Morgunblaðið - 12.10.1962, Qupperneq 1
24 sfður
its*
49. árgangur
227. tbl. — Föstuaagur 12. október 1962
Prentsmiðja Morgunblaðsins
WMMhMMAMMWlAMkMB
jVinnum að einingu
kristinna manna
sagði Jóhannes pdíi XXIII. í ræðu a
kirkjuþingi kaþólsku kirkjunnar, sem
hófst í Róm í dag
r,
I
!
;
Vatíkaninu 11. okt. (NTB-AP)
KIRKJUÞING kaþólsku
kirkjunnar hófst í dag með
guðsþjónustu í Péturskirkj-
unni í Róm. 1 lok guðsþjón-
ustunnar hélt Jóhannes páfi
XXIII ræðu. Sagöi pálfinn
m.a. að hann liti á það sem
skyldu kaþólsku kirkjunnar
að vinna að einingu allra
kristinna manna í heiminum.
Aðaltilgangur kirkjuþingsins
sagði páfinn að væri að efla
varðveizlu hinna helgu kenn-
inga kristindómsins og út-
breiða þær. Að efla trú manna
á sannleikann og sanna þeim,
að þjóðir heims gætu lifað
saman í sátt og samlyndi. Páf
inn sagðist vcra á öndverðum
meiði við menn, sem alltaf
gerðu ráð fyrir hinu versta
og byggjust jafnvel við heims
endi. Þessir menn sæu ekki
annað en hið illa og segðu,
að ástandið í heiminum væri
nú verra en nokkru sinni fyrr.
Páfinn sagði, að það liti út
eins og þessir menn hefðu
ekki lært neitt af sögunni,
sem væri jafnframt lær-
dómur lífsins og þeir hegðuðu
sér eins og allt hefði leikið í
lyndi í heiminum þegar hin
fyrri kirkjuþing hefðu verið
haldin.
Hann sagði, að Kaþólska
kirkjan vildi á þingi sínu
sanna, að hún elskaði alla
menn, að hún væri þoliiunóð
og vildi veita þeim, sem utan
hennar standa af náð sinni og
góðvild. Við mannkynið, sem
á nú við örðugleika að etja
vil ég segja eins og Pétur
postuli: — Gull og silfur á
ég ekki, en það sem ég hef
það gef ég yður, sagði páfinn
að lokum.
Páfinn flutti ræðu sína á
latínu.
Kirkjuþing kaþólsku kirkj-
unnar, sem nú er hafið, er það
fjölmennasta í sögu kirkjunn-
ar.
Jóhannes páfi var borinn til
Péturskirkjunnar í burðar-
stóli í broddi fylkingar 2700
þingfulltrúa. Horfði mikill
mannf jöldi á skrúðgönguna og
fagnaði ákaft. Það var rign-
ing í Róm alla aðfararnótt
fimmtudagsins, en þegar full-
trúar kirkjuþingsins höfðu
tekið sér sæti í Péturskirkj-
unni í morgun hellti sólin
geislum sínum yfir borgina.
Kirkjuþingið kemur næst
saman til fundar laugardag-
inn 22. október, en fram til
þess tíma verður kosið í nein
ir. Mörg mál liggja fyrir þing
inu og er gert ráð fyrir að
því ljúki ekki fyrr en að ári
Gagnbylting
gerð í Jemen?
Fréttir þaðan mjog óljósar
Amman, London, 11. okt. gerða þau geti gripið henni
Jóhannes páfi XXIII
— NTB-AP —
BARDÖGUNUM milli hers
stjórnar Sallals ofursta í Je-
men og fylgismanna Al-
Hassan prins hefur haldið á-
fram í dag. Fregnir frá AP
herma, að enn sé ekki ljóst
hvort hægt sé að líta á skæru
hernað þennan sem gagn-
byltingu. — Fregnir af því
hver hefur hetur í bardögun-
um eru mjög óljósar.
Brezka utanríkisráðuneytið
vísaði eindregið á bug í dag
þeirri staðhæfingu stjórnar
Sallals, að Bretar sendu
mönnum Al-Hassans her-
gögn frá Aden.
Arabaríkin, sem viður-
kennt hafa stjórn Sallals,
ræða nú um til hvaða að-
til stuðnings.
Sallal hefur lýst þvi yfir aS
menn A1 Hassans fái stuðning
frá Saudi-Axabíu og sagðist hann
líta svo á að Jemen ætti nú f
stríði við Saudi-Araibíu. Er talið,
að þetta falli í góðan jarðveg
hjá Nasser forseta Egyptalands,
því að hann hefði lengi verið
andvígur Saud konungi. Egyptar
hafa sent herlið til stuðnings
stjórn Sallals eins og kunnugt er.
Sagt er að skæruliðar, sem
fylgja A1 Hassan og fylgismenn
Sallals eigist nú við í Norður-
og Austunhéruðum Jemen. Út-
varpið í Amman skýrir þó svo
frá, að fylgismenn A1 Hassans
sæki nú fram til hinnar mikil-
vægu hafnarborgar Hodeida á
vesturströnd Jemen. Útvarpið
Framhald á bls. 2.
.
Ihaldsflokkurinn styður
stjórnarinnar varðandi
stefnu
E.B.E.
Llandudno, 11. okt. — NTB-AP
LANDSFUNDUR brezka I-
haldsflokksins, sem nú stend-
ur yfir í Wales lýsti í dag
nær einróma stuðningi sín-
um við stefnu stjórnar Mac-
Frumvarp ríkisstidirnaránnar:
Gagnger breyting gerð á
skipun landsdóms
í GÆR var lagt fram á Alþingi
frumvarp ríkisstjórnarinnar um
landsdóm. I greinargerð er rak-
Ið, hvemig þessum málum er
varið í allmörgum löndum Vest-
ur-Evrópu. „Landsdóms- eða
ríkisréttarmál eru mjög fágæt í
öllum þessum löndum og fer
heldur fækkandi að því er virð-
ist, einkum eftir að þingstjórn-
arhættir hafa náð öruggri fót-
festu". 1 greinargerð segir, að í
frumvarpinu sé gerð gagnger
Haf ís út af
Malarrifi
BREZKA rannsókna'rskipið 1
Ernest Holt sendi frá sér til-t
kynninjgiu um það í gær, er ^
það var statt um 3 sjómílur
út af Mararrifi, að þar hafi
sézt hafíshröngl í átt til lands
sem væri hættulegit sigling-
um.
breyting á skipun landsdóms.
„Er hún gerð óbrotnari og við-
ráðanlegri í framkvæmd. Jafn-
framt er reynt að fullnægja ýtr-
ustu kröfum um réttaröryggi, án
þess þó að sleppt sé því pólitiska
ívafi, sem frá upphafi hefur
tíðkazt í þvílíkum dómstólum“.
En landsdómur fer með og
dæmir þau mál, er Alþingi á-
kveður að höfða gegn ráðherr-
um út af embættisrekstri þeirra.
1 kjölfar þess fylgir frumvarp
um ráðherraábyrgð. Er þar auk
nokkurra nýmæla gerðar ýmsar
breytingar á eldri ákvæðum. —
Hefur Ólafur Jóhannesson pró-
fessor annazt endurskoðun þess-
ara laga beggja.
Landsdóm skipa 15 dómendur
Eins og fyrr segir er gerð
gagnger breyting á skipun lands-
dóms í frumvarpinu. Skal hann
skipaður 15 dómendum, þar af
eru 7 embætUsmenn með laga-
þekkingu og dómarareynslu
sjálfkjörnir, en 8 kjörnir af sam-
einuðu Alþingi. Sjálfkjörnu
dómararnir eru hæstaréttardóm-
ararnir allir og sé forseti Hæsta-
réttar sjálfkjörinn forseti dóms-
ins, yfirsakadómarinn 1 Reykja-
vík og forseti lagadeildar Há-
skólans. Hinir alþingiskjörnu
dómendur skulu kosnir með
Frh. á bls. 23
millans í viðræðunum við
Efnahagsbandalag Evrópu í
Briissel. Sagðist fundurinn
treysta því að ríkisstjórnin
stæði við þá ákvörðun sína
að leggja sig fram við að ná
hagkvæmum skilmálum fyr-
ir samveldislöndin og mark-
aðsbandalagslöndin (EFTA).
Breytingartillaga, sem tók
afstöðu gegn aðild Breta að
EBE var felld með miklum
meirihluta.
Aðeins 12 þingfulltrúar greiddu
atkvæði gegn ályktunartillög-
unni, en um 50 fulltrúar af 4500
lýstu sig samþykka breytingar-
tillögunni.
Áður en ályktunartillagan var
samþykkt hélt Edward Heath,
aðstoðarutanríkisráðherra Breta,
sem ræðir við fulltrúa E.B.E.
fyrir hönd lands síns, ræðu. Skor
aði hann á þingfulltrúa að veita
17 Indverjor og 33 Kínverjor
iéllu í londamærnbardögum
Nýju Delhi, Hong Kong, 11. okt.
— NTB-AP —
OPINBER talsmaður í Nýju
Delhi tilkynnti í dag, að 17
Indverjar hefðu látið lífið í
bardögunum á landamærum
Indlands og Tíbets í gær. —
Haft er eftir fréttum útvarps
ins í Peking, að 33 Kínverjar
hefðu fallið í bardögunum.
Kínverjar segja að Indverjar
hafi tvisvar ráðizt á kínverskar
varðstöðvar og í fyrri árásinni
hafi 11 Kínverjar fallið, en 22 í
þeirri síðari. Kínverjar segjast
hafa svarað skothríð Indverja
og hefðu þeir dregið sig til baka,
þegar þeir sáu, að þeir gátu ekki
náð varðstöðvunum á sitt vald.
Upplýsingar frá opinberum
aðilum í Nýju Delhi hermdu í
dag, að Kínverjar væru nú að
senda aukinn herstyrk til varð-
stöðvanna, sem Indverjar segja,
að þeir hafi komið upp innan
landamæra Indlands. Sem kunn-
ugt er viðurkenna Indverjar og
Kínverjar ekki sömu landamæra
línuna og hafa sakað hvor ann-
an um yfirtroðslur á landamær-
unum og að undanförnu hefur
nokkrum sinnum slegið í brýnu.
í fréttastofufregnum frá Pek-
ing segir, að indversk flugvél
hafi flogið langt inn fyrir landa-
mæri Tíbets í dag í njósnaskyni.
stjórninni stuðning til að leiða
viðræðumar við bandalagið til
lykta á hagkvæman hátt. Heath
sagði, að Efnahagsbandalag
Evrópu væri enn vaxandi sam-
tök. Nauðsynlegt væri fyrir
bandalagið að taka ýmsar ákvarð
andr nú þegar, ákvarðanir, sem
ekki væri hægt að fresta á með-
an á viðræðunum við Breta
stæði. Ef við eigum að geta
haft áhrif á þessar ákvarðanir,
sagði Heath, verðum við að
stefna að því að ljúka viðræðun-
um við bandalagið eins fljótt og
mögulegt er. Hin nýja Evrópa
er í uppgangi og samstaðan á
sviði efnahags- og stjórnmála
eykst dag frá degi. Bretland lítur
á þessa þróun með ánægju og
gleðst yfir því að misklíð milli
landanna sé óðum að bverfa. Að
lokum sagði Heath, að Evrópa
væri ófullkomin án Bretlands og
Bretland væri ófullkomið án
Evrúpu.
Frh. á bls. 23
„I stríð“
við skip
sem flytja til Kubu
New Yortc 11. okt. (NTB-AP)
FLOKKUR flóttamanna frá I
Kúbu, sem gengur undii nafn.
inu „Alfa 6ó“, lýsti þvi yfir í
dag, að eftirleiðis myndi flckk
urinn vera í stríði við öll skip
sem væru í flutningum til
Kúbu. Leiðtogi flokksins sem
hefur aðsetur . Puerto Rico
er 35 ára og heítir Antonio
Veciana. Hamn sagði í dag að
á komandi mánuðum rað-
_ -'ðu útl-gai -ir fleiri aðg^rð
ir gegn Kúbu.