Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1980, Blaðsíða 20

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1980, Blaðsíða 20
Stefán G. Jökulsson Sorg Skógur minn, nú er fegurð þín fölnuð. Sölnuð lauf þín feykjast sem reköld um svörðinn og í stingandi kulda sofa stofnar þínir naktir. Afengur ilmur þinn berst ekki lengur með blænum og dögg þín í dögun glitrar ei lengur á hvarmi. Þú stynur þungan en vinur ég veit að líkt og sorgin grefur gleðinni farveg muntu í vorþeynum vakna og vekja í sál minni fögnuð og frið. Gunnar E. Sigurðsson í leikhúsi lífsins Englakórinn syngur silfurtærri röddu. Söngurinn er helgur svo heimur öðlast lag. Daggarperlur glitra í geislum morgunroða smástirni er kvíðið að koma fram í dag. Sólglamparnir flögra, feykja jarðarskugga, geysast fram með stjörnu er snýst nú allt í vil. Þá hrífur með sér ljósið í leifri augabliksins rökkurtjald er fellur um fyrstu þáttaskil. í kjallaranum logar ljós frá grútartýru hvar einleikari vafstrar á veikum klaufafótum. hendurnar sem lyftast í lófataki Adams telja augablikin og tíminn flettir nótum. Einu sinni var bók... Ég er stödd í bókasafni bæjarins með börnin mín fjögur. Við ætlum að búa í Þórshöfn í Færeyjum um nokkurra vikna skeið. Úti er rigning og blástur, og heima í stóru íbúðinni, sem við höfum að láni, er lítið viö aö vera. Aðeins hið nauösynlegasta var haft meðferðis yfir hafið. Leikföng eru fá og blöð og bækur, sem viö keyptum í Reykjavík til ferðarinnar eru marglesin. Nú ætlum viö að eyða góðri stund í bókasafninu við að lesa og skoða, því sumir eru enn ekki læsir vegna síns lága aldurs, og aðrir skilja aöeins sitt móð- urmál. Börnin á aldrinum fjögurra til ellefu ára eru himinlifandi glöö, þegar þau komast í raun um að hér eru til margar bækur og blöö, sem þau þekkja aö heiman. Það er eins og þau hitti langþráða vini. Gaman er að horfa á þau, taka eina bókina af annarri úr hillum og hólfum, og kætast við. Þau tala hvert í kapp viö annað. Sjáið þið, hér er þessi og þessi, mamma, hér er Andrés önd og Mikki mús til líka. Alveg eins blöð og heima, segja hin yngri. Eldri börnin finna fljótlega eitt- hvað við sitt hæfi. Aö lokum eru öll systkinin sezt viö borö í þægilega stóla, hvert meö sína bók, og gleyma sér fljótt. Ég tek stefnuna upp á hæöina fyrir ofan barnabókastofuna, þar sem aörar bækur eru geymdar. Mikið er úrvaliö og því meiri vandi aö velja. Nú er ég í Færeyjum og nú les ég færeyskar bókmenntir, hugsa ég. Ég leita — og finn. í öllu bókaflóðinu held ég allt í einu á bók, sem ég þekki. Mér ferst eins og börnunum áðan. Mér finnst ég hafa fundið eitthvað, sem er mér mikils virði. Ég sest með bókina en opna hana ekki. Þarf þess ekki. Aö horfa á bókarkápuna er nóg. Ég verð glöö og þakklát fyrir að eiga minninguna enn, um ógleymanlega bók. Þessa bók. Ég var á fjórtánda árinu og bróöir minn ellefu ára. Veturinn var langur og dimmur í sveitinni okkar. Skólaganga var stutt en við vorum mikið fyrir bókina, eins og sagt var, og sífellt vantaöi lesefni. Þær fáu bækur, sem viö áttum, kunnum viö næstum utan að. Svo var það í skammdeginu, að pabbi fékk lánaðar bækur í bókasafni sveitarinnar. Þaö var alltaf mikið gleöi- efni, þegar pabbi eöa stóra systir fengu lánaðar bækur, en þau voru meðlimir í Lestrarfélaginu. Pabbi kom með fáar bækur í þetta sinn, og lét þau orð falla að vanda, aö við ættum ekki alltaf að liggja í bókum. Annars væri þarna ein ný saga, en hún væri ekkert fyrir okkur, engin barnabók hélt hann. Hvort bókin var fyrir okkur eða fyrir hvern, hugsaði ég ekki um. Ég las hana í áföngum alltaf þegar ég sá mér færi á. Ég las hana aftur og aftur. Þetta var færeysk skáldsaga, sem hreif mig meö sér til þessarar frænd- þjóöar okkar, þangaö sem sagan átti aö hafa gerst. Þrátt fyrir það, að ég vissi að sagan var skáldverk, fannst mér hún það eðlileg að atburðir hennar gætu verið raunverulegir. Bróðir minn var ekki alveg sáttur viö bókina í fyrstu, enda næstum þrem árum yngri en ég og sennilega höfum viö ekki skiliö efni bóka á sama hátt. Þegar ég fullyrti aö sagan væri góð, las hann hana líka. Er viö töluðum saman um efnið eins og við gerðum oft, þegar við lásum sömu bækur, komst ég að því að bróöir kunni mörg samtölin úr þessari sögu og ennfremur lék hann sögupersónurnar. Þetta var reyndar vanalegt að bróðir geröi, meö barnabækur og fleira, sem hann heyrði sagt. Sjálf kunni ég ekki samtöl reiprenn- andi en var betur heima í mannnlýsing- um og atburðum. Á meðan skammdegið grúfði yfir sveitinni undum viö í fámenninu við að þylja söguna til skiptis, leika úr henni og lesa hana enn betur. Okkur fannst við þekkja fólkiö, sem viö lásum um, rétt eins og þaö væri búandi á næstu bæjum. Viö töluðum um þetta fólk og mund- um öll nöfn þess. Svo niöursokkin vorum viö í þessa dægrastyttingu, aö það var eins og aö vakna af draumi, þegar pabbi sagði dag nokkurn aö nú ætlaði hann að skila bókunum úr Lestrarfélaginu. Við vorum búin að hafa þær alltof lengi og fleiri en viö vildu lesa þær. Við bróðir vissum að hér dugðu engin mótmæli. Við yröum að sjá af bókinni góðu, og við flettum aðeins í henni að skilnaöi til að festa okkur enn betur í minni ýmsa snjallar setningar. Bókinni var skilað og viö misstum þar vin. Við hugguðum okkur viö að alltaf væri hægt aö rifja upp söguna, svo vel sem við kunnum hana. En svo undarlegt var þaö aö lengi á eftir minntist hvorugt okkar á bókina, eða fór meö neitt úr henni. Önnur hugðarefni tóku við. Svo var þaö morgun einn, er ég hafði veriö nokkra stund á fótum og var að hjálpa til í eldhúsinu, að bróöir kom nývaknaöur til aö fá sér morgunhress- inguna. Hann hafði dreymt merkilegan draum. „Systir,“ sagði hann. „Mig dreymdi að væri komið framhald af bókinni. Ný bók um feögana." „Ný bók um feögana," endurtók ég og var strax viss um viö hvaöa bók og feðga hann átti. „Lastu eitthvað og hvað stóö í henni?“ spurði ég áhugasöm. Hann hafði ekkert lesið. „Þetta er alltaf svona í draumum," sagði bróðir. „Ég man greinilega aö ég hélt á bókinni og var aö skoða hana, mjög ánægður. Framan á henni var mynd af feðgunum og fyrir neðan hana stóð: Ketill sér grind í austri, og svo var draumurinn búinn.“ „Þú er kannski berdreyminn. Ef til vill kemur önnur bók,“ sagði ég í huggun- arskyni við okkur bæöi. Ég vildi ekki síöur en hann, aö draumurinn rættist og við gætum lesiö meira um feðgana. En draumar rætast ekki alltaf og ekki þessi draumur hans bróöur míns. Ég er ein meö hugsun minni og held á bók. Skyndilega er friöurinn úti. Sonur minn á tólfta ári kemur til mín og segir: „Mamma, þaö eru margar Ástríks- bækur til hérna á dönsku. Þær eru ekki til á íslenzku. Heldurðu að þær verði ekki þýddar bráðum svo ég geti fengið þær heima? Þær eru svo ofsalega spennandi." Ég horfi á drenginn. Hann er á svipuöum aldri og bróöir, um þaö leyti er viö lásum færeysku bókina foröum. Tímar breytast og menn með, en sagan endurtekur sig. „Þessar myndasögur koma fljótlega á markaðinn heima, vertu viss,“ segi ég. „Þær eru svo vinsælar og mikiö keyptar og þær verða þýddar á ís- lenzku. En sjáöu nú þessa bók. Ég og frændi þinn í sveitinni lásum hana, þegar viö vorum krakkar og enn erum við að bíða eftir framhaldinu." Ég sýni honum bókina og hann hefir það aö segja aö svona langar sögur nenni hann ekki að lesa, í þeim séu engar myndir og auk þess sé þessi bók þannig að — „Já, þessi bók er þannig," gríp ég fram í, „að þú þarft ekki að segja mér neitt um hana.“ Síðan geng ég frá henni þar sem ég tók hana og viö mæögin höldum af staö niður á viö, til systkinanna þriggja. Þau eru hin ánægðustu og spyrja hvort hafi veriö gaman hjá mér líka. Þaö var gaman hjá mér. Aö vísu haföi ég ekkert lesið. Ekki svo mikiö sem opnaö bók. En ég fann enn betur en áöur hve auöug ég var, aö eiga svo góða og skýra minningu um ágæta bók. Minningu, sem myndi geymast áfram, ómenguð eins og hún hafði varöveizt hjá mér í áratugi. Slík bók þurfti ekkert framhald.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.