Morgunblaðið - 22.03.1974, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. MARZ 1974
17
Noregur:
Sósíalistar vilja
ræða öryggismálin
í Norðurlandaráði
uninni í samskiptum Norðurland-
anna. Nefndin komst að ýmsum
sameiginlegum niðurstöðum og
lýsir m.a. ánægju með þróunina f
þessum málum síðastliðin 20 ár.
Lögð er áherzla á, að það sé undir
hverju landi um sig komið hvert
framhaldið verður.
1 tillögu sósíalista um að utan-
rikis- og öryggismál skuli verða
hluti af norrænni samvinnu er
því haldið fram, að slíkt gæti
hjálpað til við pólitiskar endur-
bætur heima fyrir og einnig við
að losa Norðurlönd við áhrifavald
stórveldanna. Þeir telja, að með
því geti Norðurlönd haft „mild-
andi“ áhrif og minnkað spennuna
milli austurs og vesturs.
Meirihluti nefndarmanna lýsti
sig þó algerlega andvígan þessari
tillögu og minntu m.a. á, að Finn-
land hefði ásínum tima gerzt aðili
að Norðurlandaráði gegn því lof-
orði, að það myndi ekki fjalla um
öryggismál.
/ • •
Arásin á Onnu prinsessu og Mark Philipps:
26 ára Englendingur sakað-
ur um morð- og ránstilraun
Mynd þessi var tekin f London f fyrrakvöld og sýnir hvítu Fordbifreiðina fyrir framan bifreiðina, sem
Anna prinsessa og Mark maður hennar voru f á leiðinni til Buckingham-hallar.
Ósló, 21. marz, NTB.
SÓSlALISKA kosningabandalag-
ið í Noregi hefur lagt til, að
öryggis- og utanríkismál verði
felld inn í þá málaflokka, sem
fjallað er um f norrænni sam-
vinnu. Þetta kemur fram í
skýrslu frá stórþingsnefnd, scm
bandalagið átti fulltrúa í. Meiri-
hluti nefndarinnar var þó á móti
þvf, að þetta yrði gert.
Nefnd þessi var skipuð fyrir
tveimur árum eftir umræður um
norrænt samstarf í þinginu og var
hún beðin að skila áliti á þró-
London, 21. marz AP-NTB
26 ára atvinnulaus Englending-
ur, Ian Ball að nafni, var f dag
leiddur fyrir rétt f London og
sakaður um morðtifræði við Iff-
vörð Önnu prinsessu og tilraun til
að ræna henni og eiginmanni
hennar, Mark Philipps höfuðs-
manni f gærkveldi. Brezka lög-
reglan kannar nú, hvort fieiri
kunni að hafa verið f vitorði með
Ball, meðal annars vegna þess, að
í Ijós kom, að hann átti grunsam-
lega mikið fé á bankareikningi.
Roy Jenkins, innanrfkisráðherra
Bretlands, hefur fyrirskipað, að
öryggisgæzla drottningar og fjöi-
skyldu hennar verði aukin.
Fjórir menn særðust í árásinni,
sem gerð var um áttaleytið í gær-
kveldi í strætinu The Mall, sem
liggur að Buckingham höll. Voru
Anna og Mark Philipps á leiðinni
þangað akandi, þegar hvít bifreið
af gerðinni Ford Escort ók í veg
fyrir þau og neyddi þau að gang-
stéttarbrúninni. Hljóp ökumaður
hvítu bifreiðarinnar síðan út og
mundaði vélbyssu. Eftir skothríð
hans var verst leikinn lífvörður
prinsessunnar, James Beaton, en
einnig særðust ökumaður
prinsessunnar, lögreglumaður,
sem reyndi að stöðva árásarmann-
inn, og blaðamaður, sem kom að-
vifandi í leigubifreið og hljóp út
úr henni og á vettvang, þegar
skothríðin hófst. Hvorki Anna né
maður hennar hlutu meiðsli og
haft er eftir sjónarvottum, að
Mark hafi reynt að skýla konu
sinni með því að snúa baki i árás-
armanninn meðan hann hamaðist
á afturhurð bifreiðarinnar til að
reyna að opna hana. Þau hjónin
höfðu í fyrstu ætlað að stiga út úr
bifreiðinni en séð sig um hönd,
læst sig þar inni og hniprað sig
saman á gólfinu afturí.
Þegar lögreglumenn dreif að úr
öllum áttum, lagði árásarmaður-
S- Afríka:
3 af 12 fund-
ust lifandi
Jóhannesarborg, S-Afrfku,
21. marz NTB
I DAG fundust lifandi 3 af 12
námaverkamönnum, sem saknað
hefur verið frá því á þriðjudag, er
hrun varð f gullnámu f S-Afríku
með þeim afleiðingum, að 19
manns lokuðust niðri f námunni.
Fimm fundust samdægurs lifandi
og tvö lfk og hefur hinna tólf
sfðan verið leitað. Mennirnir þrír,
sem fundust í dag, voru á 1950
metra dýpi. Þeir voru svo til
ómeiddir. Björgunarstarfi er
haldið áfram.
inn á flótta en var handtekinn
fljótlega í St. James garðinum þar
skammt frá.
1 fórum hans fannst löng rugl-
ingsleg orðsending til Elizabetar
drottningar, þar sem krafizt var
um milljón sterlingspunda lausn-
argjalds fyrir Önnu og Mark.
Mátti að sögn lögreglunnar
merkja af orðalagi orðsendingar-
innar að höfundur hennar bar
engan hlýhug til drottningar.
Sömuleiðis fundust í bifreiðinni
hvftu þrenn handjárn, ökuskír-
teini og tvö umslög, stiluð á brezk
stórfyrirtæki.
Eftir því sem næst verður kom-
izt, að sögn AP, var hleypt af 11
skotum meðan á viðureigninni
stóð.
Vísbendingar fundust
um vatn í Kohoutek
Tel Aviv, 21. marz AP.
BANDARlSK hjón, sem bæði eru
stjörnufræðingar að mennt, hafa
uppgötvað vatn f halastjörnu f
fyrsta sinn, að þvf er frá hefur
verið skýrt af hálfu háskólans f
Tel Aviv.
Hjón þessi, Dr. Peter Wehinger
og Dr. Susan Wyckoff, eru 36 og
32 ára að aldri, búsett í Lawrence,
þar sem þau stöfuðu við Kansas-
háskóla. Þau komu fyrir tveimur
árum til Israels sem ferðamenn
en ákváðu að vera þar um kyrrt
um hríð og starfa á vegum
háskólans í Tel Aviv, m.a. að
stjarnfræðilegum athugunum í
Negev-auðninni.
Síðustu mánuði hafa þau fylgzt
með halastjörnunni Kohoutek og
hinn 10. janúar sl. tóku þau lit-
rófsmynd, sem sýndi óyggjandi
fram á, að ioniserað vatn væri þar
að finna. Þau telja þetta benda til
þess, að vatn sé í öllum hala-
stjörnum.
Dr. Wyckoff sagði, að um hrið
hefði verið vitað, að vatn væri að
finna í andrúmslofti Mars og
Venusar en þetta væri í fyrsta
sinn, sem merki fyndust um vatn
í halastjörnu.
ferðum sinum, hvort sem er
heima eða erlendis, og haldið þvi
fram, að þeir, sem á annað borð
ætluðu sér að koma þeim fyrir,
gætu það, þrátt fyrir öryggis-
gæzlu.
Að því er segir í NTB-frétt, var
f gærkveldi hringt til dagblaðs í
Belfast á N-írlandi og sagt, að
varnarsamtök kaþólskra manna
þar stæðu að baki árásinni en í
frétt frá AP segir, að þrátt fyrir
orðróm um, að frskir þjóðernis-
sinnar kynnu að eiga þarna hlut
að máli, væri skoðun lögregl-
unnar brezku sú, að árásin væri
ekki af pólitískum toga spunnin.
Öryggisgæzla
fjölskyldunnar efld
Ian Ball var aðeins tvær mínút-
ur fyrir rétti í London í dag
meðan hann var ákærður og úr-
skurðaður I sjö daga varðhald.
Hann sagði ekkert nema hvað
hann óskaði eftir lögfræðiaðstoð.
Yfirheyrslur yfir honum hefjast
28. marz n.k.
Þetta er i fyrsta sinn frá því
árið 1939 að árás er gerð á brezku
þjóðhöfðingjafjölskylduna. Eliza-
bet drottning og maður hennar
Filippus prins héldu áfram opin-
berri heimsókn sinni í Indónesiu í
dag samkvæmt áætlun eftir að
hafa rætt við forsætisráðherra
Bretlands og Önnu prinsessu í
síma. Öryggisvörður drottningar
var efldur, sömuleiðis vörður við
heimili önnu og Marks á landar-
eign Sandhurst-herskólans, þar
sem Mark er kennari — og um
Charles prins, sem staddur er í
Kaliforniu. Fjölskylda drottn-
ingar hefur yfirleitt verið andvíg
miklum öryggisráðstöfunum á
Anna og Mark Philipps.
Bandarískir hernaðar-
ráðunautar í Kambódíu?
Washington, 21. marz NTB.
HAFT er eftir stjórnar-
heimildum í Washington, að
varnamáfanefnd öldungadeildar
bandarfska þingsins hafi óskað
eftir skýringum James Schles-
ingers, landvarnaráðherra, varð-
andi fréttir, sem borizt hafa um
að bandarfskur herforingi hafi
starfað óföglega sem ráðunautur
stjórnarhersins f Kambódfu.
Þessar heimildir herma, að
John Stennis, formaður nefndar-
innar, hafi að tilmælum eins öld-
ungadeildarþingmanns demó-
krata, Alans Cranstons, beint
formlegum tilmælum til Schles-
ingers um að hann gerði grein
fyrir þessu máli.
Það var dagblaðið „Washinton
Post“, sem skýrði frá þvi, að
Lawrence Ondecker höfuðsmaður
hefði starfað sem ráðgjafi hersins
í Kambódiu. Að sögn bandaríska
utanríkisráðuneytisins hefur
hann neitað því að hafa brotið
gegn Iögum þeim, sem bandariska
þingið samþykkti á sínum tíma
um bann við ráðgjafastarfsemi
bandarískra hermanna í Kam-
bodíu.
Cranston er sagður hafa hafið á
eigin vegum rannsókn á staðhæf-
ingum, sem fram hafa komið um,
að á annað hundrað bandarískir
herforingjar hafi á sl. ári verið i
þjónustu Kambódiuhers sem
hernaðarráðunautar.
Átti að smygla
öskunni úr landi?
Prag, 21. marz AP.
HAFT er eftir áreiðanlegum
heimildum f Prag, að krukku með
öskunni af jarðneskum leifum
fyrrverandi forseta tékkneska
þjóðþingsins, Josefs Smrkovskys,
hafi verið stolið og hún sfðan
fundizt f námunda við landamæri
Tékkóslóvakfu og Austurrfkis. Er
gizkað á, að tilraun hafi verið.
gerð til að smygla henni úr landi.
Þegar Smrkovsky lézt, 14.
janúar sl., var þess getið i
tékkneskum fjölmiðlum og eftir
að lík hans hafði verið brennt, var
ösku hans komið fyrir f grafreit
Smrkovsky fjölskyldunnar i
Olsanske kirkjugarðinum í Prag.
Framhald á bls. 39
Litvinov
kennarí í USA
Róm, 21. marz AP
SOVEZKI andófsmaðurinn
Pavel Litvinov kom til Róma-
borgar í dag frá Vín og mun
hafa þar nokkra viðdvöl, áður
en hann fer til Bandaríkjanna.
Hann fékk vegabréfsáritun til
Bandaríkjanna meðan hann
dvaldist í Austurríki og gerir
sér von um að fá stöðu sem
eðlisfræðikennari vestra.
Litvinov, sem er 33 ára að
aldri, er sonarsonur Maxims
Litvinovs sem var utanríkis-
ráðherra Sovétríkjanna um
hríð á valdatima Stalins. Lit-
vinov yngri var rekinn frá
Sovétríkjunum vegna gagn-
rýni sinnar á sovézk yfirvöld.
Segir hann, að sér hafi verið
gert Ijóst af hálfu sovézku
leynilögreglunnar — KGB,
þegar hann var handtekinn í
desember sl., að hann yrði
sendur aftur til Síberíu, ef
hann ekki féllist á að fara úr
Framhald á bls. 39