Morgunblaðið - 22.03.1974, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. MARZ 1974
Alexander Kárason
húsasmiður - Minning
I DAG verður gerð útför Alexand-
ers Kárasonar, húsasmiðs, Bugðu-
læk 13 hér í borg.
Hið skyndilega fráfall hans
kom mér og öðrum vinum hans
mjög á óvart því við höfðum
bundið vonir við, að hann væri nú
óðum að komast yfir hjartaáfall
það, er hann hlaut fyrir tæpum
tveimur árum. Hann var farinn að
stunda vinnu sína á ný og leit
bjartari augum fram á veginn.
Með hækkandi sól virtist starfs-
þráin og starfsgetan aukast og
jafnframt vonir um fullan bata.
En fyrirvaralaust kom kallið hinn
13. þ.m.
Alexander fæddist hinn 28.
september 1920 að Haga í Staðar-
sveit á Snæfellsnesi. Foreldrar
hans voru hjónin Þórdís Gísla-
dóttir og Kári Magnússon bóndi í
Haga, bæði komin af merkum ætt-
um á Snæfellsnesi.
Alexander dvaldi í föðurgarði
fram um tvítugsaldur og ólst upp
við öll venjuleg landbúnaðarstörf
eins og börn og unglingar áttu að
venjast á þessum árum. Arið 1938
fór hann í hérðasskólann að Reyk-
holti og var þar í tvo vetur við hið
almenna nám, en fór síðan í fram-
haldsdeild þriðja árið og lagði þá
aðallega stund á smíðar. Má 'segja,
að þá hafi verið lagður grund-
vöilur að framtíðarstarfi hans, en
hann lauk síðar prófi i húsasmíði
frá Iðnskólanum í Reykjavik.
Starfaði hann æ síðan að þessari
iðn. Vann hann m.a. að smíði ým-
issa meiriháttar skólabygginga í
Reykjavík og viðar. Hjá Tómasi
heitnum Vigfússyni vann hann í
yfir 15 ár, en á seinni árum var
hann lengst af hjá Böðvari
Bjarnasyni, húsameistara.
Er óhætt að fullyrða, að hann
var ætíð mikils metinn af vinnu-
veitendum sem vinnufélögum
fyrir störf sín, reglusemi og
trúnað.
Alexander var mikill unnandi
bókmennta og lista. Einkum hafði
hann áhuga á þjóðlegum fróðleik
og ljóðum. Var hann mjög vel
lesinn og víða heima. Hann hafði
frábært minni og því gaman og
fróðlegt að heyra hann og ræða
við hann um þessi efni. Féllu þá
oft mörg „gullkornin“, því Alex-
ander var vel orðhagur og einkar
sýnt um að draga fram aðalatriði
þess, er um var rætt, í fáum orð-
um eða jafnvel einu hnitmiðuðu
orði. Eiga vinir hans margar
ógleymanlegar minningar frá
slíkum samræðustundum.
Alexander hafði mikla ánægju
af að ferðast — skoða landið og
náttúruna. Övíða leið honum bet-
ur en með stöng í hönd við fagurt
fjallavatn. Hann var tryggur vin-
ur og félagi.
Hinn 23. október 1948 kvæntíst
Alexander Ingveldi Jónatans-
dóttur frá Mið-Görðum í Kolbeins-
staðahreppi. Var mikið jafnræði
með þeim hjónum. Bæði uxu úr
grasi í skjóli hinna fögru fjalla á
Snæfellsnesi. Og þau áttu mörg
sameiginleg áhugamál. Ingveldur
bjó manni sínum aðlaðandi heim-
ili, nú síðustu 16 árin að Bugðu-
læk 13. Þangað voru vinir og
vandamenn ávallt velkomnir.
Þeim hjónum varð ekki barna
auðið en ófá eru þau börn, sem
um lengri eða skemmri tíma
dvöldu á heimili þeirra og nú
minnast þeirrar hlýju og vel-
vildc: sem umvafði þau meðan
þau voru hjá Ingu og Alla.
Ég vil nú að leiðarlokum þakka
vini mínum trygga og einlæga
vináttu frá fyrstu kynnum. Við
hjónin þökkum hinar fjölmörgu
samverustundir — þá hiýju og
hjálpsemi sem þau Alexander og
Ingveldur hafa ávallt sýnt okkur
og börnum okkar.
Við sendum Ingveldi, systkin-
um hins látna og öðru venzlafólki
okkar innilegustu samúðarkveðj-
ur. Blessuð sé minningin um
góðan dreng.
Ásgeir Olafsson.
Orð hrökkva skammt, þegar
minnzt er látins vinar. Við miss-
um mikið, er Alexander Kárason
hverfur svo skyndilega á brott, en
við höfum líka margt að þakka frá
löngum og góðum kynnum.
Leiðir okkar lágu fyrst saman
fyrir næstum þrjátíu árum, en þá
vorum við báðir að hefjast handa
i starfsgrein okkar. Löngum síðan
Minning:
Fædd 14/5 1894.
Dáin 14/3 1974.
SÆLIR eru hjartahreinir. Þessi
orð meistarans koma mér í hug,
er ég minnist Guðnýjar Haralds-
dóttur. Hennar fjársjóðir voru
sakleysi, hjartahlýja, trúin á guð
og það góða í öllum, sem hún
kynntist. Hún tók málstað allra,
sem á var hallað, sérstaklega
æskufólks og barna, það var
hennar eðli að líta alltaf á björt-
ustu hliðarnar.
Guðný átti eina dóttur, og fyrir
hana, ömmu og langömmubörnin,
fórnaði hún öllum kröftum, af
sinu takmarkalausa örlæti.
Ekkert var svo erfitt, að hún legði
það ekki fúslega á sig fyrir þau.
Það hefði mátt segja um hana
eins og einar Benediktsson segir
um móður sína.
hefur haldizt með okkur og fjöl-
skyldum okkar góð vinátta.
Skömmu eftir að við Alexander
kynntumst kvæntist hann eftirlif-
andi konu sinni, Ingveldi
Jónatansdóttur, og bættist mér
þar annar ágætur vinur, en hon-
um einstakur lífsförunautur.
Fjölskylda mín minnist með
þakklæti ótalinna ánægjustunda
með þeim hjónurp á heimilum
okkar og á ferðalögum hér heima
Og erlendis.
Alexander Kárason var einstak-
lega góður drengur og jafnágætur
félagi. Hann var léttur og þægi-
legur í viðmóti, ræðinn og fundvís
á hið broslega og skemmtilega.
Betri vinnufélaga var ekki hægt
að hugsa sér. Hann horfði jafnan
framhjá göllum félaga sinna og
beindi athyglinni að því bezta í
hverjum manni, og nutu góð-
vildar hans margir þeir, sem
minna máttu sín. Alexander var
dugmikill og hagur starfsmaður,
Þú vóst upp björg
á þinn veika arm;
þú vissir ei hik eða efa.
Háöldruð var hún eins og vök-
ull andi hússins, réttandi hlýja og
huggandi hönd jafnt á nóttu sem
degi.
Það var aldrei spurt um laun né
taldar vinnustundir, heldur glaðzt
yfir að fá að fylgjast með vexti
þeirra og þroska. Það veitti henni
líka mikla gleði, því öll eru þau
vel af guði gerð og gott fólk.
Dótturbörnunum lærðist líka að
meta ömmu sína og voru henni
hlý og góð, er hún var farin að
heilsu og kröftum. Alla tíð hélt
hún glaðlyndi sfnu og gekk um
létt á fæti og hnarreist krýnd sin-
um gullnu hærum.
Guðng Haraldsdóttir
frá Tandrastöðum
t
Eiginmaður minn og faðir okkar,
SNORRI HÖRGDAL ÓSKARSSON,
Flókagötu 64,
andaðist 20 marz
Sigriður Eggertsdóttir,
Eggert Snorrason, Þór Snorrason.
t
Faðir minn,
GESTUR GUÐMUNDSSON,
bóndi frá ReykjahlíS,
andaðist að Vifilsstöðum að morgni 20. marz s.l.
F.h. aðstandenda
Ingimundur Gestsson.
t Ástkær eiginmaður minn, t Móðir okkar og tengdamóðir,
AÐALSTEINN LÁRUSSON, Gnoðarvogi 30, sem andaðist 14 þ.m. verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju laugar- daginn 23. marz kl. 1 0 30 f.h. Kristín Magnúsdóttir, börn og systkini. KRISTRÚN EYVINDSDÓTTIR, frá Stardal, andaðist I Landakotsspítala hinn 20. þ.m. Jarðarförin auglýst síðar. Börn og tengdabörn.
t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför systur minnar t Þökkum innilega auðsýnda samúð og hluttekningu við andlát og jarðarför.
RAGNHEIÐAR GUOJÓNSDÓTTUR, Vífilsgötu 7 Sérstakar þakkir færi ég skyldfólki fyrir þeirra aðstoð. Sigrlður Guðjónsdóttir. KRISTJÁNS ANDRÉSSONAR, frá Djúpadal. Herdfs Sakaríasdóttir og aðrir aðstandendur.
t Hjartanlega þökkum við öllum, er vottuðu okkur samúð.og vináttu við andlát og útför KRISTJÁNS ÁSGRÍMSSONAR skipstjóra, Suðurgötu 49, Siglufirði, og heiðruðu minningu hans. Guðrún Sigurðardóttir, börn, barnabörn og barnabörn. t Þökkum auðsýnda samúð við fráfall og jarðarför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, JÓNÍNU SVEINSDÓTTUR, Austurbyggð 4, Akureyri. Bergur Pálsson, Guðný Bergsdóttir, Páll Bergsson, Bergur Bergsson, Þórunn Bergsdóttir, Friðrjk Steingrfmsson, Guðrún Bergsdóttir, pá|| Sigurðsson og barnabörn.
en ekkert var þó fjær honum en
að halda sjálfum sér fram til sam-
jafnaðar við aðra. Hann hafði stál-
minni og var vel lesinn og fróður
um margt. Vegna hæversku hans
veitti ekki af löngum tíma til að
finna alla þá hæfileika, er hann
bjó yfir. Alexander skapaði ásamt
konu sinni fallegt og gott heimili,
sem vitnar um snyrtimennsku og
ráðdeild, en þau hjónin voru svo
samhent, að í hugum vina sinna
voru þau óaðskiljanleg.
Fyrir u.þ.b. tveimur árum
kenndi Alexander þess sjúkleika,
sem nú hefur leitt hannáil dauða,
en þann erfiða tima reyndist
eiginkonan honum betur en
nokkru sinni. Ég votta henni
dýpstu samúð mína svo og
systkinum og öðrum ættingjum.
Ég kveð Alla vin minn og flyt
honum þökk fyrir allt, við munum
alltaf telja minninguna um hann
meðal þess dýrmætasta, sem
okkur hefur áskotnazt.
Einar S. Bergþórsson.
En sorgin kvaddi líka dyra hjá
henni, er hún varð að sjá á bak
litlum elskulegum glókolli. Lang-
ömmubarni sinu, sem hún hafði
annazt af svo miklum kærleik og
unni svo mjög, það var stór harm-
ur, sem trúin ein gaf henni styrk
til að bera. Nú hefur hún flutzt á
æðra tilverustig til hans Árna
litla, við hlið hans var hún lögð til
hinztu hvíldar. Þar hlakkaði hún
til að hvíla. Ég trúi því, að nú sé
Guðný umvafin kærleika guðs og
ástvinanna, sem á undan voru
farnir. Eg þakka henni hlýju og
vináttu, og bið henni fararheilla.
G.J.
t
Sonur okkar og bróðir,
STEFÁN SKÚLASON,
andaðist í Kaupmannahöfn 6
þm Jarðarförin hefur farið fram.
Ingrid Sveinsson,
Skúli Þórðarson,
Helga Jensen,
Ásdís Ásmundsdóttir,
Lfney Skúladóttir,
Skúli Skúlason.
t
Utför eiginkonu minnar og
móður okkar,
EMELÍU ÁSGEIRSDÓTTUR,
Sólvallagötu 44.
Keflavík,
fer fram frá Keflavlkurkirkju,
laugardaginn 23. þ m. kl. 14
Gunnar Guðnason og börn.
t
Ástkær faðir okkar, sonur og
bróðir,
JÓN ÞORBERG
STEINDÓRSSON
verður jarðsunginn kl. 2 laugar-
daginn 23. marz frá Lágafells-
kirkju.
Bryndís Jónsdóttir,
Smári Jónsson.
Anna Guðjónsdóttir,
Steindór Steindórsson,
Ellert Steindórsson,
Steindór Steindórsson.