Morgunblaðið - 20.09.1979, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 20.09.1979, Blaðsíða 1
36 SÍÐUR 205. tbl. 66. árg. FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1979 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Samió um frið- argæzlu á Sínaí Washinjrtoh — 19. september — AP EGYPTAR, lsraelsmenn og Bandaríkjamenn hafa komizt að samkomulagi um sameiginlegar friðargæzlusveitir á Sínaiskaga. Samkomulagið er árangur tveggja daga viðræðna varnar- málaráðherra Egyptalands og Israels, ásamt utanríkisráðherr- um Bandarikjanna og ísraels. Munu Egyptar og Israelsmenn leggja til hermenn i friðargæzlu- sveitirnar, en hlutverk Banda- ríkjamanna verður að fylgjast með því að ísraelsmenn skili hinu hernumda svæði í hendur Egypta með friðsamlegum hætti. Smith slær af Lundúnum — 19. september — AP. IAN Smith, leiðtogi hvíta minnihlutans í Rhodesíu, ljáði máls á því í dag að láta af kröfum sínum um neitunarvald minnihlut- samkomulagsátt milli stjórnar hans og brezku stjórnarinnar um nýja stjórnarskrá. Brezkir heimildarmenn hafa látið að því liggja að heldur þokist nú í samkomulagsátt á ráðstefn- unni, en almennt er við því búizt að viðræður dragist á langinn og geti staðið vikum saman. Með sigurbros á vör. Gösta Bohman, Ola Ullsten, og Torbjörn Fálldin þegar talningu utankjörstaðaatkvæðanna var lokið í gær. (simamymtPresaensBíid) Bohman fórnfús fyrir stjórn- armyndun borgaraflokkanna Ian Smith ans, en skömmu eftir að hann lét þessi ummæli falla lýsti Muzorewa for- sætisráðherra því yfir að verulega hefði miðað í Frá Sigrúnu Gísladóttur fréttaritara Morgunblaðsins i Stokkhólmi. GÖSTA Bohman, for- maður Hægri flokksins, sem varð óumdeilanleg- ur sigurvegari þingkosn- inganna í Svíþjóð, lýsti því yfir er sigur borgaraflokkanna lá fyr- ir í kvöld, að til að ná ETA myrðir tvo herf oring ja Bilbao — 19. september — AP. ETA-MENN skutu tvo her- foringja í miðbæ Bilbao í dag, um leið og gefið var til kynna að samtökin mundu á næstunni beita sér af enn meiri hörku en að undanförnu. Tilræðismennirnir voru þrír og voru þeir vopnaðir vélbyss- um og skammbyssum. Lágu þeir í leyni á bílastæði þegar herjeppi ók hjá, en bifreiðar- stjóri herforingjanna særðist lífshættulega í árásinni. Eftir morðin í dag er tala þeirra, sem látizt hafa í póli- tískum ofbeldisverkum í Baskalandi það sem af er þessu ári, komin upp í hundr- að, og er héraðið því mesta hryðjuverkasvæði Evrópu, en í írlandi hafa verið framin 78 pólitísk morð á árinu og 18 á Italíu. Þjóðaratkvæðagreiðsla um sjálfstjórn Baska fer fram í héraðinu í næsta mánuði, en öfgasinnar með ETA í broddi fylkingar vilja ekki sætta sig við neitt annað en fullt sjálf- stæði héraðsins. Er óttazt að þeir muni færast stórlega í aukana á næstunni til að leggja áherzlu á kröfur sínar. samkomalagi um stjóru- armyndun væri flokkur hans reiðubúinn að fórna ýmsum stefnumál- um sínum. Um leið tók Bohman fram, að Hægri flokkurinn setti það ekki sem skilyrði fyrir stjórn- armyndun með hinum borgaraflokkunum að hann fengi forsætisráð- herraembættið. Formenn Miðflokksins og Frjálslynda flokksins, Torbjörn Fálldin og Ola Ullsten, sem er forsætisráðherra í núverandi stjórn borgaraflokkanna, hafa báðir lýst sig fúsa til að taka að sér forsætisráðherraembættið. Ullsten biðst lausnar fyrir stjórn sína á fimmtudag og samdægurs ræðir Henry Allard, forseti þings- ins, við formenn allra stjórnmála- flokkanna um úrslit kosninganna og möguleika á myndun nýrrar stjórnar. Stjórnarmyndun á að vera lokið fyrir 1. október þegar nýtt þing kemur saman. Um leið og Olof Palme, formað- ur jafnaðarmanna, lýsti vonbrigð- um sínum með ósigur vinstri flokkanna, kvaðst hann óttast að hægri öflin í borgaraflokkunum næðu yfirhöndinni í stjórninni. Hann bar borgaraflokkunum á brýn að hafa gefið rangar upplýs- ingar í kosningabaráttunni og væri efnahagsástand landsins mun alvarlegra en þerr hefðu viljað vera láta, tinkum hvað varðaði greiðsiujofnuð við útlöad. Eins og fyrr segir unnu borgaraflokkarhir með eins sætis meirihluta, en Hægri fVokkurinn fékk 73 og bætti við sig 18, Miðflokkurinn fékk 64 og missti 22. Frjálslyndir fengu 38 þing- menn og misstu 1 mann. Jafnaðar- menn fengu 154 þinpmenn og bættu við sig tveitnur. en komm- únistar fengu 20 þtngmenn og bættu vrð-sií* 3. Khomeini: Öllum óhlýðnum útrýmt Tehcran — 19. sept. — Reuter. AYATOLLAH Khomeini trúar- leiðtogi lýsti því yfir i dag, að öllum andstæðingum isl- am-stjórnarinnar i íran yrði út- rýmt. Khomeini lét þessi ummæli falía í ræðu, sem hann hélt yfir flugherdeild frá Isfahan. „Þið, sem eruð ekki vel að ykkur í íslömskum fræðum, varið ykkur á að flækjast fyrir. Þjóðin hefur kosið sér íslamskt lýðveldi og allir verða að hlýða. Ef þið hlýðið ekki verður ykkur útrýmt." Lögreglan i Bilbao við herjeppann eftir að lik herforingjanna höfðu verið flutt á brott. (AP—nlmamynd) Ntí koniið aðDC-9 WashinKton. 19. sept. — AP FLUGMÁLASTJÓRN Banda rikjanna hefur fyrirskipað öll- um bandariskum flugfélögum, sem reka DC—9 farþegaþotur, að Iáta kanna hvurt sprungur sé að finna í ytri málmklæðningu þotnanna. Á mánudag var DC-9 þota frá Air Canada á leið frá Boston til Nova Scotia. Var hún skammt komin þegar aftasti hluti stélsins rifnaði skyndilega frá. Þrátt fyrir erfiðleika tókst áhöfninni að snúa við og lenda heilu og höldnu aftur í Boston. Við skoðun komu sprungur í ljós í málmklæðningu þotunnar, og sprungur fundust einnig í tveimur öðrum DC-9 þotum frá sama félagi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.