Morgunblaðið - 22.03.1974, Blaðsíða 1
40 SIÐUR
68. tbl. 61. árg.
FÖSTUDAGUR 22. MARZ 1974
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
r
Askorun Varins lands afhent:
55.522 Islendingar skrif-
uðu undir
0 SEXTANMENNINGARNIR er forgöngu höfðu um undirskrifta-
söfnun Varins lands f Reykjavfk og á Akureyri gengu f gærdag á fund
forsætisráðherra og forseta sameinaðs Alþingis og afhentu þeim
undirskriftir 55.522 Islendinga undir áskorun um að rfkisstjórn og
Alþingi „leggi á hilluna ótfmabær áform um uppsögn varnarsamnings-
ins við Bandarfkin og brottvfsun varnarliðsins". Þetta er rúmur
helmingur allra atkvæðisbærra Isiendinga miðað við greidd atkvæði f
Alþingiskosningunum 1971 og er slfk þátttaka í undirskriftasöfnun án
efa einsdæmi.
0 Undirskriftalistarnir munu liggja frammi á Alþingi um sinn og f
vörzlu þess en sfðan verða þeir afhentir forsætisráðherra til varðveit-
ingar. Dr. Þorsteinn Sæmundsson stjörnufræðingur hafði orð fyrir
forgöngumönnum Varins Iands við afhendingu undirskriftalistanna
og sagði hann m.a. við það tækifæri, að þessi geysimikla þátttaka bæri
vott um eindreginn vilja almennings og veitti áskoruninni svo mikinn
þunga, að ráðamönnum þjóðarinnar bæri skylda til að taka af henni
mið við þær ákvarðanir, sem framundan væru f þessu máli.
Það var stundvíslega kl. 3 í gær
að forgöngumenn undirskrifta-
söfnunarinnar gengu i forsal Al-
þingishússins á fund forsætisráð-
herra og forseta Alþingis —
þeirra Ólafs Jóhannessonar og
Eysteins Jónssonar. Höfðu þeir
meðferðis stálkistu sem í voru all-
ar undirskriftirnar — innbundn-
ar. Allir forgöngumenn söfnunar-
innar voru þarna komnir — auk
Akureyringanna Arna Bjarnar-
sonar og Bjarna Einarssonar, er
höfðu forgöngu um að setja upp
sjálfstæða undirskriftasöfnun þar
með mjög góðum árangri.
Eins og áður segir hafði dr.
Þorsteinn Sæmundsson orð fyrir
Kissinger bauð
magadansmey
í heimsókn
Beirut, 21. marz, AP.
HENRY Kissinger, utanrikis-
ráðherra Bandarikjanna, hef-
ur boðið frægustu magadans-
mey Egyptalands í heimsókn
til Bandaríkjanna, að sögn
egypzka tímaritsins Akher.
Dansmærin, sem heitir Nagwa
Fuad, dansaði fyrir Kissinger í
samkvæmi, sem haldið var
honum til heiðurs í Kairó í
síðasta mánuði. Það var Ismail
Famy, utanríkisráðherra
Egyptalands, sem hélt sam-
kvæmið. Hinn bandaríski
starfsbróðir hans kvaðst, að
sögn, vilja kynna löndum sín-
um austræna dansa.
16-menningunum og fórust hon-
um svo orð, er hann afhenti
undirskriftirnar:
Hér með eru yður, hr. forsætis-
ráðherra og forseti Sameinaðs Al-
þingis, afhentar undirskriftir
þær, sem safnað hefur verið
undir kjörorðinu VARIÐ LAND.
Söfnun þessara undirskrifta fór
fram á tímabilinu frá 15. janúar
til 20. febrúar s.l. Var þá Islensk-
um ríkisborgurum, sem náð höfðu
tvitugsaldri fyrir 1. mars 1974,
gefinn kostur á að rita nöfn sin
undir svohljóðandi áskorun:
„Við undirrituð skorum á rikis-
stjórn og Alþingi að standa vörð
um öryggi og sjálfstæði íslensku
þjóðarinnar með þvi að reysta
samstarfið innan Atlantshafs-
bandalagsins, en leggja á hilluna
ótimabær áform um uppsögn
varnarsamningsins við Banda-
ríkin og brottvisun varnarliðs-
ins.“
Undirskriftasöfnunin var borin
uppi af meira en 2.000 áhuga-
mönnum, sem gáfu sig fram og
unnu sjálfstætt að verkinu. Alls
bárust 4.880 áritaðir undirskrifta-
listar, sem síðan voru ítarlega
kannaðir, svo sem nánar er lýst i
meðfylgjandi greinargerð. Niður-
staða þeirrar könnunar er sú, að
samtals hafi 55.522 atkvæðisbærir
Islendingar ritað nöfn sín undir
áskorunina. Þessi geysimikla
þátttaka ber vott um eindreginn
vilja almennings og veitir áskor-
uninni svo mikinn þunga, að ráða-
mönnum þjóðarinnar ber skylda
til að taka af henni mið við þær
Framhald á bls. 39
Frá afhendingu undirskriftalistanna í Alþingishúsinu. Dr. Þorsteinn Sæmundsson flytur Ólafi
Jóhannessyni og Eysteini Jónssyni ávarp forgöngumanna Varins lands. (Ljósm Mbl. Sv. Þorm.).
Stjórnarnefnd EBE:
Strandríki megi vemda
fiskimið að 212 mílum
Brussel, 21. marz, NTB.
STJÓRNARNEFND Efnahags-
bandalags Evrópu hefur hvatt
aðildarlönd bandalagsins til að
styðja tillöguna um 12 mflna
landhelgi, á hafréttarráðstefnu
Sameinuðu þjóðanna f
Venezuela I júní næst komandi,
að sögn áreiðanlegra heim-
ildarmanna. í tillögunni felst,
að strandríki hafi full yfirráð
yfir siglingum og fiskveiðum
innan þessara 12 mflna en nú
sem stendur er miðað við 4
mílur.
Stjórnarnefndin leggur einn-
ig til, að strandríki fái réttindi
til að nýta með einkarétti þá
málma, sem hugsanlega kynnu
að finnast í landgrunninu út að
200 mflum, reiknað frá 12
mílna landhelginni.
Þá mun hún einnig hafa gefið
í skyn, að hún telji, að strand-
riki eigi að hafa vald til að
grípa til einhliða ráðstafana til
að vernda fiskstofna út að 200
mílna mörkunum talið frá 12
mílum. Slíkt vald skuli þó ekki
bara gefa einstöku þjóðum
heldur öllum strandríkjum.
Stjórnarnefndin leggur
áherzlu á að tryggja frjálsar
siglingar, og vill láta gilda sér-
stakar reglur um sund, sem
hafa hingað til verið á alþjóða
siglingaleið, en með 12 milna
landhelgi myndu tilheyra nær-
liggjandi ríkjum.
Kúrdar króa
af hersveit
Kissinger:
Evrópa er stundum fjand-
samleg Bandaríkjunum
Washington, 21. marz.NTB.
HENRY Kissinger endurtók f dag
þá ásökun, að Evrópurfkin hafi i
nokkrum tilfellum komið fjand-
samlega fram við Bandarfkin. A
fundi með fréttamönnum í
Washington fjallaði hann um
nauðsyn gagnkvæmra ráðstafana
til að bæta samskipti Bandaríkj-
anna og Evrópu.
Hann tók skýrt fram, að Banda-
ríkjastjórn óskaði eftir því að
vera látin vita fyrirfram áður en
ríki Efnahagsbandalags Evrópu
tækju mikilvægar ákvarðanir.
Utanríkisráðherrann fjallaði um
ýmis alþjóðamál og sagði, að
Sovétríkin og Bandaríkin væru
nú nær þvi en áður að ná sam-
komulagi um ýmis grundvallar-
atriði í viðræðunum um tak-
mörkun kjarnorkuvopna. Það
væri hins vegar mikið ógert
ennþá og möguleiki væri á, að
ekki næðist nýtt samkomulag
fyrir áramót eins og vonað hefði
verið.
Þessar viðræður verða efstar á
listanum þegar Kissinger fer til
Moskvu í næstu viku. Hann
fjallaði einnig um olíumálið og
kvaðst telja mjög óliklegt, að
Arabaríkin settu að nýju olíu-
bann á Bandaríkin. Þróun mála í
Miðausturlöndum væri á þann
veg, að hann teldi, að þess gerðist
ekki þörf, af Araba hálfu.
Istanbul, 21. marz, NTB, AP.
KÚRDISKIR uppreisnarmenn
hafa króað af írakska hersveit í
norðurhluta íraks, þar sem er
mikið fjalllendi og erfitt yfirferð-
ar. tröksku hermennirnir hafa
tekið sér stöðu inilli bæjarins
Zakho og höfuðborgarinnar
Bagdad en Kúrdar hafa lokað
öllum aðflutningsleiðum og
írakska hersveitin á f miklum
erfiðleikum.
Tyrkneska fréttastofan Tha
sagði i dag, að Kúrdarnir hefðu
mikið af amerískum vopnum.
Þeir hefðu fengið sendingu af
ýmiss konar hergögnum, sem
hafði verið send frá Bandarikj-
unum til ísraels í októberstrið-
inu. Ekki er sagt hvernig þessi
hergögn hafa komizt í hendur
Kúrda.
Fréttastofan segir ennfremur,
að á leynilegum flugvelli i Iran
bíði fimm nýtízku bandariskar
orrustusprengjuþotur af gerðinni
F-105 og bíði þess, að kúrdiskir
flugmenn sæki þær. Höpur flug-
manna sé nú f þjálfun i Banda-
Framhald á bls. 39
Tók sendiráðs-
ritara sem gísí
Stokkhólmi 21. marz, AP.
FRÖNSKUMÆLANDI maður
réðst inn i belgfska sendiráðið i
Stokkhólmi í dag með skamm-
byssu að vopni, handjárnaði sig
við einkaritara sendiherrans og
krafðist þess, að hann fengi barn
sitt, sem er í Belgiu.
Sænska lögreglan umkringdi
þegar sendiráðið og hefur haft
simasamband við gíslinn, sem
talar sænsku. Talsmaður lögregl-
unnar sagði seint í gærkvöldi, að
þeir biðu bara átekta meðan reynt
væri að tala við manninn, enda
gæti sprengja sprungið hvenær
sem væri.