Morgunblaðið - 25.05.1982, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. MAÍ 1982
21
Óhöpp í
Nokkuð var um óhöpp á Grand
Prix-kappakstrinum í Monte
Carlo í Monaco um helgina. Verst
fór hjá Alain Prost, efsta mannin-
um í stigakeppninni, en hann ók
bifreið sinni utan í varnarvegg er
aðeins þrír hringir voru eftir og
hann í forystu. Olía og bleyta á
brautinni ullu óhappinu. Prost
slapp miklu betur en á horfðist í
Monaco
fyrstu, marðist illa á fótum.
Nokkrum sekúndum síðar klessti
Irinn Derek Daly einnig bifreið
sína, en slapp óskaddaður. Ricardo
Patresse frá Ítalíu skaust fram úr
Prost og sigraði að þessu sinni.
Hann ætlaði ekki að trúa sínum
eigin augum, fyrsti Grand Prix-
sigur hans í 70 mótum.
Sveinn sigraði á
fyrsta stigamótinu
SVEINN Sigurbergsson sigraöi á
Tab-mótinu svokallaða í golfi sem
fram fór i Hvaleyrarvellinum um
hclgina. Þetta var fyrsta stigamót
sumarsins þar sem landsliðsstig
voru í húfi, 10 efstu menn fengu stig.
Leiknar voru 72 holur og sló Sveinn
298 högg. Hann er í GK.
Annar varð Sigurður Haf-
steinsson úr GR á 300 höggum og
Sigurður Pétursson úr GR varð
þriðji á 301 höggi. Þeir Sigurður
Sigurðsson og Hannes Eyvindsson
voru jafnir í 4.-5. sætinu með 303
högg hvor. Sama var uppi á ten-
ingunum í 6.-7. sæti, þar voru
Óskar Sæmundsson og Páll Ket-
ilsson jafnir með 305 högg hvor.
Einar Þórisson GR varð áttundi á
306 höggum og þeir Gylfi Krist-
insson GS og Úlfar Jónsson GK
léku á 307 höggum. Úlfar er aðeins
13 ára gamall og greinilega mikið
efni á ferðinni.
„Lárus var maðurinn
á bak við
velgengni Waterschei*
— sagði þjálfari liðsins
Vestur-Þjóöverjinn Kunnecke
Frá sigtrrggi Sigtrjggsnyni á Heynel-
leikvanginum i Bríinnel:
„Þetta var sannarlega ánægju-
legur og góður sigur hjá Waterschei
og Lárus Guðmundsson var maður-
inn á bak við velgengni félagsins í
keppninni,“ sagði Vestur-Þjóðverj-
inn Kunnecke, þjálfari Waterschei, í
samtali við fréttamann Morgun-
blaðsins eftir að liðið hafði sigrað
Waregem 2—0 á Heyssel-leikvang-
inum í Bríissel. Sigur Waterschei var
engin tilviljun, liðið hefur slegið út
lið eins og Anderlecht og Beveren á
leið sinni í úrslitaleikinn og tæplega
30.000 manns sáu íslenska lands-
liðsmiðherjann Lárus Guðmundsson
skora bæði mörk Waterschei í leikn-
um. Lárus hefur sannarlega reynst
Waterschei betri en enginn í keppn-
inni, þrjú mörk hans í undanúrslita-
leikjunum tveimur gegn Beveren
fleyttu liðinu í úrslitin. Merkilegt, að
Beveren átti möguleika á því að
næla í Lárus síðastliðið haust, en
hætti við. Var talsvert um það rætt í
belgískum blöðum er Lárus hafði
spyrnt Beveren öfugu út úr keppn-
inni.
Kunnecke sagði enn fremur: „Ég
er geysilega ánægður með
frammistöðu Lárusar, ekki bara í
þessum leik heldur allar götur frá
því hann kom til liðs við okkur.
Hann hefur í sér eiginleikann að
vera á réttum stað á réttum tíma,
er markheppinn, og hefur sýnt
fram á að hann getur bætt sig enn
meira. Það verður gaman að fylgj-
ast með honum á næsta keppnis-
tímabili. Þessi sigur var geysilega
mikilvægur fyrir okkur, sérstak-
lega þar sem hann er farmiði í
Evrópukeppnina á næsta keppn-
istímabili."
Um leikinn er það annars að
segja, að fyrri hálfleikurinn var
slakur, völlurinn háll og erfiður og
leikmenn taugaveiklaðir. Belgíski
landsliðsmaðurinn Millecamps
gætti Lárusar og lítið bar á hon-
um. Síðari hálfleikurinn var ger-
ólíkur þeim fyrri, miklu opnari og
fjörugri. Lárus fór þá að sýna sín-
ar bestu hliðar og Millecamps fór
að ráða illa við hann. Á 58. mínútu
skoraði hann svo fyrra markið.
Hann reyndi gegnumbrot, en vörn
Waregem bjargaði í horn. Úr
hornspyrnunni barst knötturinn
að nærstönginni þar sem sóknar-
maður Waterschei „nikkaði"
knettinum áfram fyrir markið.
Knötturinn þaut fast fram með
markinu til Lárusar sem afgreiddi
hann snyrtilega í netið með þvi að
reka fram hnéð. Fór knötturinn í
netið af þverslánni. Gífurlegaur
fögnuður læsti sig um leikmenn og
áhangendur Waterschei, en engu
munaði skömmu síðar að Ware-
gem jafnaði, einn leikmanna liðs-
ins komst á auðan sjó, en þrumu-
skot hans fór i stöngina.
Á 76. mínútu gerðist það svo, að
Lárus braust einn upp allan völl
og komst inn fyrir vörn Waregem.
Atti hann aðeins markvörðinn eft-
ir, en Lárus flýtti sér um of og
brenndi af. Fór þar gott færi for-
görðum, en aðeins þremur mínút-
um síðar bætti hann fyrir atvikið.
Hann slapp þá í gegn um vörnina
og komst í mjög svipað færi. Að
þessu sinni var hann yfirvegaðri,
lyfti knettinum laglega yfir út-
hlaupandi markvörðinn af nokkuð
löngu færi. Gott mark og sigurinn
í höfn. „Ég var alveg ferlega
svekktur að klúðra fyrra færinu,
en svo þegar ég fékk nánast alveg
eins færi skömmu siðar hugsaði ég
um það eitt að fara mér að engu
óðslega, vanda mig. Og allt gekk
upp og það var frábært að horfa á
eftir knettinum í netið," sagði
Lárus um þetta atvik.
Þegar blásið var til leikhlés
brutust út mikil fagnaðarlæti og
ekki fagnaði Lárus minnst, dans-
aði hann stríðsdans fram og til
baka, fór kollhnísa og sýndi alls
kyns leikfimi.
Lárus Guðmundsson skallar að marki Waregem í bikarúrslitaleiknum á Heysel-leikvanginum í Brússel um helgina.
Lárus átti góðan leik og tryggði liði sínu sigur með því að skora tvö mörk. Mikið var fjallað um leikinn í blöðum í
Belgiu í gærdag og stórar myndir og fyrirsagnir um íslendinginn sem kom, sá og sigraði með liði sínu. Lárus skoraði
fimm mörk i síðustu þremur bikarleikjunum með Waterschei.
„Er hreinlega í tíunda himniM
— segir Lárus Guðmundsson sem skoraði tvívegis
gegn Waregem í úrslitum belgísku bikarkeppninnar
Frá Sijftryggi Sigtryggssyni í Briissel, 24. mai.
„Ég er hreinlega í tíunda
himni,“ sagði Lárus Guðmunds-
son, landsliðsmiðherji í knatt-
spyrnu, í samtali við Morgunblaðið
á sunnudaginn eftir að hafa skorað
tvívegis og lagt grunninn þannig
að sigri Waterschei í úrslitum belg-
ísku bikarkeppninnar í knatt-
spyrnu. Lárus hélt áfram: „Ég lét
mig aldrei dreyma um það að fyrsti
stórleikur minn sem atvinnumaður
myndi enda með þessum hætti, að
skora tvö mörk í úrslitaleik. Ótrú-
legt“
Lárus sagði enn fremur, að
hann hefði fundið sig illa í fyrri
hálfleiknum, „ég var tauga-
óstyrkur, en það lagaðist í seinni
hálfleik, þá fann ég mig mjög
vel.“ Eftir að blásið hafði verið
til leiksloka fylgdu sjónvarpsvél-
ar Lárusi eftir þar sem hann
hljóp fagnandi heiðurshring með
félögum sínum. Var enginn vafi
á því að hann var maður leiks-
ins. Ekki í fyrsta skipti sem ís-
lenskir knattspyrnumenn gera
það gott á erlendri grund, Ásgeir
Sigurvinsson varð bikarmeistari
með Standard í fyrra á sama
leikvangi og vorið 1980 varð Pét-
ur Pétursson hollenskur bikar-
meistari með Feyenoord, skoraði
tvívegis í 3—1 sigri liðsins.
Pétur var meðal áhorfenda á
Heyssel-leikvanginum, einnig
Sævar Jónsson og fleiri íslend-
ingar. Pétur sagði um leikinn:
„Lárus stóð sig mjög vel í leikn-
um, hann skapaði sér tækifæri
og gaf góðar sendingar. Síðara
markið hjá honum var sérlega
glæsilegt. Það er engin tilviljun
að hann hefur skorað svona mik-
ið að undanförnu, hann hefur
sýnt og sannað að hann getur
náð langt í atvinnumennskunni."
Blöð í Belgíu fjalla að sjálf-
sögðu mikið um úrslitaleikinn og
slá mjög upp þætti Lárusar. Tal-
pð er um íslensku mörkin sem
færðu Waterschei bikarinn og
gulldreng félagsins, Lárus Guð-
mundsson. Eitt blaðanna, Het
Nieuwsblad, segir að Lárus hafi
ritað nafn sitt gullnu letri í sögu
Waterschei.
Ásgeir Sigurvinsson:
Litlar líkur á því að
ég leiki með Bayern
gegn Aston Villa
— úrslitaleikurinn í Evrópukeppninni á morgun
„ÞAÐ ER svo til alveg öruggt að ég
kem ekki til með að leika gegn Ast-
on Villa í úrslitaleik Evrópumeist-
arakeppninnar i knattspyrnu á mið-
vikudagskvöld. Að undanförnu hafa
stórstjörnur Bayern, Breitner,
Rummenigge, Dremler o.fl. hvílt sig
vel undir átökin og jafnað sig af
meiðslum sínum. Ég hef leikið tvo
siðustu leiki með Bayern í fjarveru
þeirra, en verð væntanlega settur á
varamannabekkinn aftur á miðviku-
dag,“ sagði Ásgeir Sigurvinsson er
Mbl. ræddi við hann í gærdag.
— Lið Bayern mun halda til
Rotterdam í dag, og æfa þar fyrir
leikinn. Það gera sér allir grein
fyrir því í liði Bayern að mikið er í
húfi, og enginn er öruggur með
sigur gegn Aston Villa. Þjálfari
liðsins fór um síðustu helgi til að
sjá Aston Villa leika og var mjög
hrifinn. Hann sagði í viðtali við
þýsku blöðin hér í dag að hann
ætti von á spennandi og jöfnum
leik. Hann sagði jafnframt að
hann áliti lið Villa erfiðari mót-
herja en Liverpool-liðið var í und-
anúrslitunum í fyrra, en þá sló Li-
verpool lið Bayern út úr keppn-
inni.
Að sögn Ásgeirs á hann enn við
slæm meiðsli að stríða í nára þrátt
fyrir að hann hafi leikið með að
undanförnu. Hann sagðist fara til
Stuttgart á föstudag í læknisskoð-
un og þá yrði reynt að gera eitt-
hvað í málinu. — ÞR.