Stuðlaberg - 01.01.2012, Blaðsíða 16

Stuðlaberg - 01.01.2012, Blaðsíða 16
16 STUÐLABERG 1/2012 Því var slegið upp á forsíðu Morgun- blaðsins haustið 2008 að fundist hefðu vísur sem Halldór Laxness hefði skrifað haustið 1914, þá 12 ára, í póesíbók, eða minninga- bók, skólasystur sinnar, Þórdís ar Dagbjartar Davíðsdóttur.1 Vart hins rétta verður gáð, villir mannlegt sinni, fái æsing æðstu ráð yfir skynseminni. Haltu þinni beinu braut, ber þitt ok með snilli, gæfan svo þér gefi’ í skaut guðs og manna hylli. Haft var eftir Halldóri Guðmundssyni, sem hafði skrifað ævisögu Halldórs Laxness, að honum fyndist „flest benda til þess að hér sé kominn elsti varðveitti kveðskapur Hall- dórs Laxness, nema einhver kannist við þær sem eldra höf undarverk eða þjóðvísur.“ Blað- ið sagðist hafa borið vísurnar undir fjölmarga sérfræðinga í kveðskap og þjóðháttum og allt bendi til þess að Halldór sé höfundurinn. Strax daginn eftir sagði Morgunblaðið frá því að síðari vísan væri til í vísnasafni Héraðs- skjalasafns Skagfirðinga, en önnur línan væri þar aðeins öðruvísi (berstu því með snilli). Vísan var eignuð Þorleifi Jónssyni frá Vatnsdal í Austur-Húna vatnssýslu (f. 1878, d. 1958).2 Þetta var að vísu ekki í fyrsta sinn sem vísurnar tvær birtust í íslenskum dag blöðum. Þær voru báðar í minningar grein um eiganda bókarinnar, og það í Morgunblaðinu, vorið 1998.3 Einnig var sagt frá bókinni og vísunum í DV vorið 2002.4 Þá var tekið fram að ekki væri öruggt að vísurnar væru eftir Halldór. Nú er komið í ljós að þessar tvær vísur, orðréttar, birtust um jólin 1908 í blaði sem Davíð Östlund, prentari og forstöðu maður safnaðar aðventista, gaf út og nefndist Fræ- korn. Yfirskriftin var „Stökur“ en undir vís- unum var einungis „J.“.5 Ekkert er hægt að fullyrða um það hver er höfundur vísnanna. Margir koma til greina. Einn þeirra er Jón Jónsson frá Hvoli í Ölfusi (f. 1859, d. 1949). Hann bjó lengi í Reykjavík, starfaði sem prentari og orti í svipuðum anda, en vísurnar eru ekki í ljóðasafni hans.6 Jón vann í prentsmiðju Davíðs Östlund og var stundum kallaður Frækorna-Jón.7 Benda má á að í sama tölublaði Frækorna er þýddur sálmur eftir J. J. og einnig „Tvö Haltu þinni beinu braut Um stökur skrifaðar í póesíbók 1914 Stökurnar sem birtust í Frækornum þegar Halldór Guðjónsson frá Laxnesi var sex ára.

x

Stuðlaberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stuðlaberg
https://timarit.is/publication/1892

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.