Morgunblaðið - 25.05.1982, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. MAÍ1982 2 7
Gervigrasvöllur
yrði knattspyrnunni
mikil lyftistöng
• Þessi mynd er af einu fallegasta marki sem enn er komið í leikjum íslandsmótsins í knattspyrnu, jöfnunarmark
Breiðabliks gegn Fram. það var Hákon Gunnarsson sem skoraði markið. Skaut háum snúningsbolta inn að marki
Fram af löngu færi. Boltinn skrúfaði sig efst í markhornið eins og sjá má á myndinni. Guðmundur Baldursson leggur
sig allan fram við að ná til knattarins en allt kom fyrir ekki. í netið fór hann.
Ljósm. Kristján Einarsson.
Boltinn farinn að rúlla
Undirritaður mun í sumar sjá um
þátt þann sem undanfarin ár hefur
birst hér í Mbl. undir heitinu: Á eftir
boltanum.
Ýmsir mætir menn hafa haft um-
sjón með þessum þáttum á sl. árum
og nægir að nefna þá Árna Njálsson,
Helga Daníelsson og félaga minn,
Magnús Sigurjónsson, sem var
dálkahöfundur í fyrra. Hugmyndin
er að þáttur þessi verði viku til hálfs-
mánaðarlega, allt eftir því hve mikið
er um að vera á knattspyrnusviðinu.
Ekki verður um eiginlega gagnrýni á
leiki fslandsmótsins að ræða, því at-
riði sinna íþróttafréttamenn blaðs-
ins sem fyrr.
Hins vegar mun að sjálfsögðu
verða fjallað um 1. deildarkeppni ís-
landsmótsins svona almennt, auk
þess sem ég mun leitast eftir
fremsta megni við að taka fyrir sem
flest atriði, er flokkast undir hugtak-
ið: íslenzk knattspyrna. Landsliðið
fær sinn skerf eins og vera ber, svo
og kvennaknattspyrnan, yngri flokk-
arnir, þjálfaramál, vallamál og önn-
ur mál, sem of langt er upp að telja.
Vona ég að lesendur blaðsins hafi
einhverja ánægju af skrifum mínum,
og ekki væri lakara ef þau yrðu til
að vekja umræður um ýmis þau mál
sem miður fara í knattspyrnunni hjá
okkur, og stuðli jafnvel að úrbótum.
í því sambandi væri ekki úr vegi
fyrir forystumenn knattspyrnufé-
laga, leikmenn, dómara eða aðra
áhugamenn um vöxt og viðgang ís-
lenzkrar knattspyrnu að senda línu
til undirritaðs ef þeir hafa eitthvað
fram að færa, hugmyndir, kvartanir
eða hrós einhvers konar. Slíkt má
merkja undirrituðum og senda til
Morgunblaðsins, Aðalstræti 6,
Reykjavik.
Vallamál: Aöstaöa
eöa aöstööuleysi
Nú þegar íslandsmótið í
knattspyrnu 1982 er nýhafið, er
ekki úr vegi að líta á þær aðstæð-
# Hörður Hilmarsson mun skrifa
greinar um knattspyrnu fyrir Mbl. í
sumar.
ur, sem keppendum er boðið upp á
við æfingar á undirbúnings-
tímabilinu og í leikjum í „æf-
ingamótum" s.s. Reykjavíkurmót-
inu, litlu-og stóru bikarkeppnun-
um o.fl. „Rjóminn" af knatt-
spyrnumönnunum okkar, þ.e. þeir
sem leika í 1. deild, byrjar að æfa
utanhúss í janúar og hefur þegar
deildarkeppnin byrjar, 5 mánuð-
um síðar, æft og leikið við vægast
sagt skrautlegar aðstæður, sem
eiga engan sinn líka (það skal þó
tekið fram að undirritaður hefur
ekki kynnt sér aðstæður þær sem
nágrannar okkar, Færeyingar og
Grænlendingar æfa og keppa við á
veturna).
Sá umdeildi maður og þjálfari
Tony Knapp lét einhverju sinni
hafa eftir sér í viðtali við enskt
knattspyrnutímarit, að íslenzkir
áhugamennirnir æfðu við aðstæð-
ur sem ekki þýddi að bjóða ensk-
um knattspyrnumönnum þó þeir
fengju borgað fyrir það. Þá átti
hann vitanlega m.a. við veðrátt-
una (sem hvorki Baldur Jónsson
vallarstjóri né borgaryfirvöld
ráða neinu um, svo vitað sé), en
hún er oft ærið hryssingsleg hér
norður við „Ballarhaf" og hefur í
för með sér, að menn eru einn dag-
inn að æfa í ökkladjúpri leðju,
næsta dag er boðið upp á glerhál-
an og stórhættulegan malarvöll og
þriðja æfingin fer fram við 10
vindstig, meðan menn ösla snjó
upp að hnjám í þeirri fjórðu. Eg
held að hinn almenni áhorfandi
sem mætir á völlinn klukkan átta
á sólríku maíkvöldi og sér t.d.
stórskemmtilegan leik milli Fram
og UBK (2—2) geri sér enga grein
fyrir því hvað leikmennirnir 26
(bæði liðin skiptu tveimur
mönnum inn á) hafa lagt á sig til
að komast í æfingu, komast í lið.
Og enn síður hvernig aðstæður
menn hafa þurft að æfa við og
hvað hægt er að gera til að betr-
umbæta þær.
Nú, við veðrinu sjálfu er ekkert
hægt að gera, en það er hægt að
skapa aðstæður svo okkar dug-
mikla knattspyrnufólk geti æft
hvernig sem viðrar og æft allt
(ekki bara farið út að hlaupa). í
nágrannalöndum okkar svokölluð-
um, Skandinavíu og Finnlandi, er
að finna þrenns konar aðstöðu,
sem ég hef hrifist mjög af og tel
að möguleiki væri á að koma
tveimur þeirra upp hér á landi.
Annars vegar er um að ræða e.k.
braggalaga tjald, sérkennilega
byggingu sem sjá má víðs vegar í
Svíþjóð og að ég held Noregi.
Tjald þetta er upphitað og inni-
heldur eitt stykki sand-/malar-
völl, ca. 60x25m. Svona bygging
kæmi sér vel hérna á „klakanum"
og mætti að sjálfsögðu æfa fleiri
íþróttir en knattspyrnu í henni.
Fleiri grasvelli og þ.á m.
gervigrasvöll
Gervigrasvöllur yrði knattspyrn-
unni í landinu ómetanleg lyfti-
stöng. Ég á þá ekki við til að keppa
á yfir sumartímann, heldur til æf-
inga haust, vetur, vor og hugsan-
lega fyrir fyrstu leiki íslands-
mótsins, í stað þess að leika þá á
möl. Kostnaður við svona fram-
kvæmdir er sjálfsagt töluverður,
en hvað kostar ekki peninga í dag?
Það má hugsa sér að nokkur félög
tækju sig saman og byggðu bragg-
ann og/eða bæjar- eða sveitarfé-
lög sameinuðust um eitt stykki
gervigrasvöll. Iðkendur knatt-
spyrnu eru u.þ.b. 20.000 hér á
landi, og það þætti sumum stór
þrýstihópur, tæplega 10% þjóðar-
innar.
Fyrir utan gervigrasvelli og inn-
anhússmalarvelli í „braggatjöld-
um“ má finna á Norðurlöndum
fullkominn gervigrasvöll innan-
húss. í Lahti í Finnlandi hafa und-
anfarna tvo vetur farið fram
opinberir landsleikir í knatt-
spyrnu á slíkum velli við Svía og
Norðmenn. Ekki höfum við íslend-
ingar bolmagn til að fjármagna
byggingu slíks íþróttahúss, en hitt
er hægt.
Ekki get ég lokið þessum pistli
um velli og aðstæður til knatt-
spyrnuiðkunar án þess að benda á
nauðsyn þess að sem flest félög
hafi æfingaaðstöðu á grasi. Ekki
bara fyrir elstu leikmennina, held-
ur ekki síður fyrir yngri flokkana.
Núverandi landsliðsþjálfari, Jó-
hannes Atlason, hefur verið ungl-
ingaþjálfari hjá knattspyrnufé-
laginu. Fram undanfarin ár með
mjög góðum árangri og hann legg-
ur mikla áherslu á þetta, þegar
hann ber saman íslenska knatt-
spyrnu og „útlenda”. Okkur vantar
tilfinnanlega meiri tækni, betri
boltameðferð og grunnurinn að
slíku er lagður í yngstu flokkun-
um, og því mikils um vert að poll-
arnir og píurnar fái undirstöðu-
kennsluna á grasi, sem er hið rétta
„undirlag" fyrir knattspyrnu.
Nóg um vallamál og aðstæður,
og snúum okkur að nýhafinni 1.
deildar keppni karla.
Hörkukeppni framundan
Þeir leikir, sem fram hafa farið
í 1. deildinni nú að undanförnu,
gefa vissulega vonir um jafnt og
spennandi íslandsmót. Vegna þess
hve lítið ég hef fylgst með leikjum
hér á landi sl. tvö ár get ég ekki
dæmt um hvort gæði knattspyrn-
unnar séu meiri eða minni en í
fyrra eða hitteðfyrra. Hitt þykist
ég geta séð fyrir, að mótið í ár
verði svipað mótum sl. þriggja
ára, þannig að flestir leikjanna
verði jafnir (og vonandi einnig vel
leiknir) og liðin reyti stigin hvert
af öðru, en ekki verði um tveggja
liða einvígi að ræða eins og átti
sér stað „i den tid“, sællar minn-
ingar. Eina liðið sem gæti hrakið
þessa spá mína er hið unga og
stórskemmtilega lið Breiðabliks.
Ég bæði trúi því og vona að UBK
verði í einhverju af þremur efstu
sætunum þegar upp verður staðið
í haust. Það yrði sigur fyrir íþrótt-
ina sem slíka, ef lið sem leikur
eins góða knattspyrnu og UBK
gerir, næði árangri.
önnur lið sem ég reikna með að
verði ofarlega eru t.d. ÍA og ÍBV.
Skagamenn eru sjálfsagt með
elsta liðið í deildinni, þ.e. hæsta
meðalaldurinn, en það kemur
þeim frekar til góða heldur en
hitt. Reynsla „gömlu jaxlanna"
kemur til með að vega þungt í
jöfnum og erfiðum leikjum, og svo
hefur hinn slóttugi stór-þjálfari
George Kirby snúið „heim“ aftur
og hann hefur þann eiginleika að
ná því besta út úr hverjum leik-
manni. Góður kostur það hjá
þjálfara. ÍBV hefur byrjað tíma-
bilið óvenju vel og þegar þar við
bætist að eyjamenn eru alltaf
ákaflega erfiðir heim að sækja er
Ijóst að liðið kemur til með að
„vera í slagnum“. En það er líklegt
að þeir örn óskarsson og Sigurlás
Þorleifsson verði burðarásar liðs-
ins og því eins gott að þeir sleppi
við meiðsli. Fjórða liðið sem verð-
ur alveg örugglega með í barátt-
unni á toppi deildarinnar er Vík-
ingur. Liðið er greinilega í góðri
líkamlegri þjálfun og við stjórn-
völinn er mjög fær maður, Youri
Sedov.
Valur og Fram eru þau félög,
sem erfiðast er að staðsetja í röð-
inni. Þau gætu blandað sér í
toppbaráttuna, en meiri líkur eru
fyrir því að þau komi til með að
sigla lygnan sjó um miðbik deild-
arinnar. Frammarar eru með ungt
BELGÍSKI landsliðsmarkvörðurinn
Jean Marie Pfaff, hefur undirritað
samning við þýska knattspyrnufélag-
ið Bayern Miinchen. Er samningur-
inn til þriggja ára og fer Pfaff til
Þýskalands á næstu dögum. Pfaff,
sem er 29 ára gamall, hefur leikið
og sérlega efnilegt lið, en það er
viðbúið að það taki nýja þjálfar-
ann, hinn mjög svo viðkunnanlega
Andrzej Strejlau, nokkurn tíma að
fastmóta liðið. En Fram er alltaf
erfitt viðureignar, því vörn liðsins
og markvarsla er með því besta
sem gerist hér á landi. Valsliðið
hefur ekki byrjað vel að þessu
sinni og virðast of margir veikir
hlekkir vera í liðinu sem stendur.
Nokkrir reyndir garpar eru ný-
byrjaðir og aðrir eru á leiðinni, en
það tekur tíma fyrir alla þessa
menn að komast í æfingu og leik-
æfingu svo það lítur ekki út fyrir
Vals-sumar í ár. Þau fjögur félög
sem enn eru ónefnd, KR, ÍBÍ, KA
og ÍBK, hafna væntanlega öll í
neðri helmingi deildarinnar, en
ekki treysti ég mér til að segja
fyrir um hvaða tvö félög verða
neðst og falla niður í aðra deild.
Hvert þessara fjögurra liða um sig
getur unnið hin væntanlegu topp-
lið og því haft veruleg áhrif á það
hvar íslandsbikarinn hafnar.
Vona ég að við vallargestir
fáum að sjá skemmtilega leiki í
sumar, en til þess að svo megi
verða þurfa leikmennirnir að
pússa rykið af gömlu góðu leik-
gleðinni og bæta henni við barátt-
una, leikaðferðirnar og annað sem
þjálfararnir hafa verið að berja
inn í menn á síðustu mánuðum.
Grasið er grænt, boltinn er
hnöttóttur og knattspyrna er
„súper“-íþrótt.
Sæl að sinni!
Hörður Hilmarsson
með Beveren síðustu árin. Hann er
fastur maður i belgíska landsliðinu.
Knattspyrna)
Á EFTIR
B0LTANUM
Pfaff til Bayern M.