Morgunblaðið - 22.03.1974, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. MARZ 1974
27
Minning:
Sverrir Olafsson
Fæddur 30. ágúst 1898.
Dáinn 16. marz 1974.
í dag fer fram frá Fossvogs-
kirkju Utför Sverris Ólafssonar,
Hæðargarði 22 hér i borg.
Sverrir Ólafsson var fæddur 30.
ágúst 1898 í Tjarnarkoti i Njarð-
víkum. Foreidrar hans voru Ólaf-
ur Nikulásson sjómaður, ættaður
af Suðurnesjum, og Ingibjörg
Benónýsdóttir frá Ormskoti undir
Eyjafjöllum Hinrikssonar. Kona
Benónýs var Sigríður Jónsdóttir
bónda á Lækjarbakka í Kirkju-
bæjarsókn og síðar (1839) að
Drangshlíð undir Eyjafjöllum,
Sverrissonar. Meðal barna
Benónýs og Sigríðar í Ormskoti,
auk Ingibjargar, voru Benóný
lengi kaupmaður f Reykjavík og
Friðrik i Gröf i Vestmannaeyjum,
faðir Binna i Gröf (Benónýs Frið-
rikssonar), sjógarpsins alkunna,
er lézt árið 1972.
,,Því er hljóðnuð þýða raustin,
hún sem fegurstu kvæðin kvað?“
Þeyr vorsins þagnar, og sveit
íslenzkra söngvara og söngvina
stendur hnípin og drjúpir höfðum
döpur eins og þögul söngfugla-
hjörð á hUmdökkum haustdegi,
harmi lostin við þessa helfregn. í
brjóstinu kennum við sáran trega-
tón, því brostinn er gildasti góð-
málmsstrengur i hörpu íslenzks
söngs.
Island hefur misst einn sinn
beztu sona. Öll þjóðin stendur í
þakkarskuld fyrir lífsstarf
Róberts A. Ottóssonar. Borinn og
barnfæddur i háborg mennta og
visinda, Berlín, nam hann hér
land ungur að árum. Gáfur hans
og listrænir hæfileikar höfðu náð
að þroskast við ákjósanlegustu
vaxtarskilyrði í andrUmslofti
listar og klassískrar menningar.
Fágætir hæfileikar og miklir
mannkostir hefðu getað rutt hon-
um braut til mikils frama með
öðrum þjóðum. Verður hefði
hann verið þess að feta í fótspor
lærimeistara síns, Bruno Walters,
eins mikilhæfasta hljómsveitar-
stjóra þessarar aldar, en fyrir til-
stilli örlaganna varð það ísland,
sem naut góðs af hæfileikum
hans, kunnáttu og skapandi
krafti. í upphafi átti starf hans
hér á landi nokkru tómlæti og
Ölafur og Ingibjörg, foreldrar
Sverris, fluttust Ur Njarðvíkum
með fjögur börn sín til Hafnar-
fjarðar á fyrsta tug aldarinnar.
Þar var meira um atvinnumögu-
leika á hinum stærri fiskiskipum
fyrir dugandi menn. SU varð líka
raunin, Ölafur fékk brátt skip-
rUm og þótti þar vel skipað sem
hann var. Ellefta febrUar 1912 lét
fiskiskipið Geir Ur höfn í Hafnar-
firði með 27 manna áhöfn. Ólafur
Nikulásson var einn þeirra. Það
skip kom aldrei aftur, en þrettán
urðu ekkjurnar og sextiu börnin
föðurlaus. Tveimur árum síðar
fluttist Sverrir til Reykjavíkur,
unglingur að aldri, og hér átti
hann heima sfðan í sextíu ár.
Fyrsta sumarið var hann kaup-
maður í Viðey hjá Páli Gislasyni
kaupmanni, er hafði bUið þar á
leigu, og var jafnframt mjólkur-
póstur til bæjarins. Um haustið
takmörkuðum skilningi að mæta,
eins og fleiri brautryðjenda í
íslenzku tónlistarlífi. En starf
hans bar mikinn ávöxt, og það var
gæfa hans að gleðja og hjálpa
öðrum. „Wer die Musik sich
erkiest, hat ein himmlisch Gut
bekommen". Það sannaði dr.
Róbert I lífi sínu og list, þvi að
hann bar gæfu til að sameina hið
bezta Ur fslenzkri arfleifð og rót-
gróinni heimsmenningu með
þeim hætti, að smám saman vakti
tók Páll hann í verzlun sína,
Kaupang, og var hann þar af-
greiðslumaður í fjögur ár. Þá
réðst hann til Alfreðs Rosenberg
til framreiðslustarfa. Var hann á
sumrin á Þingvöllum við veitinga-
rekstur Rosenbergs þar en annars
i bænum, i Bíókjallaranum og sið-
ar á Hótel island. Nokkru fyrir
1930 varð Sverrir starfsmaður hjá
Ölg. Egill Skallagrímsson og vann
þar síðan samfleytt til 1960. Þó
var hann við framreiðslu hjá sín-
um gamla hUsbónda við einstök
tækifæri svo sem á Þingvöllum
1930. Er Sverrir hætti störfum
hjá Ölgerðinni, fékk hann vinnu á
vegum Reykjavikurborgar. Var
hann tvö ár gangavörður við
Laugarnesskóla, en síðan við
Vogaskóla, og hætti þar störfum
1970.
Sverrir kvæntist 1942 Soffiu
Kristjánsdóttur, dóttur Kristjáns
H. Jónssonar ritstjóra á isafirði
og konu hans Guðbjargar Bjarna-
dóttur frá Vöglum Jónssonar
(Reykjahlíðarætt). Börn þeirra
eru tvö, Björg, gift Guðmundi
Hervinssyni hUsasmíðameistara
og Björn vélstjóri, kvæntur
Sólveigu Indriðadóttur.
Nokkur síðustu árin var Sverrir
heilsuveill og hafði dvalizt m.a.
þrívegis á Vifilsstöðum um skeið,
en hresstist jafnan á ný. Fyrir
nokkrum dögum fékk hann hæg-
fara heilablæðingu og var fluttur
á sjUkrahUs, en það varð ekki til
langrar legu. Á fjórða degi
lézt hann af hjartabilun, en henn-
ar hafði hann kennt um skeið.
Kynni okkar Sverris voru ekki
löng, aðeins ein sex ár, eða frá þvi
að börn okkar stofnuðu til hjU-
skapar, en þau kynni voru þess
háttar, að mig langar til að þakka
þau er leiðir skilja.
Það hef ég sannfrétt að sam-
vizkusemi, heiðarleiki og trU-
mennska hafi einkennt öll störf
hans. Þetta kemur vel heim við
kynni mín af honum, sem hófust
þó ekki fyrr en starfsdagur hans
var að kalla allur.
Það, sem mér fannst um Sverri
við fyrstu kynni, var, að hógværð
og kurteisi og hlýleg hlédrægni i
öllu viðmóti einkenndu fram-
komu hans, og þetta sannreyndi
ég. Þetta voru honum eðlislægir
mannkostir. Þess vegna var gott
með honum að vera. Vegna þessa
þakka ég einstaklega bjarta og
viðfelldna kynningu og sakna
þess, að hUn er numin á brott Ur
mynd dagsins. Kona hans og börn
hafa mikið misst, en þau hafa líka
margt að þakka og frá þeim minn-
ingum, er þau eiga, stafar birtu
fram á veg ókominna daga.
Indriði Indriðason.
almenna aðdáun og virðingu
allra, sem kynntust honum. Marg-
vfsleg störf dr. Róberts A. Ottós-
sonar að íslenzkum tónlistarmál-
um, öll unnin af frábærri alUð og
vandvirkni, verða skráð stórum
stöfum í sögu islenzkrar tónlistar.
Hljómleikahald hans með Fil-
harmonfukórnum og Sinfóníu-
hljómsveit íslands var jafnan list-
viðburður, sem beðið var með
eftirvæntingu og minnzt með
þakklátri gleði í hugum fjöl-
margra aðdáenda. Viðhorf þessa
mikla listamanns til tónlistar-
innar einkenndist jafnan af ein-
lægri ást og virðingu á viðfangs-
efninu. Eins var lff hans allí laust
við kröfu um eigin hag, en starf
hans fullt af fórn og ást til lífsins
og skapara þess. í samræmi við
það markaðist stjórn hans jafnan
af alvöru og reisn en fágætri hóg-
værð
Það mun ei ofmælt, að flestir
íslenzkir tónlistarmenn af yngri
kynslóðinni geti litið á dr. Róbert
A. Ottósson sem lærimeistara
sinn. Hann var frábær kennari,
sem miðlaði þekkingu sinni af
örlæti hjartans. Undirritaður er
einn þeirra, sem stendur í stórri
þakkarskuld við hann fyrir upp-
örvandi leiðsögn fyrr á árum og
langa og trygga vináttu. Stórt
hjarta hans rUmaði ekki öfund.
Hann gladdist af framförum
nemenda sinna og hverjum
áfanga lítils bróður í listinni. Með
söknuði og einlægri virðingu skal
allt þetta nU þakkað, er leiðir
skiljast, um leið og mikilhæfri
konu hans og syni eru færðar
dýpstu samUðarkveðjur.
Ingólfur Guðbrandsson.
Sverrir Ólafsson svili mínn og
áratuga gamall vinur er í dag bor-
inn til hinztu hvíldar. Hann lézt
eftir stutta spitalavist sl. laugar-
dag.
Það er dapurlegt að sjá á bak
góðum vini, jafnvel þótt fyrir
mætti sjá, að hverju stefndi. Hins
ber að minnast, að enginn sannur
vinur óskar öðrum lengra lífs,
ef lífið er orðið honum þraut.
Dauðinn er oft líknsamasta lausn-
in.
Það var í sama mund og við
hjónin kynntumst, að kynni
okkar Sverris hófust, en síðan
er rösklega aldarfjórðungur.
Við vorum svilar að tengdum,
en með árunum urðum við
nánir vinir og á þann vin-
skap bar aldrei skugga. Var
LEIKFÉLAG Hveragerðis og
Leikfélag Selfoss sýna um þessar
mundir leikritið Skugga-Svein
eftir Matthías Joehumsson, en í
tilefni þjóðhátíðarársins tóku
leikfélögin höndum saman um
uppfærslu þessa verks. Um helg-
ina. eða n.k. sunnudag munu leik-
félögin sýna Skugga-Svein f
Félagsheimili Kópavogs. Sýning
er ákveðin í Kópavogi og verður
hún á sunnudagskvöld kl. 8.30.
Samstarf þessara leikfélaga á
Selfossi og f Hveragerði hófst
1969 með því að félögin settu upp
leikritið Skálholt eftir Kamban og
Gísli Halldórsson leikstýrði verk-
inu.
Tókst það með ágætum og endaði
með glæsilegri leikför til Fær-
eyja. I tilefni þjóðhátíðarársins
þótti tilhlýðilegt að færa á svið
þjóðlegt leikrit. Samvinna þess-
ara félaga gaf þá tilefni til að
setja á svið Skugga-Svein. Óhætt
er að fullyrða að ókleift væri að
það einkum skapferli Sverris,
sem því réð, en glaðlegt viðmót
hans fékk mig ósjálfrátt til þess
að líta ávallt á bjartari hliðar lffs-
ins. Hann hafði mannbætandi
áhrif á umhverfi sitt. Þó var hann
í eðli sínu hlédrægur og reyndi
alltaf að láta sem minnst fyrir sér
fara. Slík var prUðmennska hans
og góðvild, sem mér verður
minnisstæð.
Það er rétt eins og að missa
hlekk Ur styrkri keðju tveggja
samrýmdra fjölskyldna að vita
Sverri horfinn fyrir fullt og allt.
En það myndi gleðja hann, að
sama órofa tryggðin héldist eftir
hans dag, eins og meðan hann var
á meðal okkar.
Sverrir var meðalmaður á
vöxt, léttur í hreyfingum og síkát-
ur, jafnt þótt nokkur veikindi
steðjuðu að hin síðari árin. Gegn-
um árin reyndi ég hann bæði að
miklum drengskap og háttvísi,
sem mér verður minisstætt um
ókomin ár. Því nána sambandi,
sem var á milii heimila okkar alla
tíð, verður ekki með orðum lýst.
En víst er um það, að við hjón og
börnin okkar söknum vinar í stað.
Sverrir var á 76. aldursári, þeg-
ar hann lézt, og voru lffskraftar
mjög á þrotum. Hann hélt þó
reisn sinni og naut seinustu árin
umgengni við börn sín og barna-
börn, sem voru öll mjög að honum
hænd.
Hjá okkur, sem eftir stöndum,
skilur hann eftir hugljUfar minn-
ingar, sem seint fyrnist yfir.
Við hjónin og börn okkar vott-
um Soffiu mágkonu minni, börn-
um þeirra hjóna og tengdabörn-
um, samúð okkar.
Krislján B. G. Jónsson.
setja svona mikið verk á svið við
þær aðstæður, sem sveitahreppar
viðkomandi leikfélaga hafa upp á
að bjóða, nema til kæmi ósér-
plægni og góð samvinna allra
þeirra aðila sem hlut eiga að máli.
Ragnhildur Steingrímsdóttir setti
leikritið á svið.
Leikfélögin hyggja á ferðir víðs
vegar til að sýna Skugga-Svein og
m.a. er ákveðið að fara til Fær-
eyja í sumar.
Þeir sem leika í Skugga-Sveini
eru: Halldór Hafsteinsson, Sig-
ríður Karlsdóttir, Hörður S. Ósk-
arsson, Axel MagnUsson, sem leik-
ur Skugga-Svein, Aðalbjörg M.
Jóhannsdóttir, Ester Halldórs-
dóttir, Sigurgeir Hilmar Frið-
þjófsson, Ileiðdís Gunnarsdóttir,
Þórir Már Þórisson, Helgi Finn-
laugsson, Viðar Bjarnason, Gylfi
Þ. Gislason, Guðjón H. Björnsson,
Gestur Eyjólfsson, Elínborg
Gunnarsdóttir og Katrín Karls-
dóttir. Undirleik annast Theodor
Kristjánsson.
SVAR MITT
EFTIR BILLY GRAHAM
Mér skilst, að Jesús segi, að það sé eitt af táknum endurkomu
hans, að jarðskjálftar færist f aukana. Teljið þér, að jarð-
skjálftar verði oftar nú á dögum en áður f sögunni?
Kunnur jarðskjálftafræðingur hefur sagt, að
jarðskjálftar, sem valdi miklu tjóni, séu tíðari nú en
áður og þeir séu undanfari miklu ofboðslegri
jarðskjálfta í framtíðinni.
Margir meiri háttar jarðskjálftar hafa orðið
síðustu 10—15 árin. Hundruð manna hafa farizt.
Þúsundir minni háttar jarðhræringa hafa átt sér
stað, þótt þær hafi ekki verið eins alvarlegir. I hverri
viku gerist það einhvers staðar á hnettinum, að
jörðin fer að titra, svo að af hlýzt töluvert tjón.
Auðvitað hafa jarðskjálftar alltaf átt sér stað. En
svo virðist sem þeir fari vaxandi, eftir því sem
tíminn líður. Orsakir þeirra eru ,,gallar“ undir yfir-
borði jarðarinnar. Orð Biblíunnar beinast í þá átt, að
undirstöður þessarar jarðkúlu gefi eftir í rás tím-
anna og muni að lokum eyðileggjast. Svo segir í
Opnb. 6,12—16: „Mikill landskjálfti varð.. .stjörnur
himinsins hröpuðu niður á jörðina...og konungur
jarðarinnar . . . segja við fjöllin og hamrana: Hrynjið
yfir oss og felið oss fyrir ásjónu hans, sem i hásætinu
situr.“
Dr. Róbert A. Ottós-
son — Minningarorð
Or Skugga-Sveini leikfélaganna f Hveragerði og á Selfossi.
Ljósmynd Ragna Hermannsdóttir, Hveragerði.
Skugga-Sveinn Sunn-
lendinga á flandri. .