Morgunblaðið - 25.05.1982, Page 5
5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. MAÍ 1982
Bjóst ekki við að Sjálfstæðis-
flokkurinn næði meirihluta
— segir Egill Skúli Ingibergsson fráfarandi borgarstjóri
„ÉG HAFÐI ekki ímyndað mér að Sjálfstæöisflokkurinn
ynni svona mikið á, ég var búinn að spá því að hann fengi um
10 borgarfulltrúa, þaö var mín hugmynd,“ sagði Egill Skúli
Ingibergsson borgarstjóri í Reykjavík í samtali við Morgun-
blaðið, en hann mun láta af því starfi sínu á aukafundi
borgarstjórnar næstkomandi fimmtudag.
„Það umhverfi sem ég get byggt
mínar skoðanir á er tiltölulega
þröngt, en þessi skoðun mín var
byggð á því sem eg sá í mínu nán-
asta umverfi. Persónulega taldi ég
ekki að Sjálfstæðisflokkurinn
myndi ná meirihluta, en mér
fannst líklegt að hann myndi
stjórna borginni í samstarfi við
aðra eftir kosningarnar. Úrslitin
komu mér því á óvart," sagði Egill
Skúli.
Spurningu um hvað tæki við hjá
honum nú, svaraði Egill þannig,
að hann myndi líta í kringum sig
og átta sig á þeirri breytingu sem
á hefði orðið. „Fyrsta hugmyndin
er náttúrulega sú að skoða vinnu-
markaðinn. Þar er margt að ger-
ast í þeim málum sem ég hef mest
unnið við, sem eru virkjanamál.
Þessi ár hafa liðið mjög hratt að
mér finnst, þetta hefur verið ákaf-
lega áhugavert tímabil. Ég sé ekki
eftir neinu augnabliki af þessum
tíma, þetta hefur verið mér mjög
lærdómsríkt um margt. Ég er
mjög þakklátur fyrir að hafa feng-
ið að njóta þessarar reynslu,"
Egill Skúli Ingibergsson
sagði Egill Skúll Ingibergsson að
lokum.
9af 15
NÚ í fyrsta sinn var kjörinn
21 borgarfulltrúi í Reykjavík,
en fram til þessa hafa þeir
verið 15.
Sem kunnugt er fékk Sjálf-
stæðisflokkurinn 12 menn
kjörna, Alþýðubandalagið 4,
Framsóknarflokkurinn 2,
Kvennaframboðið 2 og Alþýðu-
flokkurinn 1.
Hefði fulltrúatala verið
óbreytt frá því sem áður var,
þ.e. 15, hefði skiptingin orðið
þessi: Sjálfstæðisflokkur 9, Al-
þýðubandalag 3, Framsóknar-
flokkur 1, Kvennaframboð 1 og
Alþýðuflokkur 1.
Konum í sveitarstjórn-
um fjöigaði um helming:
Eru 72 af
425 sveitar-
stjórna-
mönnum
KONUM í stjórnum kaupstaða og
kauptúna fjölgaði eftir kosningarnar á
laugardaginn um liðlega helming
hlutfallslega. Þær eru nú 16,9% kjör-
inna fulltrúa, eða 72 af 425 sveitar-
stjórnarmönnum, en eftir kosningarn-
ar 1978 nam fjöldi þeirra 8,5%. Aðeins
í þremur kaupstöðum af 22 er nú eng-
in kona í bæjarstjórn, en I 12 kaup-
túnahreppum af 37 ráða karlmenn
eingöngu ríkjum.
Af 202 kjörnum bæjar- og borg-
arfulltrúum á landinu eru nú 39
konur, eða 19,3%, en eftir kosn-
ingarnar 1978 voru þær 17 af 177,
eða 8,8%. Þeir þrír kaupstaðir þar
sem karlmenn eru einráðir eru
Keflavík, Njarðvík og Siglufjörður.
Kjörnir fulltrúar í kauptúnahrepp-
um eru 223 og af þeim eru 33 konur
eða 14,8%.
Samtals voru kjörnir á laugar-
daginn 425 sveitarstjórnamenn á
landinu öllu. Af þeim eru 72 konur,
eða 16,9%. Til samanburðar má
geta þess að í kosningunum 1978
var kjörinn 351 sveitarstjórna-
maður, af þeim fjölda voru aðeins
33 konur, eða 8,5%. Fjölgunin nem-
ur því liðlega helmingi.
Ingi R. Helgason:
Auðvitað
harmi
sleginn
— en ánægður að geta
tilkynnt rétt úrslit
„ÉG VAR auðvitað harmi sleginn
hvað varðar niðurstöðurnar, en
ánægður sem formaður yfirkjör-
stjórnar að standa þarna og tilkynna
um rétt úrslit,“ sagði Ingi R. Helga-
son formaður yfirkjörstjórnar í
Rcykjavík í viðtali við Mbl. í gær.
Ingi tilkynnti á kosninganótt
sem formaður yfirkjörstjórnar
niðurstöður talningar í Reykjavík,
en hann er alþýðubandalagsmaður
eins og kunnugt er, og hefur starf-
að mikið innan Alþýðubandalags-
ins. Ofangreind ummæli hans eru
svar við spurningu um hvernig
honum hafi liðið að tilkynna al-
þjóð úrslitin í Reykjavík.