Morgunblaðið - 25.05.1982, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
111. tbl. 69. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 25. MAÍ 1982
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Vinstri stjórnin í Reykjavík fallin:
Meirihluti Sjálfetæðis-
manna tekur við á ný
Sjálfstæðisflokkur í sókn um iand allt - Vann meirihluta í Vestmannaeyjum og Njarðvíkum
- Stærsti flokkur í flestum kaupstöðum landsins - Afhroð Alþýðubandalags og Alþýðuflokks
Mynd þessa tók Ólafur K. Magnússon Ijósmyndari Mbl. af hinum nýja borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins í gær. Á myndina vantar Albert
Guðmundsson, en hann fór utan sl. sunnudagsmorgun. Á myndinni eru í aftari röð, talið frá vinstri: Ragnar Júlíusson, Einar Hákonarson, Anna K. Jónsdóttir,
Kolbeinn Pálsson, Erna Ragnarsdóttir, Vilhjálmur G. Vilhjálmsson, Júlíus Hafstein, Gunnar S. Björnsson, Málhildur Angantýsdóttir, Sveinn Björnsson, Jóna
Gróa Sigurðardóttir, Hilmar Guðiaugsson, Margrét Einarsdóttir, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Sigurjón Fjeldsted og Guðmundur Hallvarðsson. í fremri röð
eru, talið frá vinstri: Hulda Valtýsdóttir, Markús Örn Antonsson, Katrín Fjeldsted, Davíð Oddsson, Ingibjörg Rafnar, Magnús L. Sveinsson og Páll Gíslason.
VINSTRI stjórnin í Reykjavík er
fallin. Meirihlutastjórn Sjálfstæðis-
flokksins tekur við stjórn Reykjavík-
urborgar á ný á sérstökum borgar-
stjórnarfundi, sem haldinn verður á
fimmtudag. Það er Ijóst af úrslitum
bæjar- og sveitarstjórnakosninganna
á laugardag að Sjálfstæðisflokkur-
inn er í mikilli sókn um allt land.
Flokkurinn vann meirihluta með
miklum atkvæðamun í tveimur
kaupstöðum, þ.e. I Vestmannaeyjum
og í Njarðvíkum. Auk þess fékk
hann umtalsverða fylgisaukningu f
flestum öðrum kaupstöðum lands-
ins. Þá vannst meirihluti í þremur
kauptúnahreppum, Hveragerði, Flat-
eyri og Garði. Jafnframt bættu
sjálfstæðismenn við fylgi sitt í vel-
flestum öðrum kauptúnum.
Alþýðubandalag og Alþýðu-
flokkur biðu mikið afhroð í kosn-
ingunum og töpuðu fjölmörgum
fulltrúum um land allt. Fram-
sóknarflokkurinn stóð að mestu
leyti í stað frá í kosningunum
1978, en þá varð hann fyrir miklu
fylgistapi. Kvennaframboð á Ak-
ureyri og í Reykjavík fengu tvo
menn kjörna af hvorum lista.
Samtals neyttu 112.706 manns
atkvæðisréttar síns í kosningun-
um um allt land. Kosið var í 22
kaupstöðum og 37 kauptúnahrepp-
um. Auðir og ógildir seðlar voru
2.643 en af 110.155 atkvæðum
hlaut Sjálfstæðisflokkurinn 49.781
atkvæði eða 45,2%, sem er 5,5%
fylgisaukning frá síðustu kosning-
um. Alþýðuflokkur fékk 13.034 at-
kvæði eða 11,8%, sem er 4,9% tap.
Framsóknarflokkur hlaut 17.836
atkvæði eða 16,2% atkvæða, sem
er 0,3% aukning. Alþýðubandalag
hlaut 19.231 atkvæði, 17,5%, sem
er 6,8% fylgistap. Kvennalistarnir
sem bjóða fram í fyrsta sinn hlutu
6.523 atkvæði eða 5,9%. Aðrir list-
ar 3.750 atkvæði, eða 3,4%.
í kosningunum voru kjörnir 425
sveitarstjórnamenn, af þeim eru
202 í kaupstöðum, en í kauptúna-
hreppum 223. Fjöldi kvenna í bæj-
ar- og sveitarstjórnum tvöfaldast
liðlega eftir þessar kosningar. Þær
eru nú 72 af heildarfjölda sveitar-
stjórnamanna, hefur fjölgað úr
8,5% í 16,9%.
Sjá kosning»urslit á bls. 14, 15, 16 og 17.
Davíð Oddsson um kosningaúrslitin:
Dómur borgarbúa yfír
vinstri stjórn ótvíræður
Valdaskipti í borgarstjórn næstkomandi fimmtudag
„Þessi sigur markar tímamót í sögu Reykjavíkur og sögu Sjálfstæðisflokksins, þetta var í fyrsta skipti sem
borgarbúar fengu tækifæri til þess aö bera saman i raun stjórn Sjálfstæðisflokksins á Reykjavík annarsvegar og
vinstri flokkanna hinsvegar, og dómur þeirra var ótviræður," sagði Davið Oddsson, verðandi borgarstjóri í
Reykjavík í samtali við Morgunblaðið í gær, þegar blaðið leitaði álits hans á úrslitum borgarstjórnarkosn-
inganna.
„Ég sagði tveimur dögum fyrir
kosningar að ef sjálfstæðismenn
sæktu fram í kosningunum sem
órofa fylking, þá myndu engir
andstæðingar standast þessari
fylkingu snúning og sú varð
raunin á. Málefnastaða Sjálf-
stæðisflokksins var sterk, við
lýstum markmiðum okkar á
skýran og ótvíræðan hátt, og við
áttum samleið með borgarbúum.
Ég er sannfærður um að þessi
sigur eflir sjálfstraust með
sjálfstæðismönnum og kvað upp
úr með það að tilraunir andstæð-
inga okkar til þess að reka fleyg
í okkar raðir hafa endanlega
mistekist. Þessi sigur er upphaf-
ið að endi deilna innan Sjálf-
stæðisflokksins," sagði Davíð.
„Á fimmtudaginn kemur verð-
ur aukafundur í borgarstjórn og
þá fara fram valdaskipti í
Reykjavík. Þá verður kosinn
borgarstjóri Reykjavíkur, forseti
borgarstjórnar og tveir vara-
forsetar, borgarráðsmenn og
skrifarar borgarstjórnar. Síðan
gerum við ráð fyrir því að á
fyrsta reglulega fundi borgar-
stjórnar, þann 3. júní næstkom-
andi, verði teknar frekari
ákvarðanir, sem leiða beinlínis
af sigri okkar sjálfstæðismanna.
Stærsta málið í þeim efnum
verður kúvending í skipulags-
málum borgarinnar. Horfið
verður frá heiðastefnunni,“
sagði Davíð.
„Ég tel að borgarstjórnar-
flokkur sjálfstæðismanna, sem
nú hefur verið kosinn, sé að
ýmsu leyti vel samsettur. Þar er
dugmikið og þróttmikið fólk úr
öllum stéttum sem vann mjög
gott starf í kosningabaráttunni,
skýrði stefnu og markmið
flokksins og varði hana af ein-
urð. Þetta verður öllu þessu fólki
gott veganesti í þeim störfum
áem framundan eru. Ég er sam-
mála gamla manninum sem
stöðvaði mig á götu í morgun, og
sagði, að einhverra hluta vegna
væri nú bjartara yfir Reykjavík.
Ég held að hann hafi ekki bara
átt við veðrið," sagði Davíð
Oddsson að lokum.