanna um nasisma
og fasisma hafi haft áhrif á þessi
kosningaúrslit.
„Hér er um helber ósannindi að
ræða sem ég mótmæli harðlega.
Engin slík ummæli hef ég nokkru
sinni viðhaft eða mun nokkurn tíma
viðhafa um sjálfstæðisfólk. Ég hef
ekki heyrt neinn tala í þessum dúr
nema Davíð Oddsson í sjónvarps-
þættinum sl. föstudagskvöld þegar
hann réðst á mig að mér fjarstödd-
um og án þess að ég gæti borið hönd
fyrir höfuð mér. Ég þekki marga
sjálfstæðismenn sem ég virði og
met mikils og myndi aldrei láta mér
koma í hug að tala svona um þá
eins og mér er borið á brýn.“
— Hvaða lærdóm draga alþýðu-
flokksmenn af þessum úrslitum?
„Við alþýðuflokksmenn verðum
að athuga okkar gang í rólegheitum
og fara gaumgæfilega ofan í saum-
ana á því sem gerst hefur. Auðvitað
höfum við gert ýmisleg mistök og
auðvitað hefur ýmislegt verið ógert
sem hefði betur verið gert.
Við munum leitast við að draga
okkar lærdóm af þessum úrslitum
og halda síðan baráttunni áfram af
fullum krafti. Það er engan bilbug á
okkur að finna.“
— Nú talaðir þú mjög til vinstri í
kosningabaráttunni. Hvað vilt þú
segja um þessa kosningabaráttu?
„Þessi kosningabarátta hefur
verið óheiðarleg gagnvart mér af
hálfu talsmanna Sjálfstæðisflokks-
ins, en að öðru leyti finnst mér hún
hafa verið málefnaleg og drengileg.
Alþýðuflokkurinn var í vinstra
samstarfi sem hann var ánægður
með og að sjálfsögðu vörðum við
Sigurður E. Guðmundsson
gerðir meirihlutans. Við héldum að
sjálfsögðu fram vinstri stefnu, enda
er Alþýðuflokkurinn vinstri flokk-
ur. Hvort þetta hefur eitthvað fælt
frá okkur fylgi, um það skal ég ekki
segja, en ég lýsti því yfir opinber-
lega í upphafi að flokkurinn gengi
til kosninga með frjálsar hendur."
öðru fremur óánægjufylgi fólks
sem vill refsa hinum flokkunum?
„Já, fylgi okkar hlýtur að endur-
spegla óánægju með flokkakerfið,
en fyrst og fremst er það okkar
stefna sem fær hljómgrunn í þess-
um kosningum."
— Hvaðan kom fylgið?
„Okkur finnst af viðtölum við
fólk að við höfum fengið stuðning
þvert á pólitísku flokkana, ekki
frá einum flokki öðrum fremur.
Auk þess vil ég vekja athygli á að
í þessum kosningum bættust 3.700
nýir kjósendur við kjörskrá, sem
ekki er ólíklegt að við höfum sótt
fylgi til.“
— Sigurjón Pétursson rekur
ósigur Alþýðubandalagsins til
Kvennaframboðsins.
„Ef hann er svona sannfærður,
þá ættu þeir í Alþýðubandalaginu
að setjast niður og íhuga sína
jafnréttisbaráttu. Flokkarnir
virðast hafa lagt allt kapp á að
gera okkur tortryggilegar, hefur
Þjóðviljinn t.d. brigslað okkur um
skort á vinstrisinnuðum rétttrún-
aði.“
CÖÐ CRCWSLUKJÖR BARM- OC FJÖlSKyiDtMfSLÁTTUR
BEINT FLUG í SÓLINA OG SJÓIN
þriggja yikna afislöppun
AÐALSTRÆTI9
E
Ul
ii MID6TÖDIIV s 28,33
ViAar Þorbjörnaaon,
Sigbjörn Gunnaraaon,
Sporthúsiö hf., Akureyri — sími 24350. Noröurbraut 12, Höfn Hornafiröi
UMBOÐSMENN: KSSSSr,
Asvegi 2, Dalvík — sími 61162.
Faröamiöatöö Auaturlanda
Anton Antonsson, Selás 5, Egilsstööum Bogi Hallgrímsaon,
— sími 1499 og 1510. Mánageröi 7, Grindavík — simi 8119.
Bjarni Valtýsson, Ólafur Guöbrandaaon,
Aöalstööinni Keflavík, Keflavík Merkurteig 1, Akranesi — sími 1431
— sími 8367. — sími 1516 og 1286. Björg Guðmundsdóttir,
Friöfinnur Finnbogason, Gissur V. Kriatjánsaon, Hjallastræti 24, Bolungarvik
c/o Eyjabúö, Vestmannaeyjum, — sími 1450. Breiövangi 23, Hafnarfiröi — sími 7460.
— sími 52963.