Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1980, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1980, Blaðsíða 2
þessu fjölbreytilega og fallega, sem þarna var aö sjá, mun ég líklega lengst muna bláu kaffikönnuna, sem ein heyskaparkonan hélt á lofti í hópi fólksins, sem var aö drekka engja- kaffið, bláu kaffikönnuna og bláa fjallið í baksýn? Kannski hreyföi þessi sjón viö einhverri blárri bernskuminningu um engjakaffi löngu liöins tíma í sveitinni hjá ömmu. Sofandi fjölskyldan. Málverk eftir norska málarann Christian Krogh. Óteljandi eru þær ánægjustundir, sem ég hef átt á myndlistarsýningum og söfnum hérlendis og erlendis og ég dauðöfunda þá listamenn, sem geta tjáö sig án orða. Oröin eru oft svo lúin, útjöskuö og snjáö og langflestir nota alltof mikiö af þeim — og koma samt ekki orðum aö því, sem þeir vildu segja. Góö mynd getur oft sagt mikla sögu eöa veriö sem orölaust Ijóö. Samt efast ég ekki um, aö málarar eigi oft í svipuöu stríöi viö litina og rithöfundar viö orö og gangi stundum erfiölega aö finna þá liti, sem í hugum þeirra búa. Þegar ég geng ut af sýningu eöa safni, er ég næstum alltaf viss um hverjar voru beztu myndirnar. En samt er þaö svo skrýtiö, aö margar þessar beztu myndir eru gleymdar fyrr en varir, en kannski hafa ein- hverjar allt aðrar tekið sér svo fasta búsetu í hugskotinu, aö þær hverfa þaðan aldrei meir. Ef til vill eru þetta ósköp litlar myndir, sem maöur veitti ekki sérstaka athygli innan um aðrar stærri og glæsilegri, en listamannin- um hefur samt tekizt aö túlka í þeim einhver eilíf sannindi, sem ná frá hjarta til hjarta. Þaö eru víst á milli 20 og 30 ár síðan ég sá sýningu Grétu Björnsson í gamla Listamannaskálanum. Mig hálfminnir, að Jón Björnsson, maður hennar væri líka þátttakandi í þess- ari sýningu. Eitt er víst, ég man þarna ekki eftir nokkrum sköpuöum hlut — utan einni lítilli mynd, sem mér finnst hafa hangiö lengst til vinstri á suöurveggnum. Ég held hún hafi heitiö 17. júní á Ströndum. í forgrunni var hvítmálað hús meö fánastöng og íslenzka fánann strekktan í stormi viö hún, en bakgrunnurinn og mestur hluti myndarinnar var hvítfextur, blá- grænn öldusjór og maöur gat næst- um fundið nístandi vorkuldann, sem líklega er jafnalgengur og vorhlýjind- in hér á landi. Þarna tókst þessari sænsku tengdadóttur íslands aö túlka í örfáum dráttum og meö hnitmiðuðum litum aldagamla frels- is- og sjálfstæðisþrá þjóöarinnar og löngun okkar til aö halda þjóöhátíð- ardaginn hátíölegan úti undir beru lofti, þó aö oft hafi þaö raunar ekki veriö hægt vegna veðurs. Önnur tengdadóttir íslands, dönsk, Karen Agneta Þórarinsson, átti á einhverri sýningu, sem ég man alls ekki hvenær eöa hvar var, mynd, sem ég gleymi aldrei. Þar sá í bláan sumarhimin út um gamlan baöstofu- glugga í djúpri tóft og vindurinn bæröi grasstráin, sem uxu upp á litlu rúðurnar. Hver var innan viö þessar rúður og horföi á sumarið líöa hjá? Var þaö móöir, sem sat yfir veiku barni, farlama gamalmenni eöa ein- hver veikur Ljósvíkingur? Ég veit ég gleymi aldrei, gulu, sólbööuöu fjallahnjúkunum hans Valtýs Péturssonar á Sumarsýning- unni á Kjarvalsstööum 1979. Þeir skullu á manni eins og fáránleg lygasaga um leiö og maður gekk í salinn. En örfáum vikum seinna sá ég sjálfa náttúruna fara langt fram úr listamanninum í ýkjum sínum, þegar hún yfirlýsti Móskaröshnjúkana og dró þá fram úr blámóöu rigningar allt í kring eins og meö sterkri aðdráttarlinsu. Á árinu 1980 ber langhæst í huga mér sýningu Kristínar og Gerðar á Kjarvalsstööum. Þar var svo margt fallegt, aö endalaust mætti upp telja. Samt fann ég ekki uppstillingu Krist- ínar, sem birtist á forsíðu Lesbókar- innar í vor og mér finnst eitt þaö allra fegursta myndljóð, sem ég hef séö. Ég leitaði aö þessari mynd um alla Kjarvalsstaöi, en hún var ekki þar. En hver getur útskýrt þaö, aö af öllu I fyrstu utanlandsferð minni fyrir næstum 30 árum fór ég á tvö málverkasöfn, Rasmus-Meyers- safniö f Bergen og Konstmuseet í Gautaborg. Þar hreifst ég mest af þjóölífsmyndum Chritians Krohgs í Bergen, af sofandi barni í litla, kubbslega, rauöa trérúminu, sem hann notar oftar en einu sinni í myndum sínum og í Gautaborg man ég enn, aö Heklufarþegar dáöust af mynd þess sama Chritians Krohgs af gamla skipstjóranum, sem breiddi úr siglingakortunum í hallandi stýris- húsinu. Samt hefur mynd, sem ég man ekki í hvoru safninu var, hvaö hún hét né eftir hvern var, greypt sig óafmáanlega í huga minn: Maður og kona, sem standa sitt hvoru megin viö opnar dyr út í bjarta, norræna sumarnótt. Þar tókst listamanninum aö túlka á sterkan og sannfærandi hátt þessa ótrúlegu næturbirtu norö- urhjarans, sem íbúar suörænna landa trúa hreint ekki aö sé til. í Kunsthistorisches Museum í Vín- arborg komst ég aldeilis í feitt aö skoða fjöldamargar sveitalífsmyndir Brúhgels. Samt man ég ekki eftir einni fremur en annarri. Aftur á móti gleymi ég aldrei skelmska glettnis- brosinu í augum eins engils Rubens, sem lék sér viö hvítt lamb. Þar tókst listama.nninum aö festa á léreftið eilífa kátínu barns, sem viö skulum vona, aö aldrei líöi undir lok á þessari stressuöu jörö. Mér verður stöku sinnum hugsáö til litlu stúlkunnar á finnsku málverki í Atenunl-listasafninu í Helsinki. Hún liggur þar undir sæng á lágum setbekk í gömlum bæ meö svala- drykk í viðarkönnu á gólfinu fyrir framan sig, alein og yfirgefin. Ég vona, aö henni leiöist ekki mjög mikið. í haust „fann “ ég á Þjóölistasafn- inu í Oslo einn þann mesta dýrgrip, sem ég hef augum litið lengi: „Bláu Parísarstúlkuna" eftir Munch. Að vísu heitir myndin þetta víst ekki, en hún er máluð í París skömmu fyrir aldamótin síöustu. Ég hef einu sinni komiö á hiö veglega Munch-safn í Oslo, en ég efast um að ég fari þangað aftur. Ég er ekki meiri bógur en þaö aö ég treysti mér varla til aö upplifa alla þá dapurö og sálarkvöl, sem skín út úr myndum þessa þjáöa listamanns og nísti mig inn í innstu sálarkviku. í Þjóðlistasafninu er stór salur helgaöur verkum Munchs, en Parísarstúlkan er á yfirlætislausum staö í hliöarsal. Þetta er lítil mynd, máluö á viö. í blárri hálfbirtu stendur grönn, fáklædd stúlka og þvær sér upp úr vaskafati í fátæklegum lista- mannahíbýlum uppi á einum hana- bjálka Parísarborgar um aldamótin. Kyrrö og friöur fylla myndina og maöur hefur á tilfinningunni, aö listamaöurinn hafi veriö hamingju- samur, þegar hann málaöi hana. © I

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.