Morgunblaðið - 25.05.1982, Side 22
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. MAÍ 1982
IGNIS
COMBI
IGNIS COMBI frystiskápur
sem skiftist til helminga I
kælir að ofan og djúpfryst-
ir að neöan.
Tveggja kerfa skápur sem
er öruggur, hljóölátur og
stllhreinn.
Þægilegur I notkun og tek-
ur Iftið gólfpláss.
Mál: Hæð180cm
Breidd 60 cm
Dýpt 60 cm
Verð: 10.470
RAFIÐJAN H.F.
Kirkjustræti 6 v/Austurvöll
Sími 19294 og 26660
FITUBANINN
Adeins 2-3 töflur 1/2 tíma
fyrir máltíð, gefur fylhngu
þanmg að þú borðar ekki meira
en þú þarft.
INNIHELDUR einmg,
Prótein og jurtaefni
Nú fáanlegt í Apótekum
og matvöruverslunum
um mest allt landið
ÍNDHOLD
ca. i
100 stk
á et rent
^sk produM
Mosfellshreppur:
„Afskaplega
ánægður með
úrslitin“
„Vid höldum okkar meirihluta hér
í Mosfellshreppi, þrátt fyrir sameig-
iniegt framboð Alþýðubandalagsins
og Framsóknar, sem fylltu M-list-
ann. Sú sameining var gerð með því
eina augnamiði að fella okkar fjórða
mann,“ sagði Magnús Sigursteins-
son, efsti maður á lista Sjálfstæðis-
flokksins í Mosfellshreppi.
„Við bættum við okkur í þessum
kosningum, og höfum nú yfir 53%
atkvæðamagns, sem er um 7%
fylgisaukning frá því 1978. Maður
er að sjálfsögðu afskaplega
ánægður með úrslitin. Það vann
margt fólk mikið og gott starf að
undirbúningi þessara kosninga, og
við fundum það greinilega, að það
var mikið streymi til okkar á kjör-
dag og dagana á undan. Að þessi
árangur skuli hafa náðst, ber fyrst
og fremst að þakka þessu mikla
starfi, sem unnið var fyrir kosn-
ingarnar, því margir lögðu hönd á
plóginn. Þá á eflaust þessi hægri-
sveifla, sem átti sér stað um allt
landið næstum því, líka þátt í að
móta þessi úrslit.
Ég vil nota þetta tækifæri og
þakka öllu stuðningsfólki D-Iist-
ans fyrir sitt framlag," sagði
Magnús.
Sehjarnarnes:
„Sannarlega
ánægðir með
úrslitin"
„Við erum sannarlega ánægðir
með úrslit þessara kosninga. Við
héldum okkar hlut og vel það, bætt-
um við okkur einu og hálfu pró-
senti,“ sagði Sigurgeir Sigurðsson
bæjarstjóri Seltjarnarness en þar
hlaut Sjálfstæðisflokkurinn fimm
menn kjörna.
„Sjálfstæðisflokkurinn er langt
kominn með að hafa 65 prósent
atkvæða hér á Seltjarnarnesi. Við
þökkum það því að við höfum fylgt
þeirri meginstefnu að leggja ekki
hærri gjöld á íbúana en nauðsyn-
legt er. Það er þessi fræga lág-
skattastefna. Okkar skoðun er sú
að borgararnir séu betur fallnir til
að ráðstafa sínu fé en við. Ég held
að fólk kunni að meta það.
Eins höfum við verið heppnir
með okkar framkvæmdir hér á
nesinu og engin deilumál hafa ris-
ið, sem valdið hafa illindum eða
sundrung hjá mannskapnum. Við
héldum 1974 þegar við fengum
okkar fimmta mann kjörinn að
hann væri hálfgerðúr happ-
drættisvinningur en það reyndist
ekki vera og greinilegt að fólk
kann að meta okkar störf hér í
bænum," sagði Sigurgeir Sigurðs-
son, bæjarstjóri á Seltjarnarnesi í
lokin.
Sauöárkrókur:
„Við erum 1
sókn og
látum ekki
deigan síga“
„Við erum mjög ánægðir með
okkar útkomu úr þessum kosning-
um. Við höfum unnið verulega á og
við teljum að það boði betri tíð fyrir
Sjálfstæðisflokkinn hér á þessum
stað,“ sagði Þorbjörn Árnason, efsti
maður á lista Sjálfstæðisflokksins á
Sauðárkróki, en þar fengu sjálfstæð-
ismenn þrjá menn kjörna.
„Ég vil þakka þetta fyrst og
fremst," sagði Þorbjörn, „því að
við höfum verið leiðandi afl í bæj-
arstjórn síðastliðið kjörtímabil,
þar sem við komum í gegn þeim
framkvæmdum, sem við beittum
okkur fyrir. Auk þess höfðum við
mjög frambærilegum lista á að
skipa og sjálfstæðismenn unnu
mjög vel fyrir þessar kosningar.
Framsóknarmenn eiga hér mjög
sterk ítök í fólki, en það er ljóst,
að við höfum unnið verulega á og
erum í sókn og látum ekki deigan
síga,“ sagði Þorbjörn.
Gardabær:
Kjósendur hafa
eingöngu staðfest
að gott er að
búa í Garðabæ
„Framundan er að standa við það
sem við höfum lofað og það ætlum
við að gera,“ sagði Sigurgeir Ólafs-
son, efsti maður á lista Sjálfstæðis-
flokksins í Vestmannaeyjum, í sam-
tali við Mbl. í gærkvöldi, en sjálf-
stæðismenn unnu glæsilegan kosn-
ingasigur og meirihluta i Vest-
mannaeyjum, 6 bæjarfulltrúa af 9 og
litlu munaði að 7. maður Sjálfstæðis-
flokksins næði kjöri, þ.e. ef Fram-
sóknarflokkurinn hefði fengið 40 at-
kvæðum færra, en Sjálfstæðisflokk-
urinn þeim mun meira.
I 16 ár hafa vinstri flokkarnir
haft samstarf um meirihluta-
stjórnun bæjarins, en áður hafði
Sjálfstæðisflokkurinn haft meiri-
hluta um langt árabil. Fylgisaukn-
ing Sjálfstæðisflokksins í Vest-
mannaeyjum nú var liðlega 20%,
en hann hefur nú nær 60% kjör-
fylgis.
„Við stefnum að því að fyrsti
bæjarstjórnarfundur undir okkar
stjórn verði haldinn seinnipartinn
í næstu viku og þar munum við
taka fast og skipulega á málum og
ákveða röð þeirra," sagði Siggi
Vídó eins og hann er kallaður í
daglegu tali í Eyjum, „kosninga-
baráttan hófst með glæsilegu
prófkjöri sem 1650 manns tóku
þátt í, þar á meðal fólk undir
kosningaaldri, og niðurstaða
prófkjörsins var látin gilda
óbreytt áfram á lista Sjálf-
stæðisflokksins til bæjarstjórnar-
kosninganna. Það var talið í próf-
kjörinu 22. febrúar og listinn sam-
þykktur 3 dögum seinna einróma
af fulltrúaráði flokksins og þar
með var fyrsta stig kosningabar-
áttunnar hafið. Mikill fjöldi fólks
tók á ýmsan hátt þátt í undirbún-
ingi kosninganna síðasta mánuð-
inn fyrir kosningar og kosninga-
baráttan var mjög lífleg og
skemmtileg. Frambjóðendur
flokksins sem valdir voru í próf-
kjörinu settu fram sínar skoðanir
í Fylki, blaði sjálfstæðismanna, og
allir frambjóðendur unnu að
þeirri stefnuskrá sem sett var
fram og alla kosningabaráttuna
var mikil samstaða hjá öllum
flokksmönnum um að kosninga-
baráttan yrði málefnaleg og heið-
arleg.
Á þessari samstöðu unnust
kosningarnar, með mikilli vinnu
og baráttu, drengskap og vilja
fólks til þess að breyta um við
stjórnun bæjarins, enda tel ég að
það geti varla komið skýrar fram
en þessi mikla fylgisaukning
Sjálfstæðisflokksins sýnir."
Siglufjöröur:
„Gífurlega
ánægðir“
„Við erum gífurlega ánægðir með
þessi úrslit. Við höfum hlotið betri
kosningu nú en nokkurn tíma áður.
Baráttan hefur alltaf staðið á milli
þriðja manns Sjálfstæðisflokksins
og þriðja manns Alþýðubandalags-
ins, en núna fáum við fjóra menn og
erum gífurlega ánægðir með það.“
Þetta sagði Björn Jónasson, efsti
maður á lista sjálfstæðismanna á
Siglufirði en þar hlaut flokkurinn
fjóra menn kjörna, en hafði áður
tvo. Bætti sem sagt við sig tveimur
mönnum.
„Þetta þakkar maður fyrst og
fremst þeirri sveiflu sem átt hefur
sér stað í landinu og beinist til
okkar sjálfstæðismanna. Einnig
er um mikið persónufylgi fram-
bjóðenda hér að ræða. Én við ger-
um okkur grein fyrir því að vandi
fylgir vegsemd hverri og við ætl-
um okkur virkilega að reyna að
breyta þessum bæ, sérstaklega
hvað umhverfi hans varðar.
Hvað samstarf varðar, hafa
engar þreifingar átt sér stað í því
sambandi. Hér var áður þriggja
flokka samstarf og það er ljóst að
svoleiðis verður það ekki í fram-
tíðinni. Hver flokkanna verður
með okkur í samstarfi er ekki vit-
að ennþá, en við getum verið með
þeim öllum í stjórn," sagði Björn
Jónasson Siglufirði.
Fjögur ung-
menni fermd
í Malmö
ANNAN í hvítasunnu, 31. maí,
mun íslendingafélagið í Malmö
og nágrenni gangast fyrir ís-
lenskri guðsþjónustu í Vástra-
Skravlinge-kirkju í Malmö.
Fermd verða 4 ungmenni og 2
börn skírð. Prestur verður séra
Jóhann Hlíðar, sendiráðsprestur
í Kaupmannahöfn.
Eftir athöfnina verður öll-
um kirkjugestum boðið upp á
kaffi og meðlæti á Herragarð-
inum í Rosengárd í Malmö.
Nöfn þeirra sem fermast:
Birna Rán Loftsdóttir, Ram-
eldsvág 101, Malmö, Baldvin
Sigurjón Georgsson, Lugna-
gatan 45, Malmö, Árni Birgis-
son, Lundegatan 3a, Simris-
hamn, Vilhjálmur Birgisson,
Lundegatan 3a, Simrishamn.
(KrétUlilkynning).
Notaöar vinnuvélar
Traktorsgrafa CASE 580 F
Jaröýta I.H.T.D. 15
Traktorsgrafa MF50B
Hjólaskófla MF356
Traktorsgrafa IH 3820 A
Traktorsgrafa MF 70
Beltagrafa JCB7C
Traktorgrafa JCB3D
Dráttarvél Zetor 7011
VÉLAR & ÞJÓNUSTA HF„ Járnhálsi 2, sími: 83266.
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐINU
oböös þo ásstr 'c