Morgunblaðið - 22.03.1974, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. MARZ 1974
Afmæliskveðja:
Pétur Jónatans-
son bóndi
Neðri-Engidal
INN frá botni Skutulsfjarðar
gengur grösugur og fallegur
dalur, sem heitir Engidalur, þar
er friðsælt og sumarfallegt.
Nokkuð framar með ánni, sem
rennur um dalinn, er jörðin
Neðri-Engidalur þar sem Pétur
tónatansson býr og kona hans
Guðmunda Katarínusdóttir frá
Arnardal. Pétur er fæddur á
Efstabóli í Korpudal í Önundar-
firði 5. janúar 1894, sonur Jóna-
tans Jenssonar bónda þar og konu
hans Kristinar Kristjánsdóttur
Vorið 1908 verða þáttaskil í lífi
Péturs, þá flyzt hann með foreldr-
um sínum úr Önundarfirði
norður í Engidal í Skutulsfirði, og
hefur hann búið þar allt frá ferm-
ingaraldri. Pétur í Engidal er eng-
inn efnishyggjumaður, hann er
léttur í máli, gamansamur og
hrókur alls fagnaðar á mannfund-
um. Hann dansar eins og menn á
góðum aldri, er teinréttur og hef-
ur ágæta rithönd, enda ritari í
stjórn Búnaðarfélags Skutuls-
fjarðar um margra ára skeið.
Hann er friðsamur maður,
óádeilinn og gestrisinn í bezta
lagi. Okkur, sem höfum verið
nágrannar Péturs í 30 ár, og í
samstarfi með honum í félagsmál-
um, finnst það ótrúlegt að hann
hafi 80 ár að baki sér, en þó er það
satt.
Hann keyrir bfl sinn ennþá og
hefir aldrei hlekkzt á, þó var
hann nokkuð við aldur er harin
tók bílþróf. Lengi fram eftir ævi
var Pétur heilsulinur, þoldi illa
vosbúð, sem oft var í daglegum
mjólkurflutningum til ísafjarðar
í misjafnri færð og veðrum. En þó
tókst Pétri að rækta og byggja
upp öll hús á jörðinni úr stein-
steypu, svo þetta er orðið hið
snotrasta býli. Við öllþessi störf á
kona hans sinn stóra hlut, því hún
hefir oft unnið öll bústörf sem
hraustleika karlmaður. Þau hjón-
in eignuðust fjórar dætur, sem
allar eru löngu farnar að heiman
og giftar. Elst þeirra er Kristín,
búsett á ísafirði og gift Gunnari
Hjartarsyni. Þau eiga einn son. —
Önnur var Sólveig húsfreyja í
Efri-Tungu í Skutulsfirði, gift Jó-
hanni Pétrí Ragnarssyni bifvéla-
virkja. Sólveig dó skyndilega
haustið 1963 og var öllum harm-
dauði. Þau áttu tvö börn, sem eru
í föðurgarði. Þriðja er Gerður,
húsfreyja í Astúni á Ingjalds-
sandi, gift Ásvaldi Guðmundssyni
bónda þar og kennara. Fjórða
dóttirin er Katrín, gift Guðna Jó-
hannessyni, þau eiga tvær dætur,
og eru búsett á ísafirði.
Það er óvenjulegt að bændur
reki búskap um áttrætt og þar
yfir, ég minnist þess ekki i mínum
uppvexti. Heyöflun er að vísu
langtum auðveldari nú, en aftur
er hjúahald horfið, svo 'hver
Verður að basla með sitt. Eg vona,
að Pétur eigi eftir að búa nokkur
ár enn, með sinni dugmiklu konu.
Að lokum vii ég óska Pétri,
konu hans og börnum allra heilla,
með þökk fyrir ágæt kynni og
margar gleðistundir í ljóði og lagi
„Lifðu heiil“.
Fagrahvammi í janúar 1974,
Hjörtur Sturlaugsson.
Hafnarfirðl lll sölu
raðhús á góðum stað við Smyrlahraun. Falleg og vönduð
eign. Gott verð og greiðsluskilmálar.
Árni Grétar Finnsson hrl.,
Strandgötu 25, Hafnarfirði.
Sími 51500.
LJERID VÉLRITUN
Ný námskeið eru að hefjast. Kennsla eingöngu á
rafmagnsritvélar. Engin heimavinna. Innritun og
upplýsingar i símum 85580
41311 og 21 71 9
Vélritunarskólinn,
Suðurlandsbraut 20,
Þórunn H Felixdóttir
Frá FlmleikasamDandi
isiands
Meistaramót F.S.Í. í stigakerfi áhaldafimleika fyrir pilta
og stúlkur, verður haldið í íþróttahúsi Hafnarfjarðar
dagana 6—7 apríl.
Keppt verður í þessum aldursflokkum:
1 2 ára og yngri.
1 3 og 14 ára.
1 5 og 16 ára.
1 7 ára og eldri.
Þátttökutilkynningar skulu hafa borist Fimleikasambandi
fslands fyrir 28. marz. F.S.Í.
Hafnarllörður - ídúð óskast
Óska eftir að kaupa 2ja herb. íbúð í Hafnarfirði, helzt 1 Norðurbænum. Útb. allt að 1700 þús. kr. Uppl. í síma 51888 og 52844 (heima).
JCHlllllNfS
< J FASTEIGNASALA - SKIP OG VERDBRÉF 5TRANDGÖTUli HAFNARFIRÐI 3ÍMI 52680
Nyr
DATSUNI20Y
Bill án verksmi6jugalla
Datsun- 120 Y er glæsilegur arftaki Datsun
1 200, sem dáður er af fjölda anægðra e'gen^ a-
Engir verksmiðjugallar, óvenjulega lit.ð v ðhald^
Neyzlugrannur. Jvöfalt bremsukerfi, og •
öryggisbremsur. Öryggisstýri. v° o
rúða. Upphituð afturrúða. Rullubelti.
Teppi á gólfi o.fl.
69 DIN-ha.
Eyðsla 7 lítrar
á100 km. —
ÚtboÓ
Tilboð óskast í smíði fyrsta áfanga íþrótta og félags-
heimilis í Þorlákshöfn. Útboðsgögn verða afhent í skrif-
stofu Ölfushrepps, gegn 5. þús. kr. skilatryggingu.
Eigendanefnd.
0 KJÖRSKRÁ
fyrir sveitarsjórnarkosningarnar í Seltjarnarneshreppi,
sem fram eiga að fara sunnudaginn 26. maí 1974,
liggur frammi almenningi til sýnis í skrifstofu Sveitarsjóra
í Mýrahúsaskóla eldri, Seltjarnarnesi, frá kl. 9 —15 alla
virka daga, nema laugardaga frá og með 26. marz til og
með 23. apríl 1 974.
Kærum út af kjörskrá skal skila til Sveitastjóra fyrir kl. 24,
laugardag. 4. maí 1 974.
Sveitarstjórinn í Seltjarnarneshreppi.
Getlð Dér hjálpað mér?
stimpilmerkjum eða öðrum slikum. Einnig óska ég eftir
frímerkjum á reikningum að skjölum stimpluð Tollur.
Staðgreiðsla.
Öllum bréfum svarað strax.
Redaktör Axel Miltander, Nordenskiöldsgatan 19,
413 09 Göteborg, Sverige.
Málaskóli------------------------ 2 69 0
Lestrardeiidir undir landspróf
íslenzka — stærðfræði — eðlisfræði —
enska — danska.
Úrvals kennarar í öllum greinum.
Ath.: Þið sparið dýra einkatíma með
þvi að læra hjá okkur.
£ Innritun daglega.
0 Kennsla hefst 8. apríl.
______________________Halldórs
KODAK
Litmpdir
a(rdöpm
HANS PETERSEN H/f.
BANKASTR. 4 SÍMI 20 313
GLÆSIBÆ SÍMI 82590
Kodak ■ Kodak ■ Kodak ■ Kodak ■ Kodak