Morgunblaðið - 20.09.1979, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 20.09.1979, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1979 5 Lögreglan fjarlægir hestfhausinn, sem Samtök herstöðvaandstæð- inga höfðu sett á niðstöngina í Laugarnesi sl. þriðjudag. Herstöðvaandstæðingar: Reyndu að útvega annan hesthaus Á útifundi herstöðvaandstæð- inga í gær var hestshaus úr plasti komið fyrir á niðstöng- inni. LÖGREGLAN í Reykjavík fjar- lægði í fyrradag niðstöng þá er Samtök herðstöðvaandstæðinga reistu þá um morguninn i Laugarnesi. Voru stöngin og hesthausinn fjarlægð eftir að Sigurður Ólafsson söngvari og hestamaður i Laugarnesi hafði borið fram kæru við lögregluna og krafist þess að stöngin og hesthausinn yrðu fjarlægð. Taldi Sigurður stöngina vera reista í óleyfi á svæði, sem hann hefði yfirráð yfir, og auk þess væru hross frá honum á beit þarna i nágrenninu og þau hefðu fælst vegna stangarinn- ar. Fulltrúi Samtaka herstöðva- andstæðinga óskaði í fyrrakvöld eftir því að fá hesthausinn og stöngina afhenta hjá lögregl- unni. Neitaði lögreglan að af- henda hesthausinn á þeirri for- sendu að hann hefði verið settur í sorptunnu, þar sem geymdar væru líkamsleifar fleiri dauðra dýra. Því væri af heilbrigðis- ástæðum ekki hægt að afhenda þeim hesthausinn. Hins vegar fengu samtökin sjálfa stöngina afhenta. Ásmundur Ásmundsson, for- maður Samtaka herstöðvaand- stæðinga, neitaði í gær að gefa upp hvar samtökin hefðu fengið hesthausinn, sem settur var á stöngina. Liðsmenn Samtaka herstöðvaandstæðinga fóru í fyrrakvöld á stúfana til að afla sér nýs hestshauss til að nota á níðstöng, sem þeir hugðust reisa á útifundi í Sundahöfn í gær. Kom fólk úr þeirra röðum m.a. í sláturhús Sláturfélags Suður- lands á Selfossi en var tjáð að engan hesthaus væri að hafa þar. Á útifundinum í gær reistu samtökin á ný níðstöngina en þá var á henni hesthaus gerður úr plasti. Vinningar í Happdrætti FEF BIRT hafa verið vinningsnúmer í listaverkahappdrætti Félags ein- Ráðstefna um heilsuvernd fjölskyldunnar FÉLAG háskólamenntaðra hjúkr- unarfræðinga heldur næstkom- andi laugardag ráðstefnu um „heilsuvernd fjölskyldunnar" í til- efni barnaárs. Fjallað verður um heilsufar og heilsuvernd fjölskyld- unnar í nútímaþjóðfélagi. Al- mennar umræður fara einnig fram um efni ráðstefnunnar sem verður haldin á Hótel Esju kl. 10-16. stæðra foreldra og eru þau eftir- farandi: 1694 — málverk eftir Gunnar Örn, 9398 — málverk eftir Jóhann G. Jóhannsson, 2817 — málverk eftir Hring Jóhannesson, 9123 — mál- verk eftir Þórð Halldórsson frá Dagverðará, 7047 — málverk eftir Bryndísi Þórarinsdóttur, 5220 — málverk eftir Gunnar Geir, 2494 — málverk eftir Jón Kristinsson, 10840 — steinleirsskál eftir Jónínu Guðnadóttur, 10837 — verk eftir Rúnu, 10836 — verk eftir Gest Þorgrímsson, 5872 — grafik eftir Þórð Hall, 11756 — grafik eftir Helga Gíslason, 5812 — grafik eftir Ingiberg Magnúss- on, 4789 — grafik eftir Lilju Antonsdóttur. Nú geta allir prúttað markaður ársinsi III wlllwi í kjallara lönaóarmannahússins vió Hallveigarstíg. Gerið einstæð kaup Herraskyrtur verö kr. 1.500.- Allar buxur verö kr. 4.500.- Allir jakkar verö kr. 6.900.- Blússur verö kr. 2.000.- Kápur og kjólar kr. 10.000.- Herraföt verö kr. 19.900.- Unglingajakkar 3.900.- Ath. Nú er hver síðastur aö gera ótrúleg kaup. Prútt- markaðurinn er til hádegis laugardag. HERRAFATNAÐUR — DÖMUFATNAÐUR — UNGLINGAFATNAÐUR — BARNAFATNAÐUR — HLJÓMPLÖTUR — EFNI/ EFNABÚTAR Karnabær Björn Pétursson H.F. Steinar H.F. Belgjagerðin

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.