Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1980, Blaðsíða 15

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1980, Blaðsíða 15
Þrír útlendir söngvar í íslenzkum búningi eftir Þorstein Gylfason Otto Julius Bierbaum: Fröken Hadda Hlíðan (Fraulein Gigerlette) Lag eftir Arnold Schönberg Fröken Hadda Hlíðan bauð mér heim í te. Velúrkjól sinn víðan bar, hann var sem sé fannhvítur og fleginn, slagiö flakatrúss. Biskup mundi feginn finna hana í eigin persónu innanhúss. Las mér Ijóðræn kvæði, ó hve létt vort geð! Deildi á dulræn fræöi sem viö drukkum teö. Glös frá Biering barmafyllti og bar fram verð. í gullnum kertabjarma hún geislaði af sjarma og af sundurgerð. Það var líkast lygi hversu létt hún sló „Pour une petite fille“ á sitt píanó. Allt í einu blæs þar bíll frá BSR. Úti er ævintýri: Amor undir stýri. Meðalsnotur skyldi manna hverr. Ruggiero Leoncavallo: Morgunsöngur (Mattinata) Lag eftir Ruggiero Leoncavallo Er morgunn í möttlinum hvíta hóf mansönginn, sól mín, til þín, já, hvað þú varst Ijómandi að líta! Og líttu á hvaö heimurinn skín! En fífillinn tárast í túni við tindrandi geislanna dans. Enn sefur í svanhvítum dúni hún Sóley mín, leiksystir hans. Komdu á fætur, fuglarnir kvaka! Fagnaöu degi og syngdu með mér! Þá mundi sólin sumarið vaka sæi hún hve yndisleg stúlkan mín er. Gabriele d’Annunzio: Rósamunnur (A’ vucchella) Lag eftir Francesco Paolo Tosti Sjá augun blíð sem brenna og bros á rósamunni. Eg bráðna meira og minna við mýkt vara þinna. Já, allt ber aö sama brunni. Ég biö þess, rósamunnur, sem konur ættu að kunna, æ, kysstu mig nú, Gunna! Já komdu ég skal kenna þér kossa tvenna og þrenna, já kæra hvort ég nenni! Mjúkur rauður munnur er eins og rósarunni. Ég bráöna meira og minna við mýkt vara þinna. Sjá augun blíð sem brenna ... ég bráðna meira og minna við mýkt vara þinna. Gigerlette (Otto Juliiís Bierbaúm) Ziomlieh ru*rh. /irrli. h AIINOLD SCIIOLvNBKHt; ^-.-n3 p /?» w-rr\ t j: JIh f f r ] v- t r *-■ p r r c r ■— * r(, H m ■■ l ■ tnn. Selbst cin Miinrh, icl. wot sh • hc (íi - (Tr- 0 f:* f t|. t PP kf t. ... Ai Hi • ' - 3 U III I MIIN I Ml 'II l't 1)1 l'lll It'. 1 .. 3CL-10I8 Lnd im Trnl.mil Vie-rcn f..h-ro (HÖS m iLf n 'fff Ifftj J- J— t—r m ééééí j - - r [JT ■i. . r |i jff.j.,-. r ■■■■K ~f -t ■ ' . iJp ‘r- fnl * lig i=wn.n.i \ ; =r, r *- i 1 - - rrv p N''- épíN m pff iin s éé p-rr i' — i 3i—4= ,1 - g -. . i' ii a T"r - 4— r '■■1 í - - P- ' BFI.-I0I8 BFL-1018

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.