Stuðlaberg - 01.01.2012, Blaðsíða 29

Stuðlaberg - 01.01.2012, Blaðsíða 29
STUÐLABERG 1/2012 29 Kristján Runólfsson las góða ljóðabók í október 2012 og brást við með vísu: Bókaval ber stökur, blíðar til þjóðlýða, blær fyllir brageyra, bætir sem gómvæta. Skoplegum skárdrápum, skáldið í hring sáldrar. Mælskuna menn elska, mæra sem list tæra. Sigurður Óttar Jónsson rafvirki við Lagar- fossvirkjun orti um andvökuna: Mér öldungis meinar þrátt mara þung að sofa. Lostaþrungin kelar kátt kynlífshungurvofa. Inni á Boðnarmiðinum á Fésbókinni rakst ég á skemmtilega vísu sem tengist um- ræðunni um staðbundinn framburð, nánar til- tekið það fyrirbæri þegar fólk á í erfiðleikum með að bera fram fráblásin lokhljóð. Skúli Pálsson orti: Sötrar latte, lapþunnt te og ljóðamjöðinn þunnan; nennir ekki að púa p pakkið fyrir sunnan. Og Sigmundur Benediktsson orti fallega vísu um Stuðlaberg: Þjóðtungunnar mátt og merg magni stefjaglíma. Styrkum rótum Stuðlaberg standist nýja tíma. Það er út af fyrir sig heilmikil rímkúnst að yrkja sléttubönd þannig að vel fari. En stundum er vísan auk þess þannig að merk- ingin snýst við þegar hún er lesin aftur á bak. Þetta jafngildir því meðal hagyrðinga þegar glímukappar taka svarta beltið í júdó. Örlygur Benediktsson orti eftirfarandi nú fyrir stuttu: Þerrir Stunda reglu, fráleitt fer fullur yfir strikið. Funda milli edrú er, aldrei þjóra mikið. Væta Mikið þjóra, aldrei er edrú milli funda. Strikið yfir fullur fer, fráleitt reglu stunda. Nú í lok október, þegar Nubo Huang lýsti því yfir í fjölmiðlum að hann væri farinn að yrkja ljóð út úr sárindum sínum yfir Íslend- ingum, orti Höskuldur Búi Jónsson eftirfar- andi hækur: Haustið hrímar sand Huang yrkir ljóðin smá. Napurt Norðurland. Vantraust vekur fár vantar orkusjóð og trú. Nú er Nubo sár. Hér eru bæði ljóðstafir og rím en hæku- forminu haldið að öðru leyti. Gaman væri að heyra álit bragáhugafólks á þessari nýjung. RIA. Mælskuna menn elska Lausavísnaþáttur

x

Stuðlaberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stuðlaberg
https://timarit.is/publication/1892

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.