Morgunblaðið - 20.09.1979, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 20.09.1979, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1979 Baader-Meinhof-konu sleppt með skilyrðum Frankfurt. 19. Heptember. Reuter. ASTRID Proll, sem verið hefur félagi í Baader-Meinhof- klíkunni, var látin laus skilorðsbundið er mál hennar var tekið fyrir við dómstól í Frankfurt í dag. Proll, sem er 32 ára, er sökuð um bankarán og morðtilraun, en brezk stjórnvöld framseldu hana til Vestur-Þýzkalands fyrir þremur mánuðum. Astrid Proll kom áður fyrir rétt í Frankfurt árið 1973. Þá var henni leyft að fara í sjúkrahús, en þaðan strauk hún, og spurðist ekki til hennar fyrr en í Bretlandi í fyrra. í Bretlandi starfaði hún við bifreiðaviðgerðir. Skilyrðin fyrir því að henni var sleppt úr haldi í dag eru þau að hún fari ekki frá Vestur-Þýzkalandi og að hún mæti fyrir rétti, en ástæðan fyrir þessari ákvörðun dómarans er sú, Neitaði frúnni um lífsvökvann Falmouth. Ma.ssaschussetts, 19. sept. JOHN Maurer, sem er í söfnuði Votta Jehóva, kveðst hafa verið að hlíta vilja Guðs er hann neitaði læknum um heimild til að gefa konu hans blóð. Elanor kona hans fékk miklar blæðingar er hún var að ala manni sínum þriðju dóttur þeirra á mánudag, og blæddi henni út, en dóttirin lifði. „Við berum mikla virðingu fyrir lífinu, og reynum að halda lífi og heilsu eins lengi og unnt er,“ sagði Maurer. „Eina takmörkunin, sem við verðum að hlýða, er sú, eins og Guð segir okkur öllum í Biblíunni, að neyta ekki blóðs." Maurer segir að áður en hún lézt hafi konan fallizt á að breyta ekki gegn kenningum trúarinnar með því að láta gefa sér blóð. Hann sat hjá konu sinni meðan henni blæddi út. A meðan fóru læknarnir fjórum sinnum fram á það að fá að gefa frúnni blóð, en Maurer bannaði það. „Ég vissi allan tímann hve alvarlegt þetta var,“ segir hann, „en Guð er einnig alvörumál.“ Sex kennarar myrtir Ankara, Tyrklandi, 19. sept. — AP LÖGREGLAN í Ankara skýrði frá því í dag, að tveir óþekktir glæpamenn hefðu komizt inn í kenn- arabústað iðnskóla í borg- inni Adana í gærkvöldi, tekið þar sex unga kenn- ara, bundið þá með hendur fyrir aftan bak og skotið þá síðan alla til bana. Morðingjarnir komust ó- séðir á brott í bifreið, sem beið þeirra fyrir utan bú- staðinn. Tveir kennarar aðrir og húsvörðurinn særðust í árásinni. Ekki er vitað hvað lá að baki árásinni. Mikið hefur verið um pólitísk átök í Tyrklandi að und- anförnu, og hafa þar átzt við öfgamenn til hægri og vinstri. En tveir látnu kennaranna voru hægrisinnar, hinir fjórir vinstri- menn að sögn yfirvalda. Frá því Bulent Ecevit tók við embætti forsætisráðherra Tyrk- lands fyrir tæpum tveimur árum hafa rúmlega tvö þúsund manns misst lífið í pólitískum átökum þar í landi. að aðalvitnið í máli hennar getur ekki komið fyrir réttinn, Vitnið er annar tveggja manna, sem Proll á að hafa skotið á árið 1971, en hann er í þjónustu innanríkisöryggis- gæzlunnar og hefur fengið fyrir- mæli yfirboðara sinna um að bera ekki vitni fyrir rétti. Við réttarhöldin í dag kvaðst Proll saklaus, en víst er talið að hún hafi engin afskipti haft af pólitiskum öfgasamtökum frá því að hún var fyrst handtekin. Hún greindi frá fyrstu kynnum sínum af foringjum Baader-Meinhof á árinu 1969, en sagði ekkert um hlutverk sjálfrar sín í hópnum. Litið er á ákvörðun réttarins í dag sem vísbendingu um, að vægar en áður verði tekið á brotum þeirra, sem átt hafa aðild að hryðjuverkahópum, en innan- ríkisráðherra V-Þýzkalands, Ger- hardt Baum, skoraði fyrir skömmu á öfgasinna að ganga fram og gera grein fyrir málum sínum. Gullverð stöðugra London, 19. sept. — Reuter, AP. VERÐ Á gulli hélt áfram að hækka á gullmörkuðum víða um heim framan af degi í dag, og komst upp í 386 dollara únzan i London, en tók svo að lækka á ný. Við lokun i dag var gullverðið víðast hvar um 370 dollarar, og hafði lækkað um tvo dollara frá lokaverð- inu i gær. í Hong Kong komst gullverð- ið um tíma upp í 386,05 dollara, sem er mjög hátt þegar tekið er tillit til þess að gullið á markaðnum þar er ekki jafn hreint og það, sem selt er í Evrópu. Svarar það til um 400 dollara verðs á Évrópugulli. Gull hefur stöðugt verið að hækka í verði undanfarinn mánuð, og nemur heildar- hækkunin á þessum tíma um 25%. Ekki eru sérfræðingar á einu máli um horfurnar næstu daga, en margir spá því að gullverð breytist lítið næstu daga. Bylting Tilraunadeild RCA í Lancaster í Pennsylvaníu vinnur um þessar mundir að smíði ljósmyndavélar sem mun valda byltingu í ljósmyndun. Myndavélin verður þannig gerð að hvorki þarf að nota filmur né „flass" og engir hreyfanlegir hlut- ir verða í henni. Með henni verður bæði hægt að taka litmyndir og svarthvítar. Verðið verður svipað og á venjulegum ljósmynda- vélum og fyrstu vélarnar koma á markað eftir þrjú til fimm ár. Nýja ljósmyndavélin byggir að vissu leyti á sömu aðferðum og við gerð sjónvarpstækja. Hægt verður að sjá myndirnar samstundis á litlum sjón- varpsskermi sem verður innbyggður í myndavél- inni. Einnig verður hægt að geyma myndina í „banka" í vélinni. Nýja myndavélin tryggir nákvæmlega réttan Ht. Carter Bandaríkjaforseti í víðavangshlaupinu í Mountain Park um helgina. Forsetinn gafst upp er hann hafði hlaupið rösklega helming leiðarinnar. Myndin var tekin skömmu áður en forsetinn sprakk á limminu og hætti. Hann sagði á eftir, að sér liði ljómandi vel, en hann hefði lagt of hart að sér. Hins vegar hefði hann alls ekki viljað gefast upp og hefði eiginlega verið neyddur til þess. Kraftaverk Napoli. Italiu, 19. nept. AP. ÞÚSUNDIR borgarbúa í Napoli fögnuðu í dag með lófataki og gleðitárum þegar skýrt var frá því að blóð hafi tekið að renna úr líkneski fjórðu aldar dýrlingsins heilags Janúaríusar í dómkirkju borgarinnar — en það á að vera tákn farsæls árs fyrir Napoliborg. Corrado Ursi kardináli stjórnaði bænagjörð í dómkirkjunni, og voru um fimm þúsund kirkjugestir mættir strax í dögun í morgun. Þegar beðizt hafði verið fyrir í 63 mínútur, tók blóð að renna úr líkneskinu, og kirkjugestir hrópuðu „kraftaverk". Ursi kardináli sendi samstundis boð um „kraftaverkið“ til Napoliætt- aðra manna, sem búsettir eru í New York, en þar verður síðar í vikunni haldin hátíð heilags Janúaríusar, eða San Gennaro, eins og hann nefnist. r Ný morðalda í Uganda Kampala — 19. aeptember — Reuter. NÝ morðalda hefur gengið yfir Kampala í þessari viku. Einkenn- isklæddir menn vaða um i flokk- um og í Kampala einni hafa 20 manns verið skotnir í vikunni, en 18 að auki annars staðar i land- inu eftir því sem næst verður komizt. I einu úthveríi Kampala hafa þúsundir manna lagt á flótta af ótta við áframhald á þessari óhæfu. Að sögn Kampala-lögreglunnar virðast fæst þessara morða fram- in í auaauðgunarskyni, en erlendir sendimenn í borginni telja ekki loku fyrir það skotið að hér sé um að ræða tilraunir stuðningsmanna Idi Amins til að grafa undan hinni nýju stjórn í landinu, enda sé þrálátur orðrómur á kreiki um að Amin, sem nú dvelst í Líbýu, sé ötull við að virkja gamla stuðn- ingsmenn sína til skemmdar- og hryðjuverka í Úganda. Neue Ziircher Zeitung og Die Zeit hlutu menningarverdlaun Amsterdam, 19. september. Reuter. ERASMUS—VERÐLAUNIN fyr- ir ómetanlegt framlag til evrópskrar menningar voru í dag veitt svissneska dagblaðinu Neue Ztlrcher Zeitung og v-þýzka viku- ritinu Die Zeit. Bernhard prins í Ilollandi stofnaði tii þessara verðlauna árið 1958 og eru þau veitt árlega, ýmist einstaklingum eða stofnunum. Verðlaunaupp- hæðin nemur jafngildi 38 milljóna islenzkra króna. Neu Zúrcher Zeitung hlýtur verðlaunin fyrir „tveggja alda óháða og framúrskarandi blaða- mennsku, sem almenningsálitið í Evrópu hefur haft að leiðarljósi", en Die Zeit, „hið virta og áreiðan- lega vikurit, fær þau fyrir framlag sitt til eflingar mannúðlegri og lýðræðislegri hugsunar í Þýzka- landi eftirstríðsáranna með því að vera pólitískur og menningarlegur vettvangur hinna fjölbreytileg- ustu skoðana", eins og segir í greinargerð sjóðsstjórnarinnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.