Stuðlaberg - 01.01.2012, Blaðsíða 13

Stuðlaberg - 01.01.2012, Blaðsíða 13
STUÐLABERG 1/2012 13 þar sem segir frá því er Óðinn tók á sig dular- gervi og gekk fyrir Heiðrek konung. Tók hann sér nafnið Gestumblindi og lagði fyrir konung gátur í bundnu máli. Alla tíð síðan hafa hag- yrðingar spreytt sig á að fela orð eða hug- myndir í bundnu máli. Vísnagátur geta verið með ýmsu móti. Al- gengt er að gáta sé með þeim hætti að henni sé svarað með einu orði og hver braglína hafi þá að geyma mismunandi merkingu orðsins. Þannig eru vísnagátur í samnefndri bók Páls Jónassonar sem Bókaútgáfan Hólar hefur sent frá sér. Bókin er 59 blaðsíður að stærð og vísnagáturnar eru 120. Við hverri þeirra er eitt svar, eitt orð sem skýrir merkingu hverrar braglínu. Til að setja saman þessa gerð af vísum þarf góða bragkunnáttu og auk þess þekkingu á íslensku máli, á atvinnusögu og lífsstíl þjóðarinnar fyrr og nú og mörgu öðru sem þarna ber á góma. Sem dæmi skoðum við gátu nr. 100: Hún er kvilli höfði á, huglaus talinn maður sá, húsdýr vítt um heiminn er, og heitið stjörnumerki ber. Páll Jónasson hefur áður sent frá sér bók- ina Hananú – 150 fuglalimrur (Hólar 2007). Hringhendur Sigmundar Ben. Þegar vísan verður til ... 333 hringhendur og dýrt kveðnar vísur nefnist bók sem Sigmundur Benediktsson hefur sent frá sér. Útgefandi er höfundurinn sjálfur. Bókin er 143 síður. Sem dæmi um kveðskap Sigmundar skoðum við vísu sem er ekki bara hringhend heldur átt- stikluð eða áttþættingur: Sólin gljáir suðri hjá sumarháa gullinbrá, geislum lágum lýsir þá landið smáa norðurfrá. Og hér má líta afar vel kveðin sléttubönd: Ómar vakan söngva senn sáttir kvaka vinir. Hljómar stakan unga enn undir taka hinir. Aftan á bókarkápu er umsögn Sigurðar Sigurðarsonar, dýralæknis, um kveðskap Sig- mundar. Þar segir meðal annars: „Sigmundur leikur sér að því að yrkja undir dýrum háttum. Það getur ekki hver sem er. Yrkisefni hans eru margs konar. Oftast yrkir hann um náttúruna, gróður jarðar, sólina, veðrið, landið, fólkið og stökuna. ... Að jafnaði er hlýr strengur í ljóð- um Sigmundar, sjaldan kerskni eða kuldi. Það er fengur að þessari bók og unun að lesa hana fyrir alla þá sem unna góðum kveðskap.“ JR

x

Stuðlaberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stuðlaberg
https://timarit.is/publication/1892

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.