Morgunblaðið - 20.09.1979, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 20.09.1979, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1979 17 Nýr borgarmála- flokkur ræður ferð- inni í Stokkhólmi Stokkhólmi. 19. september. AP. NÝ stjórnmálahreyfing, sem ekki vill kenna sig við stjórnmálaflokka, vann óvænt þrjú sæti í borgarstjórn Stokkhólms í kosningunum um helgina. og hefur nú í hendi sér hver kjörinn verður formaður fárveitinga- nefndar. en sú staða jafngildir forsæti borgarstjórnar. í borgarstjórn situr 101 fulltrúi, en þar af hlutu jafnaðarmenn 48 fulltrúa, sem er einum færra en í síðustu byggðakosningum, og borgarflokkarnir, sem hafa farið með stjórn borgarinnar síðasta kjörtímabil. fengu 50 fulltrúa, eða tveimur færra en í síðustu kosningum. Marika Froberg, einn borgar- fulltrúa Stokkhólmsflokksins, hinnar nýju borgarmálahreyfing- ar, hefur vísað á bug ummælum Ulf Adelsons, núverandi formanns fjárveitinganefndar, um að hinir þrír fulltrúar Stokkhólmsflokks- ins muni sitja hjá við atkvæða- greiðslu um þetta áhrifaembætti, en Adelson taldi slíka afstöðu samræmast málflutningi Stokk- hólmsflokksins í kosningabarátt- unni en þá lýstu frambjóðendur því yfir hlutleysi varðandi flokkapólitík. „Við sitjum ekki hjá,“ segir Marika Foberg, „við getum ráðið úrslitum og borgar- stjórnarflokkarnir verða að taka upp samningaviðræður við okkur. Fangavörð- ur skotinn Belfast. Norrtur-írlandi. 19. sept. AP. EDWARD Jones, aðstoð- ar-forstöðumaður Crumlin Road-fangelsisins í Belfast, var skotinn til bana í bifreið sinni í dag skammt frá fang- elsinu. Árásarmennirnir voru að minnsta kosti tveir og komust þeir undan. Arásinni í dag svipar mjög til atburðanna á föstudag í fyrri viku, þegar nokkrir fangaverðir óku saman frá fangelsinu. Skotið var á bifreið þeirra, og féll einn fangavarðanna, en annar særðist hættulega. Segist írski lýðveldis- herinn, I.R.A., hafa staðið fyrir þeirri árás. Alls hafa nú 13 starfs- menn fangelsanna á Norður-ír- landi verið myrtir undanfarin tíu ár, þar af fimm á þessu ári. Suður í írska lýðveldinu heldur lögreglan áfram rannsókn á morð- inu á Mountbatten jarli af Burma, sem myrtur var 27. ágúst s.l. Fimm menn, allir frá Norður-ír- landi, voru handteknir í Dyflinni í dag og færðir til yfirheyrslu. Mennirnir fimm voru ókomnir á fætur þegar lögreglan réðst inn til þeirra snemma í morgun, og hjá þeim fundust bæði skotvopn og skotfæri. Eru nú sjö manns í yfirheyrslu hjá lögreglunni í írska lýðveldinu, auk tveggja sem sak- aðir hafa verið um aðild að morð- inu á Mountbatten. Þetta gerist 1978 — John Vorster, forsætis- ráðherra Suður-Afríku, segir af sér. 1977 — Víetnam fær aðild að SÞ. 1970 — Sýrlenzkt skriðdrekalið sækir inn í Jórdaníu til hjálpar skæruliðum. 1967 — „Queen Elizabeth 11“ hleypt af stokkunum. 1906 — „Mauretania" hleypt af stokkunum. 1870 — Sameining Ítalíu verður að veruleika. 1857 — Bretar taka Delhi eftir umsátur síðan í júní. 1854 — Orrustan um Alma. 1792 — Orrustan um Valmy. 1697 — Ryswick-sáttmálinn und- irritaður (ófriði Frakka, Englend- inga, Hollendinga og Spánverja lýkur). 1530— Marteinn Lúther ráðlegg- ur þýzkum mótmælendaprinsum að búa sig undir stríð. Helzta slagorð Stokkhólms- flokksins er „Börn í stað bíla“, en flokkurinn beitir sér meðal annars fyrir 50% samdrætti umferðar í miðborginni og að barnaheimilum verði fjölgað mjög verulega. Sokkhólmsflokkurinn hefur engan formann, en aðstandendur hans eru umhverfisverndarfólk og borgarar, sem segjast ekki treysta stjórnmálamönnum til að fara með mál sín. I flokknum eru nú um 400 félagar og hefur sam- starfnefnd boðað til útifundar á fimmtudaginn kemur þar sem gangið verður frá stefnuskrá vegna væntanlegra samningavið- ræðna við hina rótgrónu stjórn- málaflokka. Veður víða um heim Akureyri 2 alskýjaö Amsterdam 17 rigning Aþena 28 heiðskírt Berlfn 21 rigning Brdssel 19 skýjaö Chicago 25 heiöskírt Feneyjar 21 skýjaö Frankfurt 25 heiöskírt Genf 24 heiöskírt Helsinki 15 skýjaö Hong Kong 28 skýjað Jerúsalem 28 skýjaö Jóhannesarborg 24 heiöskírt Kaupmannahöfn 17 skýjaö Lissabon 24 skýjaö London 19 skýjað Los Angeles 35 heiöskírt Madrid 26 skýjaö Malaga 25 alskýjaö Mallorca 27 hólfskýjaö Miami 30 heiðskírt Montreal 24 heiðskírt Moskva 12 rigning Nýja Delhí - 32 rigning New York 27 heiöskírt Ósló 18 heiöskírt Parfs 23 heiöskírt Rio de Janeiro 19 rigning Reykjavík 5 skýjaö Róm 28 heiðskírt San Francisco 20 heiö8kírt Stokkhólmur 15 skýjaö Tel Aviv 29 skýjað Tókýó 33 rigning Vancouver 20 heiöskfrt Vfnarborg 26 heiöskfrt 1520— Suleiman I verður Tyrkja- soldán við andlát Selim I föður síns. 1519 — Sæfarinn Magellan fer frá Spáni í heimssiglingu til að finna vesturleiðina til Indlands. 480 f.kr. — Grikkir sigra Persa í sjóorrustunni við Salamis, Eyjahafi. Afmæli. Upton Sinclair, banda- rískur rithöfundur (1878—1968)= Sophia Loren, ítölsk leikkona (1934----). Andlát. Robert Emmet, írskur ættjarðarvinur, líflátinn, 1803 = Jakob Grimm, fræðimaður, 1863 = Pablo de Sarasate, fiðluleikari, 1908 = Jean Sibelius, tónskáld, 1957. Innlent. Leiðangur Akureyringa kemur á slysstað „Geysis" 1950 = Páfabréf um árás barbara á byggðir Grænlendinga 30 árum „Frelsisstökkið“ Skipulagðar pynt- ingar og ofsókn- ir í Afghanistan segir Amnesty International Lundúnum. 19. sept. Reuter. AMNESTY International hefur birt skýrslu þar sem stjórnvöld í Afghanistan eru sökuð um skipulögð brot á mannréttindum á því ári, sem liðið er frá valdaráni Tarakkis í apríl í fyrra. Tekið er fram, að skýrslan hafi legið fyrir um síðustu helgi er Tar- akki forseta var steypt af stóli, en óljóst er nú hvort Tarakki er enn í tölu lif- enda eða hvort hann ligg- ur í sjúkrahúsi vegna skotsára. I skýrslu Amnesty kemur fram að þúsundum Afghana hafi verið haldið í fangelsi af pólitískum ástæðum án þess að mál þeirra hafi verið tekin fyrir frá því að Tarakki komst til valda, auk þess sem fjöldi pólitískra fanga hafi verið pyntaðir og réttaðir án dóms og laga. Amnesty telur sig hafa sannanir um að fólk hafi verið hýtt, beitt raflostum og margs konar pyntingum öðrum, meðal annars hafi tíðkazt að draga af því neglur. Hafizullah Amin, sem nú situr á forsetastóli í Afghanistan, sagði í ræðu á mánudaginn var, að fram- vegis yrði engum varpað í fangelsi í landinu án undangenginnar ákæru, enda yrðu fangar sem ekki hefðu verið ákærðir látnir lausir. Amnesty telur að í einu fangelsi í Kabúl séu samankomnir um 12 þúsund pólitískir fangar. Féll á eigin bragði Tókýó, 19. september. AP. LÖGREGLAN í Osaka skýrði frá því í dag, að stjórnmálamað- ur nokkur hefði látizt af völd- um hnífstungu, sem hann átti sjálfur sök á í þeim tilgangi að afla sér samúðar kjósenda í þingkosningunum í næsta mán- uði. Hafði stjórnmálamaðurinn. Jintaro Itoh að nafni, haft í hyggju að tilkvnna um framboð sitt af sjúkrabeðinu. þar þar sem hann ráðgerði að gróa sára sinna. Komu þessar upplýsingar frá samherjum Itohs þegar málið var rannsakað, og sögðu þeir hann hafa lagt á ráðin um „morðtilræðið“ í síðustu viku. Viðurkenndi einn þeirra að hafa lumbrað á Itoh samkvæmt fyrirmælum hans sjálfs, en síð- an lagði hinn látni stjórnmála- maður með sveðju í lær sér. Svo alvarlegur varð áverkinn að hann lézt í blóðmissi rétt eftir komuna í sjúkrahús. 24. sept. Eiturmálið í Hamborg: 1500 manns fluttir á brott áður 1448 = d. Magnús Guð- mundarson allsherjargoði 1240 = Geir Vídalín biskup 1823 = Nefnd skipuð í fjárhagsmálinu 1861 = 34 farast og mikið tjón á skipum og húsum í ofsaveðri 1900 = 11 drukkna nálægt Akranesi 1905 = Gengisfelling 1931 = Minningarat- höfn um þá sem fórust með „Pourquoi Pas?“ 1936 = Sigur Islendinga í 2 flokki á skákmóti í Buenos Aires 1939 = „Esja“ fer frá Petsamo 1940 = Freigáta kemur með fimm skipbrotsmenn til Hornafjarðar 1972 = Bráðabirgða- lög 1974 = f. Ríkarður Jónsson 1888 = Vilhjálmur Hjálmarsson 1914. Orð dagsins. Meðalmennska þekkir ekkert æðra sjálfu sér. En hæfileikar koma samstundis auga á snilligáfu. — Sir Arthur Conan Doyle, brezkur rithöfundur (1859-1930). llamborK. 19. september. Reuter. LÖGREGLAN flutti í dag fimmt- án hundruð manns af svæðinu þar sem nú fer fram víðtæk leit að eiturgassprengjum. Brott- flutningurinn er i öryggisskyni, en borgarráð Ilamborgar liggur undir þungu ámæli vegna máls þessa eftir að átta ára drengur lét lífið í sprengingu þegar hann var að leika sér á svæði Stoltzen- bergverksmiðjunnar, sem er í Eidelstedt, fyrir skömmu. Varnarmálaráðuneytið vísaði í dag á bug frásögn Hamborgar- blaðs í dag, en þar kom fram að ráðuneytið hefði keypt eiturgas af verksmiðjunni fyrir fimm árum. W Oeirdir í Rotterdam Rotterdam. Hollandi. 19. srpt. AP. UM SJÖ þúsund af 13 þúsund hafnarverkamönnum i Rotterdam hafa verið i verkfalli i tæpan mán- uð. og hefur lítið orðið um árekstra i vcrkfallinu þar til i dag. Lögregl- an hefur litil afskipti haft af vcrk- fallsmönnum. þótt þeir hafi haft frammi aðgerðir til að stöðva vinnu þeirra sex þúsunda hafnarverka- manna. sem ekki eru i verkfalli. En í dag gaf Andre van der Louw borgarstjóri lögreglunni fyrirmæli um að koma i veg fyrir að verkfalls- menn gætu truflað vinnu við höfn ina. Riddaralögregla og lögreglumenn með hunda og vatnsslöngur hindruðu um 300 verkfallsmenn í að stöðva vinnu við vöruskála við höfnina, og einnig kom lögreglan í veg fyrir að verkfallsmenn settust að í gáma- geymslu. Einn lögreglumannanna særðist er múrsteini var kastað í höfuð hans, og sex verkfallsmenn voru handteknir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.