Morgunblaðið - 20.09.1979, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 20.09.1979, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1979 33 MANNI OG KONNA HAGTRYGGING HF 4(1, -U W /% - VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 0100KL. 10—11 FRÁ MÁNUDEGI eitthvað fyrir það. Ég tel að morgunútvarpið sé þýðingarmesta útvarp dagsins. Það á að vera og hefur verið mikil heilsulind. Leik- fimi Valdimars með dillandi tón- list Magnúsar ætti enginn að sleppa því þá þyrfti ekki að leita rándýrra afslöppunarstofnana sem vel virðast þrífast hér. Bænin er iíka nauðsyn sálarinnar og gott er að ganga að verki dagsins með bæn til þess almættis sem öllu stjórnar. Til að bæta fjárhag útvarps tel ég sjálfsagt að stytta dagskrána eða þann hluta hennar sem er oftast aðeins hlustað á með öðru eyranu og er einskonar múgsefjun en bæta við og fjölga mannbæt- andi þáttum sem fólk vill ekki missa af. Hún er sannarlega ógnvekjandi öll hina ferlega tón- list sem dembt er yfir þjóðina. Það fer saman gáfulegur hávaði, hrist- ingur, skak og lamstur. Þjóðin er að glata hinni sönnu mannbæt- andi tónlist og einnig sönglistinni sem var eign almennings fyrir nokkrum áratugum. I staðinn kemur hlustun með öðru eyranu og tilheyrandi múgsefjun. Þetta er hluti af því ómenningarfeni sem stór hluti ungu kynslóðarinnar er að sökkva í. í síðastliðnum aprílmánuði stjórnaði Erna Indriðadóttir þætti um listir og menningarmál. Þar var flutt órímað kvæði sem var einhver svæsnasti pólitískur áróð- ur sem ég hef heyrt. Þarna var sami maður að verki og þýddi „Félagi Jesús" á íslenska tungu, sællar minningar. Það er sannar- lega hörmulegt þegar ungir menn með glæstar gáfur nota þær til þjóðskaðlegra óþurftarverka eins og hér hefur átt sér stað. Aðeins fátt er hér sagt af því sem segja mætti um ríkisfjölmiðl- ana tvo. Ég vona að þeir verði sá lýsandi kraftur sannrar menning- ar eins og í byrjun var ætlast til, en hætti að styðja niðurrifsöfl sem nú virðast flæða óhindrað inn í landið, ekki síst frá frændþjóð- um okkar á Norðurlöndunum. Ingjaldur Tómasson. Þessir hringdu ... • „Ólöglegt gjald“ Gísli Jónsson stjórnarmaður í Neytendasamtökunum hringdi til Velvakanda vegna athugasemda konu um reikning sem hún fékk frá Pósti og síma fyrir langa símasnúru. Gísli vildi benda á fréttatilkynningu sem birst hefði í dagblöðunum. Þar hefðu neyt- endasamtökin gert grein fyrir þessu máli. „Við teljum að það gjald sem Póstur og sími innheimtir fyrir langa snúru sé ólöglegt og styðj- umst við þar við gjaldskrá Pósts og síma. Þar er tiltekið verð á snúrunni en ekki getið um annan kostnað. Við bíðum nú eftir viðtali við ráðherra um þetta efni meðal annars. Við höfum einnig farið fram á það að þeir sem fengið hafa SKÁK Umsjón: Margeir Pótursson Á alþjóðlega skákmótinu í Manchester í Englandi fyrr í þessum mánuði kom þessi staða upp í skák Englendinganna Nigels Short, sem hafði hvítt og átti leik, og Richards Britton. 46. Hc3! (46. Hc8? hefði svartur getað svarað með h5) a2 (Skárra var 46. ... h5, 47. Bxa3 þó að hvítur standi þegar til vinnings) 47. Hg3+ - Kh6,48. BÍ4+ - Kh5, 49. Hg8!! (Erfiðasti leikurinn í fléttunni. Svartur er nú varnar- laus) al=D+, 50. Kh2 — f5,51. g4+ og svartur gafst upp. langa símasnúru frá 10. nóvember síma-þar sem af þeim hefur verið 1978 fái endurgreitt frá Pósti og heimt of hátt gjald," sagði Gísli. Söluumboó Sölumaöur meö mjög góö sambönd um land allt óskar eftir vörum í umboössölu. Allar hugsanlegar vörur koma til greina. Þeir sem hafa áhuga vinsam- lega sendi upplýsingar ásamt nafni og símanúmeri til augld. Mbl. fyrir 27. sept. n.k. merkt: „Söluumboð — 3148“. Farið ga'tilega í lausamöl. Dæmi: Kr. Kr. Denim blátt br. 115 cm. 1596 995 Denim hvítt br. 120 óm. 1695 999 Bómullarvelur br. 115 cm. 3985 1995 Flauel br. 115 cm. 1195 595 Ullarefni br. 150 cm. 1595 895 Bómull/terylene br. 150 cm. 2995 1595 Auk þess bútar í miklu úrvali HAGKAUP SKEIFUNNI Seljum meöan birgöir endast metravöru á mjög hagstæö veröi NEI, HEYRÐU NU KONNA' BILLINN HEFUR BARA LENT ÚTAF VEGINUM OG LENT Á HVOLFI. ÉG SÁ EINU SINNI BÍL A BAK- INU FYRIR UTAN VEGINN. HANN HEFUR ÁBYGGILEGA VERID ÞREYTTUR OG FARIÐ AÐ SOFA. HÖGNI HREKKVlSI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.