Morgunblaðið - 20.09.1979, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 20.09.1979, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1979 Dauðaslys við írafoss SEXTÍU og átta ára gamall maður, ólafur Einarsson, fannst látinn í rúmi sínu að írafossi að kvðidi 10. scptembcr sl. og Jeiddi réttarkrufninK i ijós. að hann var hofuðkúpubrotinn. Ólafur hafði fyrr um daginn verið að vinna við Irafoss og að sögn lögreglunnar á Selfossi er talið, að hann hafi fallið úr stiga og höfuðkúpubrotnað, en náð að komast inn til sín. Engin vitni voru og engir áverkar fundust á líkinu. Stiginn stóð óhreyfður við vegginn og engin ummerki fund- ust þar í kring. Ólafur lætur eftir sig tvær dætur. Þingflokkur sjálfstæðismanna: Þingstörfin rædd og undirbúin ÞINGFLOKKUR sjálfstæðis- manna kom saman tii fundar í gær. Fundinn sátu. auk þing- manna Sjálfstæðisflokksins, fulitrúar ýmissa málefna- ncfnda, scm starfað hafa á vcgum þingflokksins að upplýs- ingasöfnun, stefnumörkun og undirbúningi þingmála. Mbl. sncri sér til Gunnars Thorodd- sens, formanns þingflokksins, og spurði. hvaða mál hcfðu vcrið á dagskrá fundarins. Ilann sagði efnislega: Þingflokkurinn kom saman til fundar kl. 10 árdegis í gær og stóð fundurinn fram til kl. 5 síðdegis með hádegisverðarhléi. Á fundinum voru margir mál- efnaflokkar ræddir, svo og und- irbúningur ýmissa þingmála. Nefna má umræður um banka- löggjöf, um breytingar á verð- lagslögum, viðhorfin í vaxtamál- um, ákvörðun búvöruverðs, skýrslu olíuviðskiptanefndar og fleiri mál. Nýfundnalandsmenn kynna sér nýsmíði Slippstöðvarinnar „ÉG VIL ekkcrt um það segja nú, hvort einhver viðskipti koma út úr þessum athugunum þeirra Nýfundnalandsmanna. Við höf- um áður fengið útlendinga i heimsókn án þess að nokkuð kæmi út úr þvi, þannig að á þessu stigi vil ég ekkert láta uppi neinar vonir,“ sagði Gunnar Ragnars framkvæmdastjóri Slippstöðvarinnar á Akureyri, er Mbl. spurði hann i gær um viðræður fulltrúa útgerðarfélags á Nýfundnalandi og fulitrúa Slippstöðvarinnar. Gunnar sagði, að þetta útgerð- arfyrirtæki væri mjög stórt í 0' INNLENT sniðum. Það á 40 togara. Aðalfor- stjórar fyrirtækisins komu hingað til lands fyrir nokkru og síðar útgerðarstjóri þess og skipstjóri. Fóru þeir síðarnefndu meðal ann- ars út með Ólafsfjarðartogaran- um Sigurbjörgu, en áhugi Kan- adamanna beinist að togurum af svipaðri stærð og Sigurbjörg ÓF 1. Gunnar sagði, að Slippstöðin hefði nú engan samning um nýsmíði, en fyrirtækið er nú að smíða nótaskip fyrir Hilmi hf. á Fáskrúðsfirði og lýkur smíðinni upp úr áramótum. „Við erum búnir að hanna nokkrar tegundir af minni togurum og millitogurum og höfum verið á ferðinni að kynna mönnum þetta," sagði Gunnar. „En óvíst er, hvað út úr því kemur.“ Gunnar sagði aftur á móti mikið að gera í viðhalds- og viðgerðar- verkefnum í bili og í byrjun október verður byrjað á að setja skrúfuhringi og skipta um skrúfu- blöð í öllum japönsku skuttogur- unum, en þeir eru 7 talsins. Nemendur úr Menntaskólanum í Hamrahlið voru í sjúlfboðavinnu að búa hús Rauða krossins við Kaplaskjólsveg undir komu flóttafólksins í gær. bessir tveir knáu sveinar voru að skrapa upp gólfið í kjallaranum en uppi voru stelpur að mála. Flóttafólkið kemur í dag eftir 34 tíma ferðalag VÍETNAMSKA flóttafólkið kemur til íslands síðdegis í dag með flugvél Flugleiða frá Kaup- mannahöfn. Þá hafa þeir verið á ferðinni í 34 klst. frá því að þeir lögðu af stpð frá Kuala Lumpur í gær. í skeyti til Rauða krossins, sem sent var þegar hópurinn lagði af stað, segir að allt sé í fullkomnu lagi og allir flóttamennirnir 34 með, auk fararstjóranna Björns Friðfinnssonar og Björns Þór- leifssonar. Að sögn sr. Sigurðar H. Guð- mundssonar fara þeir beint af flugvellinum í Hvítabandið. Og eftir að fréttamenn hafa fengið að tala við þá stutta stund, fá þeir læknisþjónustu og hvíld. Sigurður sagði, að verið væri að útbúa húsið á Kaplaskjólsvegi 12, sem flóttafólkið á að búa í og er öll vinna við það unnin í sjálfboðavinnu. í gær voru nemendur úr Menntaskólanum í Hamrahlíð að mála þar og setja í stand. En þangað flyst flótta- fólkið eftir sex daga. Síldveiðiflotinn stöðvaður á Höfn — bíður „viðunandi síldarverðs” 99 „Menn eru alveg harðákveðnir I þvi að stöðva síldveiðarnar i reknet þar til viðunandi síldar- verð liggur fyrir. Okkur er tjáð að 15% hækkun sé það, sem er að verða ofan á í verðlagsráði og við skiljum ekki slíka ákvörðun, þegar haft er í huga að almennt fiskverð hefur hækkað um 38% á sama ári,“ sagði Jón Sveinsson formaður útvegsmannafélagsins á Höfn í Hornafirði í samtali ví Mbl. i gærkvöldi, en á sameigin- legum fundi síldarsjómanna og útvegsmanna á Höfn í gær var samþykkt að stöðva sildveiðarn- ar þar til viðunandi fiskverðs- ákvörðun liggur fyrir. „Við skiljum ekki hvers vegna verðákvörðunin dregst svona,“ sagði Jón. „Veiðar voru leyfðar 20. ágúst, en ekkert bólar á verði, nema hvað við höfum frétt að fulltrúar kaupenda og oddamaður séu á 15% hækkun sem er 27% lægra verð til sjómanna en al- mennt kaupgjald í landinu hefur hækkað um síðan í fyrra." Spurningu Mbl. um það, hvað menn teldu viðunandi verð, svar- Matthías Á. Mathiesen alþingismaöur: í>að verður að ná fram verulegri lagfæringu á olíukaupasamningnum — nauðsynlegt að birta skýrslu olíuviðskiptanefndar sem fyrst „ÉG TEL ÞAÐ til fyrirmyndar hversu rösklega olíuviðskiptanefnd- in undir forystu Jóhannesar Nordals hefur unnið og frá henni er komin skýrsla áður en nýir samningar verða gerðir um olíukaup,“ sagði Matthías A Mathiesen alþingismaður í samtali við Mbl. í gær. „Ég efast ekkert um að niður- stöður nefndarinnar staðfesta málflutning okkar sjálfstæð- ismanna, enda þótt ég hafi ekki haft tækifæri tii að kynna mér skýrsluna, en nauðsynlegt er að birta hana sem fyrst svo ekkert fari þar á milli mála og ráðherr- ar einir geti ekki lagt út af henni. Af viðbrögðum ráðherra, það er sjávarútvegsráðherra, má álykta að í skýrslunni sé tví- mælalaust staðfest að viðskipta- kostir okkar við Sovétmenn í dag séu með eindæmum og lífsnauð- syn að fá hagstæðari samninga um olíukaup. Okkur sjálfstæðismonnum hefur verið ljós nauðsyn þess að íslendingar séu ekki háðir olíu- viðskiptum við eina þjóð. Þess vegna höfum við verið talsmenn olíusamninga við fleiri þjóðir en Sovétmenn og þá sérstaklega Norðmenn. Slíka samninga er ef til vill ekki hægt að fá á þessu ári, eða því næsta. Því verður að ná fram verulegri lagfæringu á núverandi viðskiptasamningum og hefði viðskiptaráðherra orðið við áskorun Geirs Hallgrímsson- ar, formanns Sjálfstæðisflokks- ins, á Alþingi snemma á þessu ári, þegar sýnt var að hverju stefndi í olíumálum, og hafið þá þegar viðræður við ráðamenn í Sovétríkjunum, væri von til þess að við stæðum betur í þessum málum nú. En ekki dugar að sakast um orðinn hlut, heldur læra af reynslunni. Vonandi kemur olíu- samninganefndin, sem nú er á förum til Sovétríkjanna, heim aftur með samninga, sem við Islendingar getum við unað.“ aði Jón á þá leið, að hann héldi að menn sættu sig við að almenn fisverðshækkun gengi yfir síldina, en það-væri þá um 38% hækkun. Jón sagði, að allur síldarflotinn, nema 4 skip, lægi nú bundinn við bryggju. Þessi fjögur skip voru væntanleg inn í nótt og sagðist Jón ekki annað vitað en áhafnir þeirra væru sama sinnis og aðrir. Jón sagði að síldveiðin til þessa hefði gengið betur en í fyrra, en hins vegar væri meira af millisíld nú. Þannig hefði 31% aflans nú farið í 1. flokk, en 49,4% í fyrra. Þrjú skip með afla LÍTIL loðnuveiði var síðasta sól- arhring og síðdegis í gær höfðu aðeins þrjú skip tilkynnt um afla til loðnunefndar: Þau voru Nátt- fari 520, Albert 600, Fífill 600. Tvö fyrrnefndu skipin fóru til Siglu- fjarðar með aflann. Tölvuúr í óskilum Nýlega fannst karlmannstölvuúr í nágrenni Egilsstaða. Eigandi hringi í síma 9U12950 eða 96-23914 á Akureyri. Úrið fannst á þjóðveginum skammt frá Lagar- fljótsbrú.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.