Morgunblaðið - 22.03.1974, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. MARZ 1974
21
0 Brynjólfur Bjömsson vinnur í
Verzluninni Brynju, og er hann
einn af stofnendum Hugins, fé-
lags ungra sjálfstæðismanna í
Garðahreppi, en félagið var stofn-
að i haust.
— Hvernig gengur starfsemin
hjá ykkur, Brynjólfur?
— Hún er nú rétt að komast í
gang. Við höfum haldið fund um
skipulagsmál hreppsins, og var
fundurinn ágætlega sóttur og
urðu þar miklar umræður. Þar
kom m.a. fram sú skoðun, að þing-
menn Reykjaneskjördæmis hefðu
ekki fylgt nægilega vel eftir því,
að framkvæmdum við Hafnar-
fjarðarveginn yrði hraðað. Þetta
er einn fjölfarnasti vegur lands-
ins og þar er nú orðið algjört
vandræðaástand.
— Hvað lfður kosningaundir-
búningi i Garðahreppi?
— Prófkjör fer fram helgina
16.—17. marz, og stefna fulltrúar
unga fólksins í hreppnum að því
að fá mann kjörinn f hrepps-
nefnd.
— Hvaða hlutverki telur þú að
SUS eigi að gegna innan Sjálf-
stæðisflokksins?
— Að mfnu áliti á það að vera
leiðbeinandi fyrir hin ýmsu aðild-
arfélög og miðla upplýsingum.
Finnst þér ungt fólk hafa nægi-
leg áhrif á mótun stefnu flokks-
ins?
— Nei, ég tel það vera nauðsyn-
legt að auka áhrif unga fólksins,
Eins og nú er kemst það öf seint
til áhrifa.
— Ertu ánægður með árangur-
inn af þessari ráðstefnu?
— Já, að mörgu leyti. Það er
ætíð fróðlegt að heyra sjónarmið
fólks frá mismunandi stöðum, og
ég tel, að skoðanaskipti séu alltaf
mjög æskileg.
— Finnst þér ástæða til að
hajda svona ráðstefnur oftar en
gert hefur verið?
— Já, það er sjálfsagt að hafa
svona ráðstefnur oftar.og taka þá
fyrir málefni, sem eru efst á
baugi á hverjum tíma.
0 Við snerum okkur til Svein-
björns Steingrlmssonar, tækni-
fræðings, en hann situr í stjórn
S.U.S. fyrirNorðurland eystra.og
lögðum fyrir hann fáeinar spurn-
ingar.
Er mikil gróska í starfsemi
ungra sjálfstæðismanna fyrir
norðan?
Þar sem ég þekki bezt til, þ.e. á
Dalvík og Ólafsfirði er fullur hug-
ur i sjálfstæðismönnum að vinna
vel að framgangi sjálfstæðisstefn-
unnar í komandi kosningum. Á
Ólafsfirði, þar sem sjálfstæðis-
menn hafa haft meirihluta f lang-
an tíma, er i gangi skoðanakönn-
un um skipan framboðslista við
bæjarstjórnarkosningarnar í vor.
Sjálfstæðismenn á Ölafsfirði eru
ákveðnir i því að halda meirihlut
anum.
Hvaða hlutverki telur þú, að
S.U.S. eigi að gegna?
Ég tel, að það eigi að vera fé-
lagsleg miðstöð ungra sjálfstæðis-
manna og halda uppi sambandi
milli hinna ýmsu aðildarfélaga. í
öðru lagi hlýtur S.U.S. alltaf að
vera stefnumótandi afl ungra
sjálfstæðismanna og hafa áhrif á
stefnumótun Sjálfstæðisflokksins
sem heildar.
Telur þú ungt fólk hafa áhrif á
stefnumótun Sjálfstæðisflokks-
ins?
Milli S.U.S. og Sjálfstæðis-
flokksins hefur aldrei skapazt sú
andstaða, sem átt hefur sér stað í
öðrum flokkum. Það þýðir þó
ekki, að ungir sjálfstæðismenn
hafi alltaf verið sammála öllum
atriðum I stefnu flokksins.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
verið fús að taka upp ýmis mál-
efni, sem ungir menn innan hans
hafa lagt áherzlu á. I því sam-
bandi má nefna valddreifingu og
byggðamál.
Hvernig telur þú, að til hafi
tekiztmeð þessa ráðstefnu?
Vel. Ráðstefnan er vel undirbú-
in og hefur efalaust orðið til að
auka skilning manna á hlutverki
S.U.S. og er nauðsynlegt að halda
fleiri slfkar og þá gjarnan úti á
landsbyggðinni þvi að erfitt er að
sækja svona ráðstefnur nema fyr-
ir þá, sem búa í næsta nágrenni
Reykjavíkur.
0 Alfreð Dan Þórarinsson er úr
Hafnarfirði, starfar I Bygginga-
vöruverzluninni Dvergi og segist
vera þar innanbúðardrengur.
Hann er formaður Stefnis, félags
ungra sjálfstæðismanna í Firðin-
um.
— Er lifleg starfsemi hjá ykk-
ur, Alfreð?
— Við höfum haft þrjá fundi
síðan í haust, en ég var kjörinn
formaður félagsins á síðasta aðal-
fundi. Annars er nú kominn í
okkur kosningahugur. Eins og er
höfum við fjóra bæjarfulltrúa af
níu, en nú stendur til að fjölga
fulltrúunum i ellefu og auðvitað
dreymir okkur um að ná meiri-
hlutanum.
— Nú hafa farið fram talsverð-
ar umræður á þessari ráðstefnu
um hugmyndafræði, og hafa ýms-
ir viljað halda því fram, að Sjálf-
stæðisflokkurinn þurfi að hafa
fastmótaða hugmyndafræði.
Hvert er þitt álit?
— Ég er á móti þvi. Fastmótuð
hugmyndafræði hlýtur að vera
ófrjó þar sem aðstæður og hugs-
anagangur manna er sifelldum
breytingum undiropinn. Það er
mikilvægara að taka til umfjöll-
unar vandamál dagsins í dag og
brjóta þau til mergjar.
— Hverter þittálitá því fundar-
formi, sem lengst af hefur verið
tíðkað hér á landi sem viða annars
staðar?
— Ég held, að betra sé að hafa
litla fundi frjálslega þannig að
frjálsar umræður eigi sér stað í
ríkari mæli. Það gefur auðvitað
að skilja, að fast fundarform er
óhjákvæmilegt þegar um stóra
fundi er að ræða.
0 Bjarni Egilsson verkamaður á
Sauðárkróki er gjaldkeri Vikings,
félags ungra sjálfstæðismanna á
Sauðárkróki.
— Hvernig gengur starfið hjá
ykkur á Sauðárkróki, Bjarni?
— Það hefur verið heldur dauft
yfir þvi, en í haust var haldið
félagsmálanámskeið. Það er helzt
að 'haldnir séu fundir þegar við
fáum ræðumenn héðan að sunn-
an.
— Er kosningaundirbúningur
hafinn hjá ykkur?
— Já, við verðum með opið
prófkjör um næstu helgi. Við
sjálfstæðismenn höfum nú þrjá
fulltrúa i sjö manna bæja&stjórn
og stefnum nú að því að ná meiri-
hlutanum.
— Hvernig finnst þér að vera á
svona ráðstefnu?
— Mér finnst alltof langur tími
fara i ræðuhöld og umræður um
ræðurnar. Eg held, að það væri
miklu betra að verja lengri tíma
til persónulegra kynna og óform-
legra viðræðna en hér hefur verið
gert.
Einnig vil ég taka það fram, að
mér finnst alltof mikið rætt hér
um hugmyndafræðileg efni, i stað
þess að taka fyrir þau vandamál,
sem snerta fólkið beint og þá sér-
staklega fólkið í atvinnulífinu.
Hins vegar eru svona ráðstefn-
ur alltaf fróðlegar, og finnst mér
að halda mætti nokkrar slíkar á
ári hverju.
0 Bragi Michaelsson úr Kópa-
vogi er húsgagnasmiður og hefur
starfað sJ. 9 ár hjá Kristjáni Sig-
geirssyni h.f.
Bragi er formaður Týs, félags
ungra sjálfstæðismanna i Kópa-
vogi. Hann er einnig ritstjóri
Voga, málgagns sjálfstæðismanna
i Köpavogi.
Við inntum Braga eftir starf-
seminni f Kópavogi, og sagði
hann, að unga fólkið sýndi nú
verulegan áhuga á þvi að efla
starfsemina frá því sem verið
hefði.
— Eruð þið komin i gang með
kosningaundirbúninginn?
— Já, efnt var til skoðanakönn-
unar vegna framboðslista nýlega,
og hefur listinn nú verið birtur.
Undirbúningur fyrir bæjarstjórn-
arkosningarnar hefst svo af full-
um kraf ti eftir næstu mánaðamót.
Bragi er fimmti maður á lista
sjálfstæðismanna í Kópavogi, og
auk þess mun hann verða starfs-
maður sjálfstæðisfélaganna þar
UMHOftF
fram yfir kosningar. Við spurðum
hann hver hlutur unga fólksins
væri á framboðslistanum.
— Ásamt mér eru þrír aðrir
fulltrúar ungs fólks á listanúm í
framboði.
— Hvert telur þú vera hlutverk
SUS?
— Fyrst og fremst það að vera
tengiliður milli aðildarfélaganna,
miðla upplýsingum og vera ráð-
gefandi i félagsstarfinu.
— Hefur ungt fólk áhrif á
stefnumótun Sjálfstæðisflokks-
ins?
— Já, ég álít að svo sé, þótt ekki
sé það i nógu rikum mæli. Það er
auðvelt fyrir ungt fólk að koma
skoðunum sínum á framfæri við
flokksforystuna, og ég tel að það
þyrfti að gera meira af því en nú
er, þannig að það hafi frumkvæð-
ið.
— Hvernig finnst þér hafa tek-
izt til með þessa ráðstefnu?
— Eg tel að af henni hafi orðið
nokkuð góður árangur, en mér
finnst, að á svona ráðstefnu þyrfti
að verja meiri tima til að efla
persónuleg kynni þátttakend-
anna. Árangurinn af slíkum
kynnum er áreiðanlega ekki síðri
en sá sem fæst af löngum fundar-
höldum.
— Að lokum, Bragi, telur þú, að
ráðstefnur sem þessi eigi að vera
tíðari?
— Já, ég er ekki frá því. Ég tel,
að stjórn SUS eigi að hafa frum-
kvæði um ýmis málefni, t.d. er nú
sérstök þörf á ráðstefnu um mál-
efni launþega.
— Skrif ungra
manna
um Sjálf-
stæðisflokkinn
Framhald af bls. 22
því ekki er fyrir að fara ágrein-
ingi um stórmál eða stefnumið.
Slík skrif myndu einungis sýna,
að Sjálfstæðisflokkurinn býður
upp á opinskáar uppbyggi legar
umræður og' innan hans er eðli-
legt svigrúm til endurmats á svo-
nefndum viðurkenndum sanning-
um. í öðru lagi telja menn nægi-
legt að skoðanaskipti um einstök
atriði fari fram á flokksfundum,
þar sem flokksmenn fjalli um þau
og því sé engin þörf fyrir slík
skrif. Ég er ekki sammála þessu,
bæði af þeim ástæðum, sem ég
lýsti áðan, og enn vegna þess, að
skriflegar umræður eru oftast
ábyrgari og ígrundaðri en óundir-
búin skoðanaskipti á fundum, þó
þau hafi sina kosti. Opinská skrif
kunna að veita andstæðingunum
stundarhagnað en þegar til lengd
ar lætur verða þau flokknum og
baráttumálum hans tilgóðs.