Morgunblaðið - 20.09.1979, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 20.09.1979, Blaðsíða 36
Sími á afgreiðslu: 83033 JtUrgitnblnbit) FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1979 Firaisk otíuhreinsunarstöð vill viðskipti við ísland „FINNSKI forstjórinn sagði mér, að hann vildi gjarnan fá ísland sem oliukaupanda og þótt hann nefndi engar ákveðnar tölur varðandi verð, þá sagði hann Rotterdamverðið alitof hátt verð fyrir okkur“, sagði Davíð Scheving Thorsteinsson formaður Félags islenzkra iðnrekenda í samtali við Mbl. i gærkvöldi. Davið sagði, að hann hefði skýrt viðskiptaráð- herra, Svavari Gestssyni, frá þess- um ummæium Finnans og einnig Þórhaili Ásgeirssyni ráðuneytis- stjóra og einnig hefði Jóhannesi Nordal formanni olíuviðskipta- nefndar verið skýrt frá þeim. Davíð kvaðst hafa setið fund norrænna formanna iðnrekendafé- laga í Finnlandi fyrir hálfum mán- uði. Þar var fundarmönnum m.a. boðið að skoða fyrirtækið Neste, sem er eina olíuhreinsunarstöðin í Finn- landi. Forstjóri hennar, Aabe að nafni, flutti þá hálfs annars tíma erindi um olíumál með sérstöku tilliti til Norðurlanda. „Þegar hann kom að íslandi, sagði hann: Þið kaupið alla olíuna af Rússum. Viljið þið ekki alveg eins kaupa hana af okkur. Ég spurði þá, hvort olía væri föl og hvort hann gæti selt okkur hana og sagði hann þá, að hann hefði mikinn áhuga á slíkum viðskiptum," sagði Davíð. „í einkasamtali að erindinu loknu spurði ég hann aftur um þetta og þá staðfesti hann áhuga sinn á olíuviðskiptum við ísland. Kvaðst hann ætla að auka útflutn- inginn úr tveimur milljónum tonna í fjórar milljónir tonna á næsta ári og kvaðst gjarnan vilja fá íslenzka markaðinn inn í þá aukningu." Davíð sagði, að Neste keypti um % hráolíunnar af Rússum og um Vi af Aröbum, einkurn frá Kuwait. Hefði fyrirtækið nýlega fest kaup á þrem- ur stórum olíuflutningsskipum. Fyrsta markið 10.600 áhorfendur sáu Ham- burger S.V. leggja Val að velli, 3—0 á Laugardalsvell- inum i gærkvöldi. Á mynd- inni sést Guðmundur Ásgeirsson markvörður Vals horfa á eftir boltanum í netið er fyrsta markið var skorað. Ljósm.:Thomas Metelmann. Tillögur sjávarútvegsrádherra: Kaupum hráolíu og lát um svo hreinsa hana Frá og með deginum í dag kostar mánaðaráskrift dag- blaðanna kr. 4000.- og kr. 200.- eintakið í lausasölu. Grunnverð auglýsinga verður kr. 2.400.- pr. dálksentimeter. Með þessari hækkun hefur verið tekið tillit til ýmissa kostnaðarhækkana i sumar fram til 1. september. Áskrift- arverð í september verður þá kr. 2.500.- vegna útgáfustöðv- unar hluta mánaðarins. — ísland gerist strax aðili að Alþjóðaorkumálastofnuninni „ÉG TEL AÐ við eigum nú alveg tvímælalaust að endurskoða okkar stefnu i olíuinnkaupum og þær tillögur, sem ég hef lagt fram i rikisstjórninni, eru þess efnis, að við hverfum frá svo einhæfum viðskiptum, sem við höfum stundað og tökum þess i stað virkan þátt í olíuviðskiptum á sem breiðustum grundvelli,“ sagði Kjartan Jóhannsson sjávarútvegsráðherra, er Mbl. spurði hann í gær um efni þeirra tillagna, sem blaðið skýrði frá i gær, að hann hefði lagt fram i rikisstjórninni. „Það er út af fyrir sig ekkert nýtt að ég haldi þessu fram,“ sagði Kjartan. „Um áramótin skrifaði ég viðskiptaráðherra bréf, þar sem ég hélt fram nauðsyn okkar á þvi að kanna oliukaup með öðrum hætti en hingað til hefur tíðkast.“ Kjartan kvaðst ekki geta farið út í efnisatriði tillagna sinna, en samkvæmt þeim upplýsingum, sem Mbl. hefur aflað sér, eru þær m.a. mjög byggðar á niðurstöðum í skýrslu olíuviðskiptanefndar. Kjartan leggur til, að í viðræð- um í Moskvu í næstu viku, þar sem m.a. verður rætt um olíukaup á næsta ári, verðir megináherzlan lögð á það að breyta verðviðmið- uninni og í stað viðmiðunar við Rotterdammarkaðinn verði miðað við hráolíuverð á heimsmarkaði og síðan samið um sanngjarnan vinnslukostnað, en í skýrslu olíu- Nefnd til að fjalla um síld, loðnu og kolmunna „MÉR finnst hugmynd færeyska fiskimálaráð- herrans um sameiginlega nefnd til að fjalla um flökkufiskstofna mjög athyglisverð og tel sjálf- sagt að koma slíku sam- starfi á, “ sagði Kjartan Jóhannsson sjávarút- vegsráðherra, er Mbl. spurði hann í gær um viðræður hans og Héðins M Klein, fiskimálaráð- herra Færeyja. Héðin M. Klein sagði í samtali við Morgunblaðið að hann vonaðist til að slík nefnd íslendinga, Færeyinga og Norðmanna gæti hitzt í Færeyjum í næsta mánuði. Sömuleiðis sagði hann að drög að nýjum fiskveiðisamningi Færeyinga og íslendinga lægju vonandi fyrir í lok nóvembermánaðar. Sjá nánar á blaðsíðu 3. Héðin M. Klein sjávarútvegs- ráðherra Færeyja lyftir mynd- arlegum „aldamótakarfa“ i heimsókn sinni í frystihús ísbjarnarins í gær. Með honum á myndinni er Ingvar Vil- hjálmsson forstjóri fyrirtækis- ins. (Ljósm. Emilía). viðskiptanefndar mun einmitt bent á fordæmi slíkra samninga af hálfu Rússa við ríki í V-Evrópu. Varðandi frekari olíukaup okk- ar, leggur Kjartan til að leitað verði sem víöast eftir samningum um kaup á óhreinsaðri olíu með OPEC-verðmiðun, sem síðan yrði hreinsuð annars staðar, en í V-Evrópu munu nú talsverðir möguleikar á hagstæðum samn- ingum um olíuhreinsun vegna ónotaðrar framleiðslugetu olíu- hreinsunarstöðva. Þá leggur Kjartan til að ísland gerist þegar í stað aðili að Al- þjóðaorkumálstofnuninni og að komið verði á fót stofnun hér á landi, sem gæti hagsmuna okkar á alþjóðamarkaði og sinni aðildinni að Alþjóðaorkumálastofnuninni, en henni mundu m.a. fylgja aukn- ar olíubirgðastöðvar í landinu. Hefur Kjartan bent á þá leið, að ríkið og olíufélögin verði aðilar að þessari stofnun og þá til dæmis helmingsaðilar. í tillögum Kjartans er ennfrem- ur gert ráð fyrir því að ríkis- stjórnin leiti þegar í stað eftir frekari upplýsingum um það, hversu langt olíuleit við Island er raunverulega komin og síðan verði óskað eftir samningum við hæfa aðila til þess að halda starfinu áfram. Loks leggur Kjartan til að við frekari orkuframkvæmdir innan- lands verði höfð hliðsjón af því, hvar fá megi olíu með sem hagstæðustum kjörum, þannig að orkusala okkar verði ákveðin með olíuinnflutning í huga. Þessar tillögur Kjartans átti að ræða á ríkisstjórnarfundi í dag, þar sem jafnframt verður gengið frá skipan þeirrar nefndar sem fer til Moskvu um helgina til að ræða viðskipti okkar við Sovétmenn. Eldur í húsi: Mæðgur í sjúkrahús MÆÐGUR 38 og 4 ára voru fluttar á Borgarspitala og Landspítalann í gærkvöldi eftir að reykkafarar höfðu náð þeim út úr risi húss þar sem eldur kom upp. Slökkviliðið var kvatt að Veghúsastíg 3 í Reykjavík klukkan 21:03 í gærkvöldi. Þeg- ar slökkviliðsmenn komu að logaði eldur í eldhúsi á hæð hússins, sem er timburhús, kjallari, hæð og ris og lagði reykhaf frá eldhúsinu. Reyk- kafarar fóru upp i risið, þar sem vitað var af fólki og fundu þeir mæðgurnar í herbergi, sem er yfir eldhúsinu. Skamma stund tók að slökkva eldinn. Þriðji íbúinn, 13 ára piltur, var fjarverandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.