Stuðlaberg - 01.01.2012, Blaðsíða 12

Stuðlaberg - 01.01.2012, Blaðsíða 12
12 STUÐLABERG 1/2012 Lán í óláni Bókaútgáfan Hólar hefur sent frá sér vísnabókina Lán í óláni eftir Hjámar Frey- steinsson, heimilislækni á Akureyri. Bókin er 77 blaðsíður að stærð, oftast tvær vísur á hverri síðu ásamt skýringartexta sem fylgir vísunum. Hjálmari bregst ekki bogalistin frekar en venjulega. Vísurnar eru hver ann- arri betri. Sá sem hér skrifar fagnar auk þess skýringartextunum. Lausavísur verða að fá að hafa sitt tilefni. Þær eru ortar í tengslum við ákveðna atburði eða eru einhvers konar túlkanir á hugrenningum höfundarins og verða fyllri og markvissari ef þeim fylgir ör- lítil frásögn. Lausavísur hafa enda gegnum tíðina gengið manna á milli með skýringum og tilvalið er að halda þeim sið á prentinu ekki síður en í munnlegum flutningi. Hjálmar er þekktur hagyrðingur. Áður hefur komið út limrukver eftir hann (Heitar lummur, Hólar 2008) og vísur hans hafa víða birst á prenti. Til að sýna lesendum dæmi um kveðskap Hjálmars vel ég ljóð sem kallast Lítið kvæði frá aðventu 2008. Það er að finna aft- ast í bókinni, í svokölluðum Öðrum ábæti, eins konar viðauka við meginefnið. Hér er reyndar enginn skýringartexti eins og víðast er þó að finna annars staðar í bókinni. En þessar vísur skýra sig sjálfar. Vísurnar hljóða þannig: Hér kemur jólasveinasaga, sorglega hana kalla má. Axarsköft gerðu alla daga enda var græðgin að pína þá. Nýgerða skó og nesti fengu, nýta vildu sér góðan byr. Hugðust búa til auð úr engu útrásarjólasveinarnir. Montsögum þeirra margur trúði, mikið reyndist þó lánið valt. Nú ætla Grýla og Leppalúði að láta rannsaka þetta allt. Vísnagátur Páls Jónassonar Vísnagátur hafa löngum verið vinsælar á Íslandi. Elstu dæmi um slíkar þrautir mun vera að finna í Hervarar sögu og Heiðreks (Fornaldarsögur Norðurlanda II 1950:36-51) Lífleg útgáfustarfsemi Umsagnir um vísnabækur útgefnar á árinu JR

x

Stuðlaberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stuðlaberg
https://timarit.is/publication/1892

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.