Morgunblaðið - 12.10.1962, Qupperneq 10
10
MORGVN BLAÐIÐ
Föstudagur 12. október 1962
'
Dúður af milljónum
ROLLS-ROYCE, Kádiljákur,
Thunderbird og Chrysler aka
frá hvítu og fallegu húsinu
sem leigt er fyrir 1000 dali á
mánuði og var um skeið bú-
staður keisarans í Persíu. Bíla-
lestin þýtur gegnum raðir af
æpandi táningum og upp að
hliðinu á kvikmyndaverinu.
Elvis Presley er kominn á
vinnustað. Hann er bæði reglu
maður 4 tóbak og áfengi og
er stundum nefndur „frílausi“-
milljónamæringurinn.
Stúlkur, stúlkur, stúlkur
Allir fjórir bílarnir tilheyra
Presley. Þeir eru fullsetnir af
vinum hans, fjölskyldu og
einkastarfsfólki. Enginn kem-
ur auga á Presley sjálfan, en
það stafar af því að hann ligg
ur á gólfinu í Kádiljáknum
með nefið ofan í hvíta skinn-
ábreiðu, ti! þess að aðdáendur
hans komi ekki auga á hann.
— Það er alls ekki vegna
þess að Elvis vilji ekki láta
aðdáendur sína sjá sig, segir
varðmaðurinn við hliðið, —
en ef þeir fá auga á hann er
alveg fullvíst að þeir kasti sér
á götuna fyrir.framan bifreið-
ina til þess að fá hana til þess
að nema staðar, — það kemur
oft fyrir.
Og þegar Elvis er loks kom-
inn heilu og höldnu bak við
hlið kvikmyndaversins getur
hann byrjað að vinna við átt-
undu kvikmyndina síðan hann
losnaði úr hernum, fyrir tveim
árum. Kvikmyndin heitir
„Stúlkur, stúlkur stúlkur —
ekki afleit.ur titill það.
Síminn upptekinn
Ekki iíður langur tími þar
til skiptiborðið er allt upp-
tekið. Stúlkur á aldrinum
16—20 ára hringja í von um
að fá að heyra í Elvis sjálfum.
Sumar segjast heita Brigitte
Bardot — aðrar Elizabeth
Taylor en ekkert dugar. Elvis
fer aldrei sjálfur í símann.
Joe Esposito vinur hans úr
hernum hefur þann starfa að
losa Elvis við þannig lagað.
Hinir vinirnir og frændurnir
hafa einhver önnur störf, ann-
ast innkaup, elda matinn
o.þ.u.l. Tom Parker ofursti hef
ur auga með fjármálunum.
Við leggjum 2 millj. dala i
bankann á næstu 5 árum, seg-
ir hann stoltur.
6% tii Elvis
Elvis sér sjálfur ekki mikið
af þeim peningum sem hann
vinnur fyrir. Helmingur tekn-
anna fer í skatta, stór hluti
af því sem eftir er, fer í launa
greiðslur, ýmiss konar þókn-
anir og tii Parkers ofursta. Og
það sem verður eftir handa
Elvis sjáifum, er ekki nema
6%.
Samt sem áður hefur hann
ráð á því að hafa einskonar
hirð. Hvar sem hann fer fylgja
vinir hans með honum, t. d.
til Hawaii er „Blue Hawaii“
var tekin, eða til Miami. Elvis
finnst hann ekki vera heima
hjá sér nema hann hafi allan
hópinn í kringum sig. Aftur
á móti eru vinkonur hans ekki
eins hrifnar af hirðinni. Ein
af þeim, Tennesee-stúlkan
Anita Wood, sem þekkt hefur
Presley síðan hann var vöru-
bílstjóri, fylgdist eitt sinn með
honum til Hollywood. Hún
sagði: Elvis er ekki sá sami.
Hann er alltaf umkringdur af
þessum strákum. Hver vill
Elvis Presley
hundeltur
giftast manni sem er alltaf
með heilan flokk af ungum
mönnum í kringum sig . . .
Sjónvarp í bifreiðinni
Elvis Presley ' er 27 ára
gamall. Það kemur einstöku
sinnum fyrir að hann fari út
með stúlku án þess að hafa
vini sína með. En þá fer hann
ekki á veitingastaði, aðeins í
ökuferð í Kádiljáknum. Öðru
vísi getur það ekki verið því
Presley getur ekki sýnt sig
á opinberum stöðum.
Aðeins tveir veitingastaðir
geta stært sig af því að fá ein-
stöku sinnum heimsókn af
Presley. Annar er aðeins fyrir
sviðsstarfsmenn, en hinn lítill,
ítalskur veitingastaður. Eig-
endur beggja staðanna hafa
svarið þess dýran eið að láta
aldrei uppskátt um hvenær
Presley er í heimsókn. Ef þeir
þeir gerðu það hefðu þeir báð-
ir séð hann í síðasta sinn. En
ekki einu sinni á þessa staði
getur Presley tekið stúlku
með sér, og þess vegna er
Kádiljákurinn ramminn um
einkalíf hans.
En það er enginn venjulegur
Kádiljákur, Hann keypti
band. Þar að auki hefi ég ekki
ennþá hitt neina stúlku sem
mér hefur þótt nægilega vænt
um. Ég kvænist ugglaust ein-
hvern daginn — á hinu rétta
augnabhki hinni réttu stúlku!
Ef Presley er spurður hve
lengi hann ætli að halda áfram
að lifa þessu gullna lífi sínu
svarar hann: Það er aðeins
einn sem veit það og Hann
er ekki hægt að tala við per-
sónulega.
Sannleikurinn er sá að
Presley gæti hætt að vinna
í dag og lifað um aldur og
ævi af peningum þeim sem
hann nú þegar á í banka.
Þessu marki hefur verið ná á
sl. 2 árum. Hann var ekki
milljónamæringur þegar hann
gekk í hennn, þótt hann hefði
þá sungið inn á 10 plötur, sem
hver um sig hefur verið seld
í milljónaupplagi og verið með
í fjórum kvikmyndum.
En nú á hann, fyrir utan
upplagi. Og kvikmyndir hans
virðast einnig hitta í mark . . .
Góð verzlun
Hús það í Mem>-’ ■ gem
Elvis Presley á, er a u-.Jlu-
lega afskekktum stað og þang-
að lá áður mjög ógreiðfær
vegur, en hann varð að
gera við hann því umferð varð
mikil af fólki, sem kom
til þess að sjá húsið hans. Og
þegar vegurinn hafði verið
lagfærður jólcst umferðin að
miklum mun.
Rétt á móti húsi Presleys
er einhver náungi að byggja
lítil hús með görðum í kring
og selur þau fyrir 7 þús. dali
hvert. Dag nokkurn sá Prest-
ley mann vera eitthvað að
snuðra í garðinum, og tína
lauf af trjánum. Sendi hann
Tom ofursta út til þess að
kanna málið. Og er Tom
spurði manninn hvað hann
væri að gera, svaraði maður-
inn: Ég nef mjög góða verzl-
un í New York, þar sem ég
sel blöð af trjánum úr garði
Elvis Presleys fyrir 10 dali
stykkið.
Og þar sem ofurstinn hefur
sjálfur gott auga fyrir slíku
lét hann manninn óáreittan
við lauftínsluna.
Ef Presley segir eitt orð
kvenfólk
hann á sl. ári fyrir 12 þús.
dali og þegar hann ætlaði að
selja hann aftur í ár voru
honum boðnir 4.500 dalir í
hann. En hann kvaðst ekki
vilja tapa svo miklu á sölunni
og lét þess vegna breyta hon-
um. í stað baksætisins var
mjúkum sófa komið fyrir í
hálfhring. Þá lét hann smíða
bar með súkkulaði og svala-
drykkjum en engu áfengi.
Prestley drekkur ekki. Bíll-
inn er klæddur með gullvefn-
aði að innan. Það er sjónvarp
og stereofónískur plötuspilari
með hi-fi hljómi. — Síðasta
stúlkan sem fór í ökuferð í
bílnum var tilvonandi kvik-
myndastjarna, Stella Stevens.
Hún fékk hamborgara og
mjólkurhnsting, hlustaði á
plötur og horfði á sjónvarp á
meðan þau óku klukkustund-
um saman um Hollywood.
er piparsveinn
Bíllinn kom aldrei í nám-
unda við heimili Presleys.
Hann segir sjálfur. Ég er pipar
sveinn og hef hugsað mér að
halda áfram að vera það enn
um sinn. Ég hefi ekki tíma
til þess að hugsa um hjóna-
íbúðina í Hollywood, búgarð
sem kostaði 40 þús. dali,
nokkra Kádiljáka er hafa kost
að hann 3—-4 þús. dali stykkið
og hann notar 4 þús. dali ár-
lega í fatnað. í tvö ár hefur
Elvis Prestley haft svo mikið
að gera að það hefði gert út
af við flesta. Hann hefur sung-
ið, dansað og verið gamanleik
ari í fjölda kvikmynda, G. I.
Blues, Piaming Star, Wild in
the country o. s. frv.
Ástæðan fyrir því að hann
hefur lagt svo mikið á sig er
e. t. v. sú að plötufyrirtæki
hans var áhyggjufullt út af
að vera hans í hernum kynni
að valda þverrandi vinsæld-
um hans, hann hefði e. t. v.
misst takið á táningunum. En
þegar hann kom heim úr hern
um gekk hann inn í plötufyrir-
tækið í Memphis, Tennesee
eins og hann hefði aldrei farið
neitt. Rödd hans var orðin
þroskaðri, náði yfir stærra tón
svið og var öruggari. Og fyrsta
platan „Are you lonesome to
night“ fór um landið eins og
eldur í sinu. Fyrsta milljónin
seldist á einum degi. Allar þær
plötur sem hann hefur sungið
inn á hafa einn selzt í milljóna
við eínhverja stúlku í verzlun
eða lyftu gera þær allt, sem
í þeirra valdi stendur til þess
að reyna að ná tali af honum
aftur. Lyftustúlka frá Holly-
wood flaug til Miami til að
reyna að hitta hann, önnur
frá Chicago og ein frá New
York. Einkaritari Prestleys,
Tom DisKin segir: Þegar þær
koma svona langt að er ómögu
legt að íleygja þeim út. Elvis
talar við þær allar í 10 mínút
ur og hringir síðan á mig, til
þess að ég geti komið þeim út.
Og nvað skyldi Presley
sjálfum fmnast um þessi und-
arlegu stúlkubörn? Hann svar
ar einfaldlega þessu: Ef það
væri ekki fyrir þessi tauga-
veikluðu stúlkubörn væri ég
ekki sú stjarna, sem ég er
í dag!
Lögreglan hefur stöðugan
vörð í krmgum húsið hans.
Það er aidrei að vita hvað
getur gerzt.. Ferðafólk er allt-
af að aka framhjá í von um
að fá að sjá hetjuna. Og á
hverjum morgni ekur bíla-
lestin út um rafmagnshliðin.
En Elvis sézt aldrei. Hann
liggur allt.af á gólfinu í Kódi-
ljúknum 4 hvíta skinnteppinu.
.
Leifur Sveinsson:
Svar tíl Þjóðviljans
í ÞJÓÐVILJANUM 6. okt. er en fyrir plötur frá Vestur-
Evrópu.
vikið lítilega að grein, er ég
reit í Mbl. 5 okt. og nefndi „Þil-
plötuhneykslið". Hjá hinum
nafnlausa greinarhöfundi Þjóð-
viljans, sem að sjálfsögðu kenn-
ir sig við austrið, gætir mikils
misskilninigs.
Sennilegt er að skuggi smán-
armúrsins í Berlín falli svo
þungt á Þjóðviljamenn þessa
dagana að rökrétt hugsun reyn-
ist 'þeim u-m megn.
F.r þeim því nokkur vorkunn.
Engu að síður skal hér bætt
úr misskilningi þessum og rifjað
ur upp gangur þilplötumálsins
frá byrjun
íslendingar flytja inn þilplötur
frá Austur Evrópu og greiða
fyrir þær 30—40% hærra verð
Síðan lýsir Ægir Ólafsson, for-
stjóri fyrir Mars Trading Co.
því yfir í Þjóðviljanum, að engu
sé um að kenna nema slóða-
skap umboðsmanna Austur-
Evrópufyrirtækja, ef þeir gætu
eigi þ..’kKt verði Austan-vara
niður í heimsmarkaðsverð.
Bjuggust nú allir við verð-
lækkun á þilplötum austan-
manna, en allt er óbreytt enn
þá, nema hvað slóðanafnið er
á góðri leið með að festast við
umboðsmennina austrænu, m a.
Ægi Ólafsson.
Nú velta menn þvi fyrir sér,
hvað geti fengið nenn eins og
Ægi til að liggja unö-" slóða-
nefnin0u lengi.
Ýmsar skýringar hafa verið
gefnar á þessu, og er ein þeirra
líklegust:
„Þegar Alþjóðasamband Komm
unista -vað að reisa höfuð-
stöðvar sínar á íslandi að Lauga-
veg 18 í Reykjavík var bygg-
ingakostnaður hússins áætlaður
6 millj. — Við endanlegt upp-
gjör reyndist hann vera 13
milljónir.
Neitaði nú Alþjóðasambandið
•að greiða hina 7 mdlljóna kr.
viðbót, nema unnt væri að
hækka verð á einihverri vöru
austrænni sem þeir flyttu til
íslands, og ná þannig inn við-
bótarupphæðinni.
Urðu þilplötur fyrir valinu og
verð þeirra látið standa 30—40%
hærra en heimsmarkaðsverð.
Greiða húsbyggjendur því
25—30 krónur af hverri þilplötu
til „Rúblunnar' að Laugaveg 18.
Ef þessi skýring reynist rc'.t,
er hart til þess að vita, að lýð-
ræðisstjórn sú, sem nú fer rmð
völd í landinu skyldi menn
þannig til að standa í tveim hús
byggingum, er ætlun þeirra var
að ráðast aðeins í eina.
Því er það vissulega rétt, sem
Þjóðviilj'inn bendir á, — „Að
'hús viðreisnarinnar fær eigi
staðizt með slíkum SMÁNAR-
ÞILJUM".
Kaupmannahöfn
8. október 1962
Leifur Sveinsson
• FJÆR VENUSI
Washington 10. okt. (NTB)
Bandaríska geimrannsóknastofn-
unin tiikynnti i dag, að geim-
farið Mariner II. sem nú er á leið
til Venusar myndi fara fram hjá
plánetunni í um 33,600 km fjar-
lægð i stað 14,400 km fjarlægðar
eins og ráðgert hafðl verið. Talið
er þó að þetta muni ekki draga
úr mikilvægi þeirra visindalegu
rannsókna, sem geimfarinu er setl-
að að framkvæma.
Sendiráð Sovétríkj
anna í Shan^ka^*
lokað.
Peking 10. okt. (NTB).
SENDIRÁÐSSKRIFSTOFUM
Sovétríkjanna í Shanghai var lok
aff 28. september sl. og starfs-
fólk þess er nú aff búa sig til
heimferffar. Verzlunar- og sigl-
ingarmálafulltrúar Sovétríkjanraa
starfa enn í borginni.
Það var sendiráðsstarfsmaður,
sem kom til Peking frá Shang-
hai, sem skýrði frá þessu í dag,
Sagði hann að blöðin í Shanghai
hefðu sagt frá því í tveimur lín-
um, að Sovétrikin hefðu ákveðið
að loka sendiráði sínu í borg-
inni. Útlendingar í Peking geta
eikki verið áskrifendur að blöð-
um, sem gefin eru út annars-
staðar í landinu. ___