Morgunblaðið - 20.09.1979, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 20.09.1979, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1979 Eins og létt æffing hjá Hamburger, er Valsmcnn voru lagðir að velli HAFI EINHVER gert sér vonir um að Evrópubikarleikur Vals og Hamburger SV yrði spennandi og skemmtilegur, hefur hann kannski verið í hópi þeirra fjölmörgu áhorfenda sem þegar voru farnir að streyma burt af Laugardalsvellinum i hálfleik. Þeir sem ætluðu að sjá sjálfan meistarann Kevin Keegan sýna að hann væri sá besti, urðu einnig frá að hverfa án þess að hafa barið augum það sem þeir ætluðu sér. Hamburger vann einhvern auðveldasta sigur, sem liðið hefur liklega unnið, i þessum fyrri leik liðanna. Skoruðu Hamborgararnir þrivegis i leiknum, en Valur aldrei, staðan i hálfleik var 2—0. Leiki Valsarar eins í Hamborg i sfðari leiknum, er nánast vist, að þeir hljóta hinn ljótasta skell. Það var deginum ljósara, að í fyrri hálfleik keyrðu þýsku leikmennirnir ekki broti hraðar en þeir þurftu og i siðari hálfleik hreinlega nenntu þeir þessu ekki lengur, vildu klára leikinn sem fyrst og halda áfram að skoða land og þjóð. Leikmenn Hamburger keyptu þrjú ódýrustu mörkin á útsölu Vals, einkum voru íyrstu tvö mörkin eyrnafikja á Valsmenn. Þau komu þar að auki á slæmum tima, snemma leiks, og nánast drápu leikinn i fæðingu. En þó að mörkin hafi verið ódýr, þýðir það ekki, að sigur Hamburger hafi verið óverðskuldaður. Þarna sást greinilega munurinn á þrautþjálfuðu atvinnumannaliði annars vegar og áhugamannaliði hins vegar, sem þar að auki á slæman dag. Mörkin aumu Það fyrra kom strax á 17. mínútu. Horst Hrubesch skaut þá frá vítateig laflausu skoti beint á Guðmund Asgeirsson markvörð og öllum til furðu, honum sjálfum vafalaust einnig, lak knötturinn í gegnum hendur honum og í netið. 10 mínútum síðar skoraði Hru- besch aftur, skaut í fæturna á Sævari Jónssyni og þannig breytti knötturinn um stefnu og fipaði veslings Guðmund. Átti hann enga sök á þessu marki. Maður fann til með Guðmundi þegar hann fékk á sig fyrra markið og sannast sagna reiknaði maður með því að taugar hans brystu við óhappið. Svo fór þó ekki og áður en yfir lauk var það sá sami Guðmundur Ásgeirsson sem bjargaði liði sínu frá stærra tapi með glæsilegri markvörslu. Ann- ars er það furðulegt hjá þjálfara Vals að skella Guðmundi inn í liðið í leik þennan án þess að gefa honum möguleika á að leika deild- arleiki á undan. Það hefur vafa- laust verið skýringin á því hversu óöruggur Guðmundur virtist vera framan af. Valsmenn áttu tvö markaskot í fyrri hálfleik sem talandi er um, Olafur Danivals eitt frekar laust sem Kargus varði og annað fast- ara frá Herði Hilmarssyni varði Kargus einnig vel. Tveimur vítum sleppt Wilson dómari var oft mjög á bandi Valsmanna, þannig færði hann út greinilegt brot Sævars Jónssonar á Kevin Keegan, þegar vítaspyrna virtist blasa við og ægar öllum virtist Magnús Bergs landleika knöttinn innan víta- teigs var Wilson fjarri góðu gamni og sá ekki atvikið. Svæfandi síðari þálfleikur Það var greinilegt að leikmenn Uamburger höfðu fengið skipun um að róa leikinn í síðari hálfleik. Gunther Netzer, framkvæmda- stjóri félagsins, sagði í hálfleik, að iðið mætti ekki vinna of stórt hér á Fróni, það yrði að vera einhver spenna fyrir þeirra eigin heima- eik. Valsmenn voru afar lélegir, ekkert gekk upp. Eigi að síður 'engu þeir sín bestu færi í síðari íálfleik. Kargus var þá tvívegis vel á verði, er Ingi Björn Alberts- son var á ferðinni með hausinn. Síðara tækifærið kom eftir gull- állega sókn þeirra Atla og Guð- mundar. Enn sleppt víti Enn var Wilson dómari á bandi Vals, þegar bakverðinum (eða útherjanum, það var oft ekki gott að segja hvort var) Peter Hidien var brugðið gróflega innan víta- teigs. Ekkert annað en vítaspyrna að sjá, en ekkert dæmt. Valsmenn björguðu á línu og Guðmundur Asgeirsson varði af snilld þrumu- skot þeirra Buljan, Memmering og Magath. Þrátt fyrir hamagang við mark Vals í þessum tilvikum, skiptu Hamborgararnir aldrei um gír. Þriðja markið ekki glæsilegt En þeir bættu samt þriðja markinu við. Það var Júgóslavinn Ivan Buljan sem skoraði markið. Hornspyrna var tekin frá vinstri, Keegan skallaði laglega til Hrum- esch sem skaut af stuttu færi. Guðmundur varði vel, en boltinn hrökk til Buljans sem skoraði af stuttu færi, 3—0. Þetta var á 75. mínútu. Liðin Valsliðið var með ólíkindum slakt að þessu sinni. Maður tók varla eftir öðru í sambandi við það en hve oft Ingi Björn var rang- stæður. Atli, Albert, Guðmundur og þeir allir hugsuðu margt gott og reyndu að fara eftir því, en það gekk bara ekki upp. Það virtist vanta leikgleði og baráttuvilja. Ef frá er talið fyrsta markið, má telja Guðmund Ásgeirsson með skárri mönnum í liðinu. Óli Dan. barðist vel, aðrir voru ólíkir sjálfum sér. Þýzka liðið er afar sterkt, á því er ekki nokkur vafi og fá Vals- menn fyrst að kynnast því þegar síðari leikurinn fer fram og heimavallaráhorfendurnir heimta aftöku Valsmanna. Bakvörður- inn/útherjinn Peter Hidien og Júgóslavinn Ivan Buljan voru sterkustu menn liðsins, en lítið fór fyrir ofurstirninu sjálfu, Kevin Keegan. Hann tók tvær eða þrjár platspyrnur, en ekkert meira. Annars er liðið jafnt. í stuttu máli: Laugardalsvöllur, Evrópu- keppni meistaliða, Valur—Ham- burger: 3—0 (0—2). Mörk Ham- burger SV: Hrubesch 2, Buljan. Spjöld: Engin. Áhorfendur: 10.600. Dómari: Wilson fra Norður-ír- landi. _ irv Horst Hrubesch sækir að Guðmundi Ásgeirssyni markverði Vals. Hrubesch skoraði tvö mörk í leiknum í gær. Siðustu þrjú keppnistíma bil hefur hann skorað 80 mörk í 1. deildarkeppninni í Þýskalandi, og gengur hann undir nafninu skrýmslið. Ljósmynd KrlxtjAn. allir vildu þeir fá eiginhandaráritun. Þá biðu stórir hópar af ungum stúlkum kappans er hann var á leið inn i rútuna sem keyrði Ieikmenn Hamburger. Allar hrópuðu þær i einum kór Keegan, Keegan, Keegan. Sagt eftir leikinn Nemes, þjálfari Vals: — Þetta var nokkuð vel leikinn leikur af okkar hálfu, þó sérstak- lega síðari hálfleikur. Við vorum mjög óheppnir að fá á okkur tvö fyrstu mörkin. Það má ekki gleymast þegar hugsað er um leikinn, að Hamburger er eitt besta lið í Evrópu í dag. Frammi- staða Vals er því góð og mun betri en frammistaða íslenska lands- liðsins á dögunum á móti Aust- ur-Þjóðverjum. Þetta lið er miklu betra en austur-þýska landsliðið. Zebec, þjálfari Hamburger S.V. — I kvöld sáum við muninn á áhugamannaliði og atvinnu- mannaliði. Við gerðum það sem við ætluðum, að tryggja okkur áfram í næstu umferð. Það var mikilvægt að skora tvö mörk svo snemma í leiknum. Við eigum erfiðan leik fyrir höndum í deild- arkeppninni á laugardag á móti Frankfurt á útivelli, svo að það var eðlilegt að leikmennirnir tækju lífinu með ró á köflum. — Eg á von á því að við sigrum auðveldlega í Hamborg. Lið Vals er gott af áhugamannaliði að vera og leikmenn börðust allan tímann vel og gáfust ekki upp. Vörnin hjá okkur er mjög góð og því varla von að þeim tækist að skapa sér mörg marktækifæri í leiknum. Guðmundur Ásgeirsson, mark- vörður Vals: — Mig vantar tilfinnanlega leikreynslu, það hefði munað miklu fyrir mig að hafa fengið 2—3 leiki í 1. deildinni áður en ég var látinn leika þennan mikilvæga leik. Fyrsta markið var mikið slysamark. Þegar boltinn kom við jörðina var geysilegur snúningur á honum og ég náði ekki að halda honum og missti hann í netið. Hreint út sagt sárgrætilegt. Ann- að markið var líka óheppni, bolt- inn breytti stefnu af Sævari Jóns- syni og fór í netið, ég kom engum vörnum við. Kevin Keegan, knattspyrnumað- ur Evrópu: — Við vorum hálfdaufir í þes«- um leik. Sigur okkar var nokkuð öruggur en lið Vals er gott af áhugamannaliði að vera. Margt af því sem þeir gerðu var laglegt og hugsun á bak við það. Hins vegar er oft það mikill munur á áhuga- mannaliðum og atvinnumannalið- um að hætt er við að leikirnir verði ekki skemmtilegir. Við eig- um erfiðan leik í deildinni strax á laugardag á útivelli og því er hætt við að við höfum verið að spara okkur. Ingi Björn Albertsson. — Ég er ánægður með leikinn. Við hefðum átt að sleppa með 1—0 tap. Þetta eru mjög góðir knatt- spyrnumenn. En þar sem vörn okkar var geysisterk gátu þeir lítið sýnt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.