Morgunblaðið - 26.01.1969, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. JANÚAR 1969.
5
Aukasýning á ,,Einu sinni á jólanótt"
Litla Leikfélagið hefur nú
sýnt „Einu sinni á jólanótt“ síð-
an á annan í jólum við mjög góða
aðsókn, og hefur verið ákveðið
að hafa eina aukasýningu í
Tjarnarbæ kl. 3 í dag, sunnu-
dag. Sýningin hlaut einróma lof j
gagnrýnenda, en upphaflega' var ;
fyrirhugað að sýna aðeins fram á !
Þrettándann. Leikstjóri er Guð-
rún Ásmundsdóttir.
Kvenfélagasamband Suður-
lands hefur farið þess á leit við
Litla Leikfélagið að það hafi
eina sýningu á Selfossi og verð-
ur hún á morgun, mánudag kl.
5 í Selfossbíói. Verða þetta allra
síðustu sýningar á leikritinu.
Félag Árneshreppsbúa Rvík
Árshátíð Féiags Árneshreppsbúa í Reykjavík verður
haldin í Sigtúni föstudaginn 7. febrúar kl. 20.30.
Tii skemmtunar:
1. Kvikmyndasýning.
2. Guðm. H. Guðjónsson leikur einleik
á píanó.
STJÓRNIN.
G]E]E]E]E]E]^G]E]E]E]E]E]E]B]E]B]E]B|E]E]
01
01
01
01
HÖrUM FLUff
verzlun okkar af
LAUGAVEGI 176 á
Laugavegi 173
01
01
01
01
01
01
01
01
01
01
01
01
Vandaðir
greiðslusloppar
margir litir, allar
stærðir
Ver5 aðeins
6S0,oo krónur
TIZKUVERZLUNIN
Vrun
Rauðarárstíg 1,
sími 15077.
Byggir
áhoifendaslúku
BREIÐHOLT h.f. mun taka að
sér byggingu áhorfendastúku á
íþróttaleikvanginum í Laugardal.
Saimþykkti borgarráð á fundi sín
um á þriðjudag að heimila Inn-
kaupastofnun Reykjavikurborg-
ar að semja við Breiðholt h.f. um
verkið.
Mbl. fékk þær upplýsingar hjá
Innkaupastofnuninni, a’ð samn-
ingar stæðu yfir um verkið, en
líklega yrði það hafið alveg á
næstunni. Er þarna um að ræða
stækkun á áhorfendastúkunni, á
að lengja hana, þar sem nú er
gengið inn eftir steingólfi, og
hækka hana upp, svo hún verði
lík stúkunni við sundlaugina. En
síðan á að setja þar yfir stál-
grindarþak. Tekur Breiðholt að
sér verkið fyrir 10 millj. 428 þús.
kr.
Stórt iðnfyrirtœki
óskar að ráða mann til að sjá um kaup á hráefnum.
Enskukunnátta nauðsynleg.
Umsóknir með upplýsingum um aldur, mennitun og
fyrri störf sendist Mbl. fyrir 1. f ebrúar merkt:
„Innkaup — 6111“.
StóVEGI 22-24
: 30280-32262
UTAVER
Kjörverð — kjörverð
Getum enn boðið nælonteppin á
kjörverði
Verð pr. ferm. kr 249.—, 270.—,
339.—, 343,— og 420,—
Sendum um land allt.
Eftir því sem tækninni fleygir fram og bílarnir verða fullkomnan og einfaldari - og þar af leiðandi
auðveldari í notkun, eftir því ætti umferðin að verða greiðari og léttari og umferðarslysin færri.
En er raunin sú? Nei. - Hvers vegna? Vegna þess að í Iangflestum tilfellum eru umferðarslysin
ökumönnunum að kenna, en verða ekki rakin til galia eða bilunar á ökutækinu. Bílum hefur f jölg-
að mjög mikið undanfarin ár, umferðin eykst stöðugt og með betri bílum hefur hraðinn einnig auk-
izt. Allt krefur þetta meiri leikni og aðgæzlu af ökumanninum, hann verður ávallt að vera vel vak-
andi við aksturinn, alltaf allsgáður í fyllstu merkingu þess orðs. Og ekki aðeins undir stýri, heldur
í öllu lífi sínu.
Yfir 35 ára reynsla ANSVARS, alþjóðlegs tryggingafélags fyrir bindindismenn, hefur ótvírætt sýnt,
að bindindismenn valda færri umferðarslysum en aðrir ökumenn. Þessvegna hafa á þessum árum
þróazt bindindistryggingafélög í samvinnu við Ansvar International á öllum Norðurlöndum, Eng-
landi, Hollandi, Kanada, Astralíu og Nýja Sjálandi. Ábyrgð hf. er einn hlekkur í þessari stóru
tryggingarkeðju bindindismanna. Heildariðgjöld félaganna er um 1.6 milljarður króna á ári og um
260 þúsund ökutæki eru tryggð hjá samtökunum.
Fyrir bíl yðar býður ÁBYRGÐ eftirfarandi tryggingar:
1. ÁBYRGÐARTRYGGINGU, þ. e. hina lögbornu skyldutryggingu.
2. ÖKUMANNS- OG FARÞEGASLYSATRYGGINGU.
3. ALKASKÓTRYGGINGU. Með þeirri tryggingu er bíllinn tryggður fyrir vagntjóni, þ. e. á-
rekstri, veltu, hrapi; brunatryggður, rúðutryggður (allar rúður) og þjóftryggður.
4. HÁLFKASKÓTRYGGINGU, sem tryggir bílinn fyrir bruna-, rúðu- og þjófnaðartjónum.
5. „GRÆNA KORTS" UTANLANDSTRYGGINGU, sem gildir fyrir bílinn á ferðalagi erlendis.
Kjör Ábyrgðar eru hagstæð, þar sem Ábyrgð tryggir eingöngu bindindismenn. Ábyrgð hefur
frá upphafi kappkostað að veita góða þjónustu og fljót og örugg tjónauppgjör. Leitið upplýsinga
og sannfærist um að BINDINDI BORGAR SIG.
ABYRGÐ
K
r
TRYGGINGÁFELAG fyrir
BINDINDISMENN
Skúlagötu 63 — Símar 17455 — 17947