Stuðlaberg - 01.01.2012, Blaðsíða 19

Stuðlaberg - 01.01.2012, Blaðsíða 19
STUÐLABERG 1/2012 19 síðar Haraldur á Kambi mér nærri, en Káinn var kannski í mestum metum. Nú hefur þú væntanlega lifað og starfað með mönnum sem ortu dægurlagatexta og skeyttu hvorki um stuðla né höfuðstafi. Hvað fannst þér um það? Ljóðstafir og rím eru í raun sama eðlis og taktur í tónlist og gegna því svipuðu hlut- verki í ljóðagerð og tónsmíðum. Ég hef því alla tíð verið áfram um það að viðhalda þess- ari íslensku hrynjandi og var á tímabili orðinn uggandi um að þessi íslenski ljóðataktur væri að deyja út. Ég dáist mjög að því hve mikil áhrif Megasi tókst að hafa á því tímabili sem enskan og metnaðarlítil textagerð á íslensku voru orðin yfirþyrmandi. Hefur aldrei hvarflað að þér að sleppa ljóðstöf- unum? Kröfur um takt setja því skorður í ákveðnu formi hvernig menn raða saman tónum, og svipað gera ljóðstafir og rím. Það geta komið upp afmarkaðar aðstæður þar sem ekki er hægt að móta hugsun sína á bestan hátt í viðjum þess og við slíkar undantekningarað- stæður tel ég að megi réttlæta frávik – en þó sem allra minnst. Margir tala um að síðustu ár hafi dægurlaga- höfundar í auknum mæli tekið að nota ljóðstafi, kannski stundum með misjöfnum árangri. Hefur þú orðið var við þessa þróun? Aftur kem ég að Megasi og áhrifum hans. En „misjafn árangur“ er reyndar ekki eingöngu bundinn við yngri dægurlagahöf- undana. Stundum hafa hinir eldri, jafnvel þeir allrabestu, dottið í þá pytti að ljóðstaf- irnir hafa ekki verið í sama hljómfalli og lagið. Dæmi: „Í Barcelona var lagleg hnyðra / með limi netta og svarta brá.“ Lítur vel út á blaði, en þegar lagið er sungið koma áherslurnar svona: „Í Barcelona var lagleg hnyðra / með limi netta…“ Og þannig heldur þetta áfram lungann úr þessu lagi og mörg fleiri dæmi má nefna. Stundum er raunar ómögulegt að láta ís- lensku hrynjandina fylgja hinum erlenda takti. Getur þú sagt frá einhverju sérstöku og eftir- minnilegu sem henti þig á hagyrðingamótum eða samkomum þar sem þú varst að skemmta með eigin kveðskap? Það var nokkurs konar ögurstund fyrir mig þegar ég skemmti í fyrsta skipti á héraðs- móti á Laugum í Þingeyjarsýslu og svonefnd- ir fjórmenningar, hinir snjöllu þingeysku hagyrðingar, fóru á kostum, en unga fólkið í salnum var farið að verða órólegt, forvitið um gestinn að sunnan sem átti að skemmta á eftir þeim. Þá sagði Egill að fyrst unga fólkið léti svona, myndu þeir láta hér staðar numið og kvaddi með lokastöku, sem ég man að endaði á orðunum að verið væri… „að bíða eftir fífl- inu að sunnan.“ Ég var kynntur í sömu mund og man, að mér fannst ég eiga undir högg að sækja. Í mik- illi spennu glímdi ég við að setja saman eftir- farandi stöku á leiðinni upp tröppurnar á svið- inu sem ég heilsaði fólkinu með: „Ofsagróða

x

Stuðlaberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stuðlaberg
https://timarit.is/publication/1892

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.