Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1980, Page 10

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1980, Page 10
Of mikill idingur til að flytjast utan Björn gengur til vopna sinna, en þau eru Nikon myndavél og flugvól af Rockwell-gerö. . . segir BJORN viðskiptafræðingur og Ijósmyndari, sem fengið hefur freistandi tilboð frá erlendum aðilum eftir vel heppnaöa sýningu á myndum frá íslandi í Nikon House í New York. í samtali við Lesbók greinir Björn frá Ijósmyndaraferli sínum og í næstu opnu eru litmyndir, sem hann hefur tekið. RÚRIKSSON Hver er sá maður sem gengur um með glóðvolgt próf frá Viðskiptafræði- deild Háskóla íslands uppá vasann, hampar kandídatsritgerð um stjórnun- arfræði, flýgur um hálendiö þvert og endilangt meö stýrið í annarri hendi en Nikon-myndavélina í hinni og efnir til sýningar á myndunum í New York? Þeir geta varla veriö mjög margir, sem þessi lýsing á við; ætli við ákveðum ekki hér í upphafi máls, aö hún eigi aðeins^við Björn Rúriksson. Verður þá nærtækt að spyrja næst, hvort eigi sé hann einhamur, maðurinn sá og heföu einhverntíma þótt sjást allmörg sverð á lofti hjá þeim er heggur svo títt. Víst hefur Björn haft nokkur járn í eldinum, rétt er það og nokkuö telst það utan viö alfaraleiðina, þegar menn með önnur eins próf láta sér helzt koma til hugar aö munda myndavél — með listrænan ávinning í huga. Listrænan ávinning og árangur, en einnig ýmislegt fleira. Ljósmyndin gegn- ir þvílíku hlutverki í samfélagi okkar, að erfitt er að marka henni bás. Hún getur þegar bezt lætur orðið sjálfstætt lista- verk, en einnig heimild, kennslugagn, auglýsing, eða frétt. Og kannski getur hún orðiö þetta allt. Viö skulum heldur ekki slá því föstu hér og nú, að Björn muni umfram allt annað helga sig Ijósmyndun, þótt hann hafi náð árangri, sem sýnist vel sam- bærilegur viö þá sæmdarmenn, sem hafa getiö sér orö á þessu sviöi og látiö ganga á þrykk bækur og fengið Nóbels- skáld til aö blása í segliö. Björn getur ekki svarað þeirri spurningu sjálfur, að hve miklu leyti hann muni helga sig þessari eftirlætisiðju sinni. En hann hefur gert eitt áhlaup; ráðist á garðinn þar sem hann er hvað hæstur — og náð fótfestu. Framhaldið er undir honum

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.