Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1980, Blaðsíða 21

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1980, Blaðsíða 21
SKAK Margeir Pétursson hverjir séu efnilegustu meistar- arnir. Á Möltu um daginn var það kornungur Sovétbúi, hinn 17 ára gamli Garry Kaeparov, sem at- hyglin beindist að framar öðrum. Kasparov er nýjasta tromp Sovét- manna í skákinni og þeir ætla honum að koma í stað Karpovs þegar fram líða stundir. Kasparov er fæddur í Bakú við Kaspíahaf árið 1963 og bar fyrst nafnið Garry Weinstein. Þegar hæfileik- ar piltsins uppgötvuðust og hann fór að hefja keppni á erlendum vettvangi, þótti Weinstein nafnið ekki nægilega rússneskt og skák- sambandið eystra skírði piltinn upp á nýtt og lét hann heita Kasparov, en því nafni svipar Hvítt: Kasparov (Sovétr.) Svart: Marjanovic (Júgóslavíu) Drottningarindversk vörn 1. d4 - Rf6, 2. c4 - e6, 3. Rf3 - b6,4. g3 - Bb7, 5. Bg2 - Be7,6. 0-0,0-0, 7. d5!? (Eftir einvígi þeirra Korchnois og Polugajevskys um daginn hefur þessi peðsfórn notið mikilla vin- sælda. Líklega er hún svörtum þó ekki eins skeinuhætt og úrslit margra skáka gefa til kynna.) exd5, 8. Rh4 — c6, 9. cxd5 — Rxd5,10. Rf5 - Rc7 (í tólftu einvígisskák sinni við Polugajevsky lék Korchnoi hér 10 ... Bc5? og stóð uppi með hálftap- að tafl eftir 11. e4 — Re7,12. Rxg7! — Kxg7, 13. b4 — Bxb4, 14. Dd4+ eign Sovétríkjanna og Búlgaríu í fimmtu umferð: Hvítt: Georgiev Svart: Kasparov Sikileyjarvörn 1. e4 - c5, 2. Rf3 - d6, 3. d4 - cxd4, 4. Rxd4 — Rf6, 5. Rc3 — a6, 6. Bg5 — e6, 7. f4 — Dc7 (Algengara er 7 ... Be7 eða leikur Polugajevskys 7 ... b5) 8. Df3 - b5,9. 0-0-0V~0. (Eitt sinn var 9. Bxf6 talið bezt hér, en eftir 9 ... gxf6 10. e5 — Bb7, 11. Dh5 — b4, 12. Rxe6 var Dc8! leikið með góðum árangri í skák þeirra Wedberg og Novos- elski á móti í Kladovo í Júgóslavíu í ár) b4, 10. e5 - Bb7, 11. Rcb5! - axb5,12. Bxb5+ - Rfd7 Hver verður næsti heimsmeistari? Heimsmeistarakeppnin i skák er nú langt komin og af öllum þeim sem hófu keppni standa nú einungis tveir menn eftir, þeir Viktor Korchnoi, sovézki útlag- inn, sem nú býr í Sviss, og Robert Húbner frá V-Þýzkalandi. í ein- vígi þeirra er Korchnoi talinn sigurstranglegri, en það er samt nærri samdóma álit flestra skák- áhugamanna að hvor þeirra sem vinni, verði núverandi heims- meistara, Anatoli Karpov, ekki velt úr sessi á næsta ári. Korchnoi hefur þegar tvívegis att kappi við Karpov og þrátt fyrir það að hann hafi í bæði skiptin, fyrst 1974 og svo 1978, tapað aðeins með einum vinningi var hann í bæði skiptin langt á eftir allt þar til undir lok einvígjanna. Þá byrjaði hann fyrst að vinna skákir og sló, að því er virtist Karpov algjörlega við hvað úthald snerti. Á næsta ári verður Korc- hnoi hins vegar orðinn 52ja ára, en Karpov aðeins þrítugur. Þrátt fyrir einstaka seiglu og baráttu- vilja Korchnois er því hætt við að endaspretturinn verði honum ekki eins drjúgur og í hinum tveimur einvígjunum. Frumlegur en rökréttur skák- stíll Roberts Húbner er tæplega fullnægjandi vopn gegn skákvél- inni Karpov, því að stutt er síðan Húbner gerðist atvinnumaður í skák og hinum mörgu hjálpar- kokkum heimsmeistarans ætti vart að vera skotaskuld úr því að finna gloppu í byrjanakerfi Þjóð- verjans. Upp á síðkastið virðist Húbner þó hafa gert stórátak í því að lagfæra þennan aðalveikleika sinn, þ.e. kunnáttuleysi í byrjana- fræðunum, og ætti eftir nokkur ár að hafa góða möguleika gegn Karpov, þ.e. ef tækifærið eftir- sótta gefst, því að ekki skortir hann hæfileikana. Þegar velt er vöngum yfir því Hver muni hrifsa heimsmeistara- titilinn úr höndum Karpovs eru þeir Korchnoi og Húbner því sjaldan hafðir í huga, heldur er leitað til mun yngri manna. Á Ólympíuskákmótum hittist mikill fjöldi skákmanna og þar gefst gott tækifæri til að kanna furðulega mikið til nafns heims- meistarans. Eftir að hafa staðið sig fremur slælega í alþjóðlegum drengja- mótum, m.a. því sem Jón L. Árnason vann í Frakklandi 1977, vann Kasparov öllum á óvart undanrásir sovézka meistara- mótsins árið 1978 og varð síðan um mitt mót í úrslitunum, þá aðeins 15 ára. Upp á 16 ára afmæli sitt hélt hann síðan með því að sigra á geysisterku móti í Banja Luka í Júgóslavíu í fyrra. Síðan hefur hver árangur hans verið öðrum betri og nú í haust var hann valinn í sovézku Ólympíu- sveitina, yngstur allra sem sú upphefð hefur hlotnast. Forráðamenn sveitarinnar þurftu ekki að sjá eftir því vali sínu, því að Kasparov gegndi lykilhlutverki innan sveitarinnar og það má telja næstum öruggt að án hans hefði Sovétmönnum aldrei tekist að merja sigur á Ólympíuskákmótinu. Meðan á mótinu stóð var hann síðan út- nefndur stórmeistari af FIDE og er í dag langyngstur þeirra sem þann titil bera. Stíll Kasparovs minnir að mörgu leyti á Fischer. Fátt eða ekkert nýtt í byrjanafræðinni fer fram hjá honum og þrátt fyrir ungan aldur hefur hann samt lagt mikið af mörkum til hennar sjálf- ur. Sjálfstraust hefur hann mikið, enda er hann óhræddur við að beita hvössustu afbrigðunum á hverjum tíma, svo sem Fischer forðum. Á Ólympíuskákmótinu á Möltu var Kasparov hvíldur í fyrstu umferð enda varamaður. Eftir slakan árangur sovézku sveitar- innar gegn Venezúela var honum hins vegar gefið tækifæri og skákir sínar við Grikkja og Aust- urríkismenn vann hann að því er virtist án nokkurrar fyrirhafnar. Hann tryggði síðan sess sinn í sveitinni í fjórðu umferð mótsins, en þá tefldu Rússar við Júgóslava. Var hann þá sá eini sem vann sína skák. Á sama tíma og félagar hans í sveitinni voru að semja stór- meistarajafntefli við Júgóslavana var hann að taka á móti uppgjöf andstæðings síns sem þó var stórmeistari: — f6, 15. Dxb4. Þess má geta að síðar á Ólympíumótinu kom þessi staða upp í skák Polugajevskys, sem hafði hvítt, og Michael Stean, aðstoðarmanns Korchnois. Fram- haldið þar var: 10 ... Rf6,11. e4 — d5, 12. Rc3 — dxe4, 13. Bg5 — h6 14. Bxh6 - gxh6, 15. Dcl - Bc8, 16. Rxh6+ - Kh8, 17. Hdl og hvítur hafði sóknarfæri fyrir manninn. Skákinni lauk síðar með jafntefli.) 11. Rc3 - d5, 12. e4 - Bf6, 13. exd5 — cxd5,14. Bf4 — Rba6,15. Hel - Dd7? (Hér kom 15 ... Rc5! sterklega til greina, því ef hvítur tekur peðið aftur hefur svarti tekist að létta verulega á stöðu sinni. Nú veldur aftur á móti þessi óheppileg drottningarstað- setning svarti þungum búsifjum) 16. Bh3! - Kh8, 17. Re4! - Bxb2,18. Rg5! (Þessi staða er nánast ótrúleg. í aðeins 18 leikjum hefur hvíti tekist að staðsetja alla léttu menn sína beint fyrir framan svörtu kóngsstöðuna) Dc6 (Leikið til þess að geta svarað aðalhótun hvíts, 19. Dh5 með Dg6) 19. Re7 - Df6, 20. Rxh7! - Dd4, 21. Dh5 - g6, 22. Dh4 - Bxal, 23. Rf6+ og svartur gafst upp. Eftir 23 ... Kg7 er 24. Rf5+ fljótvirkast. 6. Bg5 gegn Najdorf afbrigðinu hefur jafnan verið mikið teflt í Búlgaríu, og Kasparov réðst því ekki á garðinn þar sem hann var lægstur er hann beitti Najdorf afbrigðinu gegn Georgiev í viður- 13. Rxe6! - fxe6,14. Dh3 - Kf7, 15. f5! (Það er orðið ljóst að Kasparov hefur lent inni í banvænu heima- bruggi. 15. .. Rxe5 er nú svarað með 16. fxe6+ — Kg8,17. e7! og 15 ... Hxa2 einfaldlega með 16. fxe6+ — Kg8,17. exd7. Hann reynir því í örvæntingu að ná gagnsókn:) Be4,16. Íxe6+ - Kg8,17. Db3! (Nytsamur leikur. Hvítur valdar ekki aðeins mát á c2 heldur hótar máti um leið!) Bxc2 (Eina vonin, því 17 ... Rc5 má svara með 18. Dc4 — d5,19. e7!) 18. Dxc2 — Dxc2+, 19. Kxc2 — Rxe5, 20. e7 — Bxe7 (Hér átti undarlegt atvik sér stað. Kasparov taldi Georgiev hafa snert bæði peðið á d6 og biskupinn á el um leið og krafðist þess að hann dræpi peðið á d6 með hrók. Ekki var skorið úr um það hvort Búlgarinn hefði í raun snert báða mennina, en hann átti hvort eð var rétt á að velja annan leikinn af þessum tveimur og þar sem 21. Hxd6 er auðvitað út í hött kom auðvitað ekki annað til greina en hann fengi að leika hinum leiknum. Þar með fauk síðasta von Kasparovs út í veður og vind.) 21. Bxe7 - Rbc6, 22. Bxd6 - Ha5, 23. Hd5 - Hxb5, 24. Hxb5 - Rd4+, 25. Kbl - Rxb5, 26. Bxe5 - Kf7, 27. Hcl - Ke6, 28. Hc5 — Rd6, 29. Kc2 og Georgiev vann auðveldlega. Þetta þýddi það að Rússar urðu að sætta sig við 2:2 jafntefli við Búlgara, en Kasparov var samt gefinn kostur á að bæta fyrir tapið í næstu umferð. Hætt er við að 7 ... Dc7 gegn þessu afbrigði Naj- dorf afbrigðisins sjáist ekki aftur á næstunni eftir þessa glæsilegu skák. Næstu skák sína vann Kasparov af ótrúlegum léttleika: Hvítt: Kasparov (Sovétr.) Svart: Ligterink (Hollandi) Drottningarindversk vörn I. d4 - Rf6, 2. c4 - e6,3. Rf3 - b6,4. g3 - Bb7, 5. Bg2 - Be7, 6. Rc3 Kasparov hefur greinilega ekki haft áhuga á að sjá endurbót Hollendingsins á skákinni við Marjanovic) Re4, 7. Bd2 - Bf6, 8. 0-0 - 0—0,9. Hcl — c5,10. d5 — exd5, II. cxd5 — Rxd2 (Eftir 11 ... Rxc3, 12. Bxc3 — d6, 13. a4 hefur hvítur einnig þægilegri stöðu.)Rxd2.13. Rde4! (Walter Browne lék hér 13. a3 gegn Grúnfeld á Lone-Pine mót- inu í fyrra, vafalaust með þeirri hugmynd að leika síðar b4. Kasp- arov hefur einnig b4 í huga, en útfærsla hans er miklu hvassari) He8? (Svartur hefur ekki tíma fyrir þennan eðlilega leik, svo sem kemur síðar í ljós. Hann varð þegar að hefjast handa með að þróa drottningarvæng sinn og leika 13 ... a6 eða 13 ... Ra6) 14. Dd2 - a6 ( Nú var 14 ... Ra6 ekki mögulegt vegna 15. Rb5! — Be7, 16. Df4) 15. b4! Mjög öflugur leikur. Ef 15 ... cxb4 þá 16. Rxf6+ — Dxf6, 17. Re4 og síðan 18. Dxb4. Eða 15 ... Bxc3, 16. Dxc3 — Bxd5, 17. Rxd6! — Dxd6,18. Hfdl) Be7,16. bxc5 — bxc5,17. Df4! (Kemur í veg fyrir að svartur nái að koma mönnum sínum á drottningarvæng í spilið. Aftur hefur Kasparov tekist að snúa á reyndan andstæðing þegar í upp- hafi skákar) Dc7, 18. Ra4 - Da5, 19. Hbl - Bxd5, 20. Rb6 — Bxe4, 21. Bxe4 - Ha7, 22. Rc8! (Smiðshöggið. 22 ... Hxc8 gengur auðvitað ekki vegna 23. Df5) Rc6, 23. Rxa7 — Rxa7,24. Bd5 og svartur gafst upp. Auk þess sem hann er skiptamun undir,- hefur hvítur öll járn í hendi sér eftir 24 ... Hf8, 25. Hb7 - Rc8, 26. Hfbl. Kasparov tefldi alls 12 skákir á Ólympíumótinu og hlaut úr þeim 9‘A vinning, eða tæp 80%. Til gamans má geta þess að núver- andi heimsmeistari, Anatoly Kar- pov, tók fyrst þátt í Ólympíumóti árið 1972 í Skopje. Þá vann hann tólf skákir, gerði tvö jafntefli og tapaði einni, og hlaut því 13 vinninga úr 15 skákum sem jafn- gildir 86,7%. Tæpum þremur ár- um síðar var hann orðinn heims- meistari. Kasparov hefur fjögur ár fram til ársins 1984, en þá fer næsta einvígi um heimsmeistara- titilinn fram. Miðað við framfarir hans síðustu tvö árin ætti slíkt einvígi ekki að vera mjög fjarlægt markmið.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.