Morgunblaðið - 20.09.1979, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 20.09.1979, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1979 Franskur leikhúsmaður kynnir Albert Camus FRANSKI lcikhúsmaðurinn Eric Eychenne kynnir verk franska skáldsins Albert Camus á vegum Alliance Francaise í Norræna húsinu fimmtudaginn 20. septem- ber klukkan 21. Fluttir verða kaflar úr ritgerð- um og skáldsögum Albert Camus frá árunum 1939 ti! 1947, þar sem fjallað er um líf fólks af evrópsk- um ættum í Alsír. Eychenne nefn- ir dagskrá sína „Sumarið" og kynnir verkin með upplestri, myndum og leikrænum flutningi. Albert Camus (1913—1960), eitt kunnasta skáld Frakka, fæddist í Alsír. Hann skrifaði fjölda skáld- sagna, leikrita og ritgerða. Nóbelsverðlaunin í bókmenntum hlaut hann árið 1957. Eric Eychenne er fæddur árið 1937 í Pamiers í Frakklandi. Hann hefur verið leikhús- og leikstjóri, fengist við kvikmyndagerð og æskulýðsstörf af ýmsu tagi. Hann hefur farið víða um heim á undan- förnum árum til þess að kynna franska menningu. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Ferðamenn mega hafa 30 þúsund kr. með sér SEÐLABANKI íslands hefur auglýst nýjar reglur um inn- flutning og útflutning islenzkra peninga og er innlendum og erlendum ferðamönnum nú leyft að flytja inn og út úr landinu allt að þrjátíu þúsund krónur, þó ekki í seðlum að verðgildi yfir eitt þúsund krónur. Breyting þessi tók gildi hinn 6. september sl. en áður var leyfilegt að flytja inn og út úr landinu allt að 20 þúsund krónur. Þá var og leyfilegt að verzla í Fríhöfninni fyrir 10 þúsund krónur á leið inn og út úr landinu, en viðskiptaráðu- neytið og utanríkisráðuneytið hafa nú hækkað þá upphæð í kr. 15 þúsund á hvorri leið. Seðla- banki íslands sér um að setja reglur þessar og er það í samræmi við skipan laga um gjaldeyris- og viðskiptamál er tóku gildi hinn 1. september sl. Hvítárnes, fremst Hvítárvatn. Skriðufell til vinstri. Haustferð Úti- vistar á Kjöl HAUSTFERÐ Útivistar verður að þessu sinni farin á Kjalar- svæðið um helgina. En frá byrjun hefur Útivist staðið fyrir sér- stakri haustferð í þeim tilgangi meðal annars að gefa fólki kost á þvi að njóta sérstæðrar litadýrð- ar haustsins. Þeir sem vilja fá tækifæri til að ganga Kjalveg hinn forna, með viðkomu í Grettishelli. Á þeirri leið verða m.a. skoðaðar vörður sem talið er að notaðar hafi verið til þess að gefa reykmerki á Sturlungaöld, en þær eru holar að innan og í þeim eru eldstæði. Þá verður fjárrétt Fjalla-Eyvindar skoðuð, ásamt Eyvindargjótu, Eyvindarhelli og Eyvindarhver. Gengið verður á Beinahól og einnig verður Líka- borgin, þar sem Reynisstaðar- bræður urðu úti, skoðuð. Farið verður frá Umferðarmið- stöðinni kl. 20 á föstudagskvöld og komið aftur í bæinn á sunnudags- kvöld. Þátttaka tilkynnist á skrifstofu Útivistar og þar eru allar upplýs- ingar gefnar. Leiðsögumaður í ferðinni verður Hallgrímur Jónasson, en farar- stjóri Jón I. Bjarnason. Nýtt smásagnaúrval handa framhaldsskólum MÁL OG menning hefur nýlega gefið út smásagnaúrval handa fram- haldsskólum sem nefnist í fáum dráttum. Njörður P. Njarðvík sá um útgáfuna. I bókinni eru tólf íslenskar smá- sögur eftir jafnmarga höfunda. Sög- urnar eru allar samdar eftir 1930, sumar eru nýsamdar eða hafa verið endurunnar fyrir þessa útgáfu og höfundar eru í hópi fremstu smá- sagnahöfunda á síðustu áratugum. Bókinni er ekki fyrst og fremst ætlað að vera sýnisbók smásagna 1930—1979 heldur hefur val sagn- anna miðast við að sýna smásagna- formið í sem fjölbreytilegustum myndum. Njörður P. Njarðvík hefur ritað inngang sem nefnist Smásaga, þar sem fjallað er um smásöguform- ið, einkenni þess og fjölbreytni, með tilvísun til einstakra sagna í bókinni. Hverri sögu fylgja ennfremur athug- unarefni, auk skýringa torskilinna orða. Eftirtaldir höfundar eiga smásögu í bókinni: Ásta Sigurðardóttir, Guð- bergur Bergsson, Halldór Laxness, Halldór Stefánsson, Hannes Pét- ursson, Indriði G. Þorsteinsson, Jakobína Sigurðardóttir, Nína Björk Árnadóttir, Ólafur Jóh. Sigurðsson, Stefán Jónsson, Svava Jakobsdóttir og Vésteinn Lúðvíksson. Bókin er heitin eftir fyrsta smásagnasafni Halldórs Stefánssonar í minningar- og heiðursskyni við hann. Bókin er 183 blaðsíður, setning, filmuvinna og prentun var unnin í Prentstofu G. Benediktssonar. Lögreglan reynir að koma i veg fyrir að ruðst sé inn á afgirta svæðið við skipin. Varð hún að beita kylfum og skemmdir urðu á fötum er menn hugðust sletta málningu á skipin, en slys urðu ekki á fólki. Frá útifundi herstöðvaandstæðinga. Stimpingar við Nato-herskipin TIL NOKKURRA stimpinga kom milli lögreglu og fundar- manna er sóttu útifund Sam- taka herstöðvaandstæðinga sem haldinn var í Sundahöfn siðdeg- is í gær, en þar liggja tvö herskip úr flotadeild Nato, Karlsruhe og Nipigon. Að sögn Bjarka Elíassonar, yfirlögregluþjóns, komu milli 100 og 200 manns á auglýstan útifund Samtaka herstöðvaand- stæðinga og er fundurinn hafði staðið í kringum 45 mínútur tóku menn að hrópa að skipun- um „Island úr Nato — herinn burt“ og reyndu menn síðan að komast að skipunum þar sem þau lágu við bryggjuna, en bryggjan hafði verið girt af nokkurn spöl frá þeim. Kom þá til stimpinga milli lögreglu og fundarmanna er þeir hugðust sprauta málningu á þau, en lögreglan kom í veg fyrir það. Varð hún að beita kylfum til að halda aftur af fólkinu og tók nokkra forsprakkana í sína vörzlu. Upp úr því leystist hóp- urinn upp og var komin kyrrð á um 19.30, eftir rúmlega hálftíma stimpingar. Nokkrir úr hópnum höfðu meðferðis þorskhausa á stöng og einn hélt á gervihrosshaus. Varðandi ásökun á hendur lög- reglunni að hún hefði ekki haft leyfi til að taka niður hrosshaus- inn er settur hafði verið á stöng í fyrradag sagði Bjarki það ómaklegt að slík gagnrýni á störf lögreglunnar skyldi koma fram í ríkisfjölmiðlum án þess að talað væri við hana. Hann kvað þetta hafa verið gert eftir réttmæta kvörtun frá Sigurði Ólafssyni sem hefur yfir að ráða landinu þar sem stöngin var og teldi lögreglan sér skylt að sinna slíkum umkvörtunum, enda væri lítil prýði að úldnum hrosshaus og ekki til ánægju fyrir önnur hross að horfa upp á. Safnað grjóti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.